Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Side 14
14
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996 JjV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@ismennt.is - Áuglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.
Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu fomni og í gagnabönkum án endurgjalds.
Hættuleg skilaboð
Lögreglustjóraembættið í Reykjavík hefur sent þau
hættulegu skilaboð til erlendra fikniefnasmyglara, að
óhætt sé að flytja slík efni til íslands, því að ekkert sé
gert í málinu, þótt upp komist. Um áramótin lét embætt-
ið lausa ítalska konu, sem staðin hafði verið að verki.
Konan flutti nærri hálft kíló af hassi landsins á leið
sinni frá Indlandi um Amsterdam til íslands. Starfsmenn
tollgæzlunnar á Keflavíkurvelli gripu konuna, sem var
úrskurðuð í rúmlega viku gæzluvarðhald. Við yfir-
heyrslur sagðist hún hafa ætlað að nota allt hassið sjálf.
Erfitt er að sjá fyrir sér slika stærðargráðu í einka-
neyzlu af hálfu ferðamanns. Samt var konunni sleppt úr
haldi hjá embætti lögreglustjórans í Reykjavík án dóms,
án frávísunar og án kyrrsetningar. Hún var einfaldlega
látin sleppa og tók fyrsta flug til Amsterdam.
Konan var ekki afhent ítölskum yfirvöldum, svo að
marklítið er að segja, að mál hennar verði sent til Ítalíu
til refsiákvörðunar. Það er einsdæmi, að glæpamönnum,
sem staðnir hafa verið að verki í einu landi, sé sjálfum
falið að skila sér til yfirvalda í allt öðru landi.
Þótt málið sé upplýst, er ekki vitað, að málsskjöl séu
komin frá lögreglustjóranum til ríkissaksóknara. Virðist
svo sem það eigi að gerast eftir dúk og disk og að síðan
eigi að senda niðurstöðuna í pósti til yfirvalda á Ítalíu,
sem þurfa þá að byrja á að reyna að finna konuna.
Erfitt er að sjá fyrir sér, að yfirvöld á Ítalíu muni
leggja mikla áherzlu á að reyna að hafa hendur í hári
konu, sem smyglaði fíkniefnum milli Amsterdam og ís-
lands og sem vafalaust verður ekki tagltæk á Ítalíu fyrr
en mál þetta er fyrir löngu gleymt og grafið.
Ríkisvaldið á íslandi hefur ekkert betra við peninga
sína að gera en að nota þá til að fylgja stranglega eftir
gildandi lögum og reglum um fíkniefnasmygl. Afgreiðsla
lögreglustjóraembættisins í Reykjavík byggist því annað
hvort á greindarskorti eða á hagsmunaárekstri.
Dómsmálaráðuneytinu ber nú að rannsaka meðferð
lögreglustjóraembættisins á málinu. Mikilvægt er að
finna, hvers eðlis mistökin eru, svo að unnt sé að koma
í veg fyrir endurtekningu. Og mikilvægt er að láta emb-
ættið skilja, að svona getur það ekki hagað sér.
Mikilvægast af öllu er þó, að dómsmálaráðuneytið
eyði á tvímælalausan hátt þeim misskilningi, sem lög-
reglustjóraembættið hefur stofnað til, að erlendum fíkni-
efnasmyglurum sé óhætt að smygla fíkniefnum til ís-
lands. Brýnt er að eyða þeim misskilningi strax.
Slík aðgerð ráðuneytisins mundi líka eyða þeirri til-
finningu tollvarða á KeflavíkurveHi, að tHgangslaust sé
að leita þar að fíkniefnum, af því að ekkert sé gert með
niðurstöðuna. Nauðsynlegt er þvert á móti að efla varn-
ir, sem hafa hingað tH verið aUt of litlar þar.
Athygli hefur vakið, hversu lítið hefur verið tekið af
fíkniefnum á KeflavíkurveUi undanfarin misseri. Það
stafar ekki af litlum innflutningi, því að nóg er tH af eitr-
inu í þjóðfélaginu, heldur af of litlum áherzlum á varnir
í flugstöðinni. Nýja málið bætir sízt úr þeirri skák.
Bæta þarf leitartækjakostinn á KeflavíkurveUi, nota
leitarhunda í auknum mæli og auka þjálfun starfsliðs,
um leið og fylgt verði í kerfinu vel eftir þeim árangri,
sem þar næst. Við megum tH með að senda skýr og hörð
skUaboð tU glæpahringja fíkniefnaheimsins.
Fíkniefnaneyzla er mikið og vaxandi vandamál hér á
landi, enda þótt við búum á eylandi, sem gerir landa-
mæravörzlu auðveldari hér en hún er annars staðar.
Jónas Kristjánsson
Njósnaáburður Walesa
á forsætisráðherra
Við embættistöku nýkjörins for-
seta Póllands, Alexanders Kwasni-
ewskis, á Þorláksmessu, var fyrir-
rennari hans, Lech Walesa, ekki
viðstaddur. Hann fór úr forseta-
höllinni heim til sín daginn áður
án þess að kveðja aðra en nánasta
starfslið sitt.
Skiljanlegt er að Walesa, for-
ingja verkalýðshreyfingarinnar
Samstöðu sem átti mestan þátt í
að binda enda á yfirráð kommún-
ista í Póllandi, sviði að tapa for-
setakosningu fyrir manni sem
kemur úr þeirra röðum. En við-
brögðin við ósigrinum gefa líka
vísbendingu um hvers vegna
meirihluti pólskra kjósenda hafði
fengið nóg af Walesa á forsetastóli
eftir eitt kjörtímabil.
Auk þess að neita að vera við-
staddur embættistöku eftirmanns
síns, setti Walesa pólsk stjórnmál
i uppnám, og ekki í fyrsta skipti.
Nokkrum dögum fyrir forseta-
skiptin kallaði hann æðstu menn
helstu stofnana ríkisins á sinn
fund til að skýra þeim frá að gögn
sem hann hefði undir höndum
sýndu að pólskt þjóðaröryggi væri
í hættu vegna þess að Jozef
Oleksy forsætisráðherra, flokks-
hróðir nýja forsetans, hefði árum
saman stundað njósnir fyrir er-
lenda aðila. Brátt kom í ljós að átt
var við leyniþjónustur Sovétrlkj-
anna og síðar Rússlands.
Svo vill til að það var fyrir til-
verknað Walesa- sem Oleksy
komst á stól forsætisráðherra. Eft-
ir kosningasigur Lýðræðislega
vinstrahandalagsins undir forustu
Kwasniewskis í þingkosningum
1993 myndaði það samsteypu-
stjórn með Bændaflokknum undir
forsæti foringja síns, Waldemars
Pawlaks.
Vandkvæði reyndust brátt á
stjórnarforustu hans, sér í lagi
gætti tilhneigingar til fráhvarfs
frá þeirri stefnu aðhalds í fjármál-
um og einkavæðingar sem virðist
ætla að rífa Pólland upp úr efna-
hagslægð hraðar en önnur ríki í
svipaðri aðstöðu. Varð þetta til
þess að Walesa gerði harða hríð
að Pawlak til að hrekja hann úr
forsætisráðherraembætti.
Slíkt var í samræmi við fyrri
framkomu Walesa, sem allt kjör-
tímabilið hefur átt í illdeilum
bæði við þing og ríkisstjórnir, og
að jafnaði vegna tilhneigingar
hans til að gera kröfu til miklu
víðtækara forsetavalds en stjórn-
skipan Póllands gerir ráð fyrir.
Hefur álit á Walesa í Póllandi
aldrei rétt við eftir að hann hrakti
félaga sinn úr Samstöðu, Tadeusz
Mazowiecki, úr forsætisráðherra-
embætti með refjum í upphafi for-
setaferils síns.
Hvað Pawlak snerti vakti það
fyrst og fremst fyrir Walesa að fá
fyrrum kommúnista til að taka
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Úlafsson
beina ábyrgð á ríkisstjórninni á
erfiðum tímum. Því hætti hann
við áform um að rjúfa þing, þegar
stjórnarflokkarnir féllust á að
færa Oleksy úr forsæti þingsins á
forsætisráðherrastól.
Þar hefur hann einbeitt sér að
efnahagsmálum með það fyrir
augum að greiða fyrir inngöngu
Póllands í ESB við fyrsta tæki-
færi. Svo hefur til tekist að horfur
eru á að hagvöxtur í Póllandi
verði sex af hundraði á nýbyrjuðu
ári, hinn mesti í Evrópu.
Þessi árangur átti sinn þátt í að
Kwaniewski, flokksbróðir Oleksys
í Sósíaldemókrataflokki fyrrum
kommúnista, sigraði Walesa með
51,7% atkvæða móti 48,3% í for-
setakosningunum. Eftir þau úrslit
lýsti Walesa yfir að hann myndi
snúa sér að því að taka forustu
fyrir harðri stjórnarandstöðu.
Atlagan að Oleksy miðar að því
að hrekja hann úr embætti.
Hvorki ríkisstjórn, þing né sak-
sóknari hersins sem fer með
ákæruvald í þjóðaröryggismálum
telur þó fyrirliggjandi gögn nægja
til að aðhafast neitt í málinu.
Oleksy heldur fram sakleysi sínu
af njósnum fyrir leyniþjónustur í
Moskvu og kveðst hafa slitið sam-
bandi við Rússa sem hann átti
forðum samskipti við á öðrum for-
sendum, þegar pólskir aðilar vör-
uðu hann við að þar væru á ferð-
inni leyniþjónustumenn undir
fölsku flaggi.
Pólska gagnnjósnaþjónustan
hefur frest fram tÚ 20. janúar að
leggja fram frekari gögn til að
styðja sakargiftir á hendur Oleksy
og segir aðstoðaryfirmaður stofn-
unarinnar að henni muni ekki
verða skotaskuld úr því. Það
nýjasta í málinu er svo að Rúss-
inn Vladimir Alganof, sem njósn-
aði í Varsjá í áratug fram til 1992,
en er nú orðinn kaupsýslumaður
eins og svo margir aðrir úr þess-
ari grein þar eystra, kveðst geta
sýnt fram á að pólska leyniþjón-
ustan hafi verið að falsa gögn
gegn Oleksy. Hafi hann segul-
bandsupptökur til að sanna að til
sín hafi verið leitað um aðstoð við
þá iðju.
Walesa yfirgefur ríkisstjórnarfund daginn eftir að hann bar fram ásakan-
ir um að öryggi ríkisins stafaði hætta af Oleksy forsætisráðherra.
Símamynd Reuter
skoðanir annarra
Beiskur sigur
Sigur múslíma í kosningunum í Tyrklandi var
beiskur sigur fyrir alla svartsýna. Það er vatn á
myliu vestrænna gagnrýnenda á tollabandalag
j Tyrklands og Evrópubandalagsins. Litið er á Vel-
ferðarflokk múslíma sem ógn gegn lýðræðisþróun.
Áhrifaríkir menn í öðrum flokkum hafa beðið for-
I setann að sjá til þess að leiðtogi Velferðarflokks
Imúslíma komist ekki nálægt embætti forsætisráð-
herra. Slíkt grefur undan bæði siðferði og trúnni á
lýðræðið.
Úr forystugrein Expressen 28. desember.
I
Skjalasöfnin opnuö
Þegar upplýsingaskylda stjómvalda varð að veru-
1 leika á áttunda áratugnum.fengu borgararnir loks
1 aðgang að sínum eigin leyniskjölum. Himinninn
j hmndi ekki og þegnar í öðrum lýðræðisríkjum
I kröfðust sama réttar. Það er líklegt að þannig verði
það einnig með tilkomu laganna um opnun skjala-
safna Bandaríkjastjórnar fyrir almenningi. Leynd
getur ekki ótakinarkað hulið framferði stjórnarinn-
ar á komandi árum.
Úr forystugrein New York Times 4. janúar.
Hætta frá Indlandi
Nú berast þær fregnir frá Indiandi, sem fram-
kvæmdi sína einu kjarnorkutilraun 1974, að þar séu
menn að huga að nýjum tilraunum. Og það sem
verra er, indversk yfirvöld gefa í skyn að þau ætli
ekki að undirrita bann við tilraunum með kjarn-
orkuvopn þrátt fyrir stuðning við slíkt samkomulag
í langan tíma. Skoðanakönnun virts indversks
timarits sýnir að 62 prósent aðspurðra era fylgjandi
tilraunum. Indversk stjórnvöld ættu að berjast gegn
slíkum þrýstingi heima fyrir.
Úr forystugrein New York Times 1. janúar.