Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Qupperneq 20
20 unglingaspjall LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996 Hetja úr N8A sem kvenmaður í eigin sjónvarpsþætti? Dennis Rodman vill koma fram sem kvenmaður Körfuboltahetjan Dennis Rodman á erfitt með aö vera eins og fólk er flest. í gegnum árin hefur þessi snjalli og umtalaði körfuknattleiksmaður hneykslað almenning með furðuleg- um uppátækjum og nýjasta hug- mynd frákastarans mikla úr NBA-deildinni á örugglega eftir að vekja undrun og hneykslan margra. Rodman dreymir um að koma á laggirnar eigin sjónvarpsþætti að hætti hinnar frægu Oprah Winfrey. Þar með er ekki öll sagan sögð því Rodman vill endilega koma fram í þættinum í kvenmannsfötum sem einskonar klæðskiptingur. Rodman segist elska það að klæðast eins og kvenmaður og eins að hanga á veit- ingastöðum sem samkynhneigt fólk sækir. Þrátt fyrir þessar ástir Rodmans fullyrða allir sem til þekkja að hann sé ekkert annað en venjulegur karl- maður og hafi einungis gaman af því að hneyksla alla þá sem í kring- um hann eru. Vist er að með. þessu síðasta uppátæki sínu hefur Rodm- an tekist að hneyksla marga. Kvikmynd og bók í burðarliðnum Að sögn fjölmiðla í Bandaríkjun- um eru nokkrar líkur á því að af þessu uppátæki verði og samninga- viðræður Rodmans við sjónvarps- stöð eru langt komnar. Þá er Rodman með bók í burðar- liðnum og er talið vist að hún muni vekja mikil viðbrögð enda mun hann ekki fara neinum silkihönsk- um um þá hluti sem teknir verða fyrir í bókinni. Loks má geta þess að Rodman hefúr fengið hlutverk í nýrri kvikmynd þar sem Whoopie Goldberg kemur mikið við sögu en kvikmyndin mun fjalla um fræga körfuknattleikshetju. Einn mesti frákastari allra tíma í NBA—deildinni Rodman, sem er 34 ára gamall, er þekktastur fyrir að taka fleiri frá- köst í NBA-deildinni en nokkur annar leikmaður og það er í sjálfu sér ekki minna afrek en að skora 40 stig í leik og því siður er mikilvægi in hliðin Hin hliðin: Leiðinlegast að vakna á morgnana - segir Þórir Sigurjónsson Þórir Snær Sigurjónsson er bók- menntafræöinemi og framleiðandi sjónvarpsþáttanna Taka tvö sem verður hleypt af stokkunum á Stöð 2 innan skamms. Hann var einn af eigendum Rauða dregilsins en hef- ur nýlega dregið sig úr því sam- starfi og sett á fót annað fyrirtæki sem vinnur í kvikmyndagerð og heitir Zik Zak. Þórir er sonur Sig- urjóns Sighvatssonar, kvikmynda- gerðamanns í Los Angeles. Nú er hann farinn að feta í fótspor föður- ins og hefur sótt um styrk til Kvik- myndasjóðs fyrir væntanlega kvikmynd sína. Fullt nafh: Þórir Snær Sigur- jónsson. Fæðingardagur og ár: 12. ágúst 1973. Kærasta: Hanna Lilja Jóhanns- dóttir. Börn: Engin. Bifreið: BMW, árgerð ’88. Starf: Nemi og sjónvarpsþátta- gerðamaður. Laun: Misjöfn. Áhugamál: íþróttir og kvik- myndir. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Ég hef mest fengið þrjár tölur réttar í lottóinu. Hvað finnst þér skemmtileg- ast að gera? Horfa á góðan fót- bolta eða kvikmyndir. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Vakna á morgnana. Uppáhaldsmatur: Allur ítalsk- ur matur. Uppáhaldsdrykkur: ískalt ís- lenskt vatn. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? George Weah. Uppáhaldstímarit: Details og Variety. Hver er fallegasta kona sem þú hefúr séð fyrir utan kærust- una? Sú franska Irene Jakob. Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjórninni? Andvígur. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Mig hefur alltaf langað til að hitta Stanley Kubrick. Uppáhaldsleikari: Jeff Bridges. Uppáhaldsleikkona: Susan Sarandon. Uppáhaldssöngvari: David Bowie. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón Baldvin Hannibalsson. Uppáhaldsteikni- myndapersóna: Gaifield. Uppáhalds- sjónvarpsefni: X-Files eða Ráðgátur eins og þátt- urinn er kallaður hér. Uppá- haldsveit- ingahús: ítal- ía. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Mesta áskorunin væri að lesa Gravitys Rainbow eftir Thomas Pynchon. Hver útvarps- rásanna finnst þér best? X ið. Uppáhaldsútvarpsmaður: Þossi og Simmi. Hvort horfir þú meira á Sjón- varpið eða Stöð 2? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sigmundur Ernir. Uppáhaldsskemmtistaður: Asti’ó er i mestu uppáhaldi núna. Uppáháldsfélag í íþróttum: Stjaman. Stefnir þú að einhverju sér- stöku í framtíðinni? Að vera ánægður i starfi og leik. Hvað gerðir þú 1 sumarfríinu? Skrapp til San Francisco til að slappa af. -pp Þórir Sigurjóns- son fetar í fót- spor föðurins. DV-mynd GS • Dennis Rodman mátar kvenmannsfötin. Þessi mikla körfuboltastjarna hef- ur enn einn ganginn hneykslað fólk með furðulegu uppátæki. frákastanna minna en stiganna. Hann er talinn einn mesti frákast- ari sem leikið hefur í NBA- deild- inni frá upphafi. Hætti við að fremja sjálfsmorð Rodman hefur haft það fyrir sið að lita hár sitt í óhefðbundnum lit- um og síðast er hann sást opinber- lega var það appelsínugult. Þykir mörgum það merki um ómælt sjálfsálit og sjálfstraust hans hefur lengi einkennt Rodman en hann hefur einnig átt sína erfiðu tíma og þunglyndi hefur skotið upp kollinum. Ekki er langt síðan að einn félagi hans kom að honum í bíl hans með byssu í hendi og hafði Rodman í hótunum um að fremja sjálfsmorð. Hann lét ekki verða af því og stefnir nú að því að verða stórstjarna bæði innan körfubolta- vallarins og utan hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.