Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Síða 23
23
Barna- og unglingaflokkar
Áhugavert og þroskandi starf þar sem börnin dansa innlenda og erlenda þjóðdansa,
syngja og læra ógrynni af vísum.
Kennsla fer fram síðdegis á þriðjudögum og laugardagsmorgnum.
Þrír aldurshópar: 3-5 ára; 6-8 ára; 9 ára og eldri.
Kennari er Elín Svava Elíasdóttir og hefst kennslan þriðjudaginn 9. janúar.
,JTOFN^n
* /ÚNl
Allt dansáhugafólk
velkomið!!
Upplýsingar og innritun
í síma 587-1616
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
/,-^OFNN®,
' 10N\ ^
eskimo models
MÓDELNÁMSKEIÐ
námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á módelstörfum og einnig
til að efla.sjálfstraust og bæta framkomu.
Model: Sunna, Guðjón, Halldóra, Eva, Robbi og Hrafnhildur
UNGFRÚ ÍSLAND GEFUR GÓÐ RÁÐ
ALLIR NEMENDUR FARAÁ SKRÁ FYRIR SJÓNVARPSAUGLÝSINGAR
OG MARGT FLEIRA
Upplýsingar og skráning í Bankastræti 6, sími 552-8011
SKRÁNING ER HAFIN FYRIR NÁMSKEIÐ SEM BYRJA 13/14 JANÚAR
JjV LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996
Snorralaug í Reykholti og Snorragöng í baksýn. DV-mynd Olgeir Helgi
í DAG byrJAR
langub laogabdagub
LEÐURLINAN
LAUGAVEGI 66, SÍMI 552-3560
Hvítá beljar undir steinboga í gljúfrinu neðan við Barnafoss.
DV-mynd Olgeir Helgi
Söguperlur í Borgarfjarðarháraði:
Snorralaug og Snorragöng
DV, Borgamesi:_____________________
Snorralaug er forn hringlaga set-
laug í Reykholti og er hún við
munna Snorraganga en hvoru-
tveggja er kennt við Snorra Sturlu-
son sem sat í Reykholti á árunum
1206 til 1241 eða þar til Gissur jarl
Þorvaldsson fór að honum að nóttu
til og lét taka hann af lífi í Reyk-
holti. Snorri var höfundur heims-
kringlu og Eddu og fleiri rita auk
þess sem margir telja hann höfund
Egils sögu Skallagi'imssonar. Snorri
var einn Sturlunga, voldugustu ætt-
ar á íslandi að fornu.
í Snorragöngum er stutt greinar-
gerð um Snorralaug: „í Landnámu
er getið um laug í Reykjaholti um
miðja 10. öld. í Sturlungu er laugin
nefnd hvað eftir annað, og getið er
þess meðal annars árið 12228, að
Snorri Sturluson sat í lauginni og
menn með honum.
Snorralaug er hlaðin úr höggnu
hveragrjóti og hefur verið eins og
hún er nú svo lengi sem menn vita.
Liklega hefur hún verið hlaðin
þannig þegar í fornöld en veggir lag-
færðir og steinar endurnýjaðir eftir
þörfum. Rækilega var gert við hana
1858 og aftur 1959.
Vatnið í lauginni kemur frá
hvemum Skriflu eftir fornri rennu
neðanjarðar.“
Snorralaug er vinsæll viðkomu-
staður ferðamanna og algengt að
kastað sé í hana smápeningum þó
fáum sögum fari af lækninga- eða
óskamætti laugarinnar. -OHR
Náttúruperlur í Borgarfjarðarhéraði:
Dauðinn og Barnafoss
Bamafoss er foss í Hvítá skammt
ofan Hraunfossa. f fossinum fellur
áin ofan í þröngt gljúfur þar sem
hún beljar fram i iðuköstum. Neðan
við fossinn, í gljúfrinu, er steinbogi
sem áin fellur undir. Glapræði er þó
að ætla að fara yfir ána á boganum
því þverhníptur klettaveggur er við
hann að norðanverðu og dauðinn
vís falli menn í iðuna I gljúfrinu.
í Heiðarvígasögu er fossinn
nefndur Bjarnafoss og talað um brú
á ánni hjá fossinum. í Þjóðsögum
Jóns Árnasonar segir frá því að
steinbogi hafi verið á ánni sjálf-
gjörður. Þá bjó kona nokkur á
Hraunsási sem stendur skammt frá
Hvitá ofan við Barnafoss. Einhverju
sinni fór hún ásamt heimafólki til
kirkju að Gilsbakka en tveir synir
hennar stálpaðir urðu eftir heima.
Er fólkið var farið ætluðu drengirn-
ir að elta kirkjufólkið og komu að
boganum og ætluðu yfir ána. Segir
að boginn hafi verið mjór og hátt
ofan að vatninu og foss undir. Þegar
drengimir komu út á miðjan bog-
ann varð þeim litið niður fyrir sig.
Þá sundlaði þá er þeir sáu í iðuna
undir boganum og féllu út af niður
í ána. Þegar fólkið kom heim fund-
ust sveinarnir hvergi en einhver
átti að hafa séð til þeirra en orðið of
seinn til hjálpar, Reiddist þá konan
og lét höggva bogann af ánni með
þeim ummælum að þar skyldi eng-
inn frcunar lífs yfir komast. Segir í
Þjóðsögunum að síðan heiti fossinn
Barnafoss.
Nokkm neðan við Barnafoss er
brú á ánni, fyrst byggð árið 1891,
hún er ekki bílfær. Er hún var
byggð hafði ekki verið manngerð
brú á Hvítá frá því á söguöld er brú
var á ánni við Kljáfoss. -OHR
FRAMBOÐS-
FRESTUR
Ákveðið hefur verið að viðhafa alls-
herjar atkvæðagreiðslu um kjör
stjórnar, trúnaðarmannai'áðs og
endurskoðenda í Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur fyrir árið 1996.
Framboðslistum eða tillögum skal skila
á skrifstofu félagsins, Húsi verslunar-
innar, Kringlunni 7, eigi síðar en
kl. 12.00 á hádegi, þriðjudaginn
9. janúar 1996.
Kjörstjórnin
ÞJ OÐDANS AFEL AG REYKJAVIKUR
Kennsla hefst mánudaginn 8. janúar að Álfabakka 14a
Gömlu dansarnir á mánudagskvöldum. Byrjendur og framhaldshópur.
Kennari er Helga Þórarinsdóttir og undirleikari er Páll Kárason harmoníkuleikari.
Kennsla hefst mánudaginn 8. janúar og er námskeiðið 12 tímar. Er þetta ekki gamall
draumur sem vert er að láta rætast? Opnir tímar verða annan hvern miðvikudag
kl. 20.30-23. Þú mætir þegar þú vilt og greiðir fyrir hvert skipti.
Nokkrir dansar eru rifjaðir upp og síðan dansa allir af hjartans lyst.
Stjórnandi er Helga Þórarinsdóttir.
Fyrsta opna kvöldið verður miðvikudaginn I0. janúar. Mikið fjör!!!