Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Blaðsíða 30
34
tónlist
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996
Enn eina ferðina taka
hljómplötugagnrýnendur og aðrir
tónlistarspámenn sig saman og velja
bestu plötur nýliðins árs. Eins og
undanfarin ár eru skoðanir manna
mjög skiptar og á það sérstaklega við í
erlendu deildinni þar sem eiginlega má
segja að aðeins ein plata fái verulegan
stuðning en það er plata Bjarkar okkar
Guðmundsdóttur, Post. Mörgum kann
að þykja það kyndugt að hafa Björk í
hópi erlendra listamanna en skýringin
er sú að platan er að öllu leyti erlend
útgáfa þó svo listamaðurinn sé
íslenskur. Þar að auki var talið eðlilegt
að platan keppti við þær plötur sem
hún hefur verið að keppa við á
alþjóðamarkaði á árinu.
Hvað sem því líöur fór valið fram á
sama hátt og endranær; hver
þátttakandi tilnefnir tíu plötur,
innlendar og erlendar og plata sem
tilnefnd er í fyrsta sæti fær tíu stig, sú
næsta níu og svo koll af kolli niður í
eitt stig fyrir tíunda sætið. Stigin eru
síðan lögð saman og þá fæst sú
niðurstaða að plata KK, Gleðifólkið, er
valin besta innlenda plata ársins 1995
og plata Bjarkar Guðmundsdóttur,
Post, er valin besta erlenda platan.
Gleðifólkið er vel að þessum titli
komið; platan fær samtals 46 stig og er
eina platan sem fær tilnefningu hjá
öllum sem þátt tóku í valinu. Hún á
því útnefninguna fyllilega skilið og fær
KK bestu hamingjuóskir með
árangurinn.
í öðru sætinu hafnar plata Orra
Harðarsonar, Stóri draumurinn, og
kemur sumum kannski á óvart þar
sem platan var ekki meðal þeirra
söluhæstu á nýyfirstaðinni jólavertíð.
Hún fékk þó yfirleitt prýðisgóða
gagnrýni og fær hér samtals 33 stig í
fjórum tilnefningum.
Fyrsta sólóplata Emelíönu Torrini,
Crougie d'oú lá, hreppir þriðja sætið og
fær jafnmargar tilnefningar og plata
Orra en tveimur stigum minna. Segja
má að ungt tónlistarfólk, sem starfar
eitt síns liðs, setji mjög svip sinn á
valið að þessu sinni því í sætum fjögur
og fimm eru aðrir tveir ungir
einstaklingar, þau Páll Óskar með
plötuna Palla og Kristín Eysteinsdóttir
með fyrstu plötu sína, Liti. Plata Páls
Óskars var meðal þeirra söluhæstu á
liðnu ári en svipaða sögu er að segja
um plötu Kristínar og Orra að þær
fengu betri gagnrýni en sölu. Plöturnar
náðu báðar í 26 stig en plötu Páls
Óskars er raðað ofar vegna þess að hún
náði þessum stigum í þremur
tilnefningum en plata Kristínar í
flórum.
Sjötta sætið á listanum
skipar platan Hittu mig með Vinum
Dóra en hún nær 23 stigum í
þremur tilnefningum og verður það
að teljast gott þar sem Dóri var
ekki mjög áberandi á árinu og
platan ekki í hópi söluhæstu
platna. Tveimur stigum á eftir
Vinum Dóra með jafnmargar
tilnefningar kemur Bogomil Font
með sina fyrstu sólóplötu, Út og
suður, en hún var ein þeirra sem
fékk yfirleitt góðar umsagnir en
seldist ekki að sama skapi vel.
Sæti átta og níu skipa
sameiginlega plata Ásgeirs
Óskarssonar, Veröld smá og stór,
og plata Súkkat, Fjap. Hlutu þær
báðar 19 stig í þremur tilnefningum.
Síðasta sætið á listanum að þessu sinni
skipar svo ein efnilegasta ungliðasveit
landsins, Botnleðja, með fyrstu plötu
sína, Drullumall, en hún fékk tvær
tilnefningar og samtals 12 stig.
Eins og fram hefur komið var plata
Bjarkar Guðmundsdóttur, Post, valin
besta erlenda plata ársins 1995 og
sigrar hún með nokkrum yfirburðum.
Alls fær platan fimm tilnefningar og 35
stig. Yfirburði hennar má glögglega sjá
á því að næsta plata fær meira en
helmingi færri stig eða aðeins 17. Engu
að síður nær hún öðru sætinu vegna
mikillar stigadreifingar. Þetta er plata
—
Gleðifólkið
KK
2 Sr1rÍdAaUmurínn
■ fwufie d'oíi lá
4. - 5. L/tfr'ana T0rr/ní
4.-5. Pamn^eínsdótt/r
6 Wlóskar
6 H'ttu mig
ymirDóra
7 Jtogsuður
8 . g ,,9°mil Font
9 VwóW sméo
bandarísku
rokksveitarinnar Hootie & The
Blowfish sem selst hefur í
vörubílaíormum vestanhafs en vakið
minni athygli í Evrópu. Einu stigi á
eftir henni á listanum er svo plata
Polly Harvey en að baki því sæti eru
einungis tvær tilnefningar. Og tvær
tilnefningar duga Enyu líka til að
hreppa fjórða sætið en sætin þar fyrir
neðan skipa fimm plötur sem allar
hljóta 10 stig og eiga það sameiginlegt
að vera í efsta sæti hver á sínum lista
gagnrýnenda. Segir það óneitanlega
sína sögu um hversu smekkur manna á
erlendu plötunum er skiptur.
Sama er að segja um
valið á björtu vonunum, bæði
innlendum og erlendum. Þar er ekki
hægt að segja að neitt afgerandi komi
fram, og hvað innlendu deildina varðar
bendir það til þess að gróskan í
íslenskri tónlist hafi verið minni á
nýliðnu ári en oft áður. Við skulum þó
vona að Eyjólfur hressist á nýbyrjuðu
ári og þar með sláum við botninn í
þetta spjall um valið á bestu plötum
ársins 1995.
Sigurður Þór Salvarsson
Boituerli
tnéplijtvr
5.-9.
7 Post
Björk
2 S!?ed*earV/ew
3. To Brinn vhe BI°Wfish
d ->4™*yw**Vlove
ÉnyaMen’orJ'ofrrees
Outside
fflinnggj
8 9. Fjgp
f_ Súkkat
10. Drullumaii
Ootnleðja
'-'uisiae
5-9-Kfelce
5-9 nan Morris°n
p/%?naln Tim<*
5 . , „arad'» Lost
iSruHo‘Min«e
Hot Chili Peppers