Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1996, Page 49
JJV LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996
Vetrarlíf '96
Um helgina verður haldin sýn-
ingin Vetrarlíf ’96 á vegum Lands-
sambands íslenskra vélsleða-
manna í sýningarsal Ingvars
Helgasonar hf. við Sævarhöfða.
Húnvetningafélagið
veröur með félagsvist í Húnabúð,
Skeifunni 17, kl. 14. Allir velkomn-
ir.
Tvímenningur og dans
Tvímenningur verður í Risinu í
dag kl. 13 og félagsvist kl. 14 á
sunnudag, sama kvöld verður
dansað i Goðheimum.
Samkomur
Fyrirlestur
Kaffe Fasset heldur fyrirlestur
með litskyggnum I Háskólabíói á
morgun kl. 13 í tengslum við sýn-
ingu sína í Hafnarborg.
Þrettándagleði á Ásvöllum
Haukar standa fyrir þrettánda-
hátíð á Ásvöllum í dag þar sem jól-
in verða kvödd með dansi og söng.
Dagskráin hefst kl. 19.45.
Nýárs-
tónleikar
Aðrir tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands á þessum
vetri verða á morgun í Akureyrar-
kirkju og hefjast kl. 17. Á efnis-
skrá eru þrjú verk: 9. sinfónía
Dvoráks, Frá nýja heiminum, sell-
ókonsert Schumanns og Elegia,
harmljóð eftir Szymon Kuran. Ein-
leikari í konsertinum er Gunnar
Kvaran og stjórnandi er Guð-
mundur Óli Gunnarsson.
Gunnar Kvaran hefur haldið
fjölda tónleika heima og erlendis
og ásamt Guðnýju Guðmundsdótt-
ur og Halldóri Haraldssyni stofn-
aði hann Tríó Reykjavíkur árið
1988. Stjórnandinn Guðmundur
Tónleikar
Óli Gunnarsson er skólastjóri
Tónlistarskólans á Akureyri og
fastur stjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands. Hann er
einnig stjórnandi Caput-hópsins,
sem víða hefur flutt samtímatón-
list og tekið upp til útgáfu.
KIN
-leikur að læra!
Vinningstölur 5. janúar 1996
4*6»7*10»21 »22»27
Eldri úrslit á sfmsvara 568 1511
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 4.
05 janúar 1996 kl. 9.15
Eimng Kaup Sala Tollgengi
Dollar 65,460 65.800 65,260
Pund 101.440 101,950 101,500
Kan. dollar 48.210 48.500 48,060
Donsk kr 11 6960 11.7580 11.7700
Norsk ki 10.2620 10.3180 10.3250
Sajnsk kr 9.8700 9.9250 9.8030
P'. mark 14.9910 15.0800 14.0963
Fm franki 13.2200 13.2950 13.3270
Belg. franki 2.1995 2.2127 2.2179
Sviss. franki 56.1200 56.4300 56.6000
Holl. gyllini 40.3800 40.6200 40.7000
Þyskt mark 45,2400 45.4700 45.5500
lt lira 0.04130 0.04156 0.04122
Aust sch. 6.4270 6,4670 6.4770
port. escudo 0.4346 0.4373 0,4362
Spá.posen 0.5361 0.5395 0.6385
Jap. yen 0.62250 0.62620 0,63580
hskt pund 104.420 105.070 104.790
SDR 96.51000 97.09000 97.14000
ECU 83.5200 84.0200 83.6100
Simsvari vegna gengisskiáningar 5623270.
dagsönn a
Hvessir með kvöldinu
Fram eftir degi veröur suðaust-
ankaldi sunnan- og austanlands en
austan- og norðaustankaldi eða
stinningskaldi um norðanvert land-
ið. Dregur úr vindi, einkum norðan-
Veðríð í dag
lands. Einhver úrkoma verður um
norðvestanvert landið fram á morg-
un, annars að mestu þurrt. f kvöld
er síðan aftur vaxandi austan- og
suðaustanátt á landinu og í nótt
verður kominn suðaustan stinnings-
skaldi eða allhvasst og rigning
sunnan- og austanlands. Hiti verður
á bilinu 1 til 8 stig, hlýjast um land-
ið sunnanvert. Á höfuðborgarsvæð-
inu verður suðaustangola eða kaldi
og að mestu þurrt í dag. Suðaustan
stinningskaldi og fer að rigna í nótt.
Hiti verður 2 til 7 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 15.52.
Sólarupprás á morgun: 11.13.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.34.
Árdegisflóð á morgun: 6.47.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrió kl. 12 á hádegi i gœr:
Akureyri léttskýjaö -2
Akurnes þoka í grennd 0
Bergsstaóir léttskýjaö 0
Bolungarvík rigning 3
Egilsstaöir þoka í grennd 1
Grímsey þoka 1
Keflavíkurflugv. skýjaö 4
Kirkjubkl. léttskýjaö 03
Raufarhöfn þoka 1
Reykjavík skýjaö 3
Stórhöföi léttskýjaö 5
Amsterdam skýjaó 1
Alicante skýjaö 18
Atlanta heióskírt 1
Algarve alskýjaö 17
Barcelona þokumóóa 10
Bergen skýjaó 2
Chicago léttskýjaö -11
Feneyjar alskýjaö 1
Frankfurt skýjaó -3
Glasgow skýjaö 7
Hamborg hálfskýjaö -6
Helsinki kornsnjór -5
Iquluit, N.W.T. ísnálar -29
Jan Mayen súld -1
Kaupmannah. kornsnjór -2
La Palma skýjaó 22
Los Angeles alskýjaö 13
Ósló snjókoma -12
Stokkhólmur léttskýjaö -14
Þórshöfn alskýjáö 6
London súld á síó. klst. 7
Los Angeles léttskýjaó 12
J
Rósenbergkjallarinn:
XIII á þrettándatónleikum
Hljómsveitin XIII heldur sína
árlegu þrettándatónleika í Rósen-
bergkjallaranum í kvöld. Auk XIII
kemur hljómsveitin Dead Sea
Apple fram og hefjast tónleikarnir
laust eftir miðnættið. Eins og
kunnugt er kom fyrri plata hljóm-
sveitarinnar XIII út i nokkrum
löndum á meginlandi Evrópu í
haust og er að koma út í Bretlandi
um þessar mundir. Á þrettánda-
tónleikunum verður þó aðallega
leikiö efhi af nýútkominni hljóm-
plötu, Serpentyne. Einnig verður
Skemmtanir
viðrað nýtt efni sem verið er að
taka upp um þessar mundir.
Sem fyrr er það Hallur Ingólfs-
son sem er forsprakki hljómsveit-
arinnar XIII en hann leikur á gít-
ar og syngur, Jón Ingi Þorvalds-
son spilar á bassa, Gísli Már Sig-
urjónsson á gítar og nýlega bættist
trommuleikarinn Birgir Jónsson í
hópinn.
XIII stendur undir nafni og heldur tónleika á þrettándakvöld.
Myndgátan
Hefur rangt við
Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn.
|
Pocahontas ásamt föður sínum,
Powhatan indíánahöfðingja.
Pocahontas
Pocahontas, sem Sam-bíóin
hafa sýnt að undanfórnu, er
teiknimynd sem byggð er á sönn-
um atburðum um ævi ungrar
indíánastúlku sem lengi hefur
verið þjóðsagnapersóna. Kemur
myndin fyrir augu íslenskra
áhorfenda með íslensku tali sem
Ágúst Guðmundsson hefur stjórn-
að upptöku á og sem fyrr við tal-
setningu á teiknimynd frá Walt
Disney hefur verið vandað til
þessa þáttar. Þetta er í fyrsta
skipti sem Disney fyrirtækið ger-
ir teiknimynd þar sem fjallað er
um persónu sem var til.
Myndin hefst árið 1607 þegar
hópur breskra ævintýramanna
: kemur til „nýja landsins". í hópn-
um er einnig hinn ungi og hug-
rakki hermaður, John Smith,
sem er í ævintýraleit. Um sama
____________________________
Kvikmyndir
leyti kynnumst við ungri indíána-
stúlku, Pocahontas, sem elst upp í
Virginíu. Henni er ætlað að gift-
ast stríðsmanninum Kocoum en
er ekki viss um tilfinningar sín-
ar. Á ferð sinni um ókunnar slóð-
ir er John Smith handtekinn af
indíánum. Hann hafði áður
kynnst Pocahontas og bjargar
: hún lífi hans.
Pocahontas er þrítugasta og
Iþriðja teiknimyndin í fullri lengd
sem kemur frá Walt Disney, en í
þessum hópi eru margar kvik-
myndir sem hafa orðið klassískar
t með árunum.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Presturinn
Laugarásbíó: Agnes
Saga-bió: Algjör jólasveinn
Bíóhöllin: Pocahontas
Bíóborgin: Ace Ventura
Regnboginn: Borg týndu barn-
anna
Stjörnubíó: Indiáninn í skápnum
Innanhúsmót í
knattspyrnu
Dagana milli jóla og nýárs hófst
keppni í innanhúsmóti í knatt-
spyrnu og var þá keppt í yngri
flokkum. t dag hefst aftur á móti
keppni í meistaraflokki karla í
Laugardalshöll kl. 10.00 og því lýk-
ur ekki fyrr en með verðlaunaaf-
hendingu klukkan 18.00 annað
kvöld.
Keppni í 1. deild handboltans
hefur legið niðri síðan um miðjan
desember, einn frestaður leikur
íþróttir
var að vísu háður í vikunni, en á
morgun eru fimm leikir. í Garða-
bæ leika Stjarnan- Selfoss, á Ak-
ureyri KA-KR. á Seltjarnarnesi
Grótta-ÍR, í Hafnarfirði Hauk-
ar-Valur og í Mosfellssveit Aftur-
elding-Víkingur. Einnig er leikið
um helgina í 1. deild kvenna og 2.
deild karla.
Eins og venjan er á sunnudög-
um verður leikin heil umferð í úr-
valsdeildinni í körfubolta,
ÍA-Tindastóll leika á Akranesi,
Skallagrímur- Njarðvík í Borgar-
nesi, Grindavík- Keflavík í Kefla-
vík, Þór-Breiðablik á Akureyri,
KR-Haukar á Seltjarnarnesi og
Valur ÍR í Valsheimilinu.