Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1996, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 7. MARS 1996
Fréttir
Skoðanakönnun DV um viðhorf kjósenda til Hvalíj arðarganga:
Þorri þjoðarinnar
andvígur göngunum
- andstaðan er mun meiri hjá konum en körlum
Þorri þjóðarinnar er andvígur
göngum undir Hvalfjörð. Konur
hafa mun meiri andúð gagnvart
þeim en karlar. Þetta eru helstu nið-
urstöður skoðanakönnunar DV um
viðhorf kjósenda til Hvalíjarðar-
ganga. Könnunin fór fram síðastlið-
inn laugardag.
Úrtakið í skoðanakönnun DV var
600 manns. Jafnt var skipt á milli
jGylfi Þórðarson:
í samræmi
viö
neikvæða
umræðu
„Þetta er í samræmi við umræð-
una sem hefur verið heldur nei-
kvæð undanfarnar vikur, ekki síst í
DV. í öllu svona, hvort sem það er
biskupinn eða eitthvað annað, þá
mótast svörin af umræðunni á
hverjum tíma. Hins vegar á þetta
eftir að breytast hægt og bítandi
þegar frá líður. Kannanir um hvort
fólk ætlaði að nota göngin voru
mjög jákvæðar á sínum tíma,“ sagði
Gylfi Þórðarson, stjórnarformaður
Spalar, við DV um skoðanakönnun
blaðsins á viðhorfi kjósenda til
Hvalfjarðarganga.
Gylfi sagði að þessar niðurstöður
kæmu ekki á sig. Spölur hefði ekki
haldið uppi miklum vörnum á opin-
berum vettvangi.
„Enda er þetta það flókið verkefni
að það eru fái inni í því. Þannig
halda mjög margir að ríkið sé að
byggja göngin,“ sagði Gylfi. -bjb
kynja og eins á milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar.
Spurt var: „Ertu fylgjandi eða and-
vígur göngum undir Hvalfjörð?"
Skekkjumörk í könnun sem þessari
eru tvö til þrjú prósentustig.
Sé tekið mið af svörum allra í úr-
takinu sögðust 25,7 prósent fylgj-
andi göngunum en 61,5 prósent voru
þeim andvíg. Óákveðin reyndust
12,7 prósent og 0,1 prósent svöruðu
ekki spurningunni. Alls tóku því
87,2 prósent aðspurðra afstöðu til
spumingarinnar.
Ef aðeins eru teknir þeir sem af-
stöðu tóku eru 29,5 prósent kjósenda
fylgjandi göngum undir Hvalfjörð
en 70,5 prósent þeim andvíg.
Andstaðan meiri á lands-
byggðinni
Afstaða kynjanna er mjög mis-
munandi. Rétt rúmur helmingur
karla í úrtakinu voru Hvalfjarðar-
göngum andvígur en 70 prósent
kvenna. Svipað hlutfall óákveðinni
var eftir kynjum. Sé litið til búsetu
kjósenda þá er andstaðan gegn
göngunum meiri á landsbyggðinni
en á höfuðborgarsvæðinu. Þannig
koma 56 prósent andstæðinga gang-
anna af landsbyggðinni. Svipað
hlutfall stuðningsmanna kemur af
höfuðborgarsvæðinu. -bjb
Friðrik Hansen:
Niðurstað-
an kemur
ekki
á óvart
„Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar koma ekki á óvart. Almenn-
ingur í landinu gerir sér grein fyrir
að Spölur hf. hefur staðið með ein-
dæmum illa að undirbúningi þess-
ara framkvæmda, verið óheppnir
með ráðgjafa og hafa ekki haft
heildarhagsmuni þjóðarinnar að
leiðarljósi," sagði Friðrik Hansen
Guðmundsson verkfræðingur við
DV um skoðanakönnun blaðsins en
hann hefur gagnrýnt mjög gerð og
undirbúning á göngunum undir
Hvalfjörð, m.a. á opnum fundi sem
Verkfræðingafélag Islands stóð fyrir
á dögunum.
„Spölur hefur valið dýrasta val-
kostinn og jafnframt þann áhættu-
samasta. Þá hafa forsvarsmenn
Spalar verið staðnir að ósannindum
varðandi ljármögnun ganganna og
því misst allan trúnað meðal þjóðar-
innar,“ sagði Friðrik. -bjb
Viðhorf til Hvalfjarðarganga
Niöurstöður skoðanakönn- Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku
unarinnar uröu þessar: afstöðu veröa niðurstöðurnar þessar:
Óákv./svara ekki
Með og á móti göngum
- skipt eftir kynjurn -
karlar konur
Dagfari
Fallist í faðma
Enn eru biskupssögur á dagskrá.
Sagt er biskup hafi styrkt stöðu
sína eftir að hjónin frá Kaup-
mannahöfn sendu frá sér yfirlýs-
ingu í fyrradag um að þau hefðu
náð fullum sáttum við þjóðkirkj-
una. Þau harma mjög að þetta við-
kvæma mál hafi farið í fjölmiðla og
þann sársauka sem það hefur vald-
ið. Öll kærumál eru dregin til
baka.
Bíddu nú við. Hvað hafði þetta
fólk verið að segja? Jú, eiginkonan
hefur látið hafa eftir sér að biskup
hafi á sínum tíma gert tilraun til
að nauöga henni á opinberu veit-
ingahúsi í Kaupmannahöfn. Nú
síðast var þessum atburði lýst í
smáatriðum í helgarblaði DV. Eig-
inmaðurinn staðfesti frásögnina,
enda segist hann hafa verið við-
staddur þegar hin meinta nauðgun
á að hafa átt sér stað.
Þetta mál og önnur tvö tilvitnuð
dæmi hafa sett þjóðfélagið á annan
endann. Biskup hefur verið bitbein
kjaftasagna og mannorð hans rokið
út í veður og vind. Ekki koma svo
tveir menn saman hér á landi að
þeir ræði ekki kynferðishvatir
biskupsins yfir íslandi. Prestastétt-
in og íslenska þjóðkirkjan loga í
heiftarlegum deilum og prestar
hafa ekki um annað að hugsa held-
ur en það hvernig kristnin lifi
þennan biskupsslag af.
Allt út af því að þrjár konur
koma upp á yfirborðið og saka
biskupinn um kynferðislega
áreitni og tilraunir til nauðgunar.
Þessar konur segjast hittast reglu-
lega í Stígamótum til að lina þján-
ingar sínar. Konan úr Kaupmanna-
höfn hefur verið I þeim hópi. Svo
gerist það allt í einu eins og hendi
sé veifað að ásakanir þessarar
konu og eiginmanns hennar eru
dregnar til baka! Allt í plati, við
meintum ekkert með þessu, sorry
biskup.
Þessi hjón, sem segjast hafa hitt
biskup á dönskum veitingastað þar
sem konan varð fyrir áreitni hans,
hafa nú náð fullum sáttum við
þjóðkirkjuna og harma þann sárs-
auka sem málið hefur valdið. Rétt
eins og fólkið hafi alls ekki gert sér
grein fyrir afleiðingunum þegar
það fór af stað með sögu sína. Rétt
eins og það hafi ekki skipt neinu
að saka sjálfan biskupinn um kyn-
ferðisofbeldi. Rétt eins og það hafi
gert það að gamni sínu að velta
biskupnum upp úr pínulítlum
óþverra án þess að meina neitt
með því.
Þau eru ekki aðeins leið yfir
söguburði sjálfs sín heldur eru þau
núna eftir helgina fullkomlega sátt
við þjóðkirkjuna sem ekki verður
skilið öðruvísi en að kirkjan sé í
finu lagi og biskup sé í finu lagi og
guðstrúin sé þeim heilagri en
nokkru sinni fyrr. Líklega vegna
þess hvernig biskup hefur komið
fram í málinu öllu.
Af hverju reyna ekki fleiri þessa
aðferð til að sættast við kirkjuna
og öðlast sína guðstrú? Af hverju
ljúga ekki einhverjir fleiri kvenna-
farssögum upp á biskup svo þeir
geti fundið frið og sátt við þjóð-
kirkjuna?
Biskup er náttúrlega himinlif-
andi og lögfræðingarnir, sem hann
hefur ráðið til sín til að standa
vörð um kristnina og orðstír henn-
ar, hafa unnið mikinn sigur.
Spurning hvort kirkjan þurfí ekki
að hafa lögfræðinga í fullu starfi
framvegis til að snúa upp á hend-
urnar á hverjum þeim einstaklingi
sem telur sig fara halloka í við-
skiptum við kirkjunnar þjóna, til
að viðhalda guðstrúnni og sætta
þegnana við þjóðkirkjuna?
Það sem klerkarnir og biskupinn
ráða ekki við taka lögfræðingarnir
að sér og þjóðkirkjan verður aftur
hafin yfir gagnrýni og blessuð í
bak og fyrir af þeim sem segja sín-
ar farir ekki sléttar.
Og þeir sem eru með efasemdir
um kærleiksathafnir biskupsins og
annarra guðsmanna geta þá komið
skítasögum á framfæri í þeim til-
gangi að ná sáttum við þjóðkirkj-
una með því að viðurkenna að sög-
urnar voru allar í plati.
Kirkjan þarf ekki annað en að
hóta málssókn og allt fellur í ljúfa
löð. Dagfari