Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1996, Blaðsíða 17
16
MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1996
MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1996
17
með lið Fram
Guðmundur Guðmundsson
verður áfram við stjómvölinn
hjá Fram en undir hans stjórn
varð liðið íslandsmeistari í 2.
deild sem lauk um helgina.
Samkvæmt heimildum DV þá
sóttust mörg lið eftir því að fá að
njóta krafta Guðmundar en
Guðmundur ákvað að halda
starfi sínu áfram í Safamýrinni.
MikiU hugur er í Frömurum og
hafa þeir í hyggju að styrkja lið
sitt með nokkrum leikmönnum
fyrir slaginn í 1. deild.
-GH
Sigurjón í 16. sæti
Sigurjón Arnarsson hafnaði í
16. sæti af 70 keppendum á
golfmóti í Tommy Armour
mótarööinni í Flórída um
helgina. Skor Sigurjóns var 72
högg sem er par vallarins.
Einar án stiga
íslenska kvennalandsliðið í
handknattleik hefur lokið
þátttöku sinni í riðlakeppni
Evrópumótsins en stúlkurnar
léku sína síðustu leiki í riðlinum
um páskana. Þegar lokastaða
riðlanna Fimm er skoðuð kemur
í ljós aö íslenska liðið var eitt
liða sem ekki hlaut stig.
Zilnik í landsliöiö
Tveir knattspyrnumenn frá
fyrrum Júgóslavíu sem báðir
hafa leikið hér á landi eru að að
gera það gott í íþrótt sinni.
Drazen Podunavac, sem lék
með FH-ingum sumarið 1994,
hefur leikið með stórliði Rauðu
Stjörnunnar í Belgrad síðan
hann fór frá FH-ingum en á dög-
unum var hann seldur til Bolagh
í Suður-Kóeru fyrir 45 milljónir
króna. Þá er Janni ZUnik, sem
lék í nokkur ár með Víkingum,
kominn í landsliöshóp Slóveníu
sem leikur vináttulandsleik gegn
Grikkjum í vikunni. „„
WBA vann Leicester
WBA vann Leicester, 1-2 og
Stoke vann Luton 1-2 i 1. deUd
ensku knattspyrnunnar í
gærkvöldi. Úrslit í Þýskalandi:
Schalke-Leverkusen 1-1,
Karlsruhe-1860 Munchen 1-1,
Frankfurt-Stuttgart 2-2, Köln-
Dortmund 0-0, Rostock-
Uerdingen 1-0.
-SK
íþróttir
Thorsvedt frá Spurs
Norski markvörðurinn Erik
Thorsvedt, hjá Tottenham í
Lundúnum, fær í sumar frjálsa
sölu frá félaginu. Hann hefur
ekki komist í aðalliðið eftir að
Ian Walker fór að standa á miUi
stanganna. Strax og þetta komst
á kreik setti Sporting í Lissabon
sig í samband við Norðmanninn.
Miklosko áfram
Tékkneski markvörðurinn hjá
West Ham, Ludek Miklosko,
skrifaði um helgina undir nýjan
samning við félagið. Fyrri samn-
ingur Tékkans átti að renna út
árið 1998 en nú hefur hann verið
framlengdur til ársins 2000. Auk
þessa fær Miklosko ágóðaleik.
Basler til Perugia?
ítalska blaðið Corriere deUa
Sport skýrði frá þvi um helgina
að þýski landsliðsmaðurinn
Mario Basler hefði gert samning
með fyrirvara við 2. deUdar liðið
Perugia.
Perugia er í þriðja sæti í 2.
deild og hefur góða möguleika á
að vinna sig upp í 1. deUd. Ef það
gerist fer Basler til félagsins.
Inter og Bayern
Inter Milan og Bayern
Munchen eiga þessa dagana í
viðræðum um skipti á leikmönn-
um.
ítölsk blöð greindu frá þessu í
gær en um er að ræða skipti á
Ciriaco Sforza tU Inter og Davide
Fontolane tU Bæjara.
Ferguson hrifinn
Alex Ferguson er yfn- sig hrif-
inn af Grikkjanum George Donis
hjá Panathinakos. Grísk dagblöð
sögðu í gær að Ferguson væri
reiðubúinn að greiða 380 mUljón-
ir fyrri Donis. Gríska liöið og
Donis eru reiðubúin að ganga tU
samninga og ætti því ekkert að
vera að vanbúnaöi að Donis
gangi til liðs við Manchester
United í sumar.
Brolln á heimleið
Sænska úrvalsdeildarliðið IFK
Nörrköping hefur náð samkomu-
lagi við Leeds um leigu á sænska
landsliðsmanninum Tomasi
Brolin. Wilkinson, stjóri Leeds,
taldi sig engin not hafa fyrir
Brolin og voru þeir félagar hætt-
ir að talast við. Það lá því bein-
ast við að Brolin hyrfi á braut
frá Elland Road.
Breytt í hlutafélag
Stjórn Chelsea ákvað um helg-
ina að breyta félaginu í hlutafé-
lag. Níu milljóna hlutabréf verða
seld og er ætlunin að nota pen-
inga til að kaupa nýja leikmenn,
reisa nýja íþróttamiöstöð við
Stamford Bridge, byggja hótel og
neðanjarðarbrautarstöð.
Yorke á grænni grein
Brian Little, stjóri hjá Aston
VUla, vill semja við Dwight Yor-
ke til ársins 2002. Hann segir
Yorke ómetanlegan félaginu og
hafi verið potturinn og Dannan í
velgengni liðsins í vetur. Yorke
á enn 18 mánuði eftir af samn-
ingi sínum við Villa svo segja
má að hann sé á grænni grein.
í bann og fjársekt
Mark Hughes hjá Chelsea á
yfir höfði sér langt bann og fjár-
sekt að auki frá enska knatt-
spyrnusambandinu. Hughes á að
mæta fyrir dómstól sambandsins
þar sem hann hefur fengið 45
refsistig í vetur. Talið er líklegt
að Hughes megi verða ánægður
með að sleppa við þriggja leikja
bann.
-JKS/DÓ
Guðmundur Guðmundsson.
Gummi áfram
íþróttir
Bandaríski körfuboltinn:
Chicago var
loks stöövaö
Hakeem Olajuwon lék að nýju
með meisturum Houston í nótt en
hann hefur átt við hnémeiðsli að
stríða. Olajuwon skoraði 20 stig
gegn nýliðunum í Vancouver en
þetta var annar sigur liðsins í síð-
ustu 12 leikjum. Menn eru að vona
að endurkoma Olajuwon styrki liðið
í þeirri baráttu sem framundan er.
Úrslit leikja í nótt:
New York-Boston..............97-93
New Jersey-Detroit..........94-111
Milwaukee-Toronto...........96-102
Houston-Vancouver............90-84
Denver-LA Lakers.............98-91
Phoenix-Portland.............91-98
Sacramento-Dallas ............95-86
Toronto hefur ekki unnið oft á
útivelli i vetur en það gerðist þó i
Milwaukee í nótt. Alvin Robertson
skoraði 25 stig fyrir Vancouver. Vin
Baker skoraði 25 stig fyrir
vængbrotið lið Milwaukee.
New Jersey tapað illa á heima-
velli. Fyrir Detroit skoraði Allan
Houston 23 stig.
Patrick Ewing skoraði 25 stig fyr-
ir New York en það var hins vegar
John Starks sem kom sigrinum í ör-
ugga höfn úr tveimur vítaskotum
undir lokin. Pervis Ellison skoraði
23 stig fyrir Boston.
Portlaland vann góðan sigur í
Phoenix. Clifford Robinson skoraði
24 stig fyrir Portland. Kevin John-
son skoraði 27 stig fyrir Phoenix.
Denver vann sinn fimmta leik í
sjö viðureignum. Dale Ellis var með
20 stig fyrir Denver og Vlade Divac
19 stig fyrir Lakers. Magic Johnson
skoraði 14 stig í leiknum og hirti
átta fráköst,
Sacramento eygir von um að
komast í úrslitakeppnina í fyrsta
skipti í 10 ár eftir sigur á Dallas.
Leikir í fyrrinótt:
Chicago Bulls tapaði öllum á
óvart í United Center gegn
Charlotte Hornets i fyrrinótt. Þrátt
fyrir ósigurinn á Chicago ennþá
möguleika að verða fyrst liða til að
vinna 70 leiki áður en til úrslita-
keppninnar kemur Leikmenn
Chicago nýttu færin illa á lokakafl-
anum. Fyrir leikinn hafði Chicago
unnið 44 leiki í röð á heimavelli
og er því sigur Charlotte athyglis-
verður og fer á spjöld sögunnar.
Chicago hafði fyrir leikinn var
ósigrað á heimavelli í tæpt ár.
Jason Kidd tryggði Dallas sigur
gegn Golden State með því að skora
út tveimur vítaskotum fjórum sek-
úndum fyrir leikslok.
Clippers stöðvaði Portland sem
hafði á undan unnið sjö leiki í röð.
Úrslit í fyrrinótt:
New York-Seattle...........98-108
- Kemp 25, Schrempf 24.
Philadelphia-New Jersey .... 82-79
Maxwell 41-
Washington-Miami............111-99
Howard 25, Price 21-
Minnesota-Toronto.........115-101
Rider 28, Garnett 23-
Chicago-Charlotte ...........97-98
- Anderson 20, Curry 19.
Indiana-Atlanta..............97-95
Miller 24-
Utah Jazz-San Antonio .......91-92
Malone 20- EUiot 23, Johnson 17.
Golden State-Dallas.......102-104
Smith 26, SpreweU 25- Jackson 24,
McCloud 22.
LA Clippers-Portland........102-89
Roberts 25, Vaught 18- Sabonis 20, Grant
17.
-JKS
Japansmótið í handknattleik:
Ástralía engin
fyrirstaða
- ísland sigraði, 29-19, í fyrsta leik
Japansmótið í handknattleik
hófst í borginni Kumamoto í gær og
áttust þá íslendingar og Ástralar við
í fyrsta leik. íslendingar höfðu tögl
og hagldir frá fyrstu mínútu og sigr-
uðu að lokum, 29-19, eftir að staðan
í hálfleik var, 14-9.
íslenska liðið lék á köflum ágæt-
lega en mótspyrna Ástrala var
lengstum ekki mikil og þvi ekki
mikið að marka getu íslendinga í
leiknum. Þetta var fyrsti leikur
þjóðanna í handknattleik en ljóst
má vera að Áströlum miði ágætlega
í uppbyggingu sinni í handknatt-
leik.
Mörk íslands: Ólafur Stefánsson
5, Sigurður Bjamason 5, Júlíus Jón-
asson 5, Dagur Sigurðsson 4, Valdi-
mar Grímsson 3, Sigfús Sigurðsson
3, Patrekur Jóhannesson 2, Davíð
Ólafsson 1, Róbert Sighvatsson 1.
Næsti leikur Islendinga er gegn
Bandaríkjamönnum og á morgun
verður leikið við Japani.
-JKS
Grindavík - Keflavík (36-45) 72-82
5-4, 5-8,11-12,11-20,18-28, 20-30, 32-36, 32-15 (3845) 38-53,45-53, 54-64, 60-64, 64-67,
67-69, 70-76, 72-76, 72-82.
Stig Grindavíkur: Helgi Jónas Guðfinnsson 15, Rodney Dobard 15, Marel Guð-
laugsson 15, Guðmimdur Bragason 12, Unndór Sigurðsson 9, Hjörtur Harðarson 6.
Stig Keflavlkur: Guðjón Skúlason 20, Falur Harðarson 17, Dwight Stewart 14, Al-
bert Óskarsson 9, Jón Kr. Gíslason 9, Sigurður Ingimundarson 8, Davíð Grissom 3,
Gunnar Einarsson 2.
Fráköst: Grindavík 37, Keflavík 31.
Flest fráköst Grindavikur: Hjörtur 14, Dobard 5, Marel 5.
Flest fráköst Keflavikur: Stewart 11, Sigurður 6.
Flestar stoðsendingar Grindavíkur: Hjörtur 3, Helgi Jónas 3.
Flestar stoðsendingar Keflavíkur: Falur 3, Jón Kr. 3, Sigurður 3.
Varin skot: Dobard 3, Guðmundur 2 - Grissom 1.
3ja stiga körfur: Grindavik 4/21, Keflavík 11/18.
Vítanýting: Grindavík 18/26, Keflavík 11/13.
Dómarar: Leifur S. Garðarsson og Helgi Bragason, skiluðu sínu hlutverki frábær-
lega vel og gerðu mjög fá mistök.
Áhorfendur: Troðfullt hús, um 1400 manns.
Maður leiksins: Falur Harðarson, Keflavík og Guðjón Skúlason, Keflavík. Þeir áttu
frábæran leik og lögðu grunninn aö sigri Keflvíkinga.
Afdrifarík keppnisferð Víðis til Skotlands:
Steinar varð fyrir
fólskulegri árás
Taugar heimamanna brugðust
DV Suðurnesjum:
„Við spiluðum betri vörn sem skil-
aði okkur betri og opnari sóknarfær-
um. Við náðum að stöðva Hjört fram-
ar og það skipti máli. Hann og Helgi
Jónas hafa reynst okkur erfiðir und-
anfarið," sagði Guðjón Skúlason, leik-
maður Keflavíkur, en hann átti stór-
kostlegan leik er Keflavík sigraði
Grindavík í Grindavík í gærkvöld.
Staðan í baráttunni um íslandsmeist-
aratitilinn er nú 3-2, Grindavík í vil,
en með sigri í gærkvöld hefðu Grind-
víkingar hampað titlinum.
„Baráttan var góð hjá okkur og
okkur tókst að lengja tímabilið. Nú
verðum við að byggja upp sterkan
heimavöll sem við höfum klúðrað. Ég
vil hvetja alla Keflvíkinga til að koma
á næsta leik og styðja við bakið á okk-
ur,“ sagði Guðjón enn fremur.
Keflvíkingar voru yfir allan leik-
tímann í gærkvöldi og eiga enn mögu-
leika á að tryggja sér titilinn.
Guðjón Skúlason átti frábæran leik
fyrir Keflvíkinga og var hreint óstöðv-
andi í byrjun. Falur kom einnig gríð-
arlega sterkur til leiks. Guðjón og Fal-
ur náðu að stöðva bakverði Grindvík-
inga og við það riðlaðist leikur Grind-
víkinga mikið.
„Vorum ekki sigurvissir“
„Við vorum ekki sigurvissir og við
vissum að þeir kæmu grimmir til
leiks. Við erum enn þá yfir og press-
an er á þeim. Þeir mega engin mistök
gera. Við gerum allt sem í okkar valdi
stendur til að laga ýmsa hluti í okkar
leik og mætum svellkaldir ásamt
stuðningsmönnum okkar sem eru
þeir bestu á landinu,“ sagði Friðrik
Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvík-
inga.
Grindvíkingar áttu sennilega ekki
von á Keflvíkingum svona sterkum.
Mikil pressa var á heimamönnum og
taugar þeirra. brugðust á örlaga-
stundu.
Bestir hjá Grindavík voru þeir
Marel Guðlaugsson, sem var sérstak-
lega góður í síðari hálfleik. Þá var
Dobard sterkur í fyrri hálfleik og
gerði marga laglega hluti eins og þeg-
ar hann tróð knettinum í körfu Kefl-
víkinga yfir Dwight Stewart með gíf-
urlegum tilþrifum.
Guðjón og Falur voru bestir hjá
Keflavík. Jón Kr. og Albert Óskarsson
léku einnig mjög vel sem og þeir
Stewart og Grissom. Þá komst Sigurð-
ur Ingimundarson vel frá leiknum.
„Fáum annað tækifæri"
„Nú var okkur stillt upp við vegg
og nú urðum við að sína allan okkar
karakter. Það er að mörgu leyti rétt
sem komið hefur fram í DV að Falur
og Guðjón hafa ekki verið að standa
sig vel og þessir menn gera sér grein
fyrir því. Þetta var þeirra síðasta
tækifæri og þeir nýttu það frábær-
lega. Nú fá þeir annað tækifæri í
næsta leik ásamt okkur hinum,“ sagði
Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leikmað-
ur Keflvíkinga, eftir leikinn í Grinda-
vík í gærkvöld. Og hann bætti við:
„Mér fannst sjálfstraustið vera í lagi
hjá okkur. Það var mikilvægt að ná
að vera yfir í leiknum og það sló á
mestu lætin í þeirra áhorfendum. Ég
hefði ekki boðið i þetta ef við hefðum
ekki veriö yfir í hálfleik. Þá hefði allt
orðið vitlaust og það hefði þjappað
þeim saman. Nú eigum við næsta leik
á okkar heimavelli og það er kominn
tími til að leika vel þar,“ sagði Jón
Kr. í samtali við DV.
-SK/-ÆMK
Reykjavíkurmótið
1996
A DEILD • GERVIGRASIÐ LAIJGARDAL
Miðvikudag'ur 10. apríl kl. 20:30
KR - Fram
R DEILD • LEIKMSVÖLLUR
Miðvikudagur 10. apríl kl. 20:30
Léttir - Armann
Jón Kr. Gíslason brýtur sér leið að körfu Grindvíkinga í leiknum í gærkvöldi en til varnar er Unndór Sigurðsson. Keflvíkingar
náðu að sigra og minnka muninn í 3-2 í einvígi iiðanna. Næsti leikur fer fram annað kvöld og þá geta Keflvíkingar jafnað met-
in. Ef til sjöunda leiksins kemur fer hann fram í Grindavík á iaugardag. DV-mynd GS
Steinar Ingimundarson, knatt-
spyrnumaður í Viði i Garði og að-
stoðarþjálfari liðsins, varð fyrir
mjög grófri líkamsárás í leik Víðis
og skoska liðsins Pollock FC í Glas-
gow i Skotlandi fyrir páska.
„Við vorum í æfingaferð og að
leika æfingaleik gegn Pollock og
leikurinn hafði verið mjög rólegur
og ekkert merkilegt að gerast. Þá
vissi ég ekki fyrr en einn leikmaður
liðsins kom hlaupandi á mig og
skallaði mig í höfuðið. Ég sá hann
aldrei og steinrotaðist við höggið.
Ég var fluttur á sjúkrahús og reynd-
ist kjálkábrotinn. Félagar mínir
sem sáu þetta gerast sögðu að leik-
maður Pollock hefði hreinlega tekið
tilhlaup á mig. Leiknum var hætt
þegar þetta gerðist og leikmenn Víð-
is gengu af leikvelli í mótmæla-
skyni," sagði Steinar Ingimundar-
son þegar DV hafði samband við
hann í gærkvöld.
Máliö hefur vakið mikla athygli í
Skotlandi. Skoska rannsóknarlög-
reglan vinnur að rannsókn málsins
og dómari leiksins hefur þegar sent
skýrslu um atvikið til FIFA. Skosk-
ir fjölmiðlar hafa fjallað um þetta
mál. Steinar, sem verður frá æfing-
um og keppni í 6-8 vikur, hyggst
kæra skoska leikmanninn fyrir
árásina og á Skotinn yfir höfði sér
mjög langt keppnisbann, jafnvel allt
að þrjú ár. -SK
Steinar Ingimundarson varð fyrir
fólskulegri árás í leik í Skotlandi.
Hvalreki á fjörur FH í handboltanum:
Markvörður
S-Kóreu til
liðs við FH
FH-ingar hafa fengið góðan lið-
styrk fyrir næsta keppnistímabil
í handboltanum því landsliðs-
markvörður Suður-Kóreu, Suk
Lee-hyung, hefur ákveðið að
ganga til liðs við FH og hafa náðst
samningar milli hans og FH-inga
um að hann leiki með FH næstu
tvö árin að piinnsta kosti.
Sló í gegn í síðustu
heimsmeistarakeppni
Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir
FH-inga enda er Lee frábær
markvörður og mönnum er í
fersku minni hvemig hann lokaði
markinu gegn íslendingum á
heimsmeistaramótinu sem fram
fór hér á landi í fyrra. Hann er 26
ára gamall og hefur leikið með
háskólaliði og fyrirtækjaliði í
heimalandi sínu. Hann hefur átt
fast sæti í landsliði Suður-Kóreu
og keppir með því á æfingamót-
inu í Japan þessa dagana en ís-
lendingar eru einnig þátttakend-
ur á því móti.
Mikill fengur fyrir okkur og
íslenskan handknattleik
„Við lítum á þetta sem mikinn
feng fyrir okkur og íslenskan
handknattleik um leið. Þetta er
heimsklassa markvörður eins og
hann sýndi og sannaði á heims-
meistaramótinu hér í fyrra og er
áreiðanlega einn besti markvörð-
ur heims í dag. Hann á örugglega
að geta miðlaö getu sinni og
reynslu til okkar yngri mark-
varða og við hlökkum mikið til að
fá hann í okkar raðir,“ sagði Guð-
jón Árnason, fyrirliði FH, við DV
í gærkvöldi.
Suk Lee er væntanlegur til ís-
lands um mánaðamótin maí-júní.
-GH