Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1996, Blaðsíða 32
L«m tíl mMh að vinfl? Vinningstöh 9.4/96 KIN > 1 cn C2 § I GC > LU i ■? ^ C2 1 'ID S LT3 <X r 1— LTJ 1— M£m FR ETTAS KOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1996 Davíð ekki í forsetaframboð: Njörður P. Njarðvík og Ólafur Egilsson — enn volgir Davíð Oddsson forsætisráðherra tilkynnti á þingflokksfundi Sjálf- stæðisflokksins í gær að hann væri hættur við að fara í forsetaframboð. Hann gaf ýmsar skýringar á þessu í gærkveldi meðal annars þá að hann teldi sig of ungan og að eftilvill ætti starfið ekki við sig. Ástæðurnar eru fleiri samkvæmt heimildum DV. í fyrsta lagi er bent á að ríkisstjórnin og stjórnarflokk- arnir eigi mjög erfiðar vikur fram undan. Það er vegna þeirra frum- varpa sem launþegahreyfingin hef- ur lagst gegn af alefli. í annan stað hefur fylgi Sjálfstæð- ^ jsflokksins dalað í skoðanakönnun- ' um að undanfórnu. Það er í fyrsta sinn í mjög langan tíma sem fylgi flokksins dalar í skoðanakönnun- um. Menn segja að Davíð geti ekki yfirgefið formennskuna í flokknum á slíkum tíma. í þriðja lagi er bent á að Davíð hafi beðið of lengi með að taka ákvörðun í þessu máli og hafi því í raun misst af lestinni. Vegna alls þessa hafa nánustu samstarfsmenn Davíðs í flokknum lagt á það ofur áherslu á að hann —færi ekki í forsetaframboð. Og hann hefur orðið við því ákalli. Því er jafnframt haldið fram að Davíð Oddsson og menn í kringum hann leiti nú að frambjóðanda sem geti att kappi við Ólaf Ragnar Grímsson sem samkvæmt skoðana- könnunum hefur tekið afgerandi forystu af þeim sem hafa gefið kost á sér í framboð. Ýmsir sem nefndir hafa verið sem hugsanlegir frambjóðendur eru enn volgir. Ólafur Egilsson sendiherra sagði í samtali við DV í gær að áfram væri verið að hvetja sig til að fara fram. Hann sagðist enn vera að skoða málið. Njörður P. Njarðvík prófessor sagði að það væri alveg að koma að því að hann tæki ákvörðun. Hann yrði að hrökkva eða stökkva á allra næstu dögum. Ekki náðist í Pál Skúlason pró- fessor vegna þessa máls í gær. Þeir sem DV ræddi við, og þekkja til hans, segja að hann sé ekki búinn að taka ákvörðun varðandi forseta- framboð. -S.dór Innbrot upplýst Brotist var inn á veitingastaðinn Pizza 67 í Vestmannaeyjum í fyrr- inótt og þaðan stolið áfengi og ein- hverjar skemmdir unnar. Maður á þrítugsaldri var síðan handtekinn í gær og viðurkenndi hann verknað- inn og benti á þýfið. Hann hefur —áður komist í kast við lögin. Málið er upplýst að fullu. -sv Fulltrúar launþega funda með ríkisstjórn: Nær öruggt að breytingar verði á frumvörpunum - launaþegasamböndin sögð tilbúin með aðgerðanefnd Samkvæmt heimildum DV eru nú taldar yfirgnæfandi líkur á því að stjórnarfrumvörpunum um- deildu verði breytt þannig að launaþegasamböndin í landinu, sem hafa tekið höndum saman í baráttunni gegn þeim, geti sætt sig við þau. Fulltrúar þeirra munu funda með rikisstjórninni í dag. Þegar liggur fyrir yfirlýsing frá forsætisráðherra um að frum- varpið um lífeyrisréttindi opin- berra starfsmanna verði ekki keyrt í gegnum þingið í andstöðu við samtök starfsmanna ríkisins. Samkvæmt heimildum úr þing- flokki Framsóknarflokksins mun Páll Pétursson félagsmálaráð- herra vilja ná samkomulagi við ASÍ um breytingar á frumvarpinu um stéttarfélög og vinnudeilur. „Ef ekki verður orðið við ósk- um okkar um að stöðva frumvörp- in um sinn og gera á þeim veiga- miklar breytingar, í samráði við launaþegahreyfinguna, munum við koma saman síðdegis í dag og taka ákvörðun um hvert verður næsta skrefið," sagði Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasam- bandsins, í samtaíi við DV í morg- un. Mikil harka er í forráðamönn- um stóru launþegasambandanna sem tekið hafa upp samstarf í bar- áttunni gegn „heitu frumvörpun- um“, sem svo eru kölluð. DV hef- ur heimildir fyrir því að þeir muni ákveðnir í að skipa aðgerða- nefnd fari svo að ríkisstjómin hafni kröfu þeirra um breytingar á frumvörpunum. Sú aðgerða- nefnd mun síðan taka ákvarðanir um til hvaða sameiginlegra að- gerða verði gripið á næstunni. Það er ekki síst innan ASÍ sem menn eru harðir í aö gefa ekkert eftir í þessu máli. Það er ekki nema rúmur mánuður þar til þing Alþýðusambands íslands verður haldið og sú staðreynd þrýstir mjög á að ekki verði gefið eftir. -S.dór Formenn stærstu launþegasamtaka landsins funduðu í gær til að stilla saman strengi fyrir fundinn með ríkisstjórn- inni í dag. Hér eru þeir saman Hervar Gunnarsson, varaforseti ASÍ, Benedikt Davíðsson, forseti samtakanna, og Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB. DV-mynd GS Prestar undirbúa félagsfund: Biskup heim í gær Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason kom heim í gær úr fríi. Félag Reykjavíkurpresta mun halda nokkurs konar undirbúningsfund í kvöld fyrir fund Prestafélags ís- lands á mánudag. Helga Soffia Konráðsdóttir form- aður Félags Reykjavíkurpresta sagði í morgun að á fundinum í kvöld yrði rætt um fundarefni Prestafélagsfundarins sem er mál- efni biskups og ásakanir á hendur honum og sagði að nýr flötur á því máli yrði viðraður. Hver sá flötur væri vildi hún ekki greina frá en samkvæmt heimildum DV mun vera um að ræða það að prestar sem hingað til hafa stutt sjónarmið bisk- ups sjálfs telji að trúverðugleika biskups hafi verið svo mjög spillt með röngum sakargiftum og andróðri að hagsmunum kirkjunn- ar sé ógnað, gegni hann áfram emb- ætti. -SÁ Víkurskarðið: Slasaðist eftir útafakstur Maður missti stjórn á bifreið sinni í Víkurskarði um miðnætti í gærkvöld með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar. Snarbratt er víða í Víkurskarðinu og því má segja að lánið í óláninu hafi verið staðurinn þar sem bíllinn fór út af. Að sögn lögreglunnar á Akureyri er talið að maðurinn hafi hlotið ein- hver innvortis meiðsl. Hann var einn í bflnum. -sv Enn íkveikja Brotist var inn í vinnuskúr við Grundargeröi í gærkvöldi og kveikt þar í blaðarusli. Litlar skemmdir urðu vegna eldsins en einhverjar vegna hita og reyks. Skúrinn er í eigu Reykjavíkurborgar. „Það er allt of mikið um að kveikt sé í þessa dagana og aðallega er ver- ið að kveikja í ruslatunnum. Það er því rétt fyrir fólk sem er með plast- tunnur að huga að því hvar þæreru staðsettar. Ef þær eru einhvers stað- ar undir gluggum er voðinn vís ef eldur er borinn að þeim,“ sagði Friðrik Þorsteinsson, varðstjóri Slökkviliðsins í Reykjavík, við DV í morgun. -sv L O K I Veöriö á morgun: Gola eða kaldi Á morgun verður suðaustan- gola eða kaldi og rigning allra austast á landinu en skýjað með köflum og að mestu þurrt ann- ars staðar. Hiti verður á bilinu 2 tfl 8 stig, kaldast á Vestfjörðum en hlýjast um landið norðanvert. Veðrið í dag er á bls. 28 l OPEL l Opel Corsa verð kr. 1.023.000.- Bílheimar ehf. Sœvarhöföa 2a Sími: 525 9000 j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.