Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Blaðsíða 19
18 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 23 íþróttir Iþróttir Eiöur með A-lið- inu í Eistlandi? Samkvæmt heimildum DV eru talsveröar líkur á því að Eiöur Smári Guðjohnsen, hinn 17 ára gamli atvinnumaður hjá PSV í Hollandi, verði valinn i A-lands- liðið í knattspyrnu sem mætir Eistlendingum í Tallinn á mið- vikudaginn í næstu viku. Dag- inn áður mætast 21 árs landslið þjóðanna en Eiður hefur leikið með því liði að undanfömu. Það gæti því farið svo að feðgarnir Arnór og Eiður Smári lékju hlið við hlið með landslið- inu í Tallinn. Eiður Smári mun spila með unglingalandsliði íslands þegar það mætir írum í 16 liða úrslit- um Evrópukeppninnar í næsta mánuði. KSÍ hefur tilkynnt PSV að félagið þurfi að gefa hann lausan í leikina sem verða 7. og 14. maí, fyrri leikurinn á írlandi. -VS Miller ekki með í úrslitunum? Allt bendir til þess að Reggie Miller, körfuboltamaðurinn snjalli, geti ekki leikið með Indiana í úr- slitakeppni NBA-deildarinnar. Miller fékk slæmt högg í leik Indiana við Detroit um helgina, sprunga kom í augnbotn og hann þurfti að gangast undir aðgerð í fyrrinótt. Læknar liðsins segja að hann verði minnst þrjár vik- ur að ná sér en úrslitakeppnin hefst í næstu viku. -VS Loks allir heilir hjá Houston Meistarar Houston Rockets hafa verið með eindæmum óheppnir með meiðsli það sem af er þessu ári og lykilmenn liðsins hafa verið meira og minna fjar- verandi. En um helgina var Sam Cassell úrskurðaður leikfær og þar með getur Houston teflt fram sínu sterkasta liði í fyrsta skipti síðan 12. janúar. -VS Houston mætir líklega Lakers Allt bendir til þess að Houston hefii meistaravörnina gegn LA Lakers. Lið Lakers er í fjórða sæti Vesturdeildarinnar og Hou- ston í því fimmta og Lakers verður því með oddaleikinn á heimavelli. Þá er nokkuð ljóst að San Antonio leikur við Phoenix og Utah við Portland en Seattle mætir Sacramento eða Golden State sem berjast um 8. sætið fyrir vestan. í Austurdeildinni er allt galop- ið en þó er ljóst að Chicago, Or- lando og Indiana verða í þremur efstu sætunum. New York, Detroit, Cleveland og Atlanta eru nánast hnífjöfn í sætum fjög- ur til sjö en Charlotte, Miami og Washington berjast um 8. sætið og réttinn til að mæta Chicago. -VS Borðtennis: Guömundur vann að vanda Guðmundur E. Stephensen vann Kristján Jónasson í úrslita- leik í meistaraflokki karla á Adi- das-mótinu sem fram fór í TBR- húsinu á sunnudaginn. Víkingar unnu fjóra aðra flokka því Eva Jósteinsdóttir sigraði í meistaraflokki kvenna, Hilmar Konráðsson í 1. flokki karla, Magnús Magnússon í byrj- endaflokki og Gísli Antonsson í eldri flokki karla. Hulda Péturs- dóttir, Nesi, sigraði í 1. flokki kvenna og ívar Hróðmarsson, KR, í 2. flokki karla. Jafnt á Highbury Arsenal og Tottenham gerðu markalaust jafntefli í gærkvöldi. Alls ekki sammála því að hætta á toppnum" - segir Jón Kr. Gíslason sem er hættur að þjálfa Keflavík eftir fimm farsæl ár sem þjálfari DV, Suðurnesjum: „Eg er búinn að taka eina ákvörð- un og hún er sú að ég er hættur að þjálfa Keflavíkurliðið. Allt annað er raunar möguleiki enn þá, jafn- vel að spila með öðru liði eða þjálfa annað lið. Þetta er ákvörðun sem ég tók áður en úrslitakeppnin byrjaði, alveg sama hvernig hún hefði farið. Draumurinn var auð- vitað að hætta með liðið sem ís- landsmeistara en það tókst ekki,“ sagði Jón Kr. Gíslason, en hann hefur sagt upp störfum sem þjálf- ari Keflvíkinga eftir að hafa þjálf- að með góðum árangri síðustu fimm árin og alltaf tekist að vera með liðið í fremstu röð. Það eru því tíðindi þegar Jón Kr. hættir sem þjálfari hjá Keflavík. „Orðið tímabært að prófa eitt- hvað annað“ „Ég er búinn að þjálfa liðið í 5 ár en yfirleitt er talið gott að vera með lið í 3 ár. Það er orðið tímabært fyrir mig að prófa eitthvað annað, hvort sem það er að þjálfa annað lið eða leika með öðru liði. Það þarf að hleypa einhverju fersku blóði í Keflavíkurliðið. Ég held að það sé skilyrði. Það verður örugg- lega mjög undarlegt seinni part sumars að fara þá ekki að huga að undirbún- ingi Keflavíkurliðsins eins og venju- lega. Hvað þá ef maður færi að undir- búa eitthvert annað lið fyrir íslands- mótið. Þetta er búinn að vera frábær tími með lið Keflavíkur og við höfum alltaf verið við toppinn." Jón heldur áfram: „Keflvískir áhorf- endur er vægast sagt mjög sérstakir. Þeir eru góðu vanir. Yfir veturinn eru þeir kannski ekkert sérstaklega dugleg- ir við að hvetja liðið en þegar kemur að úrslitakeppninni hafa þeir sýnt mikinn stuðning í öll þessi ár. Það er ekki hægt að halda liði á toppnum nema með dyggum stuðningi áhorfenda sem eru geysilega mikilvægir.“ - Nú hafa Keflvíkingar verið við toppinn í fimm ár. Hverjar eru aðal- ástæður þess? „Til að ná árangri mörg ár í röð þurfa fjögur atriði að vera til staðar. Góð stjórn, góðir leikmenn, góður þjálf- ari og góð aðstaða. Það sést á árangri liðanna á Suðurnesjum að þessi atriði hafa alltaf verið i góðu lagi.' „Um leið og eitt af þessum fjórum at- riðum bregst þá detta liðin niður. Suð- urnesjaliðin eiga eftir að vera á toppn- um næstu árin. Hefðin er til staðar og hún er gríðarlega mikilvæg." „Sáttur við minn feril“ - Ert þú ekki búinn að gera það upp við þig hvort þú hættir að leika eða ekki? „Nei, ég er ekki búinn að gera það al- veg upp við mig. Ég myndi sætta mig við það að hætta núna. Ég er sáttur við minn feril. Sumir segja að maður eigi að hætta á toppnum en ég er alls ekki sammála því. Ég held að menn eigi að halda áfram að spfla körfuknattleik þangað til menn eru orðnir leiðir á þessu. Ég hef mjög gaman af þessu enn þá, skrokkurinn er í sæmilegu standi þannig að ég gæti alveg átt tvö ár eftir sem leikmaður.“ Vil einbeita mér að landsliðinu Jón Kr. Gíslason er landsliðsþjálfari og fram undan eru erfíð verkefni. En ætlar Jón að vera lengi landsliðsþjálf- ari? „Ég byrja fljótlega með æfingar hjá landsliðinu og fram undan er undir- búningur fyrir Evrópukeppnina í maí. Ég var í rauninni bara ráðinn fram yfir Evrópukeppnina en ég verð líklega einnig með landsliðið á Norðurlanda- mótinu sem fram fer hér á landi í ágúst. Ég get svo alveg hugsað mér að vera áram með landsliðið og þá jafnvel eingöngu sem landsliðsþjálfari. Ég hef mikinn áhuga á því,“ sagði Jón Kr. Gíslason. -SK/-ÆMK Wmm Jón Kr. Gíslason og kona hans, Auður Sigurðardóttir, sem stutt hefur dyggilega við bak eiginmanns síns á ferlinum. Með þeim á myndinni er sonurinn Dagur Kár. DV-mynd ÆMK Tvo mork Bjarka gegn Leipzig BjarkiGunnlaugsson var valinn í lið vikunnar hjá Kicker. Bjarki Gunnlaugsson skoraði bæði mörk Mannheim á laugardag- inn þegar iiðið sigraði Leipzig, 2-0, í þýsku 2. deildinni í knattspyrnu. Bjarki var í fyrsta skipti í byrjunarliði Mannheim og hann skoraði sín fyrstu deUdamörk fyrir félagið. Bjarki fór af velli skömmu fyrir leikslok vegna smávægilegra meiðsla en hann fékk mikið hrós fyrir frammi- stöðu sína og aðeins góð markvarsla hjá Leipzig kom í veg fyrir að hann næði þrennunni. Bjarki fékk 1,5 í einkunn í Kicker og var valinn í lið vikunnar hjá blaðinu. í slag íslendingaliða var Bochum heppið að ná jafntefli við Herthu frá Berlín, 2-2. Eyjólfur Sverrisson lék mjög vel í vörn Herthu sem var mun betri aðilinn í leiknum. Þórður Guð- jónsson kom inn á sem varamaður hjá Bochum sem heldur forystunni í deildinni með 52 stig. Hertha er í 9. sæti og Mannheim í því tólfta. Logi Ólafsson lands- liðsþjálfari var í Þýska- landi um helgina og sá báða leikina hjá íslend- ingaliðunum. -DÓ/VS Verðlaunahafar á hinni glæsilegu uppskeruhátíð íslandsmeistara Grindavíkur. DV-mynd ÆMK NBA-deildin í körfuknattleik í nótt og fyrrinótt: Seattle tryggði sér titilinn - Miami og Sacramento unnu mikilvæga sigra í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni Seattle tryggði sér í nótt meistara- Úrslitin í nótt: sóknar. Honum heilsast ágætlega. liðsins í fimm ár. Sacramento-LA Clippers 101- il Vesturdeildarinnar með góðum New York-Toronto. 125-79 Síðan var sjálfur Magic Johnson Úrslitin í fyrrinótt: Richmond 30, Polynice 18 - Magic Johnson missir af næstu þremur leikjum Lakers eftir að hafa stjakað við dómara. Seattle tryggði sér í nótt meistara- titil Vesturdeildarinnar með góðum útisigri á meisturum Houston, 106-112. Gary Payton átti frábæran leik með Seattle og frammistaða hans á lokamínútunum réði úrslitum. Miami náði undirtökunum í bar- áttunni við Charlotte og Washington um 8. sætið í Austurdeildinni með ör- uggum sigri á New Jersey. Á meðan missti Charlotte niður 19 stiga for- skot gegn Millers-lausu Indianaliði og beið ósigur sem gæti reynst liðinu afdrifaríkur. Glen Rice skoraði 26 stig fyrir Charlotte á fyrstu 15 mínút- unum en náði ekki að fylgja eftir slíkri ævintýrabyrjun. Sacramento vann mikilvægan sig- ur í Denver og á alla möguleika á úr- slita sæti á meðan Denver er endan- lega úr leik. Úrslitin í nótt: New York-Toronto.............125-79 Ewing 23, Starks 19 - Earl 25. Miami-New Jersey.............110-90 Mourning 20 - Indiana-Charlotte ............90-87 Pierce 15 - Rice 31. Houston-Seattle ............106-112 Drexler 26, Olajuwon 23 - Payton 31, Kemp 27. Denver-Sacramento.............86-90 - Richmond 17. Portland-San Antonio .........121-97 Sabonis 22, Williams 20 - Robinson 25. Magic í þriggja leikja bann Það gekk mikið á í fyrrinótt þegar Lakers vann Phoenix, 118-114. Joe Kline, miðherji Phoenix, hneig niður á meðan þjóðsöngurinn var spilaður og var fluttur á sjúkrahús tfl rann- sóknar. Honum heilsast ágætlega. Síðan var sjálfur Magic Johnson rekinn af velli í öðrum leikhluta fyr- ir að hlaupa á dómarann Scott Fost- er. Hann fékk þriggja leikja bann og 650 þúsund króna sekt fyrir tiltækið. „Þetta var óviljaverk en hann lét sem hann sæi mig ekki þegar ég ætl- aði, sem fyrirliði Lakers, að mót- mæla röngum dómi. En ég á sektina skilið og ég bið Foster og alla NBA- dómara afsökunar," sagði Magic, sem á dögunum hundskammaði félaga sinn, Nick Van Exel, fyrir að hrinda dómara. Charles Barkley, hinn snjalli leik- maður Phoenix, varð síðan að fara af velli um miðjan þriðja leikhluta vegna meiðsla á fæti. Lakers innbyrti þarna sinn 50. sig- ur á tímabilinu sem er besti árangur liðsins í fimm ár. Úrslitin í fyrrinótt: Cleveland-Chicago..............72-98 - Jordan 32. New Jersey-Atlanta.............90-99 - Long 23, Augmon 21, Blaylock 21. Phlladelphia-Charlotte ........78-94 - Rice 19, Johnson 18, Anderson 14. Washington-Toronto ...........110-97 Howard 29, Cheaney 22, Legler 20, Price 13. Vancouver-Portland ............79-81 - C. Robinson 23, J.Robinson 15. LA Lakers-Phoenix ...........118-114 Ceballos 23, Threatt 21 - Johnson 26, Tis- dale 24, Green 18. Minnesota-Denver...............91-98 - McDyess 21, Rose 15. Detroit-Boston .........(frl.) 105-96 Houston 27, Thorpe 20, Hill 16 - Milwaukee-Orlando ...........114-101 Baker 27, Newman 25 - Shaq 27. Sacramento-LA Clippers ......101-96 Richmond 30, Polynice 18 - Golden State-Utah............93-82 Sprewell 30 - Chicago vann sinn 69. sigur án mikillar fyrirhafnar og jafnaði þar meö met Lakers, sem vann 69 leiki tímabiliö 1971-72. Chicago á fjóra leiki eftir og þarf aðeins að vinna einn þeirra til að setja nýtt met í sig- urleikjum. Anfernee Hardaway lék ekki með Orlando vegna meiðsla á ökkla þegar lið hans tapaði fyrir Milwaukee. Washington er á miklu skriði og vann sinn sjöunda leik í röð, sem er besti árangur liðsins í átta ár. Was- hington eygir enn von um að komast í úrslitakeppnina í fyrsta sinn síðan 1988 en ekkert lið hefur mátt bíða jafn lengi eftir því. -VS Helgi og Hjörtur bestir DV, Suðurnesjnm: . .. __ ------------------------------ leiktið. Helgi Jónas Guðfinnsson var Svanhildur Káradóttir var kjörin kjörinn besti leikmaður íslands- besti leikmaður kvennaliðs Grinda- meistara Grindavíkur á nýafstöðnu víkur í vetur. Stefanía Jónsdóttir, keppnistímabili körfuknattleiks- eiginkona Guðmundar Bragasonar manna. Fjöldi verðlauna var afhent- fyrirliða Grindavíkur, var kjörin ur á glæsilegri uppskeruhátið ís- mikilvægasti leikmaðurinn í landsmeistaranna í Grindvík. kvennaflokki. Júlía Jörgensen fékk Hjörtur Harðarson var kjörinn verðlaun fyrir mestar framfarir. besti leikmaður Grindvíkinga í úr- Rodney Dobard og Penni Peppas slitakeppninni. Páll Axel Vilbergs- fengu verðlaun og gjafir frá stjórn son var kjörinn sá leikmaður sem körfuknattleiksdeildar, meðal ann- sýndi mestar framfarir á síðustu ars miklar bækur um Ísland.-ÆMK Gestur og félagar byrjuðu á sigri Nýliðar Strömsgodset unnu góð- Skeid-Strömsgodset.........2-3 an útisigur á Skeid, 2-3, í fyrstu um- Viking-Tromsö ...... 2-2 ferð norsku úrvalsdeildarinnar í Rosenborg-Molde.............2-0 knattspyrnu um helgina. Gestur Moss-Bodo/Glimt .....o-i Gylfason lék sem vinstri bakvörður Lillestrom-VIF Football..2-0 með Strömsgodset og fékk góða Tveimur leikjum var frestað, dóma i norskum blöðum. Marko Brann-Stabæk og Start-Kongsvin- Tanasic kom inn á sem varamaður í ger. Birkir Kristinsson, Ágúst seinni hálfleik en hann fór til Gylfason og félagar í Brann leika Strömsgodset frá Keflavík fyrir sinn fyrsta leik næsta sunnudag en þetta tímabil. þá spila þeir við VIF Football í Ósló. Það var norski landsliðsmaður- Brann er spáð góðu gengi í sumar inn Jostein Flo sem skoraði sigur- og sérfræðingar Verdens Gang telja mark Strömsgodset. Liðinu var spáð að liðið nái þriðja sætinu. Rosen- falli fyrir tímabilið en byrjunin lof- borg er spáð titlinum að vanda en ar góðu. Þrándheimsliðið hefur orðið meist- Úrslitin í 1. umferðinni: ari undanfarin fjögur ár. -VS Rejkj avíknrmöti ð £|§ 1996 u W A DEILD • GERVIGRASIÐ LALGARDAL Þridjudagur 16. apríl kl. 20:30 Fylkir - KR R DEILD • LEIKJVISVÖLLIJR Þriójudagur 16. apríl kl. 20:30 Ármann - KSÁÁ Knattspyrna: Sigurmark frá Helga Helgi Kolviðsson skoraði sig- urmark Pfullendorf, 1-0, í toppslag gegn Pforzheim i þýsku 4. deildinni í knattspyrnu um helgina. Helgi skoraði markið með hörkuskalla og fékk mjög lofsamleg ummæli í blöðum fyr- ir frammistööu sína. Pfullendorf er í þriðja sæti, átta stigum á eft- ir Pforzheim sem er efst, en á tvo leiki til góða. Boðið til Unterhaching Helgi, sem lék sína fyrstu A- landsleiki á alþjóðlega mótinu á Möltu í febrúar, er nýkominn frá 2. deildarliðinu Unterhaching en honum var boðið þangað til æf- inga í síðustu viku. Útsendarar frá Núrnberg og Uerdingen fylgdust með honum um helgina og þá hefur Helgi fengið tilboð frá þremur af efstu liðum 3. deildar, Ulm, Reutlingen og Ditzingen. -VS Ólafur æfir með Pfullendorf Ólafur Gottskálksson, mark- vörður 1. deildarliðs Keflvík- inga, fór til Þýskalands um helg- ina og æfir með Pfullendorf næstu tvær vikurnar til að búa sig sem best undir tímabilið hér heima. -VS Kristinn til Eyjamanna? Kristinn Hafliðason, knatt- spyrnumaður úr Fram, hefur æft með ÍBV að undanförnu og líkur eru á að hann fari til Eyja. Krist- inn, sem spilaði sinn fyrsta A- landsleik fyrir tveimur árum en missti að mestu af síðasta tíma- bili vegna meiðsla, hefur einnig átt í viðræðum við Breiðablik. -VS Stórsigur Fram gegn Grindavík 2. deildarlið Fram í knatt- spyrnu vann stórsigur í gær- kvöldi á 1. deildarliði Grindvík- inga í leik liðanna í deildabik- arnum, 4-1, og tryggði sér með því sigur í E-riðli. Valur Fannar Gíslason skor- aði 2 mörk fyrir Fram og þeir Guðmundur Gíslason og Þórhall- ur Víkingsson eitt hvor. Mark Grindvíkinga skoraði Ólafur Ingólfsson. Víðir vann Gróttu, 2-0, með mörkum Sævars Leifs- sonar og Atla Vilhelmssonar. -SK/VS Sochaux steinlá Arnar Gunnlaugsson lék sinn fyrsta hefla leik í langan tíma með Sochaux í frönsku 2. deild- inni um helgina. Það dugði þó skammt því liö hans steinlá, 5-0. Sochaux er í 7.-8. sæti og mögu- leikar liðsins á 1. deildarsæti eru orðnir mjög litlir. -DÓ/VS Badminton: ísland féll í B-flokkinn íslenska landsliðið í bad- minton tapaði í gær fyrir Finnum á EM í Danmörku, 1-4. Þar með hlaut ísland 14. sætið og féll úr A-flokki í B-flokk. I kvöld Stjarnan og Haukar mætast í handbolta kvenna kl. 20 og Fylkir-KR og Ármann-KSÁÁ leika kl. 20.30 í Reykjavíkur- mótinu í fótbolta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.