Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Blaðsíða 36
>■ 1=1 CZ3 FRÉTTASKOTIÐ “= L±J SÍMINN SEM ALDREI SEFUR S o S LT3 <C Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá i síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. oo 1— LD 1— >- LT3 550 5555 2 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 Stormasamur prestafundur: Pattstaða áfram Stormasamur fundur Prestafélags íslands samþykkti eftir um sjö klukkustunda umræður tillögu frá sr. Sigurði Sigurðarsyni vigslubisk- upi um að beina þeim tilmælum til biskups Islands að hann kalli sam- an nefnd þá sem bjó í hendur Kirkjuþings frumvarp um stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunn- ar. Nefndin ætti síðan að endur- skoða ákvæði frumvarpsins um embætti biskups Islands í ljósi þess vanda sem biskupsþjónustan hefur staðið frammi fyrir á liðnum vik- um. I greinargerð með tillögunni segir að hluti af vanda biskups í kirkj- unni nú sé sá að hann er stjórnar- -formaður í nánast öllum nefndum og ráðum innan kirkjunnar og geti því engin þessara stofnana hennar tekið hlutlægt eða hlutlaust á vandamálum sem tengjast biskupi, smbættisfærslu hans og hæfi eða vanhæfí í embætti. Biskup vildi halda sínu Á sínum tíma var í þessari nefnd uppi hugmynd um að setja í forsæti Kirkjuþings annan aðila heldur en biskup en hún náði ekki inn í frum- varpið vegna andstöðu biskupsins. 'Aðrar tillögur sem fram komu voru tillaga frá sr. Sigfúsi J. Ámasyni um allsherjaratkvæðagreiðslu í fé- laginu um þrjá valkosti; að biskup víki, að biskup sitji áfram við óbreytt ástand og í þriðja lagi að biskup víki úr embætti að fullu. Þá kom fram tillaga frá sr. Jakobi Ágústi Hjálmarssyni um vantraust á formann og stjóm Prestafélagsins og loks tillaga frá sr. Halldóri Gunn- arssyni í Holti um að fundurinn skoraði á biskupinn að víkja meðan mál hans væru fyrir dómstólum. Búið var að tilkynna að tillögurnar yrðu bornar undir atkvæði en þær hlutu þau örlög að eftir fimm mín- útna fundarhlé kom fram dagskrár- tillaga um frávísun og var hún sam- "þykkt. Prestur sem rætt var við í morgun sagði að eftir þennan fund væri ljóst að engin af stofnunum kirkjunnar væri fær um að taka hlutlægt á máli biskups. Sá eini sem það gæti væri kirkjumálaráðherra. Sr. Kristján Björnsson sem sendi kirkjumálaráðherra bréf á dögun- um með beiðni um að hann viki biskupi úr embætti tímabundið meðan mál hans sæta dómstólameð- ferð sagði í morgun að hann væri miður sín eftir þennan fund. „Ég sé að þessi stofnun, Prestafélag ís- lands, gat ekki frekar en aðrar stofnanir innan kirkjunnar tekið á máli sr. Ólafs Skúlasonar. Ég bind þó vonir við tillöguna, sem sam- ■þykkt var, að hún leiði til þess að staða biskupa framtíðarinnar verði önnur. -SÁ Dauðsfall rakið til salmonellusýkingar og tveir enn alvarlega veikir: Líkur til mál- sóknar gegn bakaríinu - segir stjórnarformaður Rikisspítalanna „Málið hefur veriö í athugun hjá okkar lögfræðingi hvernig rétt sé að bregðast við. Tjón sem Ríkisspítalamir hafa orðið fyrir hefur verið áætlað og á þessu stigi mála bendir allt til málsóknar Ríkisspitalanna á hendur Sam- sölubakaríinu. Þetta er litið mjög alvarlegum augum,“ sagði Guð- mundur G. Þórarinsson, stjórnar- formaður Ríkisspítalanna, í sam- tali við DV í morgun vegna nýj- ustu upplýsinga um afleiðingar salmonellusýkingar af rjómaboll- um Samsölubakarís í febrúar sl. Eitt dauðsfall aldraðs sjúklings á Landsspítalanum er meðal annars rakið til sýkingarinnar og tveir sjúklingar liggja alvarlega veikir á spítalanum af sömu völdum. Þetta er alvarlegasta salmonellu- sýking hér á landi í seinni tíð. Að sögn Guðmundar er beinn kostnaður Ríkisspítalanna af sýk- ingunni áætlaður um 5 milljónir króna. Felst sá kostnaður einkum í rannsóknum og vinnutapi starfsmanna. Ef óbeinn kostnaður er tekinn með í reikninginn þá má búast við að fjárhagslegt tjón spítalanna og þeirra sem sýktust nálgist 10 miUjónir. Alls hafa sýkst 124 manns, þar af um 40 starfsmenn Landsspítal- ans og 32 sjúklingar. Tveir starfs- menn eru enn frá vinnu vegna veikinnar. Þá sýktust 27 börn starfsmanna á leikskóla Ríkisspit- alanna og 25 einstaklingar utan spítalanna. Aðspurður sagðist Guðmundur ekki útiloka að ein- stakir starfsmenn og sjúklingar gætu höfðað einkamál gegn bak- aríinu. Erlendur Magnússon, forstjóri Samsölubakarís, sagði við DV að fyrirtækið hefði sent frá sér yfir- lýsingu þar sem það harmaði stöðu mála, litlu væri hægt að bæta við það í dag. Ef höfðað yröi mál gegn bakaríinu sagði Erlend- ur að tekiö yrði á því þegar og ef það kæmi upp. -bjb Mcfííelgisbr.öitJ Menn Landhelgisgæslunnar stóðu í gærkvöldi trillubát úr Hafnarfirði að ólöglegum rauðmagaveiðum út af Hrauns- nesi rétt sunnan Straumsvíkur. Höfðu skipverjar lagt net í sjó á bannsvæði þar sem ekki má hefja veiðar fyrr en eft- ir 20. apríl. Málið hefur verið fengið Rannsóknarlögreglunni til meðferðar. -GK/DV-mynds S Þorskkvóti ekki aukinn Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra ákvað í gær að þorskkvóti þessa fiskveiðiárs verði ekki auk- inn. Þorskvótinn í ár er 155 þúsund lestir. Árni R. Ámason alþingis- maður fullyrti á Alþingi í gær að þorskaflinn í ár yrði ekki undir 170 þúsund lestum vegna þess hve margir hafa farið fram yfir leyfileg- an kvóta. -S.dór Grindavík: Stjórnlaus bátur í inn- siglingunni Vélbáturinn Páll ÁR fékk á sig brotsjó í innsiglingunni til Grinda- víkur um áttaleytið í gærkvöldi. Varð báturinn stjórnlaus um tíma og sendu skipverjar út beiðni um hjálp en aíþökkuðu hana síðar þeg- ar þeim tókst að ná stjórn á bátnum á ný. Páll ÁR er 230 lesta bátur. Hann hélt á ný til veiða í morgun. ____________________-GK Grensásdeild: Eldur á salerni Slökkviliðið var í gær kallað að Grensásdeild Borgarspítlalans vegna þess að reykur barst út af sal- erni. I ljós kom að eldur var í hand- þurrkum og gekk greiðlega að slökkva hann. -GK Norsk-íslenska síldin: Komin inn í færeyska landhelgi „Það er ljóst að fyrst síldin er far- in að veiðast innan færeysku land- helginnar er hún komin mun vestar en hún var á sama tima í fyrra. Án þess að hægt sé að segja að þetta auki líkurnar á að hún komi inn í íslenska lögsögu þá er það okkur i hag eftir því sem hún fer vestar,“ sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, í samtali við DV. Færeyingar, og skip á þeirra veg- um, eru farin að veiða norsk-ís- lenska síld innan færeysku land- helginnar. Síldin er frekar smá en feit. Það segir Jakob að bendi til þess að um ókynþroska síld sé að ræða. Ef hún væri kynþroska hefði hún hrygnt í mars og ætti því að vera grindhoruð núna. Jakob sagði að hér áður fyrr, þeg- ar norsk-ísíenska síldin gekk hing- að til lands, hefði hún verið komin i íslenska lögsögu um mánaðamótin maí/júní. -S.dór GÆSLAN TREYSTI SÉRÍ ÞENNAN! Veðrið á morgun: Víða rigning Á morgun verður norðaustan stinningskaldi með éljum eða slydduéljum á Vestíjörðum en annars fremur hæg austlæg átt. Víðast rigning um landið aust- anvert og einhver væta verður einnig vestan til á Norðurlandi og með suðurströndinni en úr- komulaust að mestu vestan- lands. Hiti frá 1 til 2 stigum á Vest- fjörðum upp í 8 til 10 stig suð- vestanlands. Veðrið í dag er á bls. 36 verO hr. 1.023.000.- Bílheimar ehf. Sœvarhöföa 2a Sími: 525 90001

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.