Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Blaðsíða 16
16 veran ÞRIÐJUDAGUR 16. APRIL 1996 Sýnir tvo ketti á sýningunni í Periunni um helgina: Líki kisunum ekki við barn - en þær eru yndislegar, segir Guðbjört Kvien Guðbjört með kettina sína tvo. Sá brúni er Amadeus, af ísafold, og Gis- mo er sá hvíti, af Snæfeldi. DV-mynd GS „Fyrstu kynni mín af köttum voru síður en svo skemmtileg. Ég var í söngtímum hjá Guðrúnu heit- inni Á. Símonar og þreif hjá henni um tíma. Hún átti sem kunnugt er mjög mikið af köttum og eitt sinn réðst einn þeirra á mig. Ég var því ákveðin að eignast aldrei ketti og reyndar langaði mig frekar í hund,“ segir Guðbjört Kvien sem undirbýr nú tvo persneska ketti fyrir kynjakattasýningu Kattaræktarfé- lags íslands sem haldin verður í Perlunni um næstu helgi. Guðbjört segir að fyrst hafi hún bara átt venjulegan húskött en þeg- ar hans naut ekki lengur við vildi maðurinn hennar endilega gefa henni annan því hún saknaði svo þess gamla. Hann langaði til að gefa henni eitthvað öðruvísi í afmælis- gjöf, eitthvað annað en venjulegan húskött. Hann hafði því samband við Kattavinafélagið, fékk upplýs- ingar um hvar got væri í gangi og endaði á hvítu fressi, svokölluðu shaded silver. Varð sjúk „Fyrst fór ég mér hægt en fór að köttinn og athuga hvernig hann kæmi út i dómum, kanna ræktunarmöguleika og annað slíkt. Áður en ég vissi var ég orðin alveg sjúk í þessa ketti og varð voða spennt þegar ný tegund kom til landsins, sem þó er af sömu ætt og minn, kallaður shaded golden. Ég varð að eignast slíkan kött líka og nú hef ég tvo. Ég hef engan áhuga á því að enda með allt of marga ketti því maður vill reyna að sinna hverjum og ein- um eins og hægt er. Einn úr fjölskyldunni „Ég líki kisunum mínum ekki við barn en fólk myndar yfirleitt mjög sterk tilfinningasambönd við þessi dýr. Þau eru bara eins og einn úr fjölskyldunni." Guðbjört segist að mörgu leyti hugsa um þá eins og væru þeir börn. Hún fari með þá til læknis ef þeir fá hita og kvef. Hún mæli þá og baði og bursti. Hirðingin á feldinum skiptir miklu máli, að sögn Guð- bjartar, og hún segir fólk verða að gefa sér góðan tíma til þess að baða og síðan að þurrka þá með hárþurrku. „Það fer yfirleitt nokk- uð langur tími í að undir- búa kettina fyrir svona keppni. Maður reynir að passa vel upp á mataræðið og maður baðar oftar en ella. Þessi tími ársins er reyndar nokkuð óhentug- ur vegna þess hversu mik- ið þessir persnesku kettir fara úr hárunum á þess- um tíma. Ég hlakka til að sýna þá og þeir taka þessu yfirleitt mjög vel,“ segir Guðbjört. -sv Sýning í Perlunni laugardag og sunnudag: Kattaræktendum alltaf að fjölga „Þarna verða sýndir 120 kettir á tveimur sýningum, bæði laugardag og sunnudag. Við höfum fengið mik- inn fjölda áhorfenda á sýninguna hjá okkur undanfarin ár og von- umst til þess að dreifa álaginu með því að hafa sömu sýninguna báða dagana," segir Einar Erlingsson rit- stjóri en undirbúningur kynjakatta- sýningar í Perlunni um næstu helgi er nú að komast á lokasprettinn. Einar segir kattaræktendum alltaf fjölga og að þeir sem fyrir eru verði sífellt stærri. Hann segir kött- inn enda eiga mikla framtíð fyrir sér hér á landi. „Þessi hreinræktuðu dýr eru al- ger innidýr og hreinræktaður pers- neskur köttur er afskaplega skap- góður. Þegar fólk vinnur alltaf meir og meir er kötturinn tilvalið heimil- isdýr. Honum þarf ekki að sinna nándar nærri eins mikið og hundin- um.“ Einar segir uppistöðuna í kattategundunum fyrst og fremst vera síamsketti, oriental og balinese, og nokkrar gerðir af pers- neskum köttum og síðan sé mikið farið að flytja inn abyssiniu-ketti frá Noregi. „Ræktunin er á uppleið hér á landi og menn leggja mikinn metn- að í hana. Fólk ætti því að fá nóg fyrir aurana sína á sýningunni," segir Einar. -sv yrstu abyssiniu-kettirnir á íslandi, innfluttir frá Noregi. Hannibal Trölli, persneskur Kynjaköttur ársins 1995. Hannibal Trölli, Kynjaköttur ársins 1995: Ekki eins glæsilegur í ár — segir Dagmar Gunnarsdóttir kattaræktandi „í stuttu máli má segja að upp- skriftin að fallegum ketti sé góð og holl fæða og ekki of mikið fiskát. Fisk ætti ekki að gefa köttum nema í mesta lagi einu sinni í viku því hann er svo hárlosandi,“ segir Dag- mar Guðrún Gunnarsdóttir, katta- ræktandi og eigandi Kynjakattar ársins 1995, Hannibals Trölla (Chargheleam’s Extremely Busy). Dagmar segir það mikla vinnu að halda ketti og ráðleggur engum að fá sér kött nema vera tilbúinn til þess að eyða um hálftíma á hverjum degi til að sinna honum. „Þetta er kannski ekki mikil vinna með einn kött en þegar þeir eru orðnir fleiri þarf fólk að gefa sér góðan tíma til þess arna.“ Dagmar er kattaræktandi og er nú með sex ketti. Um háannatím- ann verða þeir 15-17 og þá er líf í tuskunum. Hún segist vera vel vak- andi fyrir köttunum síðasta mánuð- inn fyrir sýningu, sérstaklega mataræði, feldinum, hægðum og slíku. „Hannibal Trölli er ekki eins glæsilegur og hann var á síðustu sýningu og það gerir árstíminn. Persarnir fara úr hárunum á þess- um tíma og svo hora þeir sig niður vegna allra breima læðanna. Þeir verða þunglyndir þeirra vegna á þessum tíma.“ -sv Góð ráð: Hættulegir hlutir Teygjur, þræddar nálar og plastið utan af sígerettupökk- um getur verið köttum hættu- legt. Sérstaklega þarf að fara varlega með saumadót, litla hnappa og smellur. Kattartung- an er svo hrjúf að byrji köttur- inn að gleypa eitthvað getur hann ekki spýtt því út úr sér eins og við getum heldur verð- ur hann að halda áfram að kyngja því. Skiljið ekki eftir lopa eða tvinna þar sem kett- irnir geta náð í það, margir kettir hafa drepist af því að gleypa slíka hluti. Fituskott Fituskott orsakast af ofvirk- um kirtlum nærri skottrótum fresskatta þó það finnist einnig hjá einstaka læðum. Talkum púður eða kartöflumjöl ætti að nudda á skottið að minnsta kosti vikulega og síðan á að greiða yfir það. Ef eitthvert hrúður hefur myndast þá skul- uð þið fjarlægja það og bera ör- lítið af sótthreinsiefni á stað- inn. Þvo skott Einu sinni í mánuði ætti að þvo skott á fressi með sjampói. Setjið hann á vaskbrúnina og bleytið bara skottið, nuddið sápunni vel í það, skolið mjög vel og þurrkið svo á eftir. Flest- ir fresskettir munu venjast þessu ef byrjað er nógu snemma á því. Hjarta- sjúklingar lifa lengur Hjartasjúklingar lifa að sögn lengur ef þeir eiga gæludýr. Kettir og hundar hjálpa við að vinna á þunglyndi, áhyggjum og einmanaleika sem eru hvat- ar að hjartaáfalli. Kettirnir Samkvæmt upplysingum Til- verunnar eru kettir mjög mis- dýrir. í sumum tilvikum fást þeir gefins og í öðrum er fólk að borga allt að 60 þúsund krónur fyrir góðan kött. Strangar regl- ur gilda um got ræktunarkatta og þeir sem eru í ræktunarfé- lagi þurfa að hlíta þeim alger- lega. Þess vegna er erfitt fyrir einhvern að stunda ræktun á köttum sem einhvers konar at- vinnuveg. Það er í það minnsta ekki gert hér á landi. -sv mmmmmsmmmmsm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.