Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1996, Síða 21
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1996
41
Menning
Leikhús
Galdur leikhússins
Sitt sýnist hverjum um það
hversu langt eigi - eða megi -
ganga í því að spinna eða yrkja
sjálfstætt út frá textum höfuð-
skálda þegar leikrit eru færð upp á
svið.
Sumum finnst að sem allra
minnst megi víkja frá því sem höf-
undur hugsanlega sá fyrir sér. En
þar er nú verkurinn, því sjaldnast
er til nákvæm forskrift.
Niðurstaðan er oft sú að menn
halda sig við form og túlkun sem
kannski hefur fyrst og fremst skap-
ast af langri hefð og viðteknum
venjum við uppfærsluna.
En svo eru aðrir sem líta á
hverja nýja uppfærslu sem sér-
stakt sköpunarferli þar sem text-
inn er lagður til grundvallar og
auðvitað er fullkominn trúnaður
við textann undirstaða þess að vel
fari. Síðan leyfa þeir sem eru á
þesssari línu sér að kafa í sjóði
leiklistarsögunnar og beita galdri
leikhússins til þess að færa áhorf-
endum nýja og ferska sýn á verkið.
Skemmst er að minnast vinnu-
bragða þremenninganna frá Lit-
háen sem settu upp Mávinn og
Don Juan í Þjóðleikhúsinu.
íslenskir leikhúsgestir hafa líka
séð mörg dæmi um þetta í þeim
sýningum sem þeir Guðjón Peder-
sen leikstjóri, Hafliði Arngrímsson
dramatúrg og Gretar Reynisson
leikmyndahöfundur hafa staðið
fyrir i gegnum árin eða finnst til
dæmis ekki í nýjustu uppfærslu
þeirra á Sem yður þóknast keimur
af sýningunni á Draumi á Jóns-
messunótt (Nemendaleikhúsið,
1993)?
Það væri vissulega áhugavert
verkefni fyrir leiklistarfræðinga
að skoða í heild allar Shakespeare
uppfærslur sem þeir félagar hafa
komið að.
Sjálft upphafið á frumsýning-
unni á síðasta vetrardag gaf strax
fyrirhéit um það sem í vændum
var þegar skringifólk í höllu ridd-
arans gægðist fram á milli tjald-
anna og hafði í frammi ánalega til-
burði.
Sýningunni fer síðan fram með
með miklu flúri og fjöri og sú sem
þetta skrifar hafði ómælt gaman
af. Að vísu var óþarflega þyngsla-
legt yfir fyrsta partinum, eftir blá-
upphafið. En þegar komið var yfir
þann hjalla fór allt á fullan skrið.
Einstök atriði voru mörg hver
algjört sælmeti á leikhúsvísu,
glettin og spaugsöm en um leið út-
færð af hvassri nákvæmni og list-
rænni smekkvísi, þannig að sumar
myndir úr uppsetningunni festust
í huganum eins og málverk.
Verkið er gamansamt en það er
stutt í ádeiluna. Raunsæi og róm-
antík vega salt. Sveitasælan er lof-
Erlingur Gíslason í hlutverki sínu.
Leiklist
Auður Eydal
uð, þar er lífið einfalt og fallegt þó
að menn eigi vart til hnífs og
skeiðar. Við allsnægtaborð hirðar-
innar ríkir hins vegar fals, tilgerð
og fláttskapur.
Til þess að forðast hugsanlega
reiði æðstu valdamanna í sínu
heimalandi valdi Shakespeare þvi
stað í Frakklandi. Þannig var hægt
að gefa atburðarásinni ævintýra-
legt yfirbragð og óhætt að skopast
duglega að hefðarfólkinu án þess
að eiga það á hættu að lenda á
höggstokknum.
Ástin er rauði þráðurinn í verk-
inu og elskendur fara í það óend-
anlega á mis hvert við annað áður
en allt fellur i ljúfa löð í lokin.
Rósalind er dóttir hertoga nokk-
urs sem hrakinn hefur verið úr
landi. Hún verður hrifin af Or-
lando, sem er undir hælnum á
eldri bróður sínum, Ólíver, hinu
leiðasta fúlmenni.
Rósalind og frænka hennar, Sel-
ía, dulbúast og lenda í ýmsum æv-
intýrum þegar þær flýja út i skóg
ásamt hirðfiílinu Prófsteini.
Þar hitta þær fyrir skringileg-
asta fólk og viti menn: Orlando
hefur líka flúið til skógar og yrkir
þar endalausar ástarrollur um
sína heittelskuðu Rósalind án þess
að hafa hugmynd um að hún er á
næstu grösum.
Eins og svo oft fyrr í sýningum,
sem þeir Guðjón, Hafliði og Gretar
hafa staðið fyrir, vekur athygli
hvað allar hugmyndir og útfærsla
eru samstiga - allt frá hinum
minnstu smáatriðum. Kímnin end-
urspeglast jafnvel í leikmynd og
notkun leikmuna!
Og ekki má gleyma búninghönn-
um Elínar Eddu Árnadóttur eða
lýsingu Páls Ragnarssonar, hvað
þá tónlist Egils Ólafssonar, sem
ýmist kliðar undir eða brýst fram
i ljúfum sönglögum.
sýnir í Tjarnarbíói
sakamálaleikinn
PÁSKAHRET
eftir Árna Hjartarson,
leikstjórl Hávar Sigurjónsson.
8. sýn. föd. 26. apríl.
9. sýn. sud. 28. apríl.
10. sýn. þrid. 30. apríl.
11. sýn. mid. 1. maí.
12. sýn. fid. 2. maí.
13. sýn. Id. 4. maí. Síðasta sýning.
Sýningar hefjast kl. 20.30.
Miðasala opnuð kl. 19.00 sýningardaga.
Miðasölusími 5512525,
símsvari allan sólarhringinn.
ISLENSKA OPERAN
Einsöngstónleikar
Laugard. 27. apríl kl. 14.30, halda
ÞÓRA EINARSDÓTTIR sópran og
JÓNAS INGIMUNDARSON píanóleikari
tónleika á vegum Styrktarfélags
íslensku óperunnar.
Blönduð efnisskrá.
Míðasala er opin föstud. 26. apríl frá
15-19 og laugard. frá kl. 13.
Sími 551-1475
Bréfsími 552-7384
Greiðslukortaþjónusta.
Kæru vinir, félagar, börn og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
glöddu mig á 95 ára afmæli mínu.
Kærar kveðjur,
Halldór J. Þórarinsson
Allt rímar þannig saman og síð-
an kemur leikhópurinn þar sem
hver og einn leikur af agaðri ná-
kvæmni en jafnframt hjartans
lyst og gleðin hefur völd.
Elva Ósk Ólafsdóttir, sem leik-
ur Rósalind, vinnur firnavel úr
hlutverkinu og sýnir hér þroskað-
an leik. Tilburðir hennar í dular-
gervinu, þegar Rósalind þykist
vera strákur, eru stórskemmtileg-
ir, taktar og nauðsynlegar radd-
breytingar alveg met.
í hlutverki Selíu, sem fylgir
Rósalind eins og skugginn, er
Edda Heiðrún Backman og Ingvar
E. Sigurðsson leikur Prófstein.
Þau túlka bæði þessi hlutverk af
laufléttri kímni og öruggri fag-
mennsku. Það er líka ástæða til
að nefna Stein Ármann Magnús-
son sem ekki hefur sést mikið á
sviði að undanförnu. Hann er
skemmtilegur og sýnir tilþrif í
þeim hlutverkum sem hann leik-
ur.
Edda Arnljótsdóttir leikur m.a.
hina ástfóngnu smalastúlku, Fífu,
og átti frábærar stundir á svið-
inu.
Þá er aldeilis ekki ónýtt að sjá
þá feðga Erling Gíslason og Bene-
dikt Erlingsson leika saman.
Benedikt túlkar annað aðalhlut-
verkið, Orlando, af öryggi og með
hnitmiðuðum ýkjum án þess að
missa kjarnann út úr höndunum.
Erlingur er dáindisfínn sem
gamli þjónninn og ekki síðri eng-
ill. Atriðin á milli þeirra voru
fáguð í gamansemi sinni og sam-
leikurinn óborganlegur.
Aðrir leikarar eru Gunnar Eyj-
ólfsson, Sigurður Skúlason, Björn
Ingi Hilmarsson, Guðlaug Elísa-
bet Ólafsdóttir, Stefán Jónsson og
Hjálmar Hjálmarsson.
Þó að höfundar sýningarinnar
leiki sér með form og framsetn-
ingu þá er Shakespeare alltaf á
sínum stað og svíkur engan.
Þjóðleikhúsið sýnir á stóra sviðinu:
Sem yður þóknast
eftir William Shakespeare
Þýðing: Helgi Hálfdanarson
Tónlist: Egill Ólafsson
Lýsing: Páll Ragnarsson
Dramatúrg og aðstoðarmaður leikstjóra:
Hafliði Arngrímsson
Búningar: Elín Edda Árnadóttir
Leikmynd: Gretar Reynisson
Leikstjórn: Guðjón Pedersen
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
SÍMI 568-8000
sp
STORA SVIÖ KL. 20.00:
KVÁSARVALSINN
eftir Jónas Árnason
6. sýn. sud. 28/4, græn kort gilda, 7.
sýn. laud. 4/5, hvít kort gilda.
HIÐ UÓSA MAN
eftir íslandsklukku Halldórs
Laxness í leikgerð Bríetar
Héðinsdóttur
9. sýn. föd. 26/4, örfá sæti laus, bleik
kort gilda, föd. 3/5, laud. 11/5.
ÍSLENSKA MAFÍAN
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson.
Ld. 27/4, fid. 2/5, föd. 10/5. Síðustu
sýnlngar!
Stóra sviðið kl. 14.00
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Sud. 28/4. Allra síðusta sýning!
Samstarfsverkefni
við Leíkfélag Reykjavikur:
Alheimsleikhúsið sýnir á
Litla sviði kl. 20.00:
KONUR SKELFA
toilet-drama eftir Hlín
Agnarsdóttur.
Föd. 26/4, 40. sýning uppselt, Id. 27/4,
fáein sæti laus, fid. 2/5, föd. 3/5, laud.
4/5.
Barflugurnar sýna á
Leynibarnum.
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Ld. 27/4, kl. 23.00, fáein sæti laus, fid.
2/5 kl. 23.00, næstsíðasta sýning, Id.
4/5, síðasta sýning!
HÖFUNDASMIöJA L.R.
laugardaginn 27. apríl kl. 16.00.
BRENNDAR VARIR
- Einþáttungur eftir Björgu
Gfsladóttur. Miðaverð 500 kr.
Miðasalan er opin alla daga frá
kl. 13-20, nema mánudaga frá
kl. 13-17, auk þess er tekið á
móti miðapöntunum í sima
568-8000 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar
- frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
WÓDLEIKHÚSIÐ
STÓRA SVIölö KL. 20.00:
SEM YÐUR ÞÓKNAST
eftir William Shakespeare
2. sýn. sud. 28/4, 3. sýn. fid. 2/5, 4.
sýn. sud. 5/5, 5. sýn. Id. 11/5.
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Á morgun, uppselt, mid. 1/5, föd. 3/5,
uppselt, fid. 9/5, föd. 10/5, nokkur sæti
laus.
TRÖLLAKIRKJA
eftir Ólaf Gunnarsson f leikgerð
Þórunnar Sigurðardóttur.
í kvöld, Id. 4/5, sud. 12/5.
Ath. fáar sýningar eftir.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Á morgun, kl. 14.00, sud. 28/4, kl.
14.00, nokkur sæti laus, sud. 5/5 kl.
14.00, Id. 11/5, kl. 14.00, sd. 12/5, kl.
14.00.
Ath. fáar sýningar ettir.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30.
KIRKJUGARÐSKLÚBBURINN
eftir ívan Menchell
I kvöid, fáein sæti laus, sud. 28/4,
uppselt, fid. 2/5, Id. 4/5, sud. 5/5, Id.
11/5, sd. 12/5.
Ath. fáar sýningar eftir.
SMÍöAVERKST/Eölð KL. 20.30.
HAMINGJURÁNIÐ
eftir Bengt Ahlfors
Frumsýning Id. 4/5, uppselt, 2. sýn.
sud. 5/5, 3. sýn. Id. 11/5, 4. sýn. sd.
12/5, 5. sýn. mvd. 15/5.
Gjafakort í leikhús -
sígila og skemmtileg gjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og
fram að sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá ki. 10.00
virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
SÍMI MlóASÖLU: 551 1200
SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
Aukablað
um
Miðvikudaginn 8. maí mun
aukablað um hús og garða
fylgja DV.
Me5al efnis: gróðursetning, klippingar,
áburðargjöf, safnhaugar, Listigarðurinn
á Akureyri, nýjungar í plöntusölu o.fl.
Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu
aukablaði vinsamlega hafi samband við
Selmu Rut í síma 550-5720 eða Guðna
Geir í síma 550-5722 hið fyrsta.
Vinsamlega athugió ab síóasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagur 2. maí.
Auglýsingar
Sími 550 5000, bréfasími 550-5727