Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
Fréttir
Valgeir Sigurðsson kominn til íslands til að koma reglu á skemmtistaðmn Vegas:
Við viljum heiðar-
leg vinnubrögð
- ekkert verður kastað til höndunum við rekstur þessa staðar, segir Valgeir
Valgeir Sigurðsson, veitingamað-
ur frá Lúxemborg, er kominn heim
til íslands sérstaklega til að koma
skipulagi á rekstur skemmtistaðar-
ins Vegas. Hann sagði í samtali við
DV að hann og bróðir hans, Jónas
Sigurðsson, sem er einn af fjórum
upphaflegum eigendum staðarins,
vilji taka til „með heiðarlegum
vinnubrögðum í samræmi við
landslög".
Valgeir sagði við DV í gær að
hann hefði ekki haft I hótunum við
neinn eins og Kanadamaðurinn
Dan Morgan hélt fram í blaðinu í
gær. Hann og Jónas sögðu jafn-
framt að starfsfólk hefði fengið
laun sín greidd. Á hinn bóginn
sagði hann að meginágreiningsefn-
ið við Dan Morgan um helgina
hefði verið að peningar hefðu ekki
farið í gegnum sjóðvélar staðarins
- það hefðu einfaldlega ekki verið
stimplaðar inn á kassa þær upp-
hæðir sem viðskiptavinir borguðu
með.
„Dan notaði stór orð við mig þeg-
ar ég sagði að þetta gengi ekki og
kallaði í einn af dyravörðunum,
einn af sínum mönnum, til að
henda mér út,“ sagði Valgeir.
„Dyravörðurinn gerði það ekki og
hljóp þá Dan til, talaði við sitt fólk
og það gekk út með honum. Ég held
að það sé mesta lukka sem hægt
var að hugsa sér,“ sagði Valgeir.
„Lögreglumaður, sem ég fékk til
að koma á vettvang, sagði við mig
að ég skyldi fara varlega um götur
og torg og helst að hafa með mér
mann eða menn því að þetta fólk
svifist einskis. Hann sagði að það
væri staðreynd að þessi hættulega
starfsemi væri að vaxa úr grasi hér
á landi. En ég vinn ekki með svona
á bakinu, við viljum heiðarleg
vinnubrögð. Ég er hrekklaus og
fólk er því velkomið á staðinn,"
sagði Valgeir.
Aðspurður um rekstur Vegas í
ljósi þess að starfsmenn gengu út
með Dan Morgan um helgina sagði
Valgeir:
„Vegas er í fullum rekstri og það
er ekkert lát á því. Við erum með
okkar starfsfólk og þessir atburðir
verða til þess að herða okkur. Við
tökum vel á móti öllum. Auk þess
er ætlunin að lögreglumenn taki að
sér dyravörslu í aukavinnu - það
verður ekkert kastað til höndunum
við að reka þennan stað,“ sagði
Valgeir Sigurðsson. -Ótt
Þing Neytendasamtakanna:
Leggjum áherslu
á aukna fræðslu
segir Þuríður Jónsdóttir, varaformaður samtakanna
„Það var vitanlega tekið á fjöl-
mörgum málum en að mínu mati
bar hæst að Neytendasamtökin
hyggjast leggja aukna áherslu á
fræðslu. Við viljum sjá að komiö
verði á fót upplýsingamiðstöð um
skuldara þar sem bankamir geta
fengið upplýsingar um viðskipta-
vini, séð t.d. hvort maður er í
milljóna skuld í einum banka þótt
hann skuldi ekkert í öðrum. Með
þessu væri kannski komin for-
senda til þess að losna að ein-
hverju leyti við að þurfa enda-
laust að treysta á ábyrgðarmenn,"
segir Þuríður Jónsdóttir, varafor-
maöur Neytendasamtakanna.
Samtökin þinguðu um helgina
þar sem Drífa Sigfúsdóttir tók við
formennsku af Jóhannesi Gunn-
arssyni. Jóhannes verður áfram
framk væmdastj ór i.
Að sögn Þuriðar v°rður aukin
áhersla lögö á fræðslu þar sem
reynt verður, líklega í samvinnu
við menntamálaráðuneytið, að
koma fræðsluefni inn í skólana
þar sem fólki verður hreinlega
kennt hvernig komast eigi af.
„Það er til heilmikið af efni um
það hvernig eigi að lifa af í
neysluþjóðfélagi og við þurfum að
koma því inn í öll skólastigin og
alls ekki bara inn í grunnskólann.
Við þurfum að mennta kennarana
okkar í þessu og með því yrði
miklu áorkað. Það er ekki sjálf-
sagður hlutur að ungt fólk kunni
aö sjá fótum sínum forráð í
neysluþjóðfélagi eins og okkar og
við hyggjumst sem sagt leggja
okkur fram við að uppfræða ungt
fólk um þessi mál á næstu misser-
um,“ segir Þuríður Jónsdóttir.
-sv
Valgeir fyrir utan Vegas á horni Laugavegs og Klapparstígs með þremur
sýningarstúlkum frá Kanada. Valgeir er ekki eigandi- sjáifur en bróðir hans,
sem er eigandi að 25 prósentum af hlutafé staðarins, fékk hann til að koma
til íslands sem ráðgjafi. DV-mynd S
Dagfari
Sjálfstæði Ríkisútvarpsins
Þriggja manna starfsnefnd á
vegum menntamálaráðherra hefur
lagt fram tillögur um framtíð Rík-
isútvarpsins. Þessar tillögur segja
sosum ekki mikiö annað en það að
Ríkisútvarpið megi vera til áfram
en í staðinn fyrir auglýsingar og
skylduáskrift skal lagður nefskatt-
ur á þjóðina til að standa undir
rekstri RÚV.
Nefndin er meira að segja klofin
í afstöðu sinni til afnáms auglýs-
inganna og menntamálaráöherra
hefur ekki sagt annað um þessar
tillögur en að þær verði ræddar.
Hér er sem sagt um nefndarálit að
ræða, enda var nefndin skipuð til
að skila áliti og álit nefndarinnar
er ekki annað en álit þeirra þriggja
einstaklinga sem í nefndinni sátu.
Annað er þetta nú ekki
Hins vegar hefur brugðið svo við
að forsvarsmenn Ríkisútvarpsins
hafa lýst yfir að hér sé vegið að
sjálfstæði Ríkisútvarpsins, hvorki
meira né minna, og Framsóknar-
flokkurinn segir að nefndarálitið
komi flokknum í algjörlega opna
skjöldu vegna þess að nefndarálitið
hafi aldrei verið rætt í flokknum
eða ríkisstjórninni og Framsóknar-
flokknum hefur ekki verið sagt frá
því að þessir þrir einstaklingar
hafi þá skoðun sem fram kemur í
nefndarálitinu.
Auðvitað er það grafalvarlegt
mál þegar þrír einstaklingar, sem
eru saman í nefnd og eru beðnir
um að hafa skoöun, leyfa sér að
hafa skoðun án þess að gera Fram-
sóknarflokknum aðvart, hvað þá
að spyrja Framsóknarflokkinn um
það fyrirfram hvaða skoðun þeim
er heimilt að hafa.
Og svo er hitt ekki síður alvar-
legt ef nefndin er að ráðast að sjálf-
stæði Ríkisútvarpsins með því að
leggja til að Rikisútvarpið starfi
áfram. Það er hnefahögg í andlit
þeirra sem fara með sjálfstæði Rík-
isútvarpsins.
Ríkisútvarpið er í eigu ríkisins
og ríkið er þjóðin og þjóðin á RÚV
og er sjálfstæð stofnun í ríkinu.
Ríki í ríkinu.
Þessu ríki stjórna æðstu embætt-
ismenn Rikisútvarpsins og hafa
varðveitt sjálfstæði þess fyrir hönd
þjóðarinnar sem hefur falið þeim
umboð til að varðveita sjálfstæðið.
Nú ætlar einhver nefnd að taka
þetta sjálfstæði af stjórnendum
RÚV án þess að spyrja um leyfl til
þess, hvorki hjá stjórnendum sjálf-
stæðisins né heldur sjálfum Fram-
sóknarflokknum. Þetta er aðför
sem ekki verður liðin.
Sérstaklega er það alvarlegt ef
fella á niður rétt RÚV til að birta
auglýsingar. Þar með er sjálfstæðið
skert vegna þess að frelsi og sjálf-
stæði Ríkisútvarpsins og stjórn-
enda þess hefur einmitt verið í því
fólgið að afla tekna í gegnum aug-
lýsingar til að stofna til skulda og
tapreksturs hjá RÚV.
Þessi taprekstur hefur gert Rík-
isútvarpinu kleift að halda uppi
starfsemi sinni að því leyti að tap-
ið hefur verið afsökun fyrir því að
dagskráin er ekki betri. Ef auglýs-
ingarnar eru teknar af RÚV og nef-
skattur lagður á þjóðina til að
standa undir sjálfstæði RÚV er
sjálfstæðinu fórnað á kostnað betri
dagskrár sem stjórnendurnir geta
ekki sætt sig við. Sjálfstæði RÚV
gengur fyrir öllu öðru vegna þess
að sjálfstæðið er í höndum stjórn-
enda RÚV sem sækja umboð sitt tfl
þjóðarinnar og rikisins til að reka
Ríkisútvarpið eftir eigin höfði og i
raun og veru kemur hvorki alþingi
né einstökum nefndum á vegum
menntamálaráðherra við hver
framtíð RÚV er. Það er mál stjórn-
enda Ríkisútvarpsins vegna þesS
að það varðar sjálfstæði stofnunar-
innar. Og stofnunin er ekki sjálf-
stæð nema þjóðin og alþingi láti
Ríkisútvarpið í friði. Hvað þá að
einhver nefnd leyfi sér að hafa
skoðun á RÚV. Það er skerðing á
sjálfstæði stofnunarinnar.
Dagfari