Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ1996
Fréttir
DV
Umboðsmaður Alþingis beðinn um álit vegna innheimtu Orkuveitna Reykjavíkur:
Dráttarvextir reiknað-
ir af áætlaðri skuld
- eðlileg aðferð, segir Qármálastjóri Hitaveitu Reykjavíkur
Orkuveitur Reykjavíkur inn-
heimta nú sameiginlega fyrir raf-
magns- og heitavatnsnotkun borg-
arbúa og eru sendir út reikningar á
tveggja mánaöa fresti fyrir áætlaða
notkun en einn árlegur reikningur
er uppgjörsreikningur. Þegar fólk
dregur að greiða áætlunarreikning-
ana leggjast dráttarvextir ofan á
þá.
Þetta finnst mörgum vera óeðli-
legt og mun hafa verið leitað álits
umboðsmanns alþingis á málinu
um hvort eðlilegt sé að leggja drátt-
arvexti á áætlaða notkun sem
hugsanlega er miklu meiri en síðar
kemur í ljós við mælaálestur og
lokauppgjör. í slíkum tilfellum fást
þessir „dráttarvextir" ekki endur-
greiddir.
Eysteinn Jónsson, íjármálastjóri
Hitaveitu Reykjavíkur, segir að
þetta sé eðlileg aðferð. „Forsend-
urnar eru þær að áætlaður reikn-
ingur er fullgildur reikningur. Það
er tekið fram í staðfestri reglugerð.
Áætlunarreikningur er byggður á
notkun ársins á undan. Ef notkun-
in breytist þá breytum við áætlun.
Við breytum áætlun fyrir notand-
ann óski hann eftir því og þess
vegna eru þessir reikningar full-
gildir þótt um áætlaða notkun sé
að ræða,“ segir Eysteinn.
Eysteinn segir það illframkvæm-
anlegt og kostnaðarsamt að lesa
mánaðarlega af notkunarmælum,
auk þess sem því fylgi mikið ónæði
fyrir notendur. Áætlunarreikning-
amir miðast við heildarnotkunina
allt árið þannig að útgjöldin
dreifast jafnt yfir árið til hagræðis
fyrir greiðendur.
Áætlunin er, að sögn Eysteins,
oftast þokkalega rétt þar sem hún
er miðuð við næsta ár á undan og
ekki verði því annað sagt en að
þetta sé sanngjörn aðferð við inn-
heimtuna. Hitaveitan lesi enn
fremur af mælum hálfsárslega í eft-
irlitsskyni og sé áætluninni breytt
ef frávik frá fyrri áætlun sýnist
gefa tilefni til. Reynist notkunin
meiri við þennan eftirlitsálestur
séu áætlunarreikningamir hækk-
aðir en dráttarvextir alls ekki lagð-
ir á aukninguna. „Ég tel að þessi
aðferð sé eins sanngjörn og hægt er
miðað við aðstæður," segir Ey-
steinn. Hann segir að framvegis
verði dráttarvextir innheimtir
strax við greiðslu vanskilareikn-
ings í stað þess að bæta þeim við
næsta reikning á eftir eins og gert
hefur verið til þessa. -SÁ
Árekstur þriggja bíla varð á Bústaðabrú á Bústaðavegi laust upp úr hádegi í gær. Ökumaður og farþegi úr einum
bílnum og farþegi úr öðrum voru fluttir á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum sérfræðings á vakt á slysadeildinni
voru þeir ekki alvarlega meiddir, með mar og slíkt, og fengu að fara heim að rannsókn lokinni. DV-mynd S
Tveir sæmdir gullmerki ÍA
DV, Akranesi:
í afmælishófi í tilefni þess að 28.
apríl voru 50 ár frá stofnun
íþróttabandalags Akraness heiðr-
aði stjórn ÍA tvo menn, Helga Dan-
íelsson og Gunnar Sigurðsson,
með því að afhenda þeim gull-
merki ÍA. Sú viðurkenning er að-
eins veitt þeim sem hafa starfað í
íþróttahreyfingunni í yfir 30 ár.
Helgi er formaður Stuðnings-
mannafélags ÍA. Hann var um
langt árabil einn af bestu mark-
vörðum landsins og landsliðsmað-
ur i 25 leikjum. Hefur hann unnið
ómetanlegt starf fyrir íþróttahreyf-
inguna.
Gunnar er formaður Knatt-
spyrnufélags Akraness og formað-
ur bæjarráðs Akraness. Hann hef-
ur lengi verið formaður knatt-
spyrnufélagsins og átt sæti í stjórn
KSÍ. Þá er hann einn þeirra sem
hvað mest hafa unnið að uppbygg-
ingu knattspyrnunnar á Akranesi
og á stærstan þátt í því að gera
Akranes að því stórveldi sem það
er nú í knattspyrnunni á íslandi.
-DÓ
Gunnar Sigurðsson og Helgi Daníelsson sem fengu gullmerki ÍA til vinstri. Til hægri Guðbjartur Hannesson og Ell-
ert B. Schram. DV-mynd Daníel
Borgarnes:
Fjölbreytt
maí-hátíð
DV, Borgarnesi:
Mikið var um dýrðir hjá Verka-
lýðsfélagi Borgarness 1. maí. Hús-
fyllir var í Hótel Borgarnesi þar
sem hátíðahöldin fóru fram en það
er hefð fyrir því að félagið standi
fyrir fjölbreyttri skemmtidagskrá
þennan dag auk hefðbundinna
ræðuhalda.
Hátíðarræðuna flutti Guðmundur
Þ Jónsson, formaður Landssam-
bands iðnverkafólks, og var ríkis-
stjórnin og frumvörp hennar hon-
um ofarlega í huga eins og öðrum
forystumönnum launþega þennan
dag.
Bræðurnir Halli og Laddi fluttu
gamanmál við undirleik Hjartar
Howser við mikla kátínu og mun
þetta hafa verið í fyrsta skipti í 15
ár sem þeir komu fram í Borgar-
nesi. Þá léku nemendur Tónlistar-
skóla Borgarfjarðar undir stjórn
Gunnars Ringsted. Barnakór Borg-
arness söng undir stjórn Birnu Þor-
steinsdóttur, félagar í leikdeild Umf.
Skallagríms fluttu atriði úr leikrit-
inu Ævintýri á göngufór, Snorri
Hjálmarsson og Dagný Sigurðar-
dóttir sungu einsöng og dúett við
undirleik Jerzy Tosik Warszawiak
og Grundartangakórinn söng undir
stjórn Lisbeth Dahlin og undirleik-
ari var Flosi Einarsson.
-OHR
Halli og Laddi í stuði.
Lambakjöt til New York:
Unnið og pakkað úti
„Það tekur tvö til þrjú ár að ná
einhverri fótfestu á markaönum
og fá úr því skorið hvort þetta
borgar sig,“ segir Baldvin Jóns-
son sem vinnur að markaðssetn-
ingu íslenskra landbúnaðarafurða
fyrir bændasamtökin en stórt
kjötvinnslu- og dreifingarfyrir-
tæki, Cooking Excellence í New
York, hefur tekið að sér vinnslu,
pökkun og dreifingu á íslensku
lambakjöti I Bandaríkjunum.
Lambakjötið er flutt fryst út til
New York en búið er að grófhluta
það niður áður. Þegar hafa verið
flutt út um 170 tonn og er rúmur
helmingur þess seldur, að sögn
Baldvins. Hann segir að verð á
kjötinu út úr búð sé tiltölulega
hátt, ffá 500-1500 ísl. kr. kílóið,
eftir því um hvaða hluta er að
ræða. -SÁ
Lýst eftir vitnum:
Ekið á kyrrstæðan bíl
Ekið var á kyrrstæðan bíl á stæði
við Hraunbæ 144 milli kl. 22.00 og
13.00 27.-28. apríl sl. Bíllinn er af gerð-
inni Mitsubishi Colt árg. 1989, rauður
að lit. Tjónið á bílnum er áætlað 80
þúsund krónur og er mjög tilfinnan-
legt fyrir eigandann, sem er ung móð-
ir. Hugsanleg vitni eru beðin um að
gefa sig fram við Reykjavíkurlögregl-
una. -SÁ