Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1996, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
7
Eréttir
Deilur á aðalsafnaðarfundi í Keflavik
Safnaðarheimilisdeilan
blossar upp á ný
tillögu um endurupptöku málsins vísað frá
Deilur um byggingu safnaðar-
heimilis í Keflavík hafa blossað
upp á ný en tillögu um að hætt
yrði við byggingu safnaðarheimil-
is við Keflavíkurkirkju var vísað
frá aðalsafnaðarfundi Keflavíkur-
safnaðar í gær. Andstæðingar
framkvæmdanna, sem búa allir í
næsta nágrenni við lóð Keflavík-
urkirkju og hins fyrirhugaða safn-
aðarheimilis, óskuðu einnig eftir
því að þeim yrði greiddur lög-'
fræðikostnaður í sambandi við
umstang sitt vegna málsins hingað
til og var þvi erindi vísað til af-
greiðslu sóknarnefndar. Loks-
lögðu andstæðingar byggingarinn-
ar til að sóknarnefndin segði af
sér.
Sævar Reynisson, gjaldkeri
sóknarnefndarinnar, sagði við DV
í gærkvöld að tillagan um að
hætta við byggingu safnaðarheim-
ilisins hefði komið of seint fram til
að ná inn á dagskrá fundarins.
Sævar telur tillöguna um að
hætta við bygginguna óraunhæfa
þar sem þetta mál hefur þegar far-
ið rétta boðleið í gegnum kerfið.
Búið er að kjósa um hvort byggja
skuli safnaðarheimilið og reynd-
ust um 60% þeirra sem greiddu at-
kvæði meðmæltir. Þá hafa síðan
farið fram tvennar skoðanakann-
anir sem báðar gáfu svipaða nið-
urstöðu.
„Þessir sömu menn og nú vilja
hætta við bygginguna kærðu kosn-
inguna um málið á sínum tíma til
yfirkjörstjórnar sem vísaði kæru
þeirra frá. Þá kærðu þeir til Bisk-
upsstofu sem gerði hið sama. Loks
kærðu þeir til ráðuneytisins og
nýlegur úrskurður þess er á þá
leið að kosningin hafi verið lög-
mæt. Það er komin lögformleg nið-
urstaða í málið og því fráleitt að
koma fram með tillögu sem gengur
út á að öllu sem gerst hefur skuli
bara hent,“ segir Sævar.
Varðandi ósk andstæðinganna
um að fá greiddan lögfræðikostnað
segir Sævar að niðurstaöa sé feng-
in i Hæstarétti í svipuðu máli í
Kópavogi en þar samþykkti aðal-
safnaðarfundur á sínum tíma aö
greiða rúmlega tveggja milljóna
króna kostnað þeirra sem mót-
mæltu byggingu kirkju í bænum.
Samkvæmt dómi Hæstaréttar er
sóknarnefnd ekki skylt að greiða
annan kostnað úr sjóðum safnað-
arins en hún sjálf ákveður.
Guðmundur Sigurbergsson, and-
stæðingur byggingar safnaðar-
heimilisins, segir að tillaga sín um
að taka upp byggingarmálið á ný
hafi komið fram á sama degi og
auglýsing birtist um aðalsafnaðar-
fundinn, eða þremur dögum fyrir
fundinn og sé það innan tilskilins
frests. „Við munum hittast í kvöld
og taka ákvörðun um framhaldið í
þessu máli og fleiri málum sem
við viljum láta rannsaka. Við telj-
um að tími sé kominn til að fá öll
gögn upp á borðið sem varða störf
sóknarnefndar," segir Guðmund-
ur.
Hann segir að eftir að úrskurðir
í kærum um lögmæti kosninga um
bygginguna hafi allir fallið á einn
veg sé ekki annað eftir en að snúa
sér til umboðsmanns Alþingis með
málið. Hann segir að þeir sem
vilja að byggingarmálið verði tek-
ið upp á ný séu í sjálfu sér ekki á
móti byggingu safnaðarheimilis.
„Við höfum allan tímann viljað að
sóknarbörn í Keflavík fengju tæki-
færi til að sjá fleiri byggingartil-
lögur en þessa einu sem lögð hefur
verið fram. Á það hefur aldrei ver-
ið hlustað," segir Guðmundur.
Hann segir að brýn nauðsyn sé
fyrir safnaðarheimili en sjálfur
vilji hann sjá rísa nýja kirkju og
veglega ásamt safnaðarheimili í
því umhverfí þar sem ekki eru fyr-
irsjáanleg umferðarvandamál eins
og eru á þeim stað þar sem kirkj-
an stendur nú og fyrirhugað er að
byggja safnaðarheimilið. -SÁ
*SSA ST ^
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON KYNNIR ÁTAKIÐ
HÓTEL BORG (DriSjudagskvöld kl. 20.30
FÉLAGSLUNDI ReySarfirSi, miSvikudagskvöld kl. 20.30
HÓTEL BRÆÐRARBORG Vestmannaeyjum, fimmtudagskvöld 20.30
KAFFIVEITINGAR
HYUnoni ILADA
Greiðslukjör til allt að 36 ntátiaða án útborgunar
©
RENAULT
G ÓÐIR NOTAÐIR BÍLAR
BMW 520IA ’94,
ssk., 5 d., grár, ek. 32 þús. km.
Verð 2.800.000.
Mazda 626 2000 ’93,
ssk., 4 d., rauður, ek. 47 þús. km.
Verð 1.580.000.
Toyota Corolla XLI ’94,
ssk., 4 d., grár, ek. 16 þús. km.
Verð 1.190.000.
Honda Civic 1600 ’92,
ssk., 4 d., rauður, ek. 75 þús. km.
Verð 1.090.000.
I *^*M?g* fr* ' ‘iMV-
^ I
ssk., 4 d., hvítur, ek. 60 þús. km.
Verð 1.330.000.
ssk., 4 d., grænn, ek.
Verð 1.100.000.
19 þús. km.
Nissan Patrol ‘91 dísil turbo,
5 g., 5 d., grár, ek. 153 þús. km.
Verð 2.550.000.
Toyota Corolla 1300 ’89,
5 g„ 5 d„ grár, ek. 107 þús. km.
Verð 550.000.
VW Golf 1600 '88,
5 g„ 3 d„ grár, ek. 101 þús. km.
Verð 400.000.
Toyota Corolla 1300 '88,
4 g„ 3 d„ grár, ek. 142 þús. km.
Verð 420.000.
BMW318Í ’88,
5 g„ 4 d„ grænn, ek. 77 þús. km.
Verð 650.000
Hyundai Sonata 2000 '92,
ssk„ 4 d„ grár, ek. 56 þús. km.
Verð 1.070.000.
Toyota Camry 2000 4x4 ’88,
5 g„ 4 d„ grár, ek. 116 þús. km.
Verð 820.000.
Toyota Camry 1800 ’87,
5 g„ 5 d„ hvítur, ek. 181 þús. km.
Verð 540.000.
Opiö virka (la%a frá kl. 9 - 18,
laagardaga 10 - 14
Renault Clio 1400 ’93,
ssk„ 5 d„ blár, ek. 31 þús. km.
Verð 910.000.
NOTAÐIR BILAR
SUÐURLANDSBRAUT 12, SiMI: 568 1200, BEINN SIMI: 581 4060