Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1996, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1996, Qupperneq 30
42 MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 1996 Afmæli Erla Hrönn Snorradóttir Erla Hrönn Snorradóttir húsmóð- ir, Dverghamri 17, Vestmannaeyju, varð fimmtug í gær. Fjölskylda Erla Hronn fæddist í Akurseli í Öxarflrði og ólst upp við Öxarfjörð. Eiginmaður hennar er Guðjón Weihe, f. 4.6. 1945, rafvirki. Hann er sonur Johans E. Weihe, sjómanns og verkamanns frá Purkeri, Færeyj- um, og Guðlínar G. Guðjónsdóttur, húsmóður frá Vestmannaeyjum. Böm Erlu Hrannar og Guðjóns eru Jóhanna Guðný Guðjónsdóttir, f. 9.10. 1964, húsmóðir og starfs- stúlka á barnaheimili í Reykjavík en maður hennar er Ás- geir Sigurðsson sölumað- ur og eru börn þeirra Erla Hrönn Ásgeirsdótt- ir, f. 11.8. 1987, og Bjarki Ásgeirsson, f. 11.4. 1989; Hrafnhildur Bára Guð- jónsdóttir, f. 13.5. 1966, húsmóðir og skrifstofu- maður í Reykjavík, gift Bimi Axelssyni sjúkra- þjálfara og eru synir þeirra Birkir Björnsson, f. 23.9. 1993, og Sindri Bjömsson, f. 29.3. 1995; Haukur Weihe, f. 6.10. 1977, nemi. Systkini Erlu Hrannar eru Hauk- Erla Hrönn dóttir. ur Öxar Snorrason, f. 17.3. 1945, d. 1969; Sig- mundur Jónas Snorra- son, f. 8.11. 1947, verka- maður á Nesjavöllum; Hrafnhildur Snorradóttir, f. 27.1. 1949, húsmóðir í Reykjavík; Bryndís Snorradóttir, f. 28.2. 1954, húsmóðir Reykjavík; Ás- dís Snorradóttir, f. 22.12. 1955, húsmóðir í Reykja- vík; Karólína Birna Snorradóttir, f. 7.8. 1958, húsfreyja að Hrafnagili í Eyjafirði; Snorri Birgir Snorrason, f. 21.8. 1963, matreiðslumeistari. Snorra- Foreldrar Erlu Hrannar eru Snorri Guðmundsson, f. 29.11. 1914, bóndi í Akurseli í Öxarfirði og síðar vélgæslumaður, og Kristín Jónas- dóttir, f. 15.9. 1921, húsfreyja. Ætt Snorri var sonur Guðmundar Jónassonar, b. á Hróarsstöðum og Ferjubakka í Öxarfirði, og Gunn- ólfsvík á Langanesi, og k.h., Sig- mundu Jónsdóttur. Kristín var dóttir Jónasar Páls Ámasonar, bakara í Reykjavík, og k.h., Fanzisku Karólínu Sigurjóns- dóttur. Steingrímur Guðjónsson Steingrímur Guðjóns- son vélvirki, Vesturgötu 73, Akranesi, er fertugur í dag. Starfsferill Steingrímur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðprófi frá Hagaskólanum 1973 og sveinsprófí í vélvirkjun frá Iðnskólanum í Reykja- vík og Vélsmiðjunni Héðni hf 1977. Steingrímur Guð- jónsson. Steingrímur starfaði í Vélsmiðjunni Héðni hf 1973-80, flutti á Akranes og starfaði hjá Útgerðar- félaginu Vesturlandi - Krossavík á Akranesi 1980^81 en hefur starfað hjá Islenska járnblendi- félaginu frá 1981. Steingrímur hefur leikið og starfað fyrir Skagaleikflokkinn s.l. tólf ár og verið formaður hans. Fjölskylda Fyrri kona Steingríms var Bríet Einarsdóttir, f. 12.2. 1957. Þau skildu. Seinni kona Steingríms var Mar- ía Björg Hreinsdóttir, f. 4.4. 1960. Þau skildu. Dóttir Steingríms og Bríetar er Ásdís Steingrímsdóttir, f. 22.11.1977, nemi. Börn Steingríms og Maríu Bjarg- ar eru Silja Eyrún Steingrímsdóttir, f.7.2.1982; Davíð Reynir Steingríms- son, f. 10.11. 1984; Sindri Freyr Steingrímsson, f. 30.5. 1991. Systkini Steingríms eru Sigurður Guðjónsson, f. 7.2. 1952, vélvirki að Sjávarborg í Skagafirði; Sigrún Guðjónsdóttir, f. 17.7. 1953, hár- greiðslukona í Reykjavík. Foreldrar Steingríms: Guðjón Jónsson, f. 4.11.1913, d. 5.4.1992, bif- reiðastjóri í Reykjavík, og Ásdís Steingrímsdóttir, f. 29.1. 1931, sjúkr- aliði. Unnar Leifsson Unnar Leifsson sjómaður, Háarifi 69, Rifi, Snæfellsbæ, er fertugur í dag. Starfsferill Unnar fæddist í Ólafsvík en ólst upp á Rifi. Hann lauk gagnfræða- prófi, fór ungur til sjós og hefur lengst af stundað sjómennsku. Unnar var Skarðsvík SH frá Rifi 1976-80, á Matthildi SH frá Ólafsvík 1980, á Rifsnesi SH frá Rifi, 1980-84, á grásleppuveiðum á Andra SH 1982-96, á Hamrasvani SH frá Rifi 1984-91 en hefur verið matsveinn á Tjaldi SH frá Rifi frá 1992. Unnar hefur starfað mikið fyrir slysavarnarfélagið Björg á Helliss- andi og verið formaður þess. Fjölskylda Eiginkona Unnars er Guðrún Gísladóttir, f. 10.11. 1957, verkstjóri hjá Sjávariðjunni á Rifi. Hún er dóttir Gísla Kristjánsson- ar skipstjóra, og Lilju Finnbogadóttur húsmóð- ur. Börn Unnars og Guð- rúnar eru Sigrún Kapitóla Bjarnþórsdóttir, f. 1977 (fósturdóttir); Hall- dóra Kristín Unnarsdótt- ir, f. 1982; Rebekka Unn- arsdóttir, f. 1986. Systkini Unnars eru Sigríður Karlsdóttir; Kristján Karlsson; Krist- ín Karlsdóttir; Eyrún Leifsdóttir; Hafldóra Leifsdóttir sem lést 1982. Foreldrar ■ Unnars eru Leifur Jónsson, f. 5.7. 1921, hafnarvörður og grásleppúsjómaður á Rifi, og Ingibjörg Kristín Kristjánsdóttir, f. 18.5. 1923, húsmóðir. Unnar Leifsson. Menning Híf opp á listahátíð Síðastliðið miðvikudagskvöld hélt „Híf opp-hópurinn“, Tríó Björns Thoroddsens og Egill Ólafsson, tónleika í Loftkastal- anum sem voru liður í yfirstand- andi listahátíð. Sjálfsagt er mörgum farið eins og mér, að frasinn „híf opp“ leiðir hugann að karlinum í brúnni, en Egill gerði áheyrendum á skemmtileg- an hátt grein fyrir því að titifl- inn er fenginn annars staðar frá, og merkingin þar hefur ekkert með sjómennsku að gera. Tón- listin var einnig finlegri en svo að tenging við æpandi skipstjóra væri viðeigandi, Björn var með kassagítarinn, Gunnar Hrafns- son með kontrabassann og Ás- geir Óskarsson við trommusett- ið auk Egils sem söng og þandi dragspil nettlega til skreytingar öðru hverju. Meistari Björn byrjaði einn, og leiddi inn lag Egils, „Bara að nóttin kæmi“, og gutl Ásgeirs í skúringaföt- unni var langt því frá að minna á stórsjó og brim. Megnið af efnisskrá kvöldsins var vita- skuld af „Hif opp“, nýlega útkominni geislapötu þeirra. Egill á heiðurinn af flestum lagasmíðunum og voru þau nýju yfirleitt í ljóð- rænni kantinum, ballöður (Tíminn hlær og Bara að nóttin kæmi) eða með latnesku yfir- bragði, en auk þeirra fluttu þeir tvö endur- hönnuð lög Egils frá fyrri tíð í Spilverki og Þursaflokki. Björn átti fjögur lög og lágu tón- Tríó Björns Thoroddsens og Egill Ólafsson, Híf opp-hópurinn. Djass Ársæll Másson smíðar hans flestar nær djasshefðinni, fusionættar. „Impromtu 1“ gæti Pat Metheny einhvern tima hafa látið frá sér; einfaldur hljómagangur og lag af hendi Björns, og Egill kom inn með textalaust söngl ofan á hryninn. Titillaginu „Híf opp“ skeyttu þeir aftan við Nú- tímann sem Spilverk þjóðanna flutti á sinum tímá, en „Híf opp“ hófst á rólegum inngangi í þægilegri gítartóntegund, en sjálft lagið var með fremur hröðum latneskum hryn. En auk laganna á „Híf opp“ flutu með tvær af perlum djassbók- menntanna, „Birdland" eftir austurríska hljómborðsleikar- ann Joe Zavinul og svo lag Chick Corea sem þeir Bjöm og Gunnar fluttu með Philip Catherine sl. haust, „Spain“. Miðað við fyrri kynni mín af tríói Bjöms er greinilegt að Eg- ifl hefur mikil áhrif á tónlist- ina. Ef ég stæði frammi fyrir þeirri erfiðu spurningu að þurfa að svara því hvers konar tónlist þetta er, þá vildi ég einna helst snúa mig út úr því með því að nefna hana ljóða- djass, sem segir reyndar lítið. Viðbrögð áheyr- enda voru önnur en á djasstónleikum, t.d. var yfirleitt ekki klappað á eftir sólóum, svo ég hugsa að fáir myndu nefna hana djass þótt mik- ið sé spunnið. En hvað sem menn kalla tónlist- ina þá er það klárt að fagmannlega er farið að hlutunum, enda valinn maður í hverju rúmi. Enda var greinilegt á viðbrögðum áheyrenda að þeir kunnu vel að meta það sem að þeim var rétt, og Gershwin og Ellington áttu aukanúmer- in, „It Ain't Necessarily so“ og „Mood Indigo". Til hamingju með afmælið 10. júní 90 ára Ólafur Þórðarson, Hlíðarenda, Ölfúshreppi. 85 ára Gunnþórunn Egilsdóttir, Borgarási 10, Garðabæ. 80 ára Hjalti Gestsson, Reynivöllum 10, Selfossi. 75 ára Herdís Torfadóttir, Víkurgötu 4, Stykkishólmi. Sveinn Gíslason, Víðigrund 28, Sauðárkróki. Þorlákur Þórðarson, Stóragerði 20, Reykjavík. Halldór Baldvinsson, Álfaskeiði 36, Hafnarfirði. 70 ára Sigríður Jóhannesdóttir, Gunnarsstöðum I, Svalbarðshreppi. Guðmunda Jónína Guðmundsdóttir, Gerðhömrum, Mýrahreppi. Steina Finnsdóttir, Vogatungu 37, Kópavogi. Matthías Einarsson, Þórunnarstræti 117, Akureyri. Svanhildur Jóhannesdóttir, Álftamýri 8, Reykjavik. 60 ára Óskar Guðjónsson, Bæjartúni 4, Kópavogi. Steinar Antonsson, Fornhaga 26, Reykjavík. Guðmundur Sigurðsson, Helgugötu 13, Borgarbyggð. Marteinn G. Karlsson, Engihlíð 10, Snæfellsbæ. Sigrún Guðmundsdóttir, Grashaga 24, Selfossi. 50 ára Málfríður H. Halldórsdóttir, Keldulandi 3, Reykjavík. Sædis Vigfúsdóttir, Sæviðarsundi 56, Reykjavík. Ingibjörg Jónatansdóttir, Suöurhvammi 2, Hafnarfirði. Birgir Siguijónsson, Starmýri 15, Neskaupstað. Ólafur Magnússon, Reynigrund 12, Akranesi. Sigurborg Hilmarsdóttir, Drafnarstíg 2, Reykjavík. Páll Róbert Óskarsson, Strembugötu 10, Vestmannaeyjum. 40 ára Davið Geir Gunnarsson, Veghúsum 15, Reykjavík. Lilja Hafdís Óladóttir, Merki, Jökuldalshreppi. Sigurbjörg Snorradóttir, Krossum II, Árskógshreppi. Steingrímur Guðjónsson, Vesturgötu 73, Akranesi. Guðný Bóel Guðbjartsdóttir, Bröttugötu 26, Vestmannaeyjum. Björn Eggert Kjartansson, Hringbraut 52, Keflavík. Komína Björg Óskarsdóttir, Björgum, Ljósavatnshreppi. Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, Erluhólum I, Reykjavík. Kristinn H. Þorsteinsson, Stararima 67, Reykjavík. Páll Þór Engilbjartsson, Heiðarbrún 68, Hveragerði. Guðlaug Eygló Elliðadóttir, . Álfheimum 50, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.