Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Side 10
10
ílk
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996
Magnús Ragnarsson, nýráðinn leikari hjá Þjóðleikhúsinu:
Magasýrustigið hærra
í Bandaríkjunum
„Ég hef verið viðloðandi leikhús-
ið frá því ég var tíu ára gamall en
þá byrjaði ég í ballett vegna þess að
systir mín var í ballett. Ballett-
krakkarnir voru notaðir í allar sýn-
ingar hjá Þjóðleikhúsinu. Ég lék til
dæmis í Kardemommubænum og
Ferðinni tii tunglsins á sínum tíma.
Ég gafst upp á ballettinum í kring-
um fjórtán ára aldur því það var
ekki „cool“ lengur," segir Magnús
Ragnarsson leikari sem hefur ný-
lega verið fastráðinn hjá Þjóðleik-
húsinu.
Magnús er í stóru hlutverki í leik-
ritinu í hvítu myrkri eftir Karl
Ágúst Úlfsson sem frumsýnt verður
á Litla sviði Þjóðleikhússins um
helgina. Magnús hefur leikið hlut-
verk í leikritunum Allir sýhir mín-
ir, Þrek og tár, Kardemommubær-
inn, West Side Story, Don Juan og
Mávurinn. Hann er leikaramennt-
aður í Bandaríkjunum og starfaði á
Broadway í nokkur ár en þó ekki
sem leikari. Helgarblaðið tók Magn-
ús tali og bað hann að segja örlítið
frá sjálfum sér.
Magnús er 33 ára og er kvæntur
Lauren Hauser, bandarískri stúlku,
ballettmeistara hjá íslenska dans-
flokknum. Þau eiga saman soninn
Stefán, 19 mánaða.
Starfaði á Broadway
Magnús lagði land undir fót tví-
tugur að aldri og lá leið hans í
Mekka leiklistarinnar, New York.
Þar stundaði hann leiklistarnám í
Neighborhood Playhouse í New
York. Að námi loknu starfaði hann
á Broadway við uppsetningu söng-
leikja, meðal annars við hlið Jer-
ome Robbins og Bernsteins. Robb-
ins er höfundur West Side Story og
Fiðlarans á þakinu. Robbins er eitt
stærsta nafnið í söngleikjum á Broa-
dway.
„Það var óskaplega gaman að fara
tvítugur til Bandaríkjanna og búa
þar því það er mjög mikið að gerast
í leikhúsinu í New York. Ég gat far-
ið á nýja sýningu á hverjum einasta
degi,“ segir Magnús.
Magnús segist hafa verið mjög
lánsamur að fá að starfa við sýning-
ar á Broadway og hann tók þátt í
uppsetningu á nokkrum mjög stór-
um uppfærslum. Hann starfaði auk
þess við Metropolitanóperuna í tvö
ár.
„Þetta var mjög skemmtilegt fram
hald á skólanum og mér fannst for-
vitnifegt að læra á leikhúsið. Það
var alveg frábær skóli þó að það
tengist ekki endilega því sem ég er
að gera núna. Ég lék alltof lítið í
Bandaríkjunum þvi tungumálaörð-
ugleikarnir komu á endanum niður
á mér. Ég festist einhvem veginn í
uppsetningunum og lenti á ákveðn-
um bás. Mig langaði auðvitað að
leika þegar ég var í Bandaríkjunum
en það er ótrúlega mikið hark. Því
miður var ekki tími afgangs til þess
að láta reyna á samkeppnina. Hún
var mjög mikil en það er auðvitað
ekkert svo ólíkt hér,“ segir Magnús.
Harðnandi samkeppni
Magnús segir að samkeppnin hafi
harðnað mjög mikið hér á landi og
leikurum hefur ijölgað. Margir leik-
arar útskrifast á hverju ári frá Leik-
listarskóla íslands og aðrir fara í
nám erlendis. Erfitt getur reynst
segir Magnús um muninn á íslensku og bandarísku leikhúslífi
Magnús í hlutverki sínu í leikritinu I hvítu myrkri
fyrir allt þetta fólk að fá vinnu þeg-
ar út í atvinnulífið er komið þar
sem tækifærin eru takmörkuð.
„Tækifærin verður maður oft að
skapa sér sjálfur til þess að geta haft
leilistina að lifibrauði. Ég var
mjög heppinn að fá að ganga inn
í glufu hjá Þjóðleikhús-
inu,“ segir Magnús.
„í sjálfu sér er
ekkert öðru-
vísi að
starfa í
leik-
húsi
Banda-
ríkjunum
heldur en á
íslandi. Magasýru-
stigið verður þó held-
ur hærra í Bandaríkj-
unum því þar er lagt
mjög mikið undir fjárhags
lega fyrir sýningarnar.
Stofnað er hlutafélag um
hverja einustu sýningu þar
og fjárfestar leggja fé í sýning-
arnar. Það er rándýrt að reka
söngleik á Broadway. Vikan get-
ur kostað í kringum 20 milljón-
ir,“ segir Magnús.
Eins og fram hefur komið
starfaði hann með Jerome Robb-
ins á Broadway en hérlendis hefur
orðið hálfgerð Robbins-vakning.
„Það var mikið lán að fá að vinna
með mönnum sem alltaf höfðu verið
mjög fjarlægir manni. Það var mjög
fróðlegt að fylgjast með því hvernig
þeir tóku á verkefnum sínum.
Magnús segir kosti og galla fylgja
því að starfa við einkarekin leikhús.
Hann telur að ríkisrekin feikhús
gætu lært margt af þeim einka-
reknu. Honum finnst að framleið-
andi ætti að vera að hverri einustu
sýningu.
Eftir tíu ára veru í Bandaríkjun-
um fluttist Magnús heim með
íjölskyldu sinni og hóf
störf hjá Þjóðleikhús-
inu. Hann segist eins
geta hugsað sér að
flytja aftur til
Bandaríkj-
anna í fram-
tíðinni en
er eins
og er
mjög
ánægður með stöðu sína í íslensku
leikhúslífi.
Magnús leikur stórt hlutverk í
leikritinu í hvítu myrkri en sögu-
þráður þess er á þann veg að í ís-
lensku sjávarplássi ráða roskin hót-
elstýra og ráðskona hennar ríkjum.
Þar gengur lífið sinn vanagang þar
til kvöld eitt gerir aftakaveður og
ferðalangar á leið í brúðkaup í
næsta firði verða strandaglópar á
hótelinu. Smátt og smátt koma í ljós
ýmis óvænt tengsl þeirra við íbúa
staðarins og fortíðin knýr dyra.
Þetta er fyrsta leikrit Karls Ágústs
sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Aðrir
leikarar eru Ragnheiður Steindórs-
dóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Helgi Skúlason, Kristbjörg Kjeld og
Þröstur Leó Gunnarsson.
Á mörkum drama og
tragedíu
„Leikritið fjallar um bræður og
þeirra óleystu fortíðarmál. Leikritið
er mjög dramatískt og liggur á
mörkum drama og tragedíu. Ég leik
annan bróðurinn sem lenti í slysi og
er eftir það ekki hæfur til samskipta
við annað fólk. Hann verður hálf-
gerð .hornreka. Leikritið reynir
mikið á allt nema textann en hann
segir tvær setningar sem hann not-
ar aftur og aftur. Hann er á sviði all-
an tímann og ég þurfti að læra að
spila á píanó fyrir þetta leikrit,"
segir Magnús.
Magnús segir, aðspurður um leik-
ritaval hjá einkareknum leikhúsum
eins og í Bandaríkjunum, að létt-
leiki verði alltaf að vera á boðstól-
um. Hann segir að ekki megi van-
meta allt léttmeti í kvikmyndagerð
og leikhúsi. Það segir hann í raun
og veru mikilvægara heldur en fólk
geri sér grein fyrir.
í Bandaríkjunum er notað
stjömukerfi til þess að selja sýning-
ar. Ég sá í fyrra að sett var upp stór-
kostleg sýning á Hamlet á Broad-
way. Hún seldist vegna þess að
Ralph Fines, sem lék í Lista
Schindlers, lék aðalhlutverkið. í
rauninni þarf hvatamaður sýn-
ingarinnar að selja fjárfestum þá
hugmynd sem hann hefur," segir
Magnús.
-em
Magnús Ragnarsson á að baki
margra ára leikreynslu og hefur nú
verið fastráðinn hjá Þjóðleikhúsinu.
Magnús í hlutverki sínu í leikritinu í
hvítu myrkri.
DV-mynd GVA