Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Blaðsíða 56
I. msmmgimr
Vertu viðbúinl'nj vinningt
13
Hvalur
sprengdur í
loft upp á
Faxaflóa
- eina ráðið, segir Gæslan
„Hann flaut bara þarna eins og
eyja á flóanum og þar sem hann
heföi getað reynst hættulegur minni
bátunum urðum við að fjarlægja
hann. Við máttum ekki fara með
hræið í land til þess að hrenna það
eða farga með öðrum hætti og eftir
að við höfðum árangurslaust reynt
að sökkva honum ákváðum við að
reyna að sprengja hann í loft upp,“
segir Sigurður Ásgrímsson,
sprengjusérfræðingur hjá Landhelg-
isgæslunni, en Gæslan sprengdi
hval í loft upp á Faxaflóanum í
fyrradag.
Sigurður segir að áður hafi verið
rætt um að sprengja hval í loft upp.
Hann segir að hvalurinn hafi verið
á reki rétt utan við Hafnarfjörð og
þeir farið með varðskipi út i hann.
Hann segir hvalinn hafa verið 10-12
metra á lengd og auðvelt að fara út
á hann til þess að koma sprengiefn-
inu fyrir.
„Landhelgisgæslunni ber skylda
til að fjarlægja reköld af öllu tagi og
nú vitum við að þessi aðferð gefst
vel. Hvalimir fljóta alltaf upp annað
slagið," segir Sigurður.
ísaQörður:
Tveir í gæslu
Tveir menn voru í gær úrskurð-
aðir í fjögurra daga gæsluvarðhald
á ísafirði vegna gruns um fikniefna-
misferli og innbrot. Mennirnir, sem
hafa báðir oft komið við sögu lög-
reglu, voru handteknir við húsleit á
ísafirði í fyrradag.
-RR
ÍSHMDIEtlL-ASXÖ*
\
533-1000
Kvöld- og
helgarþjónusta
/
NSK
kúlulegur
V*ouMsen
Suöurlandsbraut 10 - Sími 568 6499
HVA£> SEGJA ,
GRÆNFRIÐUNGAR NU?
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996
Fjárflutningarnir af Kjalarnesi:
Kindurnar fluttar
yfir á alfriðað svæði
- málið litið mjög alvarlegum augum hjá viðkomandi yfirvöldum
„Það má ekki sleppa neinu
búfé á Reykjanesi, það er alger-
lega friðað svæði fyrir öllu búfé.
Ég hef hins vegar verið að finna
þessar kindur í sumar, látið eig-
enduma vita og þá hafa þeir kom-
ið og sótt þær til mín. Hér er því
um lögbrot að ræða og viðkom-
andi yfirvöld að sjálfsögðu komin
í málið sem er litið alvarlegum
augum,“ sagði Hreinn Bjarnason,
umsjónarmaður með skepnuhaldi
í landi Hafnarfjarðar, í samtali
við DV
Eins og skýrt var frá í DV í gær
flutti bóndinn á Hrafnshólum á
Kjalarnesi fé bændanna á Hrísbrú
í Mosfellssveit á bíl yfir á friðað
svæði í Vatnsskarði í Krísuvík í
sumar. Kindurnar höfðu komið
inn á land hans. Hann sagðist í
samtali við DV hafa gert þetta
áður.
Hreinn segir að það sé enn ekki
vitað hve margar kindurnar voru
sem fluttar voru í sumar en talið
er að þær séu á milli 60 og 70 meö
lömbum. Það kemur ekki í ljós
fyrr en í haust hvort allar kind-
umar, sem fluttar vora, skila sér.
DV hefur heimildir fyrir því að
eftir fyrra skiptið sem bóndinn á
Hrafnshólum gerði þetta haíi
Ólafur Dýrmundsson landnýting-
arráðunautur ritað sveitarstjórn-
inni á Kjalamesi bréf vegna máls-
ins þar sem féð var flutt úr
hreppnum og í gegnum sauðfjár-
veikivarnargirðingu í friðað hólf.
Þá rannsakar lögreglan málið
vegna kæru bændanna á Hrísbrú,
eigenda kindanna.
Ekki náðist í Ólaf Dýrmunds-
son í gær og heldur ekki sveitar-
stjórann á Kjalarnesi. Starfsmað-
ur á skrifstofu Kjalarneshrepps
kannaðist hins vegar við þetta
mál. -S.dór
Starfsmenn Gufuneskirkjugarðar unnu að því höröum höndum í gær aö lagfæra skemmdirnar í garðinum.
DV-mynd S
Árekstrabylgja í gær:
Lítið barn
fékk skurð
áhöfuð
Mikil árekstrabylgja var í Reykja-
vík í gær. Frá klukkan 8 í gærmorg-
un og fram að kvöldmatarleyti var
lögreglu tilkynnt um 17 árekstra í
borginni.
Harðasti og cdvarlegasti árekstur
gærdagsins var á gatnamótum
Skútuvogar og Kleppsmýrarvegar
þar sem tveir bílar skullu saman.
Fernt var flutt á slysadeild, þar af
eins og hálfs árs gamalt barn.
Bamið fékk áverka á höfuðið, þ. á
m. stóran skurð. Sauma varð 18
spor í höfuð bamsins en það var í
rannsókn i gærkvöld. Hin þrjú sem
lentu í árekstrinum fengu að fara
heim að skoðun lokinni en meiðsl
þeirra voru ekki alvarleg. Bílarnir
eru illa famir eftir áreksturinn.
-RR
Skemmdar-
verk unnin í
Gufunes-
kirkjugarði
Tveir 8 ára drengir voru staðnir
að verki við skemmdarverk í Gufu-
neskirkjugarði í fyrrakvöld.
Skemmdu þeir mörg leiði, legsteina,
ljósker og ýmislegt skraut sem er
við leiðin í garðinum.
„Þetta eru töluverðar skemmdir
sem hafa verið unnar hér í garðin-
um. Manni finnst mjög undarlegt að
einhverjir skuli skemma svona stað
og mér finnst enn verra að vita að
þetta eru svona ungir drengir. Það
er alvarlegt þegar svona nokkuð
gerist," sagði Þórsteinn Ragnarsson,
forstöðumaður kirkjugarðsins í
Gufunesi, við DV vegna málsins.
Málið er nú hjá lögreglu sem er
að rannsaka hvort allar skemmdim-
ar séu eftir drengina tvo. Þeir munu
báðir hafa verið yfirheyrðir af lög-
reglu.
Starfsmenn kirkjugarðsinsmnnu
hörðum höndum að því i gær að lag-
færa skemmdimar í garðinum.
-RR
L O K I
Veðrið á morgun:
Hlýjast norðanlands
Veðrið á mánudag:
Suðaustanstinningskaldi
Á morgun verður sunnan- og suðaustangola eða kaldi. Þokusúld verð- Á mánudaginn verður suðaustanstinningskaldi. Víða verður súld eða
ur um sunnan- og vestanvert landið en annars þurrt að mestu. Víða verð- rigning um sunnan- og austanvert landið en annars þurrt að mestu. Hiti
ur léttskýjað norðanlands. Hiti verður á bilinu 10 til 19 stig, hlýjast norð- verður á bilinu 11 til 19 stig, hlýjast um norðan- og norðvestanvert land-
anlands.
Veðrið í dag er á bls. 57.
ið.