Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Blaðsíða 17
D V LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996
17
„Fyrir mörgum árum fór ég aö kaupa og lesa skútublöö af hreinni tilviljun og svo keypti ég alltaf fleiri og fleiri blöö
og mér fannst alltaf meira og meira af skemmtilegu lesefni í þeim. Á endanum fór ég aö hugsa um aö þaö væri gam-
an að prófa skútusiglingar," segir Magnús. Hér er hann ásamt Ragnari Hilmarssyni, lengst til vinstri, og Inga Ágústs-
syni í miöju. DV-mynd Pjetur
hverjum degi síðustu dagana. Þrátt
fyrir óveður og ýmis óhöpp segir
Magnús þó að líf skipverjanna hafi
aldrei verið í hættu.
Skútan Elin kom til íslands að-
faranótt 8. september og lagðist við
ankeri í Straumsvík þvi að „við
vildum koma inn í björtu og leyfa
fólkinu að sjá okkur koma af hafi,“
segir Magnús. Eins og nærri má
geta urðu miklir fagnaðarfundir
þegar skútan kom í höfn. -GHS
Elín er 20 ára gömul 44 feta skúta, byggö í Frakklandi og innréttuö í
Englandi. Hún er ein stærsta skútan sem er í eigu íslendinga.
DV-mynd Pjetur
héldu áfram til Newberry Port. Þar
skildi Magnús skútuna eftir í sex
vikur í umsjá fyrrverandi skip-
stjóra í bandarísku strandgæslunni
og flaug heim.
Magnús Jónsson hóf svo einn
annan áfanga ferðarinnar frá
Newberry Port 25. júní í sumar og
sigldi til Sydney á Nova Scotia með
viðkomu i Lunenburg, rétt utan við
Halifax, og í Canso, austur með
ströndinni. í Sydney geymdi hann
bátinn aftur í sex vikur og flaug
heim.
Skipverji veiktist
Þriðji áfangi ferðarinnar hófst
svo í lok ágúst. Magnús og félagar
hans, Ragnar og Ingi Ágústsson,
lögðu af stað frá Sydney á hádegi 23.
ágúst norður Atlantshafið til ís-
lands. Þegar þeir höfðu siglt hálfa
dagleið fram hjá suðurodda Ný-
fundnalands veiktist einn skipverja
og þeir sneru því aftur til Saint
John’s. Veikindin voru sem betur
fer ekki alvarleg þannig að þeir fóru
út aftur eftir hádegi 27. ágúst eftir
sólarhrings stopp.
„Við settum stefnuna beint heim.
Ferðin gekk vel að öðru leyti en því
að við lentum í óveðri 3. september.
Þá vorum við rúmar 500 milur suð-
vestur af Garðskaga. Við vorum í
ágætis veðri, 20-30 hnúta vindi, þeg-
ar veðrið breyttist eins og hendi
væri veifað. Vindurinn fór í 50
hnúta og hviðaði upp í 60 hnúta.
Það stóð í tæpan sólarhring og eftir
það gekk allt vel,“ segir Magnús.
Elín átti eftir um fjögurra daga
siglingu þegar forseglið rifnaði og
urðu skipverjar að nota minna segl
eftir það. Eftir það gekk ferðin ekki
jafn hratt fyrir sig. Magnús segir að
mikið hafi sést af viðardrumbum
suðvestur af Grænlandi og einn hafi
nuddað sér utan í skútuna með
þeim afleiðingum að listi eftir endi-
löngum bátnum brotnaði.
Staðsetningartæki, sem þeir
höfðu leigt af Flugbjörgunarsveit-
inni í Reykjavík og átti að koma
boðum til vina og ættingja um stað-
setningu, virkaði aðeins fyrsta dag-
inn en ekki eftir það. Skipverjum
tókst að koma frá sér boðum til
þeirra annan hvem dag gegnum
Loftskeytastöðina í Gufunesi og á
um nýja yfirburða-
bvottavél frá Whirlpool
Þessi nyja þvottavel fra
Whirlpool skartar mörgum
tækninýjungum og kostum
sem þú skalt ekki láta fram
hjá þér fara.
- Lágt verð!
- Stór hurð sem opnast 156'
þér .til þæginda.
-„Water lift system" sem
eykur gæði þvottarins.
- Ullarvagga. Vélin „vaggar“
þvottinum líkt og um
handþvott væri að ræða.
- Nýtt silkiprógram.
- Barnalæsing.
AWM254 500/800sn
56.950 kr.st
AWM255 600/900sn
62.300 kr.stgr.
AWM256 600/1 OOOsn
69.250 kr.stgr,
78.750 kr.stgr.
AWM258 120/1200sn
Heimilistæki hf
SÆTUNI 8 SIMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt