Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Page 44
52 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 T>V Keppni Anatolís Karpovs gegn öllum heiminum á Intemetinu í lok síðasta mánaðar rennir enn frekari stoðum undir þá nýju möguleika sem tölvutæknin hefur fært skák- unnendum. Hér í eina tíð hefði hver maður þótt fullsæmdur af því að fá að etja kappi við heimsmeistarann á þennan hátt. Keppnin fór þannig fram að Karpov sat á hótelherbergi sínu í Helsinki og svaraði leikjum andstæðinga sinna hvaðanæva að úr heiminum. Valinn var sá leikur þeirra sem flestir mæltu með en alls munu um eða yfir 50 þúsund manns hafa stungið upp á leikjum í skák- inni. Skákina alla til enda tefldu 250 manns en þúsundfalt fleiri gægðust á heimasíðu keppninnar. Karpov vann skákina léttilega og nú kann einhverjum að virðast það mikið afrek, enda ekki á hverjum degi sem menn leggja heiminn aö fótum sér. Ef betur er að gáð kemur í ljós að varla hefði mátt búast viö því að sá „meðaljón" sem raunveru- lega tefldi skákina hefði eitthvað í Karpov að gera. Skáklistin ristir dýpra en flestir gera sér grein fyrir og allra síst er hægt aö búast við árangri með því að velta fyrir sér einstökum leikj- um. Stórmeistarinn gerir langtíma- áætlun og hefur ákveðna „strateg- íu“ í huga. Taflmennskan verður þvi heilsteypt og hver leikur skref að settu marki. Þetta vantaði aug- ljóslega í hugsun mótherja Karpovs. Tafl þeirra var því sundurlaust og algjörlega misheppnað. Með það veganesti að hafa sigrað heiminn tefldi Karpov í Finnlands- Smáauglýsinga deild DV er opin: *fj| • virka daga kl. 9-22^ • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Skilafrestur smáauglýsinga er fyrir kl. 22 kvölaið fyrir birtingu. Afh. Smáauglýsing í Helgarblað DV verður þó að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag. Smáauglýsingar [r»x*ai 550 5000 -en heimsókn sinni klukkufjöltefli við sex finnska landsliðsmenn. Hver Finnanna hafði tvær klukkustundir til umráða á skákina og Karpov hafði sama umhugsunartíma á hverju boröi en þess ber að geta að klukka Karpovs gat því tifað sam- tímis á mörgum borðum. Karpov mætti finnska landsliðinu í áþekkri keppni fyrir sjö árum og hafði þá auðveldan sigur, fjórar vinnings- skákir gegn tveimur jafnteflum. En nú varð annað uppi á teningnum. Skemmst er frá þvi að segja að Finnar bitu í skjaldarrendur og höfðu betur á tveimur borðum. Stór- meistarinn góðkunni, Heikki West- erinen, gaf tóninn með laglegri vinningsskák á 1. borði. Maki tókst einnig að leggja Karpov, jafntefli gerðu Pyhala og Valkesalmi en Raaste og Yijola töpuðu sínum skákum. Úrslitin urðu því óvænt jafntefli, 3-3. Fróðlegt er að bera skákir Kar- povs saman, annars vegar vinnings- skákina gegn „heiminum" og hins vegar skákina við Westerinen. Finnski stórmeistarinn, sem orðinn er 52 ára gamall, hefur gert mörgum kappanum skráveifu um dagana. Hann er þekktur fyrir frumlega hugsun - á stundum svo að kemur honum í kofl - en í skákinni við Karpov tekst honum vel upp. Raun- ar fær Karpov gott tafl eftir byrjun- arleikina en ætlar sér svo of stóran hlut. Westerinen byggir upp sóknar- stöðu og þar er hann í essinu sínu. Hvítt: „Heimurinn" Svart: Anatolí Karpov Caro-Kann vöm. brídge Úrslitin Nú er lokið öllum leikjum í fjórð- ungsúrslitum Bikarkeppni Bridge- sambands íslands og ljóst hvaða sveitir spila saman í undanúrslit- um. Úrslit í áttaliða úrslitum voru þessi Landsbréf 162 - Garðar Garðars- son 51 Sparisjóður Þingeyinga 124 - Hrafnhildur Skúlad. 27 Búlki hf. 135 - Jón Ág. Guð- mundsson 77 Samvinnuferðir/Landsýn 85 - VÍB67 Dregið var til undanúrslita og spila saman sveitir Búlka hf. og Landsbréfa annars vegar og hins vegar sveitir Sparisjóðs Þingeyinga og Samvinnuferða/Landsýnar. Undanúrslitasveitimar unnu all- ar nokkuð afgerandi sigra, nema sveit Samvinnuferða/Landsýnar gegn sveit VÍB. Fyrirfram var búist við spennandi leik og sú varð raun- in. Reyndar var leikurinn nokkuð vel spilaður, þótt vissulega sæjust tapaði fyrir Heikki Westerinen 1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Rd7 5. Rf3 Rgf6 6. Bd3 Rxe4 7. Bxe4 Rf6 8. Bd3 Bg4 9. c3 e6 10. 0-0 Be7 11. h3 Bh5 Eftir uppskiptin á e4 hefur svart- ur leyst byrjunarvandamál sín og má nú vel við una. 12. Bf4 0-0 13. Hel Db6 14. Hbl c5 15. dxc5?! Bxc5 16. Be3 Hfd8 17. Bxc5 Dxc5 18. De2? Ómarkviss taflmennska heimsins hefur gefið Karpov frumkvæðið á silfurfati - takið eftir að hann hefur komið mönnum sínum í leikinn fyrr en hvítur sem má vissulega gæta að sér. Síðasti leikur hvíts gef- ur Karpov kost á beinum ávinningi og hann er ekki seinn að grípa tæki- færið. 18. - Dd5! 19. Bc4 Bxf3 20. gxf3 111 nauðsyn en nú er peðastaðan ónýt kóngsmegin og ekki hlaupið að því að eiga við illvíga drottningu og riddara svarts. 20. - Dg5+ 21. Kh2 Dh4 22. Hgl g6 23. Hbdl Df4+ 24. Khl Dh4 Örlítið hliðarspor til þess að sýna hvítum fram á úrræðaleysið. 25. Kh2 Hxdl 26. Hxdl Rh5 27. Hd4 Rf4 28. Dfl Hc8 29. b3 b5! 30. Bxb5 Hxc3 31. Be2 Hc2 32. He4 Hcl! - Og „heimurinn" lýsti sig sigrað- an. Hvítt: Heikki Westerinen Svart: Anatolí Karpov Caro-Kann vörn. 1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Rd7 5. Bd3 Rdf6 6. Rg5 Bg4 7. Rlf3 e6 8. 0-0 Bh5 9. c3 h6 10. Re4 Rxe4 11. Bxe4 Rf6 12. Bd3 Dd5 13. Be2 Bd6 Umsjón JónLÁmason Karpov má vel við una eftir byrj- unarleikina, sbr. skákina að framan - uppskipti á riddurum létta á stöðu svarts, auk þess sem hvítreita-bisk- up hans hefur sloppið undan þvi oki sem því fylgir að þurfa að dvelja að baki peða sinna. 14. Db3 0-0-0 15. Hel Df5?! 16. c4 Bb8 17. Be3 Bxf3?! 18. Bxf4 g5 19. Hadl Hhe8 20. Da4 h5 21. b4! Karpov vaknar nú upp við þann vonda draum að sókn hvíts er mun hættulegri en peðaframrás svarts á kóngsvæng. Hann grípur því til ráð- stafana til þess að koma kóngi sín- um á brott frá átakasvæðum en nú er frumkvæðið greinflega í höndum hvíts. 21. - Hd7 22. b5 cxb5 23. cxb5 Kd8 24. d5! Auðvitað freistar hvítur þess að opna taflið og ná höggi á svarta kónginum. 24. - e5 25. d6! He6 26. Bxa7 Bxd6 27. Bb6+ Ke7 28. Bc6! bxc6 29. bxc6 e4 Svartur kemst ekki hjá þvi að missa hrókinn og vonast nú eftir kraftaverki. En Westerinen heldur áfram að tefla vel. Ef 29. - Hc7 30. Hxd6!, eða 29. - Hd8 30. Da7+ Ke8 31. Bxd8 o.s.frv. 30. cxd7 Rxd7 31. Bc7! Rc5 32. Bxd6+ Hxd6 33. Da7+ Ke6 34. Hxd6+ Kxd6 35. Db6+ Ke7 36. Db5! Kf6 37. Hcl - Og Karpov gafst upp. -JLÁ Bikarkeppni BSi: ráðast um næstu helgi einnig mistök. Viö skulum skoða eitt skemmti- legt spil frá leiknum. S/0 * G1042 «4 KG54 ♦ 102 * ÁK4 4 D98 4» ♦ K9 * 93 * G843 •4 G10532 4 * D875 í opna salnum sátu n-s Bjöm Ey- steinsson og Karl Sigurhjartarson en a-v Guðlaugur Jóhannsson og Örn Amþórsson. N-s týndu spaða- litnum: Suður Vestur Norður Austur 1 tígull pass 1 hjarta pass 1 grand! pass 3 grönd pass pass pass Örn var í vandræðum með útspil- ið. Það virtist ekki sigurstranglegt að spila hjarta og raunar var gott hjá honum að spila ekki spaða. Hann valdi hins vegar rangan láglit þegar hann spilaði út tígulfimmi því laufútspil banar spilinu. Karl setti lítið úr blindum og þeg- ar gosinn kom frá Guðlaugi vom Umsjón Stefán Guðjohnsen þrír tígiflslagir í húsi. Karl sótti síð- an tvo spaðaslagi og tveir á lauf og tveir á hjarta gerðu níu slagi. „Þetta er eins impa tap,“ tilkynnti Karl, því fjórir spaðar vinnast alltaf. En er það nú alveg víst! í lokaða salnum sátu n-s Matthías Þorvaldsson og Ásmundur Pálsson en a-v Guðmundur Sv. Hermanns- son og Helgi Jóhannsson. Nú voru sagnir ögn vísindalegri: Suður Vestur Norður Austur 1 tígull pass 1 hjarta pass 1 spaði pass 2 lauf pass 2 hjörtu pass 4 spaðar pass pass pass Forstjóri Samvinnuferða/Land- sýnar sýnir oft hugmyndaauðgi í starfi og ekki síður við spilaborðið. Hann ákvað að spila út hjartasexi, með það í huga að gefa makker stungu þegar hann kæmist inn á trömpásinn. Ásmundur var ef til vill of fljótur á sér að láta lítið úr blindum, eins og kom berlega í ljós í framhaldinu. Nía austurs kostaði ásinn og Ás- mundur sneri sér strax að tromplitnum. En Helgi var fljótur að fara upp með ásinn og spila hjarta- þristi. Nú var eins víst að hann hefði byrjað með tvispil og því drap Ásmundur á kónginn. Þegar siðan tígulsvíningin brást var spilið einn niður og sveit Samvinnuferða græddi 10 impa í stað þess að tapa einum. Stefán Guðjohnsen 4 •4 Á63 ♦ D1063 * K75

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.