Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Blaðsíða 43
JL> V LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 Heimasíður nemendafélaga í Háskólans á vefnum - mikið af auðfengnum upplýsingum Nú er kennsla hafinn í flestum deildum Háskóla íslands og því ekki úr vegi að líta örlítið í kringum sig á þeim heimasíðum sem nemandafé- lög Háskólans hafa komið sér upp. Allflestar þessara síðna hafa verið settar upp með stuðningi Lands- banka íslands. Oftar en ekki eru það snjallir tölvunarfræðinemar sem hafa tekið slík verkefni að sér gegn vægu gjaldi en þó kemur það fyrir að aðrir nemendur reyna fyrir sér í heimasíðugerð fyrir félög sín. Einfaldar og aðgengilegar Fæstum dettur sennilega í hug að tengja saman nám í íslensku og rúss- nesku við afrek á netinu. Hallgrímur Indriðason íslensku- og rússnesku- nemi er þó á kafi þessa dagana við að ljúka við að gera heimasíðu Mím- is, félags íslenskunema. Hallgrímur segir það mikilvægt að hafa síður nemendafélaga einfald- ar og aðgengilegar. „Yfírbragðið á síðunni má ekki vera of yfirþyrm- andi. Það má til dæmis ekki gerast að upplýsingar di-ukkni í grafik. Samt verður eitthvað að vera til staðar fyrir augað. Það er í þessu sem öðru að það borgar sig að fmna einhvern meðalveg. Þetta er allt ann- að en að búa til persónulega heima- síðu,“ segir Hallgrímur. Hann telur að yfirleitt takist höfundum heima- síðna nemendafélaga nokkuð vel að gera síðumar hæfilega léttar. Hallgrímur segir mikilvægast að heimasíður nemendafélaga sé gagn- legar fyrir notendur. „Þeir eiga að geta komist hratt og örugglega yfir síðuna. Það er til dæmis þægilegt fyrir fólk að geta sloppið við að fletta í gegnum þykkar kennsluskrár þeg- ar þeir eru að kynna sér reglur sem gilda um BA-ritgerðir eða lesa um hvað sé kennt í námskeiðum. Með því að nota netið er hægt að ganga beint að þessum upplýsingum," seg- ir Hallgrímur. Hann segir líka tilval- ið fyrir þá sem hafa áhuga á námi í Háskólanum að skoða sig um á heimasíðum viðkomandi nemenda- félaga til þess að fá tilfinningu fyrir því hvernig viðkomandi háskóla- nám henti þeim. Hallgrímur er þó ögn efins um að nemendur i heim- uppfæra síðurnar og halda þeim við. Fátt er meira svekkjandi við verald- arvefinn en heimasíður sem hefur greinilega dagað uppi og innihalda fátt annað en úreltar upplýsingar. -JHÞ Nágrannar Hver man ekki eftir áströlsku sápuóperunni Nágrönnum? Þessir þættir nutu gífurlegra vinsælda og nú geta áhugasam- ir vefflakkarar rifjað upp sælu- stundimar fyrir framan skjáinn á síðunni http: //homepa- ges.enterprise.net/peterlaw- son/neighbor.html Á þessari síðu má finna alla leikarana í þáttunum frá upphafi og einnig má fylgjast með gangi mála í nýjustu þáttunum um grann- ana. Allra nýjustu fréttirnar mun vera að finna á síðunni http: //www.sofcom.com.au/TV/Mel- boume.html en þai- er að finna sjónvarpsvísi þeirra Ástrala. Albert Einstein Það er mikið til af efhi á Net- inu um þennan mikla snilling. Á slóðinni http://www.sas.u- penn.edu/~smfriedm/ein- stein.html er að finna gríðar- lega mikið safn tenginga inn á heimasíður sem em helgaöar Einstein og störfum hans í þágu vísindanna. Síðumar em sum- ar hverjar frá Norðurlöndum og verður að teljast nokkuð merki- legt að rekast á vefsíður sem ekki eru á ensku. Þar er einnig að finna safn tilvitnana i hann. Madonna Hin umdeilda og hljómfagra Madonna á víst von á bami og því er kannski rétt að benda að- dáendum hennar á síður sem má nálgast á slóðinni http://www.zo.com/us- er/boopers/madonna.html Þar er einnig hægt að skoða alla texta sem hún hefur samið um dagana. Einnig er eitthvað fyrir aödáendur söngkonunnar blóð- heitu á slóðinni http: //webl.stl- net.com/madonna/ Þar geta menn stungið upp á nafni á frumburð Madonnu. Volkswagen bjöllurnar eiga sér marga aðdáendur og þeir geta fundið margt við sitt hæfi á slóðinni http: //www.power- tech.no/~jornhaug/vw- indexl.htm Leitarvál Webcrawler er ein af leitar- vélunum sem hægt er að nýta sér á Netinu. Nóg er að slá inn Webcrwler.com og þá er hægt að láta leita að leitarorðum um allt milli himins og jarðar. Umsjón Jón Heiflar Þorsteinsson Óskar G. Óskarsson, Hallgrímur Indriöason og Þórður Örlygsson starfa allir aö gerð heimasíöna fyrir nemendafélög í Háskóla ísland. Óskar og Þórður geröu heimasíðu Orators en Hallgrímur hefur unnið að gerð heimasíðu Mímis, fé- lags íslenskunema. formann félagsins enda ekki ánægð- ir með að félagið hefði enga síðu,“ segir Óskar. Þeir Óskar og Þórður segja að á síðu eins og þessari þurfi að koma fram lög félagsins, listi yfir stjómarmeðlimi, það sem sé á döf- inni í það og það skiptið og auðvitað tengingar á aðrar síður um lögfræði erlendis og hér heima. Það síðast- nefnda telur Óskar að sé helst notað. „Símaskrá laganema, sem kemur bráðlega inn á heimasíðu Orators, verður ábyggilega mjög vinsæl," seg- ir Óskar. Nýtist við nám Þórður hætir því við að á síðunni geti laganemar nálgast mikið af góðu erlendu efni um lögfræði og ef- laust geti þeir notað eitthvað af því í sínu námi. Óskar segir að mesta málið sé að setja niður fyrir sér skipulag og útlit síðunnar en að öðm leyti sé ekki erfitt að setja upp heimasíðu eins og síðu Orators. Hann leggur líka áherslu á að það sé mikilvægt að halda slikum síðum stöðugt við. „Annars daga þær uppi og verða fljótt úreltar. Því miður er það regla frekar en undantekning," segir Öskar. Þórður segir að þeir hafi notið aðstoðar 14 ára drengs við grafikvinnslu á síðunni. „Hann hef- ur mikið gert af mjög góðri grafík á aðrar heimasíður og því var alveg kjörið að fá hann til þess að búa til grafík á þessa síðu okkar. Það má í raun að segja að þessir ungu strákar séu langbestir á netið,“ segir Þórður að lokum. Heimasíða Orators er á slóðinni www.hi.is/-orator Gagnlegar síður Nálgast má allar síður nemendafé- laga í Háskóla íslands á slóðinni http: //www.rhi.hi.is/HI/Stud/nem- endafelog.html í fljótu bragði má segja um flest- allar síður nemendafélaga í Háskól- anum að tengingamar, sem eru þar á erlendu síðurnar, séu það gagnleg- asta við flestar þessar siður. Þá er miðað við þá sem ekki eru skráðir í Háskólann. Fyrir nemendur bætast við hagnýtar upplýsingar um tilhög- un náms og viðburði i félagslífi nem- anda. Oftar en ekki vantar upp á að umsjónarmenn heimasíðna nem- andafélaga séu nægilega iðnir við að Heimasíða Hvarfs er á slóðinni http://www.rhi.hi.is/~gkth/hvarf/ Hvarf er fé- lag efna-, lífefna- og efnaverkfræðinema í Háskóia íslands. Höfundur síð- unnar er Jón G. Stefánsson tölvunarfræðinemi. Frá heimasíöu eðlis- og stærðfræðinema er auövelt að komast inn á ýmsar síöur sem tengjast geimrannsóknum. Myndin hér að ofan er frá heimasíðu Kennedy Space Center. Slóðin þangaö er http://www.spaceportusa.com/ Lagakrókar spekideild noti sér heimasíður nem- endafélaga þar. „Margir þar halda að netið sé bara fyrir einhverja tölvugúrúa," segir Hallgrímur að lokum. Heimasíða Mímis verður fljótlega sett á vefinn en einungis er beðið eft- ir þvi að félagið kjósi sér nýja stjórn. Laganemarnir Þórður Örlygsson og Óskar G. Óskarsson eru höfundar heimasíðu Orators en þeir hafa unn- ið að henni frá því snemma í ágúst. „Við vissum að Orator var ekki með heimasíðu og höfðum samband við HVARF Iniematicnaf pólkið Námió Annaó Opi:or.s Velkomin á heimasiftn Hvarfs k vgfe Hvarf er féíag og tfftwtrkftft&mtMÍ í HfekóU blands Mwuvmvn $0 tolrii» FVrtr þ* *ét« vttaK sfí?. áw&fttog* Wh tt i w fceM i rfv'iSM ’Hátvái ArnVNns«von &WHí» m fímví *lHí íKVivaft áhttf Mwt m* Jxir haWt Wtvtr* * 'M I i \ {m.áawr ftiww. örjwmsal*,,hfimwiftw {wwao.n, o.ft. : IÓL&SZ2SSZ gk Landsbanki fslands Æm.................. Skartgripir Því ekki að skreyta sig aðeins? http://www. tradenets.com/tn- mall.htm Laxar Það sem menn gera ekki til að klófesta einn slíkan http: //metro.net/~go/fis- hfact/Salmon.html R.E.M. Voru að gefa út frábæran disk http://www.sys.uea.ac.uk/cgi- bin/rem.pl Farsímar Allir með þá, út um allt. http://www.mobiles.co.uk/ Gæsir Alla vega fullt af fólki sem er að reyna að skjóta þær http: //www.geocities.com/At- hens/3599/index.html Michael Jackson iandi fer förðunin ekki af honum í nýhafinni tónleikaférð ' tp;//www.hig.no/~oey- otne/mjj.html Hestakerrur Frekar gamaldags tæki. http: //www.ag.ohio- state.edu/amish/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.