Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Blaðsíða 51
I>"V LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 Endurgerð á franskri klassík Diabolique i Sambíóum: Ráöabruggið í framkvæmd. Chazz Palminteri í hlutverki fórnarlambsins Guy Barans. Þeir sem ráða ferðinni í Hollywood hafa verið iðnir á undan- fornum árum við að leita fanga í franskri kvikmyndagerð og hafa margar þekktar og klassískar franskar kvikmyndir verið gerðar upp á ameriskan máta. Nýjasta dæ- mið er Diabolique sem frumsýnd var í Sam-bíóum í gærkvöld en hún er gerð eftir Les Diaboliques sem gerð var árið 1955 og leikstýrð af Henri- Georges Clouzot og aðalhlut- verkið léku Simone Signoret og Vera Clouzot. Þetta er ekki i fyrsta sinn sem þessi fræga franska saka- málamynd er endurgerð. Árið 1974 leikstýrði John Badham sjónvarps- myndinni Reflection of Murder sem einnig var gerð eftir Les Di- aboliques. I henni léku Tuesday Weld, Joan Hackett og Sam Water- stone aðalhlutverkin. í Diabolique leika Sharon Stone og Isabelle Adjani tvær ólikar kon- ur, Nicole og Miu, sem eiga þó eitt sameiginlegt, þær sofa báðar hjá sama manninum, Guy Baran (Chazz Palmintieri), og báðar eru orðnar dauðþreyttar á því að láta hann ráða yflr lífi þeirra. Nicole er hjá- kona Guy og dróst að honum í fyrstu eins og segull að stáli en er orðin dauðþreytt á lygum hans og yfirgangssemi. Mia er eiginkona Guy. Hún er fyrrum nunna, hjart- veik og á barmi örvæntingar vegna ráðríkis eiginmannsins og það hvernig hann niðurlægir hana en þrátt fyrir fyrirlitninguna er það eitthvað sem dregur hana að hon- um og í návist hans er hún vilja- laus. Dag einn ákveða eiginkonan og hjákonan að losa sig við Guy fyrir fullt og allt. Nicole upphugsar ráö til að framkvæma og þótt Mia sé hrædd þá tekur hún þátt í leiknum. Ráðabruggið heppnast og vinkon- urnar eru hinar ánægðustu þar til lögreglukona, sem Kathy Bates leik- ur, fer að forvitnast hvað hafi orðið um Guy og brátt fer ýmislegt að koma upp á yfirborðið sem þær stöllur reiknuðu ekki með og fer það svo að sú spuming vaknar hvort Guy sé í rauninni dáinn... Leikstjóri Diabolique, Jeremy Chechik, er best þekktur fyrir kvik- mynd sína, Benny and Joon, en hann er auk þess leikstjóri þekktrar auglýsinga og tónlistarmyndbanda sem unnið hafa til verðlauna. Chechik er kanadískur og byrjaði feril sinn sem ljósmyndari og list- málari og vann hann á áttunda ára- tugnum fyrir timaritið Vogue og hafði aðsetur í Mílanó. Eftir að hann flutti til Bandaríkjanna snemma á níunda áratugnum hóf hann fljótt að leikstýra auglýsing- um og vann hann fyrir mörg stór- fyrirtæki og hlaut öll þau verðlaun sem auglýsingabransinn hýður upp á. Hann leikstýrði fyrstu kvikmynd sinni, National Lampoon’s Christmas Vacation árið 1989, síðan kom Benny and Joon, þá Tall Tale, með Patrick Swayze, og nú Dia- bolique. -HK Sharon Stone í Diabolique: Neitaði að koma nakin fram Kyntáknið Sharon Stone leikur aðalhlutverkið í Diaboliques sem frumsýnd var í Sambíóunum í gær. Um er að ræða endurgerð frönsku klassísku kvikmyndarinnar Les Diaboliques. Stone hefrn- upp á síðkastið verið að fikra sig áfram í hlutverkavali og hefur prófað nokkrar tegundir hlutverka frá því henni skaut upp á stjömuhimininn í Basic Instinct. Fyrir stuttu voru henni afhent Golden Globe verðlaunin fyrir hlutverk sitt í kvikmynd Scorseses, Casino. Hún var einnig tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir það hlutverk. Þar lék hún á móti stór- leikurunum Robert De Niro og Joe Pesci. Áður en hún lék í Diabolique lék hún í Last Dance á móti Rob Morrow. Sharon Stone er borin og bamfædd I Meadville í Pennsylvaníu 10. mars árið 1958. Hún stundaði nám í Edinboro State University. Útlit hennar varð til þess að hún vann fegurðarsamkeppni og komst á toppinn í fyrirsætuheim- inum. Hún á að baki tvö hjóna- bönd, með George Englund og Michael Greenburg. Stoltir foreldrar Stone hefur til margra ára ver- ið búsett í Los Angeles. íbúar Mea- dville eru samt afar stoltir af henni og hún var fengin til þess að halda ræðu í gamla skólanum sínum. Kvikmyndin Diabolique var tekin upp í nágrenni við heimili foreldra hennar og gátu þau komið og horft á þegar tökur stóðu yfir á kvik- myndinni og séð dóttur sína vinna. Þau segjast afar stolt af henni í við- tali sem birtist í Empire í júni. Fyrsta myndin sem Sharon Stone lék í var Stard- ust Memories sem Woody Allen leik- stýrði en þá var hún tuttugu og tveggja ára. Næstu tíu árin lék hún í myndum eins og Bolero, Police Amademy 4 og Action Jackson. Fyrsta aðalhlut- verkið hennar var í Irreconcilable Differences. Einnig lék hún í King Solomon’s Mines, Allan Quatermain, Lost City of Gold, Above the Law, Personal Choice, Sharon Stone í hlutverki Nicole í Di- abolique. SÉÉSfe Scissors, He Said, She Said, Where Sleeping Dogs Lie, Year of the Gun og Diary of a Hitman. Nektarmyndir í Playboy Að því búnu lék hún eiginkonu Arnolds Schwarzeneggers í Total Recall. Stone lék taka af sér nektarmyndir í Playboy en það færði henni hlutverk i Basic Instinct eins og frægt er orðið. Eftir það lá heimurinn fyrir fótum hennar og hún varð eitt umtalaðasta nafnið í Hollywood. Stone fækkaði einnig fötum í Sliver en það dugði ekki til þess að afla myndinni vin- sælda. Hún lék í The Quick and the Dead sem Sam Raimi leikstýrði. Einnig lék hún á móti Sylvester Stallone í spennumynd- inni The Specialist og Intersection á móti Richard Gere. Diabolique er tuttugasta og fimmta kvikmynd Sharon Sto- ne. Fyrsta hlutverk hennar var blondínan í Stardust Memories. Samningur brotinn í kvikmyndinni Diabolique neit- ar hún að kom nakin fram í stuttri ástarsenu sem hún leikur. Að eigin sögn kom hún nakin fram þegar það hentaði henni og passaði vel við þau hlutverk sem hún lék. Það segir hún ekki eiga við núna og hún gerir hlut- ina eftir sínu höfði. Að sögn fram- kvæmdastjóra Mogan Creek fyrirtæk- isins, sem framleiðir myndina, var það samningsbundið að Stone sýndi bert hold. „Það var mér mjög mikill heiður að mynda svona fallegar konur eins og Stone og Isa- belle Adjani,” segir kvik- myndatöku- maðurinn Peter James. Hann segir Stone vera mjög mynd- ræna og hún komi vel út í því ljósi sem notað er við myndatökur. -em kvikmyndir Koepp klikkar Ein af mörgum síðsumarsmynd- um sem hafa kolfallið upp á amer- ískan máta er The Trigger Effect en henni leikstýrir handritshöf- undurinn David Koepp sem meðal annars skrifaði handritin að Ju- rassic Park og Mission: Impossi- ble. Mynd þessi fjallar um hjón sem lenda í klónum á geðveikum manni. Myndin þótti fyrir fram lofa góðu en eitthvað hefur klikk- að því ekki vantar úrvalsleikara í aðalhlutverkin, Elisabeth Shue og Kyle MacLaglan leika hjónin og Dermot Mulroney leikur þriðja að- ilann í þríhyrningnum. Meira um Shue Eftir góða frammistöðu sína í Leaving Las Vegas hefur Elisabeth Shue fengið mörg tilboð en hún var ekki lengi að hugsa sig um þegar Woody Allen bauð henni að leika í nýjustu mynd hans sem hann hefur ekki gefið nafn enn þá en tökur eru að hefjast um þessar mundir. Allen leikur sjálfur aðal- hlutverkið, rithöfund sem rembist við skriftir. Aðrir leikarar eru Robin Williams, Judy Davis, Julia Louis-Dreyfuss og Hazelle Goodm- an. Músaleitin Þótt nokkuð sé um liðið síðan The Birdcage var frumsýnd þá hef- ur Nathan Lane ekki leikið í ann- arri kvikmynd og er ástæðan sú að hann var búinn að gera samning um að leika eitt ár á Broadway í leikritinu A Funny Thing Happ- ened on the Way to the Forum. Nú er árið liðið og Lane getur farið að sinna þeim tilboöum sem honum hafa borist og hefur hann sam- þykkt að leika í Mousehunt sem Draumasmiðja Spielbergs og fleiri ætla að gera. Fjallar myndin um tvo bræður sem erfa hús en kom- ast fljótt að því að það er mús í húsinu sem er mun klárari en þeir. Leikstjóri er Gore Verbinski sem kemur úr auglýsingabransan- um og er þetta fyrsta myndin sem hann leikstýrir. Willis sem málaliði Um helgina verður frumsýnd nýjasta kvikmynd Bruce Willis, The Last Man Standing. Um er ræða spennumynd þar sem Bruce Willis leikur harðjaxl sem berst fyrir borgun og lætur hann til sín taka í stríði milli víngerðar- manna. Mynd þessi er gerð eftir hinni klassísku kvikmynd Akira Kurosawa, Yojimbo, frá árinu 1961. Leikstjóri er hinn gamal- reyndi spennumyndaleikstjóri, Walter Hill. Menn í svörtu Barry Sonnenfield, sem síðast leikstýrði Get Shorty, er nú við tökur á Men in Black sem hann lýsir sem „gamansamri sakamála- og ævintýramynd með litlum has- ar“ og á hann þá við að „engin mótorhjól keyra í gegnum rúðu- gler með sprengingu í bakgnmnin- um“. Aðalhlutverkin leika Will Smith, Tommy Lee Jones og Linda Fiorentino. Will Smith var ráðinn á síðustu stundu þegar Keanu Reeves sá sér ekki fært að efna lof- orð sitt um að leika í myndinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.