Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Blaðsíða 12
>2 erlend bóksjá LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 JLlV Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. Stephen Klng: Coffey on the Mlle. 2. Nlcholas Evans: The Horse Whlsperer. 3. Ken Follett: A Place Called Freedom. 4. Patricla D. Cornwell: From Potter's Fleld. 5. Danlelle Steel: Llghtnlng. 6. Mlchael Crlchton: The Lost World. 7. Stephen Klng: Nlght Journey. 8. Pat Barker: The Ghost Road. 9. Tom Sharpe: Grantchester Grlnd. 10. Barbara Taylor Bradford: Dangerous to Know. I Rit almenns eðlis: 1. Bill Bryson: Notes from a Small Island. 2. Lorenzo Carcaterra: Sleepers. 3. Paul Bruce: The Nemesls Rle. 4. Margaret Forster: Hldden Llves: A Famlly Memoir. 5. John Gray: Men Are from Mars, Women Are from Venus. 6. Nelson Mandela: Long Walk to Freedom. 7. Jung Chang: Wlld Swans. 8. Paul Theroux: The Pillars of Hercules. 9. Erlc Lomax: The Rallway Man. 10. Danlel Goleman: Emotional Intelligence. Innbundnar skáldsögur: 1. Ben Elton: Popcorn. 2. Chrls Ryan: Stand By, Stand By. : 3. Kevln J. Anderson: X-Flles 4: Rulns. S4. John Grlsham: The Runaway Jury. 5. Terry Pratchett: Feet of Clay. Innbundin rlt almenns eðlfs: 1. Dave Sobel: Longltude. 12. Richard Holmes: War Walks. 3. Antonia Fraser: The Gunpowder Plot. 4. Wendy Beckett: The Story of Palntlng. 5. Deepak Chopra: Seven Splrltual Laws of Success. (Byggt á The Sunday Times) vísindi Amado játar sig sigraðan af ellinni Þekktasti rithöfundur Brasilíu, Jorge Amado, er nú að læknisráði bundinn við heimili sitt í Salvador, höfuðborg Bahiahéraðs, en hann er orðinn 84 ára að aldri. Heilsan er fyrir nokkru farin að bila. Þannig fékk Amado hjartaáfall fyrir þremur árum og í fyrra þurfti hann að dvelja um hríð á sjúkra- húsi í París, þar sem hann býr hálft árið. í síðasta mánuði gat hann heldur ekki verið viðstaddur frum- sýningu nýrrar kvikmyndar sem gerð var eftir einni af skáldsögum hans (Tieta of the Wilds). Þrjátíu og tvær bækur Amado kveðst ekkert hafa skrifað síðustu tvö árin og hafi engin áform um frekari ritstörf. „Ég er orðinn gamall maður,“ sagði hann í nýlegu viðtali. „Þegar þú hefur náð 84 ára aldri ertu orðinn gagnslaus." Hann á langan og litríkan rithöf- undarferil að baki. Á sextíu og fimm árum skrifaði hann þrjátíu og tvær bækur sem gert hafa hann að þjóðskáldi í heimalandinu. Ritverk hans hafa einnig hlotið viðurkenn- ingu og vinsældir víða erlendis, ver- ið þýdd á hátt í fimmtíu tungumál og selst í ríflega tuttugu milljónum eintaka. Upphafið gaf ekki fyrirheit um slíkan frama. Hann fæddist árið 1912 í smábænum Itabuna i suður- hluta Bahia, þar sem margar sögur hans gerast. Fimmtán ára að aldri hóf hann störf sem blaðamaður i Salvador og sendi fyrstu bókina frá sér áður en hann varð tvítugur. Amado varð sannfærður komm- únist á unga aldri og þess gætti mjög í fyrstu bókum hans, svo sem Cocoa (1933) og Sweat (1934), en þær fjalla um slæm kjör alþýðunnar í Jorge Amado, kunnasti rithöfundur Brasilíu, er orðinn 84 ára. Umsjón Elías Snæland Jónsson miðaldalegu einræðisþjóðfélagi Brasilíu. Hann tók þátt í stjórnmál- um og var kjörinn á þing, en settur í fangelsi og síðan sendur í útlegð á árum síðari heimsstyrjaldarinnar. Þá ritaði hann að margra dómi bestu sögur sínar, t.d The Violent Land (1942). Á sjötta áratugnum breytti hann enn til og fór að skrifa skáldsögur undir áhrifum frá Dickens og Balzac. Þar fjallaði hann um brasil- Iskt þjóðlíf með þeim hætti sem þjóðin kunni að meta. Sögur eins og Gabriela, Clove and Cinnamon (1958), Home is the Sailor (1961), Shepherds of the Night (1966) og Donna Flora and Her Two Hus- bands (1966) hlutu góðar viðtökur. Kvikmyndir, sem gerðar hafa verið eftir sumum þeirra, hafa notið vin- sælda víða um lönd. Töfraraunsæið í heimabyggð Amados hefur mik- ið verið um það rætt og ritað að undanfómu hvort hann sé í raun upphafsmaður hins svokallaða töfraraunsæis í suðuramerískum bókmenntum en ekki nóbelsskáldið Gabriel Garcia Marquez. Tilefni þeirrar umræðu var sú fullyrðing í franska tímaritinu Le Point, að töfraraunsæið væri að finna í skáld- sögunni Gabriela, sem kom út tíu árum áður en Hundrað ára ein- semd. Sjálfur gerir Amado lítið úr frægð sinni. „Ég samdi bækur mínar af því að mér var ómögulegt að skrifa ekki,“ sagði hann í nýlegu viðtali. „Það er hins vegar ógerlegt að segja til um hvort bækurnar verða lesnar á morgun. Ég get nefnt bækur sem vom skrifaðar fyrir löngu og era enn lesnar. En ég veit líka um marg- ar bækur sem náðu mikilli hylli á sinni tíð en hafa gjörsamlega horf- ið.“ Amado býr nú með síðari konu sinni, Zeliu Gattai, en þau giftust árið 1978. Hann segist enn vera rót- tækur. „Ég er fylgjandi sósíalisma og á móti kapítalismanum. En það er ekki hægt að vera hreinræktaður sósíalisti i kapítalískum heimi.“ Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. Stephen Klng: The Green Mlle: Night Journey. 2. Sue Grafton: I„L“ is for Lawless. \ 3. Sldney Sheldon: \ Morning, Noon & Night. 4. Davld Guterson: Snow Falllng on Cedars. 5. John Grisham: A Tlme to Kill. í 6. V.C. Andrews: Melody. 7. Patrlcla Cornwell: From Potter’s Reld. 8. Pat Conroy: Beach Muslc. 9. Stephen King: The Green Mlle: The Bad Death of Eduard Delacrolz. 10. M.P. Kube-McDowell: Shleld of Lles. 11. Danlelle Steel: Llghtning. 12. Ken Follett: A Place Called Freedom. 13. W.E.B. Griffin: Behlnd the Lines. 14. Stephen Klng: The Green Mile: The Two Dead Glrls. Í5. John Grisham: The Rainmaker. Rit almenns eðlis: 1. Mary Plpher: Revlving Ophelia. 2. Mary Karr: The Llar's Club. 3. J. Douglas & M. Olshaker: Mindhunter. 4. Thomas Cahill: How the Irlsh Saved Clvlllzatlon. 5. Colin L. Powell: My Amerlcan Journey. 6. John Felnstein: A Good Walk Spolled. 7. J.M. Masson & S. McCarthy: When Elephants Weep. 8. Isabel Allende: Paula. 9. M. Scott Peck: The Road Less Traveled. 10. Jack Mlles: God: A Blography. 11. B.J. Eadle & C. Taylor: Embraced by the Llght. 12. Gall Sheehy: New Passages. 13. Thomas Moore: Care of the Soul. 14. D. Hays & D. Hays: My Old Man and the Sea. 15. Andrew Well: Spontaneous Heallng. (Byggt á New York Times Book Review) ii ii 'ii.fi'"í.n.i u.-iiTiBnwnín DV Varúð, Ijósritunarvél Ryk ur ljósritunarvélum getur | valdið mjög alvarlegum lungna- í sjúkdómum að því er Christine | Armbruster og starfsbræður hennar við háskólann í Vínar- I borg segja í bréfi til læknablaðs- ■ ins Lancet. I í bréfinu er sagt frá 39 ára 1 gömlum manni sem ekki reykir | en hafði verið með þurran hósta I f eitt ár. Rannsóknir á mannin- j. um leiddu í ljós að sjúkdómur | sem herjaði á lungu hans orsak- I aðist af örsmáum málmögnum í í prentdufti ljósritunarvéla. 1 Gufuhvolf á tunglinu js Bandarískir stjarnvísinda- j menn tóku eftir því þegar þeir I skoðuðu mynd sem tekin var af 1 tunglmyrkva að gufuhvolf er á | þessum nágranna okkar í geimn- | um. Hins vegar hverfur það jafn- harðan og það myndast vegna þess að þyngdarkraftur tunglsins er ekki nægilega mikill til að jf halda í þannig lofthjúp. Lofthjúpur tunglsins sam- f anstendur fyrst og fremst af natr- I íumjónum. Þær þyrlast upp af yf- I irborði tunglsins vegna sólar- I ljóssins og verða um stund hluti Ilofthjúpsins áður en þær hverfa aftur. Lofthjúpurinn er svo þunn- ur að hann sést ekki við venju- f legar aðstæður. Umsjón Guðlaugur Bergmundsson Auknar gafur tengdar vid lágt sýrustig í heilanum Visindamenn sem starfa í Bret- landi hafa komist að því að greini- leg tengsl era milli gáfnafars og sýrastigs í heilanum. Uppgötvun þessi, sem þeir römbuðu á fyrir al- gjöra slysni, virðist koma heim og saman við eldri rannsókn- ir sem sýna að sýru- jafnvægi hefur áhrif á boð milli frama. Lífefnafræðingur- inn Caroline Rae komst að því að því basískari sem efnasam- böndin í heilaberkin- um reyndust, þeim mun greindari var viðkomandi einstakling- ur, að minnsta kosti Síí j' þegar drengir áttu í hlut. Rae og samverkamenn hennar mældu pH-gildi, eða sýrastig, í heilum 42 drengja á aldrinum sex til þrettán ára. Vísindamennirnir vora ekki að leita að tengslum við gáfnafar, að sögn Caroline Rae, heldur voru þeir að gera tilraunir á drengjum með Duchenne vöðvarýrnun. En mæl- ingar á efnafræðilegri samsetningu heila þessara drengja og í 42 heil- brigðum drengjum voru mjög svo athyglisverðar. „Við komumst að ákveðinni fylgni og hún var svo mikil að við töldum okkur verða að segja öllum frá því,“ segir Rae. Greindarvísitala drengjanna var á bilinu 63 til 138. Vísitala meðal- greindar er upp á 100. Rae segist hafa fundið 0,5 fylgni milli pH-gilda og greindar. Fylgni upp á 1,00 þýddi að pH-gildi gæti alltaf sagt fyrir um greind en engin fylgni mundi IQ aðeins sýna tengsl þar á milli af handahófi. Rae segir að eldri rann- sóknir hafl sýnt tengsl milli sýrustigs og heilastarfsemi. „Sýnt var fram á að hraði á send- ingu boða (milli heilafruma) var háður pH-gildinu. Fíölmargir við- takar í heilanum bregðast einnig við pH- gildum," segir Rae. Hún segir að uppgötvanir hennar sýni ekki fram á hvort greind geri heilann basískan, eða öfugt. „Við gætum ekki mælt pH-gildi drengs og sagt til um gáfnafar hans,“ segir Rae. Hún segir niðurstöður sínar leiða til augljósrar spurningar, nefnilega þeirrar hvemig fólk geti reynt að breyta gáfnafari sínu. Þegar hafa verið gerðar tilraunir með vítamín. Hún segir að niðurtöðurnar gætu haft víðtækt gildi. Fylgnin var til dæmis miklu meiri þegar málleg greind var mæld en við mælingu greindar sem tengist öðra en máli. „Þetta kann að segja okkur eitthvað um hvernig heilinn vinn- ur,“ segir Rae. Ýmsir aðrir vísinda- menn era aftur á móti efins um niðurstöður Rae og félaga. David Attwell, lífeðlisfræðipró- fessor við University Col- lege í London, er þeirra á meðal. Hann segir að pH-gildi heil- ans geti verið með ýmsu móti á ein- um og sama deginum. Hröð, grunn öndun geti t.d. gert heilann basísk- ari. „Gagnleg viðbót við og framhald þessarar rannsóknar væri kannski að mæla greindarvísitölu einstakl- ings á mismunandi tímum á sama tíma og pH-gildi heila þeirra væri breytt, t.d. með oföndun," segir Att- well í viðtali við tímaritið New Sci- entist. Alpamaðurínn dó hungraður Rannsóknir a líki Alpamanns- ins Ötzis sem fannst fyrir fjórum árum uppi á jökli sýna að hann hafl ekki átt mjög góða ævi. Ötzi þessi dó fyrir 5300 árum í hríð í ítölsku Ölpunum. Ötzi mun hafa dáið hungraður þar sem magi hans reyndist vera tómur. Að vísu var einhver mat- ur í þörmum hans. Þá var karl- inn tæplega vel likamlega á sig kominn. Vísindamenn fundu m.a. ormasýkil í þörmunum og þá var sveppasýking í lungum hans. Rannsóknir á beinum Ötzis hafa leitt í ljós að hann svalt þeg- ar hann var níu ára, fimmtán ára og sextán ára. Asma tengist tíðahríng Konur eru líklegri til að fá al- varleg asmaköst rétt áður en blæðingar byrja eða þá á meðan á þeim stendur og virðist sem sveifla í hormónabúskap líkam- ans eigi þar sök á. Niðurstöður þessar fengust úr rannsókn sem gerð var á 182 kon- um af vísindamönnum við læknadeild háskólans í Pennsyl- vaniu. Tvisvar sinnum meiri líkur voru á að konur færu á bráða- móttöku sjúkrahúsa vegna asmakasts við lok tíðahringsins en á nokkrum öðrum tíma. Mikl- ar sveiflur í estrógenmagni er sennilega sökudólgurinn, segir í grein í tímariti sem bandaríska læknablaðið gefur út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.