Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Page 30
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 38 trimm Syndir tvo kílómetra á hverjum morgni og lengra um helgar: Byggi upp agann til að mæta erli dagsins - sundlaugin er minn heilsubrunnur þar sem ág endurfæðist daglega „Ég syndi í 40 mínútur á hverjum morgni fimm daga vikunnar en um helgar, ef ég er í góðu skapi og vel upp lagður, geta þetta orðið einar 60 mínútur." Það er Páll Ásgeir Ás- geirsson sem hefur orðið en hann er einn þeirra þúsunda landsmanna sem ávallt hefja daginn með heim- sókn í sundlaug en syndir þó vafa- lítið lengra en flestir. - En er þetta ekki alveg lifandi skelflng leiðinlegt að svamla svona fram og aftur á hverjum morgni ár og síð? spyrjum við Pál. „Nei, það er ekki leiðinlegt og reyndar er það eitt markmiðið að láta sér ekki finnast þetta leiðinlegt. Á þessum 40 mínútum syndi ég um 2 kílómetra og með því tel ég mig leysa tvískipt verkefni. í fyrsta lagi er það hin góða hreyfing og vellíð- anin sem henni fylgir. Það eitt er ómetanleg undirstaða fyrir góðan dag og ég lít á sundlaugina í Kópa- vogi sem minn heilsubrunn. í öðru lagi og ekki síður fæst út úr sund- inu sú ögun sem ég tel mér nauð- synlega. Hana nýti ég mér til þess að takast á við verkefni dagsins og líka til að hyggja mig andlega þannig upp að ég sé sem hæfastur til að takast á við líflð. Þennan aga byggi ég upp með daglegu sundi. Ég byggi hann upp með því að láta mér ekki finnast það leiðinlegt heldur nýta tímann, sem til þess fer, til að skipuleggja verkefni dagsins og velta ýmsu fyrir mér sem ofarlega er í huganum. Ég hef synt svona um nokkurra missera skeið. Byrjaði ró- lega en hef um langt skeið synt í mínar 40 mínútur. Snemma lærði ég að best er að reyna aldrei að telja ferðirnar.“ - Er þetta þá nokkurs konar hug- leiðsla sem fram fer hjá þér á með- an á sundinu stendur? „Já, líklega má vel segja það. Ég reyni að hugsa alls ekkert um sund- ið sjálft heldur um allt annað, eins og ég sagði.“ - En ertu ekki örþreyttur eftir að vera búinn að synda eina 2 km? Er nokkur kraftur eftir til að lifa af vinnudaginn? „Þegar ég kem upp úr lauginni er ég fyrst tilbúinn að takast á við það sem fram undan er. Eins og ég sagði þá er sundlaugin minn heilsubrunn- ur og ofan í hann skríð ég syfjaður en kem upp úr honum hress og fjör- ugur og reiðubúinn til hvers sem er. - Hvemig var þetta í byrjun? Hver var ástæðan fyrir því að þú byrjaðir að synda reglulega og svona mikið? Málið á sér þá forsögu að fyrir nokkmm árum skokkaði ég og hljóp töluvert og reglulegk. Vegna hné- meiðsla var mér ráðlagt að fara að synda. Vegna hnésins syndi ég skriðsund og svo sem eins og hver annar alþýðutrimmari og -syndari hér á landi komst ég ekki nema eina eða tvær ferðir á skriðsundinu og varla það. Þetta kom svo smátt og smátt og nú syndi ég skriðsundið daglega." - Ertu þá hættur að hlaupa? „Nei en ég hef dregið töluvert úr því. Líklega fer ég um 20-25 km á viku sem ekki þykir mikið í hópi skokkara. Annað sem hefur líka breyst hjá mér er að nú mæli ég aldrei tímann þegar ég hleyp. Ég fer þetta einungis ánægjunnar vegna. Ég tek ekki lengur þátt í götuhlaup- um og er í raun markvisst að losa mig við keppnisþáttinn sem ég hafði áður mjög gaman af. Nú hleyp ég, syndi og hreyfi mig eingöngu fyrir mig og ánægjunnar vegna.“ - Af hverju byrjaðir þú að hlaupa, Páll? „Líklega af sömu ástæðu og flest- ir, ég var of feitur, ég reykti eins og strompur og ég komst ekki upp á þriðju hæð án þess að blása eins og flsibelgur." - Páll Ásgeir, að lokum. Hvað syntirðu langt i Kópavogssundinu um síðustu helgi? „Níu kílómetra.“ Metþátttaka í Kópavogssundi: Langflestir syntu 1500 m eða meira Metþátttaka var í Kópavogs- sundinu á sunnudaginn var og alls syntu 725 manns í hinni glæsilegu 50 metra laug þar. Þetta var í þriðja sinn sem al- menningi var boðið upp á að keppa viö sjálfan sig og fá verð- laun fyrir. Athyglisvert er að rúmlega þrír fjórðu þeirra sem þátt tóku í sundinu fengu gull- verðlaun en til þess þurfti að synda í það minnsta 1500 m. Eins og í fyrra og hittifyrra var það Ingólfur Steinar Mar- geirsson sem fór manna lengst. Að þessu sinni lagði hann að baki heila 28 km. í fyrra voru þeir 25 og þar áður 21 km. Að meðaltali synti hver þátttak- andi rétt rúma 2 km. Tveir elstu þátttakendumir, þeir Ólafúr H. Kristjánsson og Aðal- steinn Gíslason, báðir á 84. ár- inu, fóra ríflega meðaltalið eða Ólafur 2500 m og Aðalsteinn 2100 m. Guðmundur Harðarson, for- stjóri Sundlaugar Kópavogs, sagði að hægt og sígandi mundi Kópavogssundið fara að skipa svipaðan sess meöal syndandi almennings og Reykjavíkur- maraþonið skipaði meöal skokkara. Fólki gæfist þama tækifæri til að reyna sig og setja sér takmark og jafnframt uppgötvuðu fleiri og fleiri að þegar á reyndi gætu þeir miklu meira en þá grunaði. Umsjón Ólafur Geirsson Missti tök á mataræðinu: Fyrstu viðbrögðin voru að vigta sig - mér reyndist nægilegt að sofa 4-5 tíma á nóttu, segir Jón Ágúst, kerfisfræðingur og jóga- „Að sumu leyti má segja að ég hafi hrakist i að stunda jóga. Ég missti alveg stjóm á mataræðinu," sagði Jón Ágúst, kerfisfræðingur og jógakennari, í viðtali við DV. Fyrir nokkru sagði hann okkur stuttlega frá jóga, en orðið sjálft þýðir sameining. Þá kannski sameining líkama, hugar og anda. Jóga byggist á 5000 ára gömlum indverskum fræðum, sem síðan hafa á ýmsan hátt verið samhæfð til nota fyrir hinn stressaða vestræna mann. En Jón Ágúst kerfisfræðingur, sem í starfl sínu sem slíkur byggir sem allra mest á rökrænni hugsun og rökrænum lausnum verkefna, var einn þeirra sem töpuðu sam- bandi við líkama sinn. Mataræði hans var komið í öngþveiti og þegar á vigtina var stigið staðnæmdist visirinn ekki fyrr en í rúmlega 120 kg. Viðbrögðin þá hjá rúmlega þrí- tugum manninum með um það bil 35 kg yfirvigt voru dæmigerð. - Hann hætti að vigta sig. Kaffi- drykkjan hófst strax klukkan 7 á morgnana og stóð fram á kvöíd. Vinnan stóð myrkranna á milli og vítahringur ofneyslu fæðu af lakara taginu auk kaffidrykkju í óhófi færðist stöðugt i aukana. „Ég vissi að eitthvað varð að gera í málunum. Ég kynntist jóga og fann að þar var eitthvað sem höfðaði til mín. Áður hafði ég nokkuð stundað lyftingar og hlaup en jógað náði fljót- lega yfirhöndinni." Jón Ágúst aflaði sér menntunar til að kenna jóga og hefur stundað það að staðaldri síðan árið 1990. Að vísu olli bílslys sem hann lenti í nokkrum þrálátum frátöfum. Hann er þó ekki í nokkram vafa um að í baráttunni við af- leiðingar slyssins hefur jógað hjálpað honum. í dag er Jón Ágúst mættur um klukkan sex á morgana nið- ur í Heimsljós, þar sem hann kennir. „Maður byrjar daginn á því að byggja sig upp og undirbúa sig og „hlaða" sig orku. Ef þessa er gætt áttar maður sig mun betur en ella ef spenna fera að hlaðast upp yfir daginn. Á þennan hátt má eiginlega segja að jafn- vægi líkama, hugar og anda komi af sjáflu sér.“ - Verður svefn- þörfin þá ekki minni en ella ef maður hefur fundið lausnina á spennu dagsins? - Þetta er lík- lega eðlileg spurning hins hagsýna stressaða nú- tímamanns. „Áður en ég varð fyrir slysinu og var að staðaldri á fullu í jóganu reyndist mér nægilegt að sofa aðeins fjórar til fimm klukku- stundir á nóttu," sagði Jón Ágúst að lokum. Körfu- bolti og sipp „Gamall körfuboltamaður" hafði samband við okkur og sagöist ekkert kannast við það að körfuboltamenn, í það minnsta íslenskir, sfrmduðu sipp á æfingum. Hann sagðist reyndar telja að íslenskir íþróttamenn sveifluðu sippu- bandinu lítið yfirleitt. Við þökkum auðvitað ábend- inguna og ef satt er aö íslenskir körfuboltamenn sippi lítið sýn- ir það aðeins eitt - að hjá þeim býr ónotuð orka sem kæmi sér vel í næstu landsleikjum. Að ís- lenskir íþróttamenn sippi lítið má vera rétt eða ekki rétt. Hins vegar lét sá íslenskur íþrótta- maður, sem lengst hefur náð á alþjóðlegum vettvangi, VO- hjálmur Einarsson, silfurmað- ur frá Melboume, eftir sér hafa að sippið hefði vafalaust verið honum einna notadrýgst við að auka stökkkraftinn í þrístökk- inu. j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.