Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Blaðsíða 15
I>"V LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996
15
„Ertu svona óþekkur við hann
afa þinn? Ætlarðu ekki að fara
með honum?“ spurði skrifstofu-
kona sem losaði miðjan aldur.
Meintur afi gekk að afgreiðslu-
borðinu og hvessti á hana augun
og spurði hvort ávarp hennar ætti
við þá feðga sem leið áttu inn í
viðkomandi stofnun til að sinna
erindum sem ekki voru bundin
aldri.
Hann hugsaði með sér hvaða
ósvífni réði þessari framkomu
konunnar sem átti að vera andlit
sinnar stoihunar út á við. Henni
hlaut að vera það ljóst af útlitinu
að þama færi tiltölulega ungur
faðir með bam sitt. Það fór vart
milli mála að annaðhvort var
þessi kona með gáfnavísitölu langt
undir meðallagi eða illgimi ráð-
andi þáttur í lundarfari hennar.
Konunni brá við þessi hastar-
legu viðbrögð og ógnvekjandi
augnatillit viðskiptavinarins sem
urðu af því litla tilefni að hún af
góðsemi vildi rétta afanum hjálp-
arhönd við að róa 7 ára dreng sem
átti erfitt með að vera kyrr og var
tregur i taumi.
„Fyrirgefðu, ég er farin að sjá
svo illa að ég hélt að þetta væri
bamabam þitt,“ sagði hún og
pírði augun til að sýna að sjóninni
væri svo sannarlega tekið að
hraka. „Ég sé það núna að þið
emð auðvitað feðgar. Það er alveg
auðséð,“ bætti hún við í hálfgerðri
örvæntingu.
Viðkvæmur aldur
Það þekkja margir sem reynt
hafa að þegar nálgast miðja ævi
verða aldursskilgreiningar oft
mjög viðkvæmar og ýmist tilefhi
gleði eða þunglyndis; allt eftir því
hvorum megin viö markið er skot-
ið. Fertug kona sem verður þeirr-
ar ánægju aðnjótandi að vera talin
Þetta er sá aidur sem fólk er í einhverjum tilvikum ýmist að verða foreldri eöa að eignast barnabörn nema hvort
tveggja sé. Þetta er fólkiö sem stendur klofvega á mörkum tveggja kynslóöa. Myndin er tekin á Laugaveginum
en tengist ekki efni pistilsins. DV-mynd GVA
lífi og sál í takt við undirleik T-
Rex og Uriah Heep; gamli Bang og
Olufsen fónninn fékk að snúast til
hins ýtrasta. Allir urðu þessa einu
kvöldstimd táningar í Vogaskóla á
ný. Stofugólfið, sem stóð á stað
sem einni kynslóð fyrr var fjarri
mannabyggðum, nötraði undan
dansi kynslóðarinnar sem var að
skipta um ham. í stað þess að
ræða sameiningu sveitarfélaga eða
fjárfestingu í hlutabréfum var tal-
að um Che Guevara og byltinguna
sem lifir. Kennedy-bræður urðu
enn á ný ljóslifandi og enginn tal-
aði um Biíl Clinton eða Blur. For-
tíðarhyggjan var ailsráðandi og
það hefði í rauninni mátt ímynda
sér aö fólk hefði komist í tímavél.
Töffarar sjöunda áratugarins brut-
ust upp á yfirborðið, eftir að hafa
legið í dvída í aldarfjórðung, og
heyra mátti löngu aflagt slangur á
ný. Umræðumar og hamskiptin
veittu fróun og hvíld frá hinu dag-
lega lífi með tilheyrandi glugga-
pósti og áhyggjum af afkomunni.
Næsta dag tekur svo daglegt
amstur við að nýju með tilheyr-
andi blekkingarleik þar sem aldur
er oft aðalatriði. Áhyggjumar yfir
Elli kerlingu hvíla eins og þoku-
slæða yfir tilverunni. Hjá
nokkmm er kynorkan tekin að
dvína og minnir einna helst á
Geysi. Forn frægð og fullt af göml-
um myndum en þarf sápu til að
framkalla gos, að auki er svo sáp-
an bönnuð.
Dyr sannleikans
Drengurinn fylgdist með sam-
skiptum foður síns og skrifstofu-
konunnar af athygli. Honum þótti
eftir íhugun liggja nokkuð ljóst
fyrir að kynslóðamglingurinn sem
þarna var uppi á borðinu fæli í sér
ákveðna aðför.
Þegar barn verður að barnabarni
fimm til tíu árum yngri kætist við
slíkar ágiskanir og verður uppfull
af því að lífið hafi farið mjúkum
höndum um ásjónu hennar og lík-
ama. Hún sé svo ungleg að það
hreinlega villi fólki sýn. Verði sú
hin sama hins vegar fyrir þvi að
einhver færi aldur hennar 5 eða 10
árum nær hálfri öld þá getur það
kostað ævilanga óvild og vænan
skammt af þunglyndi fyrir fómar-
lamb hinna ónákvæmu ágiskana.
Á sama hátt verður það hin gróf-
asta móðgun þegar bam er skil-
greint sem bamabam. Slíkt getur
sett mark sitt á viðkvæmar sálir.
Veröi á hinn bóginn bamabam að
bami þá horfir málið allt öðravísi
við og glámskyggnin verður í
huga hins illa skilgreinda forföður
skynsamleg og jafnvel gáfúleg.
Útlitið poppað upp
Um fertugsaldurinn verða mád
af þessu tagi einkar viðkvæm. Hjá
mörgum verða alls kyns lýtaað-
gerðir og æfingar til að poppa upp
útlitið. Stór hluti hins daglega lífs
og nánast allt er gert til að hægja
á þeirri útlitsbreytingu sem fylgir
fleiri æviárum. Álgengt er að karl-
ar verði helteknir af gráum fiör-
ingi og hlaupist á brott frá eigin-
konum til að taka saman við yngri
konu og höndla þannig æskima á
ný. Á þessum aldri er fólk er i ein-
hverjum tilvikum ýmist að verða
foreldri eða eignast bamaböm
nema hvort tveggja sé. Þetta er
fólkið sem stendur klofvega á
mörkum tveggja kynslóða.
Húsafell og Saltvík
Þegar æskufélagar koma saman,
oft eftir áratuga aðskilnað, má sjá
að þar fer fólk sem áttar sig illa á
því hvort það er af annarri eða
þriðju kynslóð. Ýmist er þetta fólk
sem eitt sinn hjalaði saman í
mosató, í beinum bameignum eða
bamabameignum. Flest var fiöl-
skyldufólk sem átti fiölskyldur
Reynir Traustason
fréttastjóri
tæknilega tilbúnar til að eignast
hvort sem var böm eða barna-
böm.
„Guð, manneskja, hvemig dett-
ur þér í hug að ganga með þetta
sjálf?“ sagði ein frúin við aðra í af-
mælisveislu þeirrar þriðju í Graf-
arvoginum nýlega. „Ég læt sko
bömin sjá um þetta,“ bætti hún
við og horfði stómm augum á
framsetta vinkonuna sem bar þess
glögg merki að vera ekki komin úr
bameign þrátt fyrir að vera kom-
in fast að þeim viðkvæma aldri
sem gerir konur liffræðilega óhæf-
ar til að meðtaka, ganga með og
ala böm. í afmælisveislunni sveif
yfir vötnunum andinn frá þvi í
Húsafelli og Saltvík á sjöunda ára-
tugnum og allir urðu ungir á ný og
fegnir að fá tækifæri til að hverfa
til fýrri tíma.
Tjúttað með T-Rex
Virðulegir Qölskyldufeður og
ráðsettar húsmæður tjúttuðu af
„Heldur hún virkilega að ég sé
barnabam," spyr.sá stutti fóöur
sinn móðgaður og telur vegið að
sér og persónu sinni án þess þó að
botna beinlínis í þessu ástandi
sem hefur skapast. Konan í af-
greiðslunni er enn í skelfingu að
pússa gleraugim sín í veikburða
tilraun til að sýna fram á það að
sjónin hafi bmgðist henni og þrátt
fyrir allt sé hinn miðaldra faðir
alls ekkert afalegur.
Það var sem nýjar víddir opnuð-
ust föðurnum og dyr sannleikans
opnuðust honum upp á gátt. Hvers
vegna að vera að ergja sig yfir
fólki sem þekkti ekki muninn á
föður og afa, eða barni og barna-
barni. Hvaða máli skipti aldurinn
ef andinn er ungur. Hann leit á
konuna: „Afi eða ekki afi, hverju
breytir það? Flest er fertugum
fært,“ sagöi hann skælbrosandi og
feðgarnir héldu hönd í hönd út um
vængjadyrnar og inn í framtíð þar
sem aldurinn skipti ekki máli.