Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Síða 21
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996
21
A
Islendingur á eftirlaunaaldri selur tráútskurð í Arizona:
Vinnan heldur mér á lífi
segir Guðmundur Marteinsson
„Þremur árum áður en ég fór á
eftiríaun byrjaði ég að kaupa vélar
sem ég gæti notað til þess að vinna
að tréútskurði. Daginn eftir að ég
fór á eftirlaunin var ég kominn út á
verkstæðið mitt og farinn að skera
út,“ segir Guðmundur Marteinsson
frá Stykkishólmi sem búsettur hef-
ur verið í Ameríku frá 1944. Guð-
mundur er nú á eftirlaunum enda
orðinn 71 árs gamall og býr í Tuc-
son Arizona ásamt konu sinni,
Mary Oldman frá Quincy í fllinois.
Hún er af þýskum ættum en borin
og bamfædd í Ameríku.
Guðmundur sker út öskjur í tré
sem hann selur á ýmiss konar sýn-
ingum og mörkuðum í heimabæ
sínum. Hann eyðir hvorki meira né
minna en tólf tímum eða meira á
dag á verkstæðinu sínu og nýtur
hverrar einustu mínútu. Þess á
milli selur hann afurðina.
Sjálfmenntaður í
tréútskurði
„Allir sem eru yngri en ég eru
unglingar fmnst mér því ég upplifí
ekki að ég sé gamall. Vinnan heldur
mér á lífi. Þegar ég fæ hugmyndir
get ég ekki hætt heldur verð að
framkvæma þær,“ segir Guðmund-
ur.
Að sögn Guðmundar hefur hann
sérstöðu með öskjumar sínar og er
eingöngu sjálfmenntaður. Hann las
sér til um aðferðir við tréútskurð og
hefur kynnt sér sögu ýmissa hag-
leiksmanna. Hann notar þó bækurn-
ar eingöngu til þess að styðjast við.
„Ég hef komið mér upp minni eig-
in tækni við útskurðinn. Það tók
mig meira en ár að þróa þessa
tækni. Ég vinn töluvert hratt núorð-
ið. Það er alltaf verið að spyrja mig
hvernig ég fari að þessu en ég segi
ekki frá leyndarmálinu. Ég legg alla
tilfinningu mína í öskjurnar og sel
mjög mikið. Ég gæti neyðst til þess
að hækka verðið því ódýri viðurinn,
sem ég komst yfir, er að verða bú-
inn. Það heldur mér á lífi að halda
áfram að vinna,“ segir Guðmundur.
Guðmundur er ekki mjög ná-
kvæmur um verð á öskjunum.
Ef einhver kemur á sýningu
og langar til
þess að eignast
öskju en flnnst
hún of dýr spyr
hann hversu
miklu fólk sé til-
búið að eyða í öskj-
una. Þá er prúttað
svolítið þangað til
sölumaður og
kúnni mætast á
miðri leið.
Guðmundur á tvo
bræður á íslandi,
Heiðar og Jó-
hann. Þegar
hann fór til
Ameríku
byrjaði
hann á því
að fara
í Há-
skóla
BOSCH
Bafsiöðvar
2,0 kW 52.900,-
3,2 kW 89.500,-
3,8 kW.148.000,-
Þjónustumiðstöð í hjarta borgarinuan
BRÆÐURNIR
Guðmundur Marteinsson og kona hans, Mary Oldman, við einn sölu-
básanna.
DV-myndir S
Minnesota til þess að læra arki-
tektúr og húsaverkfræði. Eftir það
starfaði hann um sinn hjá mjög virt-
um arkitekt.
Guðmundur starfaði á arkitekta-
stofunni í fjögur ár í Wisconsin á
sumrin og í Scottsdale í Arizona á
veturna. Guðmundur hefur verið
búsettur í Tucson Arizona frá árinu
1952.
Kallaður í flugherinn
„í byrjun Kóreustríðsins hætti ég
hjá fyrirtækinu þar sem ég frétti að
það ætti að skylda mig til þess að
fara í herinn. Ég hóf þá störf hjá
öðrum arkitekt í Phoenix þangað til
kallið kom. Ég fór síðan í flugher-
inn þegar ég komst ekki undan því
lengur. Yfirmenn mínir vildu endi-
lega að ég færi offlseraskóla vegna
þess að ég er með háskólagráðu fyr-
ir. Það vildi ég ekki þar sem þá yrði
ég ekki frjáls þegar herskyldunni
lyki eftir flögur ár,“ segir Guð-
mundur.
Fákk már að borða í
Tucson
Þeir sem fóru í offiseraskóla áttu
að vera tiltækir þegar kallað yrði í
þá. Herskylda þeirra var miklu
lengri. Guðmundur hafði ekki
áhuga þar sem hann vildi frekar
starfa að sínu fagi.
„Ég stoppaði í Tucson
Arizona til þess að fá
mér að borða. Þá komst
ég að því að hér var há-
skóli. Þegar maður yfir-
gefur herinn greiðir ríkið
fyrir skólavist. Ég
breytti þá farseðlinum
minum og ákvað að
stoppa í Tucson og fara
í skóla og læra arki-
tektúr og hönnun. Þegar
því var lokið vann ég
fyrir arkitekta í
Tucson og
varði
tveimur árum í að hanna skólabygg-
ingar,“ segir Guðmundur.
Guðmundur starfaði síðan i 25 ár
á flugvellinum í Tucson hjá hern-
um. Þar hætti hann þegar hann
komst á eftirlaun þar. Hann fór á
stúfana og útvegaði sér vinnu með
þrefalt hærri launum hjá Pósti og
síma. „Þetta var mjög mikil vinna
og fyrsta árið var ég alltaf á ferð-
inni. Ég sá um mjög stórt svæði og
sýslur í Texas og Nýju-Mexíkó og
Arizona. Ég flaug á milli staða og
vann einnig laugardaga og sunnu-
daga fyrsta árið. Eftir fyrsta árið
fékk ég aðstoðarmann og gat sent
hann í staðinn á flakk,“ segir Guð-
mundur.
Tvöföld eftirlaun
Guðmundur starfaði hjá Póstin-
um í fimm og hálft ár eða þar til
hann fór á eftirlaun. Hann fékk
einnig eftirlaun frá flugvellinum og
er því á tvennum eftirlaunum og
hefur það gott. Guðmundur er ekki
að skera út i tré til þess að græða á
því enda selur hann munina ekki
dýrt. Mikilvægara fyrir hann er að
geta stundað þetta áhugamál sitt.
„Ég veit ekki hvort ég fer aftur tií
íslands því við hjónin höfum ekki
verið mjög góður til heilsunnar, Við
getum ekki lagt mikið á okkur eða
farið í svona langt ferðalag," segir
Guðmundur.
-Sveinn
Lógmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820
BOSCH verslunin aðkeyrsla frá Háaleitisbraut
Langar þig í fræðandi og
skemmtilegan skóla
eitt kvöld í viku?
Langar þig að vita hÝlr látnir vinir og vandamenn hugsanlega og
líklegast eru í dag og hversu öruggt meint samband við þá og þessa
undarlegu heima er, með aðstoð miðla?
Langar þig í öðruvísi skóla þar sem reynt er á sem víðsýnastan hátt að
gefa nemendum sem besta yfírsýn yfir hverjar hugsanlegar orsakir
dulrænna mála og trúarlegrar reynslu fólks raunverulega eru, í víðu
samhengi og í ljósi sögunnar?
Og langar þig ef til vill að setjast á skólabekk með bráðhressu og
skemmtilegu fólki þar sem reynt er að gefa sem bestu yfirsýn yfir
hvað raunverulegt miðilssamband er, svo og hverjir séu helstu og
þekktustu möguleikar þess en líka annmarkar?
Og langar þig svona einu sinni á ævinni að setja skóla eitt kvöld í
viku eða eitt laugardagssíðdegi þar sem sem flest fræði eru kennd á
lifandi hátt og skólagjöldunuin er svo sannarlega stillt í hóf?
Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur og fjölmörgum öðrun
mjög ánægðum nemendum Sálarrannsóknarskólans undanfarin ár. Þrír
byrjunarbekkir hefja brátt nám í Sálarrannsóknum I nú á haustönn
‘96. Skráning stendur yfir. Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar í
símum skólans 561-9015 og 588-6050. Skráningardagana er svarað í
síma skólans alla daga vikunnar kl. 14 - 19.
Skemmtilegur skóli -
Veamúla 2
k
fU ,e/^e5Ú
lSLENSKIR
QSTAR,>^}
*
Guðmundur Marteinsson við vinnu sína.
Hðnnun: Gunnar Steinþórsson / BOSCH / 09. 96