Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Page 47

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Page 47
JL>V LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 Bæjarstjórn Vestmannaeyja ósátt viö samstarf Flugleiða og íslandsflugs fréttir Skorar á ráðherra að stuðla að samkeppni - nauðsynlegt að auka sætanýtinguna, segja flugfélögin „Helsta ástæðan fyrir okkar at- hugasemdum er sú að Flugleiðir og íslandsflug eru farin að vinna sam- an og við það sýnist okkur sem all- ar forsendur um samkeppni séu brostnar. Verð á ákveðinni flugleið hjá íslandsflugi hefur t.d. hækkað um heil 34% og 5% á annarri. Þeir segja að þarna sé verið að hagræða en við horfum upp á færri ferðir og þar með minni þjónustu. Slíkt hefði að sjálfsögðu átt að skila sér í lægra fargjaldi en ekki hærra,“ segir Guð- jón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum, en bæjarstjórnin í Eyjum hefur sent frá sér greinar- gerð þar sem skorað er á samgöngu- ráðherra að hann veiti nú þegar leyfi til Flugfélags Vestmannaeyja um áætlunarflug á flugleiðinni á milli Vestmannaeyja og Reykjavík- ur. Guðjón segir Flugfélag Vest- mannaeyja hafa verið með leiguflug í Eyjum og rekið sjúkraflug og Eyja- mönnum þyki mikið öryggi að starf- semi félagsins. Það sé að reyna að skapa sér fastan grundvöll og mönn- um finnist eðlilegt, fyrst hin flugfé- lögin séu farin að vinna saman, að samkeppni komi frá Flugfélagi Vest- mannaeyja. „Við erum algerlega ósammála því að samkeppnisforsendur séu brostnar og þessi hækkun, sem við gerðum á okkar gjaldskrá, hefur ekkert með samstarf okkar við Flug- leiðir að gera. Ákvörðun um hækk- unina og þær strúktúrbreytingar sem við gerðum var tekin 1. júlí sl. og þá vorum við ekkert farnir að tala við Flugleiðir," segir Sigfús Sig- fússon, sölustjóri íslandsflugs. Sigfús segir að áður fyrr hafi ver- ið flogið fjórum sinnum á dag, tvær vélar á morgnana og tvær á kvöld- in, nú fljúgi Flugleiðir kvölds og morgna og íslandsflug um miðjan daginn. „Við lítum svo á að með því að dreifa fluginu jafnt yfir daginn séum við að auka þjónustuna við Eyjar og með betri sætanýtingu aukast möguleikar okkar á því að bjóða hagstæðari fargjöld. Hvað varðar samkeppni frá Flugfélagi Vestmannaeyja þá lítum við svo á að öll samkeppni sé af hinu góða,“ segir Sigfús. Páll Halldórsson, forstöðumaður innanlandsdeildar Flugleiða, tók í sama streng og Sigfús og sagði að hér væri einungis verið að reyna að þjóna staðnum betur. Bæði félögin hefðu verið að fljúga með lélegri sætanýtingu og því lítið borið úr býtum. > Aöalfundur Samtaka fiskvinnslustööva hélt aðalfund sinn í Skíöaskálanum í Hveradölum í gær. Eins og fram hefur komið í fréttum er staöa landvinnslunnar slæm og hún rekin með tapi. Þaö var þó ekki aö sjá á bílaflota fundarmanna. Þar var hver glæsijeppinn á fætur öörum. DV-mynd Pjetur Fréttaljósmynda- sýning í Perlunni Ljósmyndasýningin World Press Photo ’96 verður opnuð í Kringlunni í dag en það er þekktasta sam- keppni í heiminum á sviði frétta- ljósmyndunar. Sýningin er bæði á 1. og 2. hæð Kringlunnar og stendur til 2. október. Alls bárust 29.116 myndir í keppn- ina að þessu sinni frá 3.068 ljós- myndurum í 103 löndum. Það er níu manna alþjóðleg dómnefnd sem vel- ur verðlaunamyndimar en þeim er skipt í flokka og veitt verðlaun fyr- ir þrjár bestu myndirnar i hverjum flokki. Sýning á verðlaunamyndun- um verður sett upp í 38 löndum í ár en alls em þetta 200 myndir. Þær eru allar sýndar í Kringlunni og við hverja mynd er ítarlegur og fróðleg- ur texti um myndefnið á íslensku. -ingo „Með þessari samvinnu eram við að reyna að lágmarka það tap sem er af þessu flugi og því eru engar forsendur til neinna lækkana á far- gjöldum þrátt fyrir þessa samvinnu, a.m.k. ekki að sinni. Flugleiðir hafa ekki hækkað verðið á þessari flug- leið í tengslum við þessa sam- vinnu,“ segir Páll HaOdórsson. Jón Birgir Jónsson, ráðuneytis- stjóri í samgönguráðuneytinu, segir að ekki verði gefin út nein ný leyfi, það hafi ekki verið gert í fjöldamörg ár og það verði ekki gert nú. „Það verður aUt flug gefið frjálst 1. júlí 1997 og bæði Flugleiðir og ís- landsflug hafa sér leyfi til þess að fljúga á þessum leiðum. Við því er ekkert að gera fyrr en það rennur út,“ segir Jón Birgir. -sv Austur-Húnavatnssýsla: Fólk taki þátt í hrossa- og stóðréttum Dagana 21. og 22. september gefst fólki kostur á að taka þátt í hrossasmölun og stóðréttum í Austur-Húnavatnssýslu með heimamönnum. í Skrapatungu- rétt, sem er neðst i Laxárdal í A- Húnavatnssýslu, hefur verið smal- að 800-1000 hrossum undanfarin haust. Hagsmunaaðilar í ferða- þjónustu og bændur hafa gefið fólki kost á að taka þátt í smala- mennsku og réttarstörfum. Eins og undangengin haust bjóða Sveitasetrið Blönduósi, Ferðaþjónustan Geitaskarði og hestaleigan Kúskerpi upp á pakka- ferðir sem innihalda t.d. gistingu, morgunverð, akstur til og frá rétíastað og loks nesti og reiðhest í göngur. Föstudaginn 20. september er reiknað með að þátttakendur mæti á gististöðum sínum. Daginn eftir verður farið í smölun á Lax- árdal. Farið verður frá gististöð- um kl. 8.30 um morguninn og kom- ið til baka um kl. 19. Um kvöldiö verður svo hið árlega graðhesta- ball á Sveitasetrinu Blönduósi. Réttarstörf hefjast í Skrapa- tungurétt um kl. 10 á sunnudags- morgni og verður þátttakendum gefinn kostur á að taka þátt í þeim. Áhugasamir geta haft samband við Sveitasetrið Blönduósi, sími 452-4126, Ferðaþjónustuna Geita- skarði, sími 452-4341, eða upplýs- ingamiðstöðina Blönduósi, sími 452-4520. -sv N Ý K 0 M I D filpur - hettukápur - ullarjakkar stuttkápur, st. 36-54 Kápa, kr. Z3.900 ull/kasmír Litir: svart, rautt og blátt Opið laug. 10-16 Ullarúlpa kr. 9.900 Litir: svart, rautt, dökkblátt, qrænt oq beiqe m o Mörkinin 6, s. 588 5518 (við hliöina á Teppalandi) Bílastæði v/búðarvegginn Sendum í póstkröfu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.