Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1996, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
Fréttir
Jóhannes Páll páfi og Ronald Reagan áttu óformlegt samstarf:
Stofnuðu leynifélag
gegn kommúnisma
Jóhannes Páll páfi II og Ronald
Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseti,
stofnuðu með sér óformlegt „leyni-
félag“ sem hafði það markmið að
stuðla að falli kommúnismans.
Þetta kemur fram í nýrri bók
bandaríska rannsóknarblaðamanns-
ins Carls Bernsteins sem varð fræg-
ur fyrir afhjúpanir sínar og Bobs
Woodwards í Watergate-hneykslinu.
I bókinni Hans heilagleiki: Jó-
hannes Páll II og dulin saga vorra
tíma, sem Bernstein skrifaði í félagi
við ítalska blaðamanninn Marco
Politi, er því haldið fram að Reagan
og William Casey, forstöðumaöur
Fjármögnuðu
stríð með stoln-
um demöntum
Nasistar notuðu mikið magn
stolinna demanta til að fjármagna
striðsrekstur sinn í seinni heims-
styrjöldinni. Þetta kemur fram í
skjölum frá 1948 sem nýverið
voru gerð opinber. Nasistar tóku
yfir 1200 demantaverkstæði gyð-
inga í Antwerpwen í Belgíu 1940.
Sendu þeir eðalsteinana til Sviss
og Spánar þar sem þeir skiptu
þeim fyrir gjaldeyri og keyptu
hráefni til vopnagerðar. Reuter
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Strandgötu 52,
Eskifirði, föstudaginn 20. sept-
ember 1996 kl. 10.00 á eftir-
________farandi eignum:________
Brekka 16, Djúpavogi, þingl. eig. Jó-
hann Alfreðsson og Alfreð Alfreðs-
son, gerðarbeiðandi Djúpavogs-
hreppur.
Búðareyri 15, Reyðarfirði, þingl. eig.
Óskar Alfreð Beck og Sveinsína E.
Jakobsdóttir, gerðarbeiðandi Gjald-
heimta Austurlands, 2 beiðnir.
Ekra II, Djúpavogshreppi, þingl. eig.
Kristborg Snjólfsdóttir, gerðarbeið-
andi Sameinaði lífeyrissjóðurinn.
Fossgata 3, Eskifirði, þingl. eig. Lára
Thorarensen, gerðarbeiðendur Bygg-
ingarsjóður rflcisins, Greiðslumiðlun
hf., Visa ísland, S. Helgason hf.,
Tryggingamiðstöðin hf. og Þrb. Bald-
ur og Óskar hf.
Hafnargata 21, öll fasteign, Fáskrúðs-
firði, þingl. eig. Akkur hf., gerðar-
beiðandi Sýslumaðurinn á Esldfirði.
Hvammersminni 6, Djúpavogi, þingl.
eig. Margrét Sigurðardóttir, gerðar-
beiðandi Djúpavogshreppur.
Holtagata 3, Reyðarfirði, þingl. eig.
Stefán Jónsson, gerðarbeiðandi Spari-
sjóður Norðfjarðar.
Kirkjustígur 2, Eskifirði, þingl. eig.
Björgvin Erlendsson, gerðarbeiðend-
ur Húsbréfadeild Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins og Lífeyrissjóður Austur-
lands. /
Skólabraut 14, Stöðvarfirði, þingl. eig.
Kári H. Kristinsson, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins.
Stekkjargrund 4, Reyðarfirði, þingl.
eig. Bjarni G. Bjamason og Asta J.
Einarsdóttir, gerðarbeiðendur Bygg-
ingarsjóður verkamanna og Sýslu-
maðurinn á Eskifirði.
Sæberg 15, Breiðdalsvík, þingl. eig.
Fjóla Ákadóttir, gerðarbeiðendur
Byggingarsjóður ríkisins og Sýslu-
maðurinn á Eskifirði.
Sólheimar 2, Breiðdalsvík, þingl. eig.
Gísli Karlsson, gerðarbeiðandi Is-
landsbanki hf.
SÝSLUMAÐURINN Á ESKIHRÐI
leyniþjónustunnar CIA, hafi skipst
á viðkvæmum leyniupplýsingum
við páfa af því að þeir litu á Páfa-
garö, sem nær yfir tuttugu götu-
lengjur í Róm, sem „andlegt risa-
veldi“.
Á sex ára tímabili fékk páfi fimmt-
án sinnum heimsóknir frá Casey
sjálfum eða Vernon Walters, fyrrum
næstæðsta manni CIA, og fékk að-
gang að ýmsum best varðveittu
leyndarskjölum Bandaríkjanna.
Höfundar bókarinnar halda því
einnig fram að Reagan og stjórn
hans hafi á laun varið fimmtíu
milljónum dollara til að halda lífi í
pólska verkalýðsfélaginu Samstöðu
á árunum 1982 til 1989. Að sögn var
páfa skýrt frá því en hann gætti
þess þó að vita ekki öll smáatriði
málsins.
Bernstein og Politi ganga ekki
svo langt að draga þá ályktun að
Sovétríkin eða Búlgaría hafi staðið
á bak við morðtilræðið við páfa árið
Alija Izetbegovic, frambjóðandi
múslíma, virtist í morgun líklegur
til að verða oddviti forsætisráðs
Bosníu og þar með forseti landsins.
Hafði hann þá örugga forustu á
helsta keppinaut sinn, Bos-
níuserbann Momcilo Krajisnik. Úr-
slit í kosningunum munu ekki
liggja endanlega fyrir fyrr en í dag
en talning atkvæða tók lengri tíma
en búist var við. Forsætisráöið er
skipað þremur mönnum, fulltrúa
múslíma, Bosníuserba og fulltrúa
Króata.
Seint í gærkvöldi hafði Izet-
begovic hlotið um 170 þúsund at-
kvæði á móti um 121 þúsund at-
kvæðum Krajisniks. Báöir höfðu þó
Jóhannes Páll páfi.
1981 en segja í bókinni aö Cásey og
nánustu samverkamenn páfa hafi
verið sannfærðir um aðild Búlgar-
örugga forustu á helstu keppinauta
sína innan raða múslíma og Bosn-
íuserba. Þá virtist þjóðemissinninn
Kresimir Zubak líklegastur til að
hreppa sæti Króata.
Flokkur Izetbegovics hafði óttast
að keppinautur hans í flokknum
mundi dreifa atkvæðamagninu
þannig að Bosníuserbi hreppti odd-
vitasætið í forsætisráðinu. Sá mun
fara með hlutverk leiötoga Bosníu í
samskiptum við erlend ríki. Annars
verður forsætisráðið að vera ein-
huga i ákvörðunum sínum.
Bandaríkin tilkynntu að þau
mundu starfa með sigurvegurum
kosninganna næstu vikur og hjálpa
við að koma á fót helstu stjómsýslu-
íu. Páfi hafnaði þeirri hugmynd al-
farið.
Blaðamennimir tveir segja í bók
sinni að páfi hafi ekki viljað að til-
ræðið yrði rannsakað til hlítar af
ótta við að ef Sovétríkin hefðu kom-
ið þar nærri mundu alþjóðasam-
skipti fara í óleysanlegan
rembihnút.
„Sá sem bar ábyrgð á þessu var í
orðsins fyllstu merkingu að ganga
erinda djöfulsins. Ég hef ekki áhuga
á þessu af þvi að það var djöfullinn
sem gerði þetta og djöfullinn getur
braggað launráð á þúsund vegu,“
sagði páfi við náinn vin sinn, að því
er bókarhöfundar halda fram.
Höfundarnir segjast hafa komist
yfir sovésk leyndarskjöl þar sem
fram komi sívaxandi áhyggjur Sov-
étleiðtoganna af páfa og pirringur
þeirra út í pólsk stjórnvöld fyrir að
hafa ekki lagt til atlögu gegn ka-
þólsku kirkjunni vikumar fyrir til-
ræðið við páfa. Reuter
stofnunum. Síðar yrði ákveðið
hvort friðargæslusveitir yrðu áfram
í Bosniu. Bill Clinton Bandaríkja-
forseti hefur sagt að 15.300 banda-
rískir hermenn fari frá Bosniu um
miðjan desember en bandarískir
embættismenn telja nú nauðsynlegt
að einhver herstyrkur verði áfram
til staðar í Bosníu.
Talsmaður nefndar alþjóðlegra
eftirlitsmanna sagði í gærkvöldi að
kosningarnar hefðu farið eðlilega
fram. Líklegt var talið að Öryggis-
og samvinnustofnun Evrópu mundi
viðurkenna kosningarnar réttmæt-
ar þrátt fyrir ásakanir um kosn-
ingasvindl af hálfu flokka og kjós-
enda. Reuter
Embættismenn Bosníuserba hella hér úr kjörkössum í Pale, höfuöborg sinni í Bosníu. Símamynd Reuter
Búist viö niðurstöðum kosninganna í Bosníu í dag:
Izetbegovic með
forustu í morgun
Stuttar fréttir dv
Ráðherra handtekinn
Lögi’eglan á Indlandi handtók
fyrrum samgönguráðherra
landsins i tengslum við tugi
milljóna í reiðufé sem fundust á
heimili hans.
Kínverjar vara við
Kínversk stjórnvöld vöruðu
við því í morgun að fundir milli
Dalaís Lamas, útlægs leiðtoga Tí-
beta, og þjóðaleiðtoga gætu skað-
að viðskiptatengsl. Ástralski for-
sætisráðherrann hefur lýst
áhuga á að hitta Dalaí Lama.
Clinton undirritar
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
seti mun imd-
irrita samning
um bann við
kjarnorkutil-
raunum í
næstu viku í
húsakynnum
SÞ í New York
og mun við það tækifæri hitta
forsætisráðherra Japans að máli.
Grípið morðingjana
Belgísk yfirvöld hafa gefið út
alþjóðlegar handtökuskipanir á
hendur tveimur mönnum sem
grunaðir eru um að hafa myrt
stjórnmálamanninn Andre
Cools.
Ghali í baráttuhug
Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri SÞ, ætlar að berj-
ast með oddi og egg fyrir endur-
kjöri þrátt fyrir andstöðu Banda-
ríkjanna.
Bundy látinn
McGeorge Bundy, háttsettur
ráðgjafi Kennedys og Johnsons,
fyrrum Bandaríkjaforseta, og að-
alhöfundur stefnu Bandaríkj-
anna í Víetnam, er látinn.
Réttað yfir Simpson
Réttarhöld
yfir O.J. Simp-
son, fyrrum
ruðnings-
hetju, sem var
sýknaður af
ákæru um að
hafa myrt
fyrrum eigin-
konu sina og
ástmann hennar, vegna einka-
máls fjölskyldna fórnar-
lambanna hefjast í dag en þar
verða engar sjónvarpsmyndavél-
ar og heldur enginn Simpson.
Atlantis í loftið
Geimferjan Atlantis hélt áleið-
is til geimstöðvarinar Mir í gær
en hún mun ná í Shannon Lucid
sem dvalið hefur í geimnum í
sex mánuði.
Drápu mann
Hópur, sem talinn er í tygjum
við írska lýðveldisherinn, IRA,
lýsti yfir ábyrgð á morði í Belfast
í gær. Er hópurinn í baráttu
gegn meintum fikniefhasölum.
Rændi rútu
Lögregla í suðurhluta Rúss-
lands leitaði manns sem rændi
rútu einn síns liös og tók farþeg-
ana í gíslingu. Maðurinn sleppti
skyndilega gíslunum og flúði.
Blettur á heila
Grunsam-
legur blettur
fannst á heila
Móður Ther-
esu, sem orðin
er 86 ára, eftir
að hún hafði
hrasað við að
fara úr rúm-
inu.
Náðu sáttum
Ástralir og Frakkar hafa náð
sáttum vegna kjarnorkutilrauna
Frakka í Kyrrahafi.
Margir heimilislausir
Um 300 þúsund ungir Breta
eru heimilislausir og sofa á göt-
unni.
Reuter