Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1996, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
Leirinn er til margs notaður því
auk baðanna er hann líka blandað-
ur vikri og vaxi til að búa til heita
bakstra. Auk leirsins bjóðast fólki
heilsuböð, vatnsböð sem með ýmiss
konar olíum eiga að styrkja mann
og hressa.
Meiri möguleikar
í áðumefndri kvikmynd um
Kellogg lækni var sögð saga af
heilsuhæli hans sem öðlaðist mikla
frægð og dró til sin fólk hvaðanæva
að. Guðmundur segir að með til-
komu göngudeildarinnar muni
Heilsustofnun NLFÍ gefast kostur á
að markaðssetja sína starfsemi frek-
ar en nú er, jafnvel með komu út-
lendinga i huga. Hvað sem verður
er víst að með tímanum mun stofn-
unin verða betur í stakk búin til að
fylgja eftir þeirri hugmyndafræði
sem stofnandi hennar hélt á lofti,
náttúrulækningunum, og hjálpa
fólki að nýta eigin mátt og styrk-
leika umhverfis síns sér til heil-
brigðis og framdráttar.
-saa
Wolfgang Roling er sjúkranuddari og yfirmaður göngudeildar.
DV-myndir Brynjar Gauti
Fólk á öllum aldri
dvelur í Hveragerði
- og hver og einn í sérsniðinni meðferð
reyndar enn, og þurfti að herða lík-
amann,“ segir hann. Hann hefúr
undanfarið verið í sundi, höðum,
nuddi og daglegum gönguferðum í
hvaða veðri sem er. Borgþór hef-
ur ekki stundað líkamsrækt
síðustu fimmtán árin en seg-
ir þetta geta verið tækifæri
til að koma sér af stað og
býst við að halda áiram á
þessari braut.
„Ég kom hingað líka mér
til hressingar og hef ver-
ið með Borgþóri í
þessum æfingum
og finnst þetta af-
skaplega
gott,“
seg-
ir
Sérstakur hvíldartími
dvalargesta er frá kl.
12.30 til kl. 14 alla daga
og er þess vænst að
dvalargestir noti
þann tíma eins og
kostur er til hvíldar í
herbergjum sínum.
DV-menn voru
einmitt stadd-
ir á
stofn-
un-
inni á
þess-
um
tíma
og
var
aug-
ljóst
að menn fýlgdu almennt fyrir-
mælum þessum. Kyrrö og ró
var yfir þessu 160 manna
heimili. Eftir kl. 14 færðist
líf yfir langa gangana og
menn fóru að sinna sín-
um einstaklingsbundnu
meðferðum.
Tilveran hitti fyrir
nokkra dvalargesti, sem
voru komnir á stjá, þegar
klukkan var rétt farin
að ganga þrjú.
I líkamsæfingar
eftir 15 ára hlé
„Við verðum hér i 4
vikur aUs, hálfa viku í
viðbót," sögðu Borg-
þór Jónsson og Rann-
veig Árnadóttir sem
voru í sinni fyrstu dvöl
á Heilsustofnuninni.
Borgþór segir ástæðu
fyrir dvöl sinni þá að
hann vilji létta sig og
styrkja. „Ég var
orðinn ansi
slappur,
er það
Jóna vissi ekkert hvaö biöi hennar en hafði ákveöiö aö fara í smáátak
og dvelja í 4 viklir í Hveragerði.
Rannveig sem hefur ekki heldur
áður stundað líkamsæfingar svo
nokkru nemi.
Þau Borgþór og Rannveig bera
heilsufæðinu vel söguna og sakna
ekki kjötsins. „Ég er ekki frá því að
maður sé allur léttari og duglegri að
ganga,“ segir Rannveig. Bæði gætu
vel hugsað sér að dvelja aftur í
Hveragerði í meðferð sem þessari.
Kom ein til 4 vikna
dvalar
Jóna Þóra Jensdóttir er 24 ára
Reykvíkingur og var ásamt hópi
fólks í skoðunarferð um stofnunina
um leið og Tilveran. Þegar að var
gáð var hún að koma til 4 vikna
dvalar til að létta sig, smáátak, eins
og hún orðaði það. „Þetta leggst vel
í mig. Ég ákvað þetta fyrir mánuði
en hafði hugsað um þetta í nokkum
tíma. Ég þekki í raun engan sem
hefur dvalið hér en maður heyrir
alltaf um einhveija," segir hún og
bætir við að hún hafi ekkert kann-
að staðinn áður en hún pantaði
pláss. „Ég veit í raun ekkert út í
hvað ég er að fara en þetta leggst vel
í mig.“
tilveran ,5
Heilsufæðið
- fiskur en
Flestum dettur matur í hug þegar
minnst er á Heilsustofnun NLFÍ því
stofhunin hefur verið þekkt fyrir
heilsufæði sem er þar á borðum og
var löngu áður en það beinlínis
komst í tísku. Lifrænt ræktað græn-
meti á staðnum í öll mál og ekkert
kjöt. Sagðar hafa verið sögur um
dvalargesti sem gefist hafi upp og
farið reglulega í rjómaísinn í Eden,
hvort sem eitthvað er til í því eða
ekki. Staðreyndin er hins vegar sú
að flestum sem prófa hið heilnæma
fæði fellur það ákaflega vel í geð og
sjálfsagt hafa margir fúndið nýjan
lífsstíl í mataræðinu í Hveragerði.
Franskur kokkur
í eldhúsinu
Francois Fons sér um mat dvalar-
gesti sem borinn er fram í rúmgóð-
um og huggulegum matsal Heilsu-
stofnunarinnar. Hann féllst á að
gefa lesendum Tilverunnar smáinn-
sýn í matargerð sína.
í Hveragerði
ekkert kjöt
Síldarsamleikur fyrir 4
4 stórar saltsíldar
2 dl ólífúolía
4 söxuð harðsoðin egg
2 hylki spænskur pipar
24 svartar ólífur
2 tsk. saxaður hvítlaukur
2 msk. steinselja
Vínedik
Síldin er flökuð og beinhreinsuð,
skorin i strimla og útvötnuð hæfi-
lega. Síldarstrimlamir eru svo lagð-
ir í ólífúolíuna ásamt örlitlu ediki
og látnir meyma. Eggin em söxuð
og sett á stóran disk. Síldarstriml-
arnir era lagðir ofan á eggin, fiórir
langsum og fiórir þversum. Spænski
piparinn er steiktur á þurri pönnu
og ysta húðin fiarlægð. Hann er svo
skorinn í hæfilega bita. Þá er til
skiptis settur piparinn og ólífúmar
ofan á síldina. Steinselju og hvít-
lauk stráð yfir til skiptis og vætt
með örlitlu ediki. Borið fram með
rúgbrauði og soðnum nýjum kart-
öflum. -saa
Francois Fons leggur línurnar fyrir matargesti.
m/i
Vi
Hagstœð kjör
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er
afsláttur
af annarri auglýsingunni
aw mii/f Hm,
'ins
Smáauglýsingar
550 5000
-saa