Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1996, Page 17
■ lV ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
tilveran n
„Ástæöa þess að farið var út í
verkefiiið er þríþætt. í fyrsta lagi er
maður ekki aÚtaf ánægður með
samskiptin milli bamanna, þ.e. að
þau leysi deilumál með því að garga
eða slá frá sér í stað þess að ræða
sin á miili. í öðru lagi hefur einelti
í skólum aukist gífurlega og við lít-
um á þetta sem forvörn því bömin
verða meðvitaðri um náungann og
sjálf sig. í þriðja lagi vomm við líka
að líta á alla þessa mötun i þjóðfé-
laginu sem segir að maður þurfi að
fá hitt og gera þetta og við vildum
því hvetja til gagnrýnnar hugsun-
ar,“ sagði Ingibjörg Sigurþórsdóttir,
leikskólastjóri í Foldaborg í Grafar-
voginum, en hún átti frumkvæði að
heimspekiverkefni sem lagt var fyr-
ir 3-6 ára böm síðasta haust og er
enn í gangi.
Erfitt að vera ósammála
Ingibjörg fékk styrk úr þróunar-
sjóði Dagvistar bama og starfsfólk
leikskólans var heilan vetur að und-
irbúa verkefnið með aðstóð Sigurð-
ar BjömssoncU1 heimspekings sem
kenndi því ákveðna tækni við að
leiða samræður barnanna. „Við tök-
um t.d. einhverja sögu fyrir eða
breytum leikjum þannig að við get-
um notað heimspekina. Ef upp
koma árekstrar notum við sam-
ræðustundirnar til að ræða þá án
þess að bendla viðkomandi við mál-
iö. Við reynum að hvetja bömin til
umhugsunar um hin ýmsu mál og
mynda sér skoðun. Skoðunina eru
þau síðan hvött til að rökstyðja. Til
að byrja með áttu bömin oft erfitt
með að vera ósammála. Svo vom
þau kannski bara ósammála en rök-
studdu það ekki. Síðan læra þau að
rökstyðja mál sitt, hvort sem þau
eru sammála eða ósammála, og við
höfum séð gífurlegar framfarir,"
sagði Ingibjörg.
Hvert barn tekur þátt í samræöustund í heimspeki fjórum sinnum í viku. Þeir
sem viija tjá sig þurfa að rétta upp hönd og bíða þar til sá sem talar hefur
iokiö máli sínu. Þannig læra þau m.a. aö bera virðingu fyrir skoöunum ann-
arra.
Mjög jákvæð viðbrögð
Ingibjörg sagði aðalmarkmiðið
vera að stuðla að bættum samskipt-
um milli bamanna en einnig er
reynt að efla skilning bamanna á
sjálfum sér og hugsun sinni, að efla
hjá þeim virðingu fyrir öðmm og
skoðunum annarra og efla skapandi
og gagnrýna hugsun þeirra. „Auk
samræðustundanna með bömunum
var hugmyndin sú að þetta myndi
lita alla starfsemina, þ.e. að starfs-
fólkið væri meðvitað um hvernig
það svaraði bömunum og hvetti
þau til að leita svara og sjá fleira en
eitt sjónarhom. Þetta er ekki síður
mikilvægt," sagði Ingibjörg.
Þó verkefninu ljúki ekki fyrr en
um áramótin er árangurinn þegar
mælanlegur. „Við
sjáum framfarir
á öllum sviðum
en það er þó
erfiðara að
mæla hvemig
Börnin brutu heilann yfir hlutum eins og því sem ekki er til og af hverju eitt-
hvaö er skrýtiö.
verkefnið skilar sér út í hið daglega
líf bamanna. Eini mælikvarðinn
sem ég hef em niðurstöður spum-
ingalista sem sendir vom út til for-
eldranna. Jafnvel þó einungis 50%
þeirra hafi skilað sér var ég mjög
ánægö með svörin því þau voru
mjög jákvæð."
-ingo
Ingibjörg leiðir samræöu-
stundina og hvetur börnin
til aö mynda sér skoðun.
DV-myndir Pjetur
Leikskólabörn í Foldaborg taka þátt í heimspekiverkefni:
Læra að rökstyðja
skoðanir sínar
- og bera virðingu fyrir sjálfum sár og öðrum
Móðir barns sem tekur þátt í heimspekiverkefninu:
Fann mikinn mun
á stráknum
- hann rökstyður meira og finnst „bara" ekki vera svar
„Mér finnst þetta mjög jákvætt.
Ég fann t.d. mikinn mun á mínum
strák fyrir áramótin. Þá var hann
mikið að spjalla um verkefnið og
var með vangaveltur um ýmis mál,
t.d. drauma og það sem ekki er til,
sem ég hafði aldrei heyrt hann tala
um áður. Hann rökstuddi miklu
meira en áður og tilkynnti mér að
„bara“ væri ekkert svar,“ sagði Kol-
brún Hauksdóttir, móðir Hauks sem
er 5 ára og hefur tekið þátt í heim-
spekiverkefninu í Foldaborg.
„Eftir áramótin varð ég minna
var við þetta, þá var þetta bara orð-
inn hluti af hans lífi. Hann hélt þó
áfram að minnast á það þema sem
var í gangi hveiju sinni. Um tíma
hafði hann t.d. mikið verið að velta
fyrir sér dauðanum og spurt mig útí
hann. Ég var margoft búin að reyn
að útskýra fyrir honum en þaö
þýddi ekkert, hann var alltaf jafn
hræddur. Svo var þetta tekið fyrir í
einni samræðustundinni og greini-
lega á einhverjum öðrum nótum því
þar með var hann sáttur og málið
útrætt. Hann hefur líklega fengið
einhverja innsýn eða samanburð
frá hinum bömunum sem hann var
sáttur við,“ sagði Kolbrún.
Kolbrún með Hauk. Hann er 5 ára en var fjögurra þegar hann byrj-
aði í heimspeki í leikskólanum. DV-mynd Pjetur