Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1996, Blaðsíða 32
36
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
Framsókn og
atkvæðin
„Framsókn hefur löngum lifað
góðu lífi á skertum atkvæðisrétti
Reykvikinga og fengi hver maður
eitt atkvæði til Alþingis hefði ráð-
herrann á Höllustöðum aldrei
komið nær þingstörfum en lesa
um þau í Handbók bænda.“
Ásgeir Hannes Eiriksson, í Degi-
Tímanum.
Eins og drulla
„Mesta áfallið var hins vegar í
kringlukastinu. Ég var alveg eins
og drulla í hringnum."
Jón Arnar Magnússon tugþrautar-
kappi, í DV.
Ummæli
Þorsteinn hefur
mannast
„Mér finnst Þorsteinn Pálsson
hafa mannast ótrúlega mikið.
Davíð Oddssyni hefur aftur á móti
farið mikið aftur, eins og ég var
nú hrifin af honum.“
Regina Thorarensen, í DV.
Æla áður en þeir byrja
að drekka
„Unglingarnir eru meira að
sega hættir að fara út á kvöldin,
þeir byrja að æla áður en þeir
byija að drekka."
Kona á Akranesi um loðnubræðsl-
una þar, í Degi-Tímanum.
Upplifi ekki ellina
„Allir sem eru yngri en ég eru
unglingar finnst mér því ég upp-
lifi ekki að ég sé gamall.
Guðmundur Marteinsson,
71 árs, í DV.
Magnaðir eitur-
lyfjasnuðrarar
Mognuðustu eiturlyfjasnuör-
arar sem sögur fara af voru
hundarnir Rocky og Barco. Þess-
ir belgísku íjárhundar voru í
bandarískri leitarsveit sem hef-
ur eftirlit með Rio Grande daln-
um, sem oft er nefndur kókaín-
sundið. Árið 1988 áttu þeir hlut-
deild í því að eiturlyf voru gerð
upptæk 969 sinnum og var her-
fangið metið á 182 milljónir doll-
ara. Voru þeir svo snjallir við
iðju sína að mexíkóskir eitur-
lyfjasmyglarar lögðu 30.000 doll-
ara til höfuðs þeim. Voru hund-
arnir sæmdir yfirþjálfaranafn-
bót í heiðursskyni.
100% árangur
Eini eiturlyljasnuðrarinn sem
skilaði 100% handtökuárangri
var þýskur fjárhundur í banda-
riska hemum sem gekk undir
nafninu General. Á timabilinu
1974- 1976 gerði þessi snuðrari
og stjómandi hans, Michael R.
Harris i lögreglunni i Fort Bliss,
Texas, 220 sinnum leif að eitur-
lyfjum og tóku 220 menn fasta
fyrir að hafa eiturlyf á sér og
fundu eiturlyf á 330 stöðum.
Blessuð veröldin
Þefaði uppi sex tonn
Þýskir fjárhundar koma víðar
við sögu. Blue, sem lögreglan í
Los Angeles átti, aðstoðaði við
253 handtökur og þýski fjárhund-
urinn, sem lögreglan í Essex átti,
þefaði uppi tvö tonn af kannabis
í október 1988 þegar hann var
sendur inn i afskekkt hús. Magn-
ið var metið á sex milljónir
punda.
Dregur úr úrkomu síðdegis
Yfir Skandinavíu er víðáttumikil
1032 mb hæð, en á Grænlandshafi er
nærri kyrrstæð 987 mb lægð sem
grynnist. Vaxandi 990 mb lægð um
Veðrið í dag
500 km suðsuðvestur af Vestmanna-
eyjum á hreyfingu í norðnorðvest-
átt um mikinn hluta landsins með
rigningu eða skúram, en lægir held-
ur og dregur úr úrkomu síðdegis.
Þó verður áfram stinningskaldi
austan til á landinu í nótt. Hiti 10 til
17 stig, hlýjast norðanlands.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
suðaustan stinningskaldi fram eftir
degi en hægari sunnanátt og skúrir
síðdegis. Hiti 11 til 13 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 19.46
Sólarupprás á morgun: 7.00
Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.57
Árdegisflóð á morgun: 9.20
Vedrid kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjaö 14
Akurnes alskýjað 12
Bergstaðir skýjað 11
Bolungarvík rigning 11
Egilsstaóir skýjað 13
Keflavíkurflugv. rigning 12
Kirkjubkl. rigning 11
Raufarhöfn skýjaö 10
Reykjavík rigning 12
Stórhöfði rigning 11
Helsinki léttskýjaö 6
Kaupmannah. léttskýjað 9
Ósló léttskýjað 5
Stokkhólmur heiðskírt 9
Þórshöfn þoka 10
Amsterdam léttskýjað 6
Barcelona súld 20
Chicago léttskýjaö 16
Frankfurt léttskýjað 7
Glasgow lágþokublettir 10
Hamborg léttskýjað 4
London mistur 11
Los Angeles hálfskýjað 19
Madrid skýjað 14
Malaga
Mallorca alskýjað 19
Paris heiðskírt 8
Róm þokumóóa 13
Valencia skýjaö 21
New York rigning 17
Nuuk snjókoma ■1,4
Vín skýjað 10
Washington i rigning á síð. kls. 18
Winnipeg léttskýjað 12
urátt.
í dag verður allhvöss suðaustan-
Örn Friðriksson, formaður Samiðnar:
Raunhæft að ná sama kaupmætti
— og annars staðar á Norðurlöndum
„Samiðn er samband iðnfélaga
um allt land og er eitt af landssam-
böndunum innan ASÍ. Innan okkar
vébanda era byggingariðnaðar-
menn, málmiðnaðarmenn, garð-
yrkjumenn og málarar og er
Samiðn okkar samnefnari og tæki
til að vinna sameiginlega að þeim
verkeíhum sem félögin eru einhuga
um og einnig að auka áhrif okkar
manna í þjóðmálum, kjaramálum
og menntunarmálum," segir Öm
Friðriksson, en hann tók við for-
mennsku í Samiðn í byijun septem-
ber af Grétari Þorsteinssyni, for-
seta ASÍ. Öm, sem einnig er for-
maður Félags jámiðnaðarmanna,
hefur verið í stjórn Samiðnar frá
stofnun, 8. maí 1993.
Maður dagsins
„Samiðn var stofnuð með sam-
rana Málm- og skipasmíðasam-
bandsins og Sambands iðnaðar-
manna og í sambandinu er 31 félag
með 5500 félagsmönnum. Helsta
málið fram undan eru drög og und-
irbúningur næstu samninga. Við
erum og höfum verið á fundaferð
um landiö til að fara yfir málin með
stjórnum félaga og trúnaðarmönn-
um þar sem við eram í fyrsta lagi
að fara yfir hvernig staðið verður
að samningum með tilliti til breyt-
inga á vinnulöggjöfmni, áherslu í
kröfugerð og annan undirbúning að
samningum. Við höfum markað
okkur grandvallarstefnu og horfum
til þess að langtímasjónarmiö ráði
ferðinni því við þurfum á næstu
áram að ná þeim kaupmætti sem er
annars staðar á Norðurlöndum og
teljum það raunhæft."
Örn sagði aðspurður að á heild-
ina litið væri minna um atvinnu-
leysi hjá iðnaðarmönnum en verið
hefur: „Eitt af verkefnum sam-
bandsins hafa verið atvinnumálin
og i þeim verkefnum er unnið af
fullum krafti. Atvinna hefur aukist
en það er að vísu svæðisbundið.
Það er helst á höfuðborgarsvæðinu
að félagsmenn eru enn á atvinnu-
leysisskrá. Við verðum varir við
það á ferð okkar um landið að það
ríkir ákveðin bjartsýni i atvinnu-
málum.“
Þótt Örn sé formaður Samiðnaö-
ar þá er það ekki hans aðalstarf:
„Það hefur verið svo í okkar lands-
sambandi að menn sem eru for-
menn einstakra félaga, og þá um
leið starfsmenn þess, hafa valist til
formennsku og þeir halda því starfi
áfram. Formennska í Samiðn bæt-
ist bara við á vinnureikninginn án
þess að launagreiðsla fáist fyrir
það.
Öm sagði þegar hann var spurð-
ur um áhugamál fyrir utan félags-
málin að ísland væri honum ofar-
lega í huga: „Ég hef mjög gaman af
því þegar ég fæ tækifæri til að ferð-
ast um landið en ég er lítið geflnn
fyrir að flakka um erlendis - þykir
það heldur leiðinlegt." Eiginkona
Arnar er Ólöf Helgadóttir og eiga
þau þrjú böm. -HK
Gefur undir fótinn Myndgátan hér aö ofan lýsir hvorugkynsoröi
Bikarúr-
slitaleikur í
2. flokki
Úrslitaleikurinn í bikarkeppni
2. flokks karla í fótboltanum fer
fram í dag kl. 17.00 á Kaplakrika-
velli i Hafnarfirði. Það eru Fram
og Keflavík sem leika til úrslita.
Bæöi liðin hafa staðið sig vel í
sumar og má búast við spenn-
andi leik.
Iþróttir
Bikarkeppni 2. flokks hefur
farið fram síðan 1964. Keflvíking-
ar hafa sigrað tvisvar, árin 1967
og 1973, en Framarar hafa sigrað
alls sjö sinnum, 1980, 1981, 1983,
1985, 1990, 1991 og 1993. í undan-
úrslitum unnu leikmenn Stjörn-
unnar 5-1 og Framarar slógu út
íslandsmeistara KR með þremur
mörkum gegn einu. Verði jafnt í
leikslok er leikurinn framlengd-
ur. Verði þá enn jafht fer fram
nýr leikur og verður þá leikiö til
þrautar.
Orgeltónleikar
í Selfosskirkju
Fjórðu tónleikarnir í tónleika-
röð Selfosskirkju á þessu hausti
verða í kvöld kl. 20.30. Organist-
inn Kári Þormar leikur verk eft-
ir Pál ísólfsson, Jón Nordal, J.S.
Bach og Cesar Franck.
Tónleikar
Kári Þormar hefur lokið próf-
um í orgelleik frá Tónskóla Þjóð-
kirkjunnar og er nú við fram-
haldsnám í Dusseldorf. Tónleik-
arnir era um 45 mínútna langir
og er aðgangur ókeypis.
Bridge
Á undanfómum Norðurlandamót-
um í bridge hefur íslenska landslið-
ið oftast haft betur gegn því danska
í opnum flokki. Síðasta Norður-
landamót var engin undantekning,
en hitt er heldur óvenjulegra að
danska landsliðið skuli hafa tapað
0-25 í öðrum leiknum. Spilaðar eru
tvær umferðir á NM og hin úrslitin
vora lítið skárri fyrir Danina, 7-23
tap. Þrátt fyrir að íslendingar hafi
spilað mun betur en Danimir, þarf
að sjálfsögðu einhvem meðbyr til
að sigra 25-0. Þessi slemma í leikn-
um hefði til dæmis getað farið verr.
Sagnir gengu þannig, suður gjafari
og NS á hættu:
4 Á10
«4 K109752
4 93
* ÁDG
4 K983
44--
-f 106542
* K1087
4 D75
«4 ÁDG63
4 ÁG
* 952
Suður Vestur Norður Austur
Sævar Munken Jón B. Cohen
1 «4 1 Grand dobl 2 4
pass pass 34 pass
3 Grönd pass 4 * pass
4 4 pass 6 44 p/h
Grandsögn Munkens lofaði 4-5
skiptingu í hálit og láglit og 6-11
punktum. Jón og Sævar létu þá
sögn ekki hindra sig og sögðu sig
upp í slemmu sem við fyrstu sýn
átti ekki góða möguleika á því að
vinnast. Útspil vesturs var laufsjöa,
Sævar svínaði gosanum og tók síð-
an tvo hæstu í hjarta. Enn var laufi
svinað, laufásinn tekinn og síðan
var tígulásnum spilað og meiri tigli.
Nú var búið að uppræta láglitina og
trompin af andstæðingunum og
Cohen (í austur) varð því að spila
spaða. Sævar var á skotskónum þeg-
ar hann setti lítið spil heima og
slemman rann heim. Hún vinnst
reyndar með hvaða útspili sem er.
Danirnir létu sér nægja að spila út-
tekt á hinu borðinu og töpuðu því 13
impum á spilinu.
ísak Örn Sigurðsson