Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1996, Page 16
16
MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1996
Nemendur í 10. bekk í Hlíðaskóla:
Höldum okkur í
þessum veruleika
- það þarf tölvukennslu á íslensku í sex ára bekk
þeir.
Oft er rætt um að piltar gefi sig
meira að tölvum en stúlkur og voru
þeir félagar i Hlíðaskóla á því að sú
væri einmitt raunin. „Kannski er
þetta að breytast núna hjá yngri
krökkunum," segir Bjarki.
Semur tónlist á tölvur
„Það sem mér fínnst skemmtileg-
ast við tölvurnar er að semja tónlist
á þær og ég geri töluvert að því,“
segir Arnar. Hann virðist vera sá
eini af þeim félögum sem gæti hugs-
að sér að læra sérstaklega á tölvur
þegar lengra er komið í námi.
sem markmiðið er að lumbra dug-
lega á andstæðingnum með kraft-
miklum vopnum eru vinsælastir.
Uppáhaldsleikirnir eru því Doom og
Duke Nukelem. Þegar gengið er á
drengina kemur þó í ljós að þeir
hafa sumir gaman af leikjum þar
sem hugsun og skipulagning eru að-
alatriðið. Þar nefna þeir leiki eins
og Command and Conquer og
Warcraft. í þeim leikjum er vinsælt
að nota mótöld til þess að spila við
fjarstadda andstæðinga.
Þeir eru ekkert spenntir fyrir
sumum nýjungum sem eru í um-
ræðunni, til dæmis eru þeir ekkert
heillaðir af sýndarveruleika. „Við
höldum okkur bara í þessum veru-
leika,“ segir Bergur að lokum.
-JHÞ
Blaðamaður DV fór nýlega í
heimsókn í Hlíðaskóla þar sem
nokkrir krakkar voru að læra á
tölvur undir handleiðslu Einars
Hilmarssonar. Greinilegt var að
engum leiddist námið enda sögðu
krakkarnir að það væri mun
skemmtilegra að læra á tölvur en að
kynna sér hinar sívinsælu greinar,
stærðfræði og íslensku. Talað var
við þá Ólaf Ágúst Jensson, Arnar
Sigurð Hallgrímsson, Davíð Thor
Guðmundsson, Berg E. Benedikts-
son og Bjarka Þór Einarsson. Allir
telja þeir sig nokkuð vana á tölvur
enda slík tæki heima hjá þeim öll-
um og á flestum heimilum þar
sem þeir þekkja til.
Islensk tölvuorð
hallærisleg
vitað ekki að nota hana núna,“ seg-
ir Amar. Ólafur er sammála Arnari.
„Staðreyndin er sú að núna skilur
maður varla hvað íslensku orðin,
sem notuð eru yfir tölvur, þýða
enda hefur maður
lært þetta allt á
ensku,“ segir
hann. Það er
sömuleiðis
hans skoð-
un að það
sé orðið
of
seint
þremur til fjórum tímunum þó ef-
laust komi að því að við sjáum eitt-
hvað nýtt,“ segja þeir Ölafur og
Arnar. Þessu samsinna félagar
þeirra. Þeir segjast hafa lært mest á
fikti heima en benda á að það séu
margir í þeirra bekk sem eru
verr staddir í tölvumál-
um en
Það er skoðun
strákanna í Hlíða-
skóla að byrja þurfi
snemma að kenna á
tölvur á íslensku ef
ætlunin sé að um-
ræðan um þær sé á
íslensku. Flestir
þeirra, sem rætt var
við, höfðu kynnst
tölvum fyrst á
ensku og fannst því
erfiðara að læra á
slík tæki á is-
lensku. Reyndar
nefndu þeir að
þeim fyndist marg-
ar islenskar þýðing-
ar á tölvuorðum
frekar klúðurslegar.
„Þetta er oft virki-
lega hallærislegt,"
segir Ólafur. Amar
bætir því við að þetta sé spurning
um vana. „Ég hef vanist því að nota
tölvur á ensku þar sem ég er með
PC tölvu með Windows á ensku
heima hjá mér, ef maður hefði byrj-
að að læra á tölvur á íslensku og
það hefði ekki verið til nein enska í
tölvuheiminum þá værum við auð-
Nokkrir nemendur 10. bekkjar Hlíöaskóla í tölvunámi. F.v.: Bergur Ágúst Jensson, Bjarki Þór Elvarsson, Arnar Sig-
uröur Hallgrímsson, Davíð Thor Guömundsson og Ólafur Ágúst Jensson. Þeir gefa lítiö fyrir ævintýralega spá-
dóma um sýndarveruleika og vilja halda sig í þessum veruleika. DV-mynd BG
að byrja tölvukennslu á islensku i
10. bekk. „Það á að byrja strax á sex
ára krökkunum," segja þeir félagar.
Þeir eru almennt sammála um að
tölvukennsla eigi að byrja mun fyrr
í grunnskólanum en gert er. „Það á
líka að velja úr þá bestu í hópunum,
við höfum ekkert lært á fyrstu
Netið verður ruslakista
Allir eru þeir mjög spenntir fyrir
Internetinu og hafa allir notað sér
eitthvað enda er notkun þess kennd
í Hlíðaskóla. Aðallega hafa þeir not-
að Netið til þess að skoða heimasíð-
ur á Veraldarvefnum. Flestir þeirra
búast við því að Netið verði áhuga-
verður og gagnlegur miðill i fram-
tíðinni. Þeir búast þannig við að eft-
ir áratug muni fólk vinna heima hjá
sér við tölvuna í miklum mæli og
nota meðal annars Netið við slíka
vinna. Ekki eru þó allir jafnbjart-
sýnir á að Netið eigi sér glæsi-
lega framtíð. „Ég held að það
verði bara stór ruslakista í
framtíðinni, það verður til
dæmis aldrei þannig að
hægt verði að kaupa
hluti í gegnum Netið
enda verður Netið
aldrei öruggt fyrir
kreditkortanúmer
og svoleiðs. Ég held
að það sé engin
framtíð í því,“ segir
Bergur
Bardaga-
leikir
vinsælastir
Strákarnir
hafa allir gam-
an af leikjum og
þegar þeir eru
spurðir út í upp-
áhaldstitlana
sína kemur í ljós
að eiturharðir
skotleikir þar
Microsoft gegn Netscape:
l3njj'5l: ijjjj íjoíjO
- orrustan háð með vefskoðurum, miðlurum og stýrikerfum
Stýrikerfi:
Windows frá Microsoft er langvinsælasta stýrikerfi í heimi. Núna er Microsoft
aö setja vefskoöara sinn, Explorer 3.0, inn í þetta stýrikerfi.
Netscape hefur ekki framleitt sitt eigið stýrikerfi en ætlun fyrirtækisins er
aö breyta vefskoöara sínum, Navigator, í eitt slíkt. Netscape vonast einnig
til þess aö geta tengt síma og sjónvarp við netiö.
Vefskoðarar:
Þaö tók Microsoft einungis hálft ár að þróa vefskoöara sinn. Honum hef-
ur verið dreift ókeypis á Internetinu. Búist er viö nýrri og betri útgáfu um
næstu jól.
Vefskoöari Netscape, Navigator, er enn þá ráöandi á markaönum og nýtur
þess aö notendur sýna forritinu mikla hollustu. Þeir sem eru aö koma nýir
inn á Internetiö hafa meiri áhuga á hinúm ókeypis vefskoöara frá Microsoft.
Grunngerð netsins:
Microsoft hefur fjárfest í fyrirtækjum sem selja Internet þjónustu fyrir tug-
milljónir dollara. Microsoft vill því sinn hluta af gróöanum af því að dreifa
netinu til notenda.
Netscape er gengiö í liö meö öörum risafýrirtækjum sem vilja byggja upp
sitt eigiö hraövirka dreifingarkerfi fyrir Internetiö. Prófanir á þessu nýja kerfi
hefjast í lok þessa mánaöar.
Miðlarar:
Nýja stýrikerfiö frá Microsoft, Windows NT 4.0 Server, gerir venjulegum
einkatölvum kleift aö starfa sem miölarar (servers). Hingaö til hafa rándýr-
ar stórtölvur gegnt því hlutverki á Internetinu.
Forritiö FastTrak frá Netscape býöur upp marga af sömu möguleikunum og
Windows NT 4.0. Þaö býöur einnig öryggi fyrir tölvuþrjótum sé vefskoöari
Netscape notaöur.
DV
Enn ein nettölvan
Nú í september geta Banda-
f ríkjamenn keypt nýja tegund af
É Nettölvum sem eru sérhannað-
I ar fyrir fjölskylduna. Tölvan
' nefnist Pippin og það er Bandai
| Digital Entertainment sem
1 hannar og framleiðir tölvuna.
■ Eins og á öðmm slíkum tölvum
I er hægt að skoða veraldarvef-
| mn en á Pippin tölvunum má
| einnig leika sér í leikjum á
f geisladiskum.
Ozzy spjallar
Rokkgoðið Ozzy Osbourne
ætlar að spjalla við aðdáeundur
sína í gegnum Intemetið klukk-
an 21 þann 3. október næstkom-
andi. Hægt er að komast inn á
spjallið á slóðinni
www.ticketmaster.com en þeir
sem hafa áhuga geta farið inn á
þá síðu til þess áð taka þátt í
happdrætti þar sem þeir geta
unnið ýmis verðlaun sem tengj-
ast söngvaranum.
Tónlist
Aðdáendur tónlistarmanna
eins og Iggy Pop, Smashing
Pumpkins, Lenny Cravitz,
Crackers, Sex Pistols, Johnny
Lee Hooker og Getto Boys ættu
að skoða nýja vefsíðu Virgin
plötufyrirtækisins. Hún er á
slóðinni http://www.virginrec-
ords.com en þar má heyra lög
sem heyrast hvergi annars stað-
ar. Til dæmis má heyra Smas-
hing Pumpkins leika órafmagn-
aöa útgáfu af laginu Cherub
Rock, Iggy Pop leikur lagið Raw
Power á sviði og hægt er að
skoða myndasýningu frá tón-
leikum Sex Pistols og John Lee
Hooker.
Kvenna leitað
Tölvunarfræðideild Kaup-
mannaháskóla hefur gefist upp
á tilraunum sinum til þess að
laða konur til náms í deildinni.
Engar konur eru að læra tölv-
unarfræði í Kaupmannahafnar-
háskóla en forsvarsmenn deild-
arinnai- benda á að óvinsældir
þessara fræða meðal kvenna
séu alls ekki sérdanskt vanda-
mál. „Við vitum bara ekki hvað
við eigum að gera í þessu,
þannig að nú gerum við ekk-
ert,“ sagði talsmaður skólans.
Enn ein nettölvan
Nú í september geta Banda-
ríkjamenn keypt nýja tegund af
Nettölvum sem eru sérhannað-
ar fyrir fjölskylduna. Tölvan
nefnist Pippin og það er Bandai
Digital Entertainment sem
hannar og framleiðir tölvuna.
Eins og á öðrum slíkum tölvum
er hægt að skoða veraldarvef-
inn en á Pippin tölvunum má
einnig leika sér í leikjum á
geisladiskum.