Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1996, Blaðsíða 40
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1996
Akranes:
Reynt að
kveikja í
Grundarskóla
Reynt var að kveikja i Grundar-
skóla á Akranesi í gærkvöld. Búið
var að hrúga bréfadrasli við úti-
dyrahurð og leggja eld að. Eldvama-
kerfi skólans fór í gang og þegar
slökkvilið kom á staðinn var þar
töluverður eldur og reykur. Engar
teljandi skemmdir urðu á skóla-
byggingunni.
Að sögn lögreglu á Akranesi var
íkveikjan sennilega ekki í tengslum
við sigur Skagamanna í 1. deild.
Rólegt var í bænum enda telst það
varla til tíðinda að Skagamenn
vinni titla.
-JHÞ
Níræö kona mjaðmarbrotnaði á sjúkrahúsinu á Húsavík:
Ekki til nóg af
öryggisgrindum
á rúm sjúklinga
- segir Sigvaldi Jónsson, sonur konunnar
Tæplega níræður Húsvíkingur,
Kristín Sigvaldadóttir, var flutt á
sjúkrahúsið á Húsavík eftir að
hafa dottið heima hjá sér I síðustu
viku án þess þó að brotna. Aðfara-
nótt laugardags féll Kristín svo
aftur og þá fram úr rúmi sínu á
sjúkrahúsinu og mjaðmarbrotn-
aði. Engin grind var á rúminu til
að vama því að hún félli fram úr.
Um hádegisbilið á laugardag var
hún því send á Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri þar sem hún átti
að gangast undir aðgerð.
„Mér var sagt að það hefði ekki
verið til grind á sjúkrahúsinu til
að hafa fyrir framan rúmið - það
væru ekki til grindur fyrir öll
rúm. Ég var mjög hissa á því að
það skyldu vera svona slysagildr-
ur á sjúkrahúsum. Manni frnnst
að það hljóti að vera hægt að gera
eitthvað til að draga úr hætt-
unni,“ segir Sigvaldi Jónsson, son-
ur Kristínar.
„Mér finnst ólíklegt að það séu
ekki tO grindur á öll rúm á sjúkra-
húsinu. Það er alveg ljóst að þetta
er það síðasta sem við myndum
spara. Við hækkuðum öll handrið
fyrir ekki mjög löngu. Það kostaði
mikið og var nauðsynlegt öryggis-
atriði. Það hlýtur að vera eitthvað
annað sem þarna kemur tO. Við
pössum upp á öryggi sjúkling-
anna,“ segir Friðfinnur Her-
mannsson, framkvæmdastjóri
Sjúkrahússins á Húsavík.
Friðfinnur var nýkominn í bæ-
inn þegar DV hafði samband við
hann og hafði ekki fengið fréttir af
slysinu.
Samkvæmt upplýsingum DV
liggur Kristín Sigvaldadóttir enn
á sjúkrahúsinu á Akureyri og er
líðan hennar þokkaleg.
-GHS
Akumesingar fógnuðu vel í gær þegar knattspyrnulið þeirra vann islandsmeistaratitilinn fimmta árið í röð. Sig-
urvíma skein úr hverju andliti og eins og myndin ber með sér eru heimamenn svo sannarlega í sjöunda himni.
DV-mynd ÞÖK
L O K I
Veðrið á morgun:
Léttskýjað
víðast hvar en
smáskúrir
vestast
Á morgun verður fremur hæg
vestlæg átt, skýjað að mestu og
smáskúrir eða dálítil súld allra
vestast og við ströndina norð-
austan tO. Annars verður létt-
skýjað víðast hvar. Hiti verður
á bilinu 3 tO 10 stig, kaldast um
landið norðanvert.
Veðriö í dag er á bls. 44.
Byggðastofnun:
Grundvöllur
vinnubragða
- segir formaður
„Mér finnst að með þessari
skýrslu Ríkisendurskoðunar sé
kominn góður gi'undvöUur tO þess
að fá ferskari og nýtískulegri vinnu-
brögð í þessari stofnun," segir EgOl
Jónsson, alþingismaður og formað-
ur stjórnar Byggðastofnunar, en
hann óskaði á sínum tíma eftir
þeirri stjórnsýsluendurskoðun á
starfsemi Byggðastofnunar.
EgiU segir niðurstöður Ríkisend-
urskoðunar ekki koma sér á óvart og
þegar hann var spurður hvort hann
væri sammála því sem Ríkisendur-
skoðun legði tO, að stofnunin yrði í
raun svipt sjáliræði og færð undir
forsætisráðherra, kvaðst hann mjög
vel geta feUt sig við slíkt fyrirkomu-
lag. „Ég hef sagt við samstarfsmenn
mína að það væri leið tO markviss-
ari og skOvirkari vinnubragða að
stofnunin yrði sérstök deOd innan
forsætisráðuneytisins." -SÁ
Björg féliu
í Óshlíð
Nokkur stór björg féllu á veginn
um Óshlíð við Sporhamar um níu-
leytið í gærkvöld. Að sögn lögreglu
í Bolungarvík voru engir bUar á
veginum þegar grjótið féU. -JHÞ
Stúlka handtekin
fyrir hnífstungu
Sextán ára stúlka, sem er grunuð
um að hafa stungið 15 ára dreng í
bakið aðfaranótt laugardags, var
handtekin í gær. Stúlkan er nú í
vörslu lögreglu. Meint líkamsárás á
að hafa átt sér stað í kirkjugarðin-
um við Suðurgötu. Drengurinn var
nokkuð sár en hefur verið útskrifað-
ur af sjúkrahúsi.
-JHÞ
Slökkvilið á
haustblót
SlökkvUiðið á Kjalarnesi var kaU-
að út sl. föstudagskvöld en tilkynnt
var um eld í Tíðaskarði. Slökkvilið-
ið brást fljótt við og hélt á staðinn
en ekki reyndist ástandið vera al-
varlegt þar sem þarna var á ferð
haustblót hjá Ásatrúarfélaginu. í
ljós kom að félagsmenn höfðu
kveikt bál mikið og blótuðu haust
með dansi í kringum það.
Þegar slökkvOiðið komst tO botns
í málinu hélt það heim á leið.
-ggá
tSKNOieifl
1
533-1000
r
Kvöld- og
helgarþjónusta
NSK
kúlulegur
Powlsen
Suðurlandsbraut 10 - Simi 568 6499