Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Side 2
2
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 DV
fréttir_________________________________________
Brýrnar á Skeiðarársandi:
Byggðar til að stand-
ast stórar ákomur
- mikið má ganga á til að þær eyðileggist
Brýrnar löngu á Skeiöarársandi,
og raunar vegurinn yfir hann
einnig að nokkru, eru hannaðar
með það fyrir augum að standast
talsverð hlaup, eins og þær hafa
reyndar sýnt sig í að gera, saman-
ber hlaupið í apríl í vor. En þó að
hlutar brúnna skemmist þá er langt
í frá að brýrnar í heild séu ónýtar.
„Þó að stöplar eyðileggist eða hlutar
yfirbyggingar brúnna þá þýðir það
alls ekki að allt sé ónýtt sem gert
hefur veriö,“ segir Helgi Hallgrims-
son vegamálstjóri.
Brúin yfir Skeiðará er lengsta
brúin á sandinum og hvílir gólf
hennar á stálbitum, sem hvíla á 21
stöpli, alls 20 höf, en hver stöpull er
mikið mannvirki í sjálfu sér og neð-
an undan hveijum þeirra ganga
langir staurar 12-14 metra niður í
sandinn. Hvert brúarhaf er 24 metra
langt, þannig að ekki vantar mikið
upp á að brúin sé hálfur kílómetri
að lengd.
Að sögn vegamálastjóra er brúin
smiðuð í bútum á þann hátt að yfir-
bygging hennar er smíðuð í fimm
hlutum eða einingum sem hver nær
yfir fjögur höf. „Ef eitt hafið eyði-
leggst, t.d. þannig að stöpull fer und-
an, eða ísjaki kemur og eyðileggur
bitann í einu hafi, þá hefði það áhrif
á yfirbygginguna yfir þau fjögur höf
sem yfirbyggingin nær, en án þess
að nein bitahöf beinlínis færu for-
görðum," segir vegamálastjóri.
-SÁ
Fæöing í háloftunum:
Erfitt að fæða við
þessar aðstæður
- segir móöirin, Guðlaug Óskarsdóttir
styttra er að fljúga.
Barnið vildi hins vegar ekki bíða
lendingar á Akureyri og fæddist á
meðan á fluginu stóð. Hildur ljós-
móðir og Lilja Aðalsteinsdóttir
hjúkrunarfræðingur tóku á móti og
gekk fæðingin vel.
Bamið, sem flýtti sér svona mik-
ið, er stúlka, hraust og heilbrigð, 18
merkur og 54 cm.
Foreldrarnir em Guðlaug og
Skúli Skaftason frá Fáskrúðsfirði og
eiga þau fyrir strák og stelpu. Að
sögn Óskars Gunnarssonar, afa
ferðalangsins litla, var ósköp erfitt
að bíða heima eftir fréttum og léttir-
inn ólýsanlegur þegar allt var um
garð gengið.
Flogið var með þær mæðgur til
Akureyrar þar sem sú litla var
skoðuð og síðan var flogið til Egils-
staða með sömu vél en ekki var
hægt að lenda þar vegna myrkurs.
Þá var ekið með þær til Neskaup-
staðar þar sem þær dveljast nú á
sjúkrahúsinu i góðu yfirlæti og hvíl-
ast eftir allt ferðalagið.
Þau systkinin fengu að ráða nafn-
inu á litlu systur og hefur hún ver-
ið nefnd Kristín
DV, Neskaupstað
„Það var auðvitað erfitt að fæða
við þessar aðstæður en að afstöðnu
ævintýrinu ríkir hamingja í fjöl-
skyldunni og „stóru“ systkinin eru
ánægð með litlu ferðadrottning-
una,“ segir Guðlaug Óskarsdóttir
sem fæddi stúlkubam við vægast
sagt frumlegar aðstæður þar sem
fæðingin átti sér stað í flugvél á leið
til Akureyrar. Að sögn Guðlaugar
var bamið ekki búið að skorða sig
þegar dró að fæðingu á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Neskaupstað. Ljós-
móðirinn, Hildur Halldórsdóttir, ák-
vað þá að senda móðurina til
Reykjavíkur þar sem skurðlæknir
var ekki til staðar á Neskaupstað.
Þá var ljóst að svo nálægt fæðingu
var komið að
ákveðið var
að senda
móður-
ina
frekar
til Ak-
ureyr-
ar
þangað
Systkinin öll saman. frá vinstri: Hildur Ósk meö Kristinu Jónu og Skafti
Svavar. DV-mynd SJG
Sýningin Prentmessa '96 var opnuö í Laugardalshöll í gær. Par sýna yfir 30
aöilar þaö nýjasta í fjöimiölun, útgáfu, grafískri hönnun, prentun, margmiöl-
un og tölvubúnaöi. Sýningunni lýkur á morgun. Á myndinni kynnir Björn
Bjarnason menntamálaráöherra sér tölvuvædda og fjarstýröa Ijósritunarvél
í bás ACO. DV-mynd Pjetur
Stofnun heildarsamtaka hestamanna líkleg:
Yfirgnæfandi meirihluti
vill sameiningu
- segir Sigurður Magnússon
„Markmiðiö með sameiningu
yrði að breyta því kerfi að það em
tvö landssambönd í málefnum
hestamanna. Við erum búnir að
vera að kynna þessa hugmynd um
allt land og það hefur verið tekið
mjög vel í hana. Kynningarfúndirn-
ir og ummæli fólks um allt land
sýna að yfirgnæfandi meirihluti vill
sameiningu," segir Sigurður Magn-
ússon, formaður nefndar sem sett
var á laggimar á þingi Landsam-
bands hestamanna í fyrra til aö
leita leiða til sameiningar nýrra
heildarsamtaka hestamanna, þ.e. að
sameina Landssamband hesta-
manna og Hestamannasamband ís-
lands.
Nefndin mun skila áliti sínu á
þingi Landssambands hestamanna
þann 20. október nk. og mun mæla
þar með sameiningu.
Einfaldari starfsemi
„Við viljum gera alla starfsemina
einfaldari og þar með skilvirkari
þannig að hægri höndin viti hvað
sú vinstri er að gera og menn séu
ekki að þinga á sitt hvorum staðn-
um og í samtökunum um sömu mál-
in. Þá er ljóst að með sameiningu er
verið að gera þetta fjárhagslega hag-
stæðara.
Það er auðvitað undir þinginu
komið hvað gerist. Viö skilum
þessu til þingsins og það er alveg
skýrt og skorinort að við leggjum til
sameiningu og í hvaða formi það
skal verða. Svo er það ákvörðun
þingsins hvað skal gera. Ég tel yfir-
gnæfandi líkur á að sameiningin
verði samþykkt," segir Sigurður.
Hef efasemdir
„Mér finnst málefni hestamanna í
góðu lagi með því fyrirkomulagi
sem við höfum í dag. Eins og málið
er lagt upp með stofhun nýrra heild-
arsamtaka hafa þau aðeins einn ör-
uggan tekjustofn en mikil óvissa
ríkir um aðra. T.d. munu félagsjöld-
in, sem hafa verið uppistaðan í tekj-
um Landssambands hestamanna,
hverfa. Ég hef miklar efasemdir
varðandi þetta sameiningarskref ef
að því verður," segir Guðmundur
Jónsson, formaður Landssambands
hestamanna, við DV um málið.
-RR
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Ji 1 Nel gj
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Á íslenska ríkið að halda
úti presti á meginlandi
Evrópu?
j rödd
FOLKSINS
904 1600
w;
Tekur þú undir kröfur
þingflokks Jafnaðarmanna um
veiðileyfagjald?
Gosið á Vatnajökli:
Sama eld-
virkni og
verið hefur
- mikið hvassviðri viilti um
Gosvirkni á Vatnajökli hélt
áfram í gærdag og var með mjög
svipuöum hætti og undanfama
tvo sólarhringa samkvæmt mæl-
um Raunvísindastofhunar.
í útvarpsfréttum í gær kom
fram að gos hefði hætt í þeim
gíg sem gosið hefur úr undanfar-
ið. Mikið hvassviðri var hins
vegar á jöklinum fram eftir degi
en þegar lægði flaug flugvél
Flugmálastjórnar yfir svæðið og
úr henni sást að ekkert lát var á
gosinu.
Bryndís Brandsdóttir jarðeðl-
isfræðingur sagði síðdegis í gær
að samkvæmt mælum væri ekk-
ert lát á eldvirkninni og aðspurð
hve lengi mætti búast við að
hún endist segir hún að nánast
ómögulegt sé að spá um það þar
sem svæðið sé mjög óstöðugt,
allt frá nokkrum dögum í nokkr-
ar vikur. Þá gæti allt eins hætt
að gjósa á núverandi stað og far-
ið að gjósa annars staðar í
stuttar fréttir
SKennarar mótmæla
Fulltrúaráð Hins íslenska
j kennarafélags hefur sent frá
■; ályktun þar sem fyrirhuguöum
J niöurskurði á fé til framhalds-
| skólanna er harðlega mótmælt
! og þess krafist að fallið veröi
i frá honum nú þegar.
ÍS í Bandaríkjunum
j; íslenskar sjávarafurðir hafa
I ákveðið að byggja nýja og full-
j komna fiskréttaverksmiöju í
Newport News í Virginíu í
• Bandaríkjunum og færa höfuð-
j stöðvar Iceland Seafood þangað
| frá Camp Hill í sama fylki.
Klofinn R-listi
Meirihluti R-listans í heil-
; brigðisnefiid borgarinnar klofn-
í aði í gær þegar afgréidd var til-
< laga um að veita Ármannsfelli
| undanþágu varðandi hávaða-
mörk í þremur stórhýsum í
Laugarnesi. Samkvæmt RÚV
a hefur einn R-listamaður sagt
| sig úr nefndinni.
Samiðn fundar
Stjóm Samiðnar, sambands
| iðnfélaga, sendir í dag frá sér
1 sameiginlega kröfugerö aðildar-
J félaganna fyrir komandi kjara-
I samninga.
Þúsund bílar
Fyrstu níu mánuði ársins
voru ríflega 1 þúsund bílar
I fluttir inn til landsins sem er
| fjórfalt meiri innflutningur en
eftir sama tíma í fyrra. Þetta
kom fram í Mbl.
Fimmfalt lottó
Fyrsti vinningur í Lottói 5/38
er fimmfaldur í kvöld og verður
jj' áreiðan vel á annan tug millj-
l óna króna. Þetta er í fjórða sinn
á árinu sem lottóið er fimmfalt.
Ólafur í Hollandi
Forseti íslands, Ólafur Ragn-
| ar Grímsson, opnaði sýningu
| um norræna landkönnuði í
3 Hollandi í gær í boði norrænu
í ráðherranefndarinnar.
Kindur eða börn?
í umfjöllun þýskrar sjón-
varpsstöðvar um gosið í Vatna-
j jökli var talað um að bömum
' hefði verið bannað að leika sér
i utandyra. Engum nema kind-
t um hefur verið meinuð útivist
í þannig að eitthvað hefur þýð-
i ingin skolast til því þýska orðið
| yfir böm er kinder. RÚV
1 greindi frá.
-bjb