Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 15 > ► > ) I ) I I I i kennslu í Fred Astaire-dansstúdíói í Hartfort í Connecticut í eitt ár og tekur þar við íramkvæmdastjórn um áramót. í nóvember fer Anna Björk Jónsdóttir, fyrrum dansfélagi Gunnars, til hans og mun hún kenna við sama skóla. Dansskólinn byggist aðallega upp á einkakennslu en einnig á hópkennslu. í skólanum eru á milli 150 og 200 nemendur sem sjö kennarar sjá um að kenna. Gunnar var nýkominn heim frá Englandi þegar honum bauðst að fara utan en Anna Björk varð eftir þar sem þau voru óbeint hætt að dansa saman. Hann vissi að hann gæti ekki hætt alveg. „Ég var á tímamótum í lífl mínu þegar íris hringdi í mig og bað mig að koma. Ég kenni dans og nota þekkingu mína til þess. í staðinn fæ ég kennslu í rekstri og fram- kvæmdastjórn á dansskólanum sem ég tek líklega við um áramótin. Ég hef lært afskaplega mikið á þessum tíma og ég verð þarna allavega eitt og hálft ár í viðbót,“ segir Gunnar. Anna Björk og Gunnar keppa aftur Anna Björk og Gunnar ætla að æfa af krafti aftur þegar hún verður komin utan til hans og þau stefna á að keppa áfram fyrir hönd íslands. Gunnar tók kennarapróf í dansi, svokailað Fred Astaire-próf, áður en hann fékk að kenna í skólanum. Danskennslan er svolítið öðruvísi í Ameríku en þar er dansaður suður- amerískur dans sem er örlítið frá- brugðinn þeim sem dansaður er á íslandi og er alþjóðlegur. Gunnar er mjög ánægður með að hafa getað gert dansinn að atvinnu sem ekki er líklegt að hann hefði getað heima á íslandi þar sem dansskólar eru mjög margir og samkeppnin á miili skóla mikil. „Ég hef fundið leið til þess að gera dansinn að atvinnu. Ég vissi alltaf að ég vildi verða atvinmunað- ur í dansi en mig langaði til þess að prófa eitthvað annað en boðið er upp á á íslandi. Ég gat ekki annað en gripið tækifærið þegar það kom upp í hendurnar á mér. Það er mjög skemmtilegt að stunda dansinn héma. Þetta er mjög gott tækifæri til þess að búa í út- löndum en græöa samt peninga og lifa góðu llfi. Ég er á mjög góðum launum og myndi aldrei ná sömu launum á íslandi. Fyrir utan það er miklu ódýrara að lifa hérna. Eig- andi dansskólans segir að það sé tækifæri fyrir aUa sem kunna að dansa að gera nákvæmlega það sem ég er að gera. Það vantar góða dans- ara víðar í Bandaríkjunum. Hópur- inn sem þarf aö sinna er mjög stór,“ segir Gunnar. Nýsmitaður golfari í Hartfort búa í kringum 250 þús- und manns. Gunnar segir að að- staða til golfiðkunar sé nokkuð góð í Hartfort og hann sé byrjaður að stunda það þar sem hann hafi alltaf langað til þess að prófa það. „Ég keypti mér golfsett og spila tvisvar, þrisvar í viku. Ég er farinn að hitta kúluna. Ég er ekki eins hæfileikaríkur í golfinu og í dansin- um. Maður veit ekki hversu erfitt golf er fyrr en maður byrjar að spila það,“ segir Gunnar. Hann segir að ef dansarar á ís- landi hafi áhuga á að spreyta sig í útlöndum sé þeim óhætt að tala við sig. Hann er tilbúinn til þess að leið- beina íslenskum dönsurum. Gunnar verður trúlega framkvæmdastjóri dansskólans í Hartford á meðan eig- endurnir gera trúlega eitthvað ann- að. Hann var á leið til Cancun í Mexíkó á fund með öðrum yfir- mönnum skólans þegar DV sló á þráðinn til hans. Lftil tækifæri heima Anna Björk heldur utan fimmta nóvember og hlakkar hún mjög til þess að takast á við dansinn aftur en hún hefur verið í dálitlu fríi. Meiningin er að Gunni og Anna Björk dansi saman og jafnvel aug- lýsi fyrir dansskólann. „Ég verð á mjög góðum launum til að byrja með. Ég get vonandi unnið mig upp í yfirmannsstöðu i nýja skólanum sem verður opnaður bráðum. Ég læri áreiðanlega mjög mikið á þvi að vera þama og verð vonandi i góðri þjálfun og búin að ná mér í nafn þegar ég kem heim,“ segir Anna Björk. Hún er í sömu stöðu og hin en hana langar til þess að starfa sem danskennari í framtíðinni. Hún set- ur fyrir sig að námið tekur fjögur ár hér á landi þar sem nemar eru á samningi með lítil laun hjá ein- hverjum skólanna. í Bandaríkjun- um getur hún hins vegar tekið próf- in beint og nýtt sér þá gífurlega löngu dansreynslu sem hún hefur. Anna Björk leggur áherslu á að * dans munurinn á verðlaunum á íslandi og í Bandaríkjunum sé sá helstur að þar eru há peningaverðlaun en á ís- landi eru það verðlaunapeningar og farandbikarar. „Tækifærin era fá fyrir dansara á íslandi. Hver sem er getur labbað inn í dansskóla og hafið danskenn- aranám þó viðkomandi hafi aldrei dansað. Það tekur mig jafnlangan tíma að verða danskennari og þetta fólk þó að ég hafi dansað nánast alla ævi. í Bandaríkjunum hef ég tæki- færi til þess að komast fram hjá þessu,“ segir Anna Björk. -em Anna Björk og Gunnar byrja aftur aö dansa saman f nóvember. DV-myndir ÞÖK Hafðu fyrirvara! Pantaðu tímanlega nHlllli WÁIÍH ELDSHÖFÐA17 W®lln? SÍMI 587 5128 KIENZLE EES ökurita færð þú hjá okkur! Dlock D.I.V.A.-skjórinn er með myndmöskva úr nýju efni INVAR, sem er sérsfaklega hifaþolið. Þessi nýja fækni fryggir nókvæma lifablöndun og meiri skerpu, ðsamf bjarfari mynd. Telefunken S-540N er með: • 29" Black D.I.V.A-hógæðaskjá • Zimena Zoom - tveggja þrepa sfækkun • 40 W Nicam Surround Sfereo Sísfillf móffoko: Móffaka á sjónvarpsefninu er sísfillf með sérsfökum hraðvirkum örgjörva, sem fryggir að allf flökf á mófföku er leiðréff, þannig að myndgæðin eru ávallf frygg. • Allar aðgerðir birfasf á skjá • Fjölkerfa móffaka - Pal, Secam, NT5C • 2 Scarf-fengi • Myndavélafengi að framan • Tengi fyrir tvo Surround-bakhátalara TELEFUNKEN Tilboðsverð 114.800,- stgr- Skipholti 1 9 Sími: 552 9800 Grensásvegi 1 1 Sími: 5 886 886 TELEFUNKEN Black D.I.V.A.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.