Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 49 Fatnaður og skór á góðu verði í Edinborg er hægt að fá kvenskó frá tæpum 2 þúsund | krónum upp í 10 þúsund og þar yfir. Vandaða skó má fá rétt undir 4 þúsund krónum. Ný- tísku kápur úr kasmírullar- blöndu kosta frá 8 þúsund krón- um. Siðbuxur og pils úr þokka- legum efnum er hægt að fá fyr- ir rúmar 2 þúsund krónur. Barnafatnaður er án söluskatts. Gómsæt skosk lifrar- pylsa og annar matur Skotar búa til lifrarpylsu eins og íslendingar og troða í vömb. En „pylsan“, sem þeir nefna haggis, er lausari í sér en Isú íslenska, magrari og meira krydduð. Hún er hið mesta lost- æti, borin fram með rófustöppu og kartöflumús. Hægt er að fá lifrarpylsuna í forrétt og kostar þá skammturinn tæpar 200 krónur. Aðalréttir, skoskir og alþjóð- legir, kosta oft um 500 krónur á krám og veitingastöðum og eru skammtarnir stórir. Ekki er óalgengt að fá þriggja rétta mál- tíð undir eitt þúsund krónum. Söfn fyrir viskíunn- endur, bókaorma og smáfólk í gamla bænum í Edinborg er sérstakt viskísafn þar sem gest- ir fá að kynna sér sögu viski- framleiðslunnar og kaupa veig- ar. Sérstakt rithöfundasafn, Writers Museum, hefur verið sett á laggirnar til að heiðra minningu þriggja skoskra skálda, Roberts Burns, Sir Walters Scotts og Roberts Louis Stevensons. Leikfangasafii fyrir smáfólkið og stór börn, sem vilja rifja upp leiki bemskunn- ar, er vinsæll viðkomustaður sem og dýragarðurinn í Edin- borg. Hótel í hjarta borgarinnar Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn býður viðskiptavinum sínum gistingu á góðum hótelum í Edinborg sem flest era í hjarta borgarinnar. Frá Hiltonhótel- inu er ekki nema 10 mínútna gangur á aðalverslunargötuna. Apexhótelið er nýtt hótel í gamla bænum og þaðan er ekki heldur langur gangur í helstu búðirnar. Jarvis Mount Royal hótelið er á sjálfu Princes Street og King James Thistle hótelið er við austurenda henn- ar. Er innangengt frá hótelinu í stóra verslunarkeðju. Edinborg: Engri annarri lík „Edinborg hefur haft mikil áhrif á okkur; hún er mjög falleg, gjörólík öllu öðru sem ég hef séð; og það sem meira er, Albert, sem hefur séð svo margt, segir hana ólíka öllu öðru sem hann hefur séð.“ Þessi orð eru höfð eftir Viktoríu Bretlandsdrottn- ingu eftir heimsókn hennar og eig- inmanns hennar, Alberts, til Edin- borgar um miðja siðustu öld. Þeir sem koma til Edinborgar í dag taka undir þessi orð drottningar og maka hennar. Borgin er ákaflega falleg og ferða- langar finna stöðugt fyrir nálægð sögunnar. Frá kastalanum, sem gnæfir yfir borgina, niður að höll- inni, sem er opinber dvalarstaður Elísabetar drottningar í heimsókn- um hennar til Edinborgar, ganga vegfarendur nánast í fótsporum kónga, drottninga og óbreyttra borg- ara liðinna alda. Margir frægir pyntaðir og drepnir Kastalinn hefur verið nátengdur sögu Skotlands í níu aldir og í hon- um hafa margir frægir menn verið pyntaðir og drepnir. Einni byggingu kastalans var hlíft í óvinaárásum. Það var kapella Margrétar drottn- ingar sem var uppi á síðari hluta 11. aldar. Talið er að Margrét hafi hitt eiginmann sinn, Malcolm III Skotlandskonung, er hann var send- ur til ensku hirðarinnar eftir að Macbeth hafði myrt Duncan föður hans. Sé farið í helgarferð til Edinborg- ar er tilvalið að velja morgunstund til að skoða kastalann. Ýmsir at- burðir sögunnar eru settir á svið með litlum leikmyndum í einni byggingu kastalans en krúnudjásn- in, sem eru til sýnis, eru ekta. Glæsilegt hemaðarsafn er í kastal- anum og fallbyssa frá 15. öld sem Skotar eru stoltir af, þó svo að talið sé að hún komi frá Belgíu. Royal Mile er gatan kölluð sem liggur frá kastalanum niður að höll- inni, Palace of Holyroodhouse, sem einnig á sér merka og blóðuga sögu. Draugaganga í gamla bænum Að kvöldlagi gefst tækifæri til að kynna sér gamla bæjarhlutann og dekkri hliðarnar á lífi hinna al- mennu borgara í svokallaðri draugagöngu sem reyndar er hin besta skemmtan. Leikarar segja sög- Minnismerki um rithöfundinn Walter Scott er á Princes Street, helstu versl- unargötu Edinborgar. DV-mynd IBS ru af nomum, aftökum og öðrum at- burðum liðinna alda. Gangan tekur um það bil klukkustund og er farið hægt yflr. Upplýsingar um hvaðan lagt er upp má fá á hótelum. Meðal þess sem sögumaður segir frá er líkstuldur í borginni á síðustu öld. Læknanemar fengu ekki nema eitt lík til krufningar á ári og keyptu því lík af þjófum sem létu greipar sópa í kirkjugörðum. Til að koma í veg fyrir þetta athæfi var reistur varðturn í einum kirkju- garðanna og stendur hann enn. Bí- ræfnustu sölumennimir áttu það til að lokka til sín þyrsta samborgara og feröamenn og veita þeim veigar. Síðan var hinum grunlausu komið fyrir kattamef og líkin seld lækna- nemum. Vinsæl krá við aftökutorg Til að ná úr sér hrollinum eftir litríka frásögn sögumanns, sem göngumenn era látnir taka þátt í, er gott að ylja sér á hlýrri krá, jafnvel þó hún heiti The Last Drop, Síðasti dropinn, og sé við torgið þar sem af- tökur fóru fram, Grassmarket. Krá- in er vinsæl og það er einnig írska kráin Finnegan’s Wake á Victoria Street. Þegar fer að líða á kvöld um helg- ar myndast þar biðröð. Stemningin innandyra er hin fjörugusta. Finger á Frederick Street er píanóbar þar sem lög sjöunda og áttunda áratug- arins eru spiluð. Píanóleikarinn er flinkur og er ekki í vandræðum með að leika óskalög gesta. Búðaráp auðvelt milli glæsilegra versl- ana Búðaráp í Edinborg er auðvelt. Allar helstu verslanirnar sem selja fatnað eru á einni götu, Princes Street. Við vesturenda götunnar er vöruhúsið House of Fraser sem sel- ur mjög vandaðan fatnað. Við aust- urendann er „kringlan" St. James með fjölda góðra verslana. Á Princes Street er einnig Jenn- ers vöruhúsið sem er elsta vömhús í heimi með sérverslanir. Þar má fá gæðavöru. Á Thistle Street fást antik skartgripir og á Royal Mile eru verslanir með skoskum varn- ingi af öllu tagi, þar á meðal viskíi sem fæst hvergi annars staðar. Á St. Stephens Street eru margar antikverslanir. Smáverslanirnar á Victoria Street í gamla bænum eru heimsóknar virði. Þó svo að ekki þurfi að fara langar vegalengdir er ekki útilokað að ferðalangar verði þreyttir í handleggjunum af poka- burði. Auðvitað er hægt að setjast inn á kaffihús eða krá en vilji menn ró og næði í smástund er kirkjan St. Johns góður griðastaður. Bekkirnir eru bólstraðir og þar er hægt að hvíla lúin bein og nudda verkinn burt úr öxlunum um leið og fegurð- ar kirkjunnar er notið. Þegar út er komið má gjóa augunum á turninn í kirkjugarðinum við St. Johns þar sem varðmaður sat til að fylgjast með líkþjófum. -IBS Edinborgarkastali gnæfir yfir borgina. Margir frægir menn voru pyntaðir og drepnir í honum. Victoria Street í gamla bænum er sjarmerandi verslunargata meö mörgum litlum sérverslunum. DV-mynd IBS Sögumaöur í draugagöngunni segir frá dekkri hliöum íbúa fyrri alda. DV-mynd IBS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.