Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 Jj"V
60 Qéttir
Stefán Hrafn Magnússon, hreindýrabóndi á Grænlancjj:
Vill rækta hreindýr á Islandi
- innanvert ísafjarðardjúp kemur sterklega til greina
Stefán Hrafn Magnússon er hrein-
dýrabóndi á Grænlandi og rekur
þar fyrirtæki sem heitir Isortoq
Reindeer Station. Isortoq er í
óbyggðum Julianeháb kommune á
Suður-Grænlandi. Nú hefur hann
áhuga á að útvíkka starfsemina og
telur ísland vænlegan kost til hrein-
dýraræktar, og þá kannski ekki síst
grösugar sveitir við innanvert ísa-
fjarðardjúp. Stefán er með 3000 dýr
í hjörð sinni og var önnum kafinn
við slátrun og frágang á kjöti þegar
blaðamaður talaði við hann um
helgina. Kjötið selur Stefán að
mestu á innanlandsmarkaði á
Grænlandi en seldi þó hálft annað
tonn til íslands í fyrra. Nægur
markaður virðist vera fyrir hrein-
dýrakjöt víða um lönd og verðið er
mjög gott, hátt í 400 krónur íslensk-
ar kílóið. Stefán Hrafn Magnússon
er 40 ára Reykvíkingur og útskrifað-
ist frá Bændaskólanum á Hvann-
eyri 1974. Átján ára gamall fór hann
til Grænlands og starfaði þá talsvert
með Óla Christiansen sem fyrstur
manna flutti hreindýr til Græn-
lands, fyrst í stað 150 dýr. Þar
kviknaði áhugi Stefáns fyrir hrein-
dýrarækt og hélt hann því til Nor-
egs í byrjun desember 1975 til að
læra þennan búskap. í Skandinavíu
var Stefán svo í fimm ár, m.a. á
hreindýraslóðum í Finnmörku, Jöt-
unheimum og víðar. Hann útskrif-
aðist svo vorið 1979 af hreindýra-
ræktarbraut i menntaskóla í Norð-
ur-Svíþjóð og hélt þá aftur til Græn-
lands. Síðan hefur Stefán starfað
víða, m.a. við hreindýrarækt í
Alaska og sem flugmaður í útkjálka-
héruðum Kanada. Það var svo árið
1989 að hann keypti sin fyrstu 250
hreindýr til að hefja búskap á
Grænlandi og fékk 250 dýr lánuð til
viðbótar frá vini sínum, Óla Christ-
iansen, og reka þeir nú saman
hreindýrastöðina í Isortoq. Stefán
kemur innan tíðar til íslands og hef-
ur mikinn hug á að setja upp hrein-
dýrastöð við ísafjarðardjúp eða þar
sem leyfi fæst til slíkrar starfsemi.
Þar yrði um skipulagða ræktun
hreindýra að ræða til kjötfram-
leiðslu. Auk kjöts fellur tii mikið af
skinnum og homum sem Grænlend-
ingar hafa nýtt á ýmsa vegu. Þá seg-
ir Stefán að yfirvöld séu jákvæð fyr-
ir þessum hugmyndum en hann
mun þá helst hafa í huga að nýta
þann hreindýrastofn sem fyrir er í
landinu. Stefán telur engan vafa ,á
að slíkur búskapur sé mögulegur á
íslandi. ísafjarðardjúp er kannski
ekki síst áhugavert fyrir þær sakir
að þar er grösugt. Hreindýr gætu lif-
að góðu llfi á því beitilandi við Djúp
sem er sífellt minna nýtt í kjölfar
samdráttar í búskap á svæðinu.
Hreindýrabúskapur gæti orðið lyfti-
stöng fyrir byggð við ísafjaröardjúp
sem flest bendir til að fari með öllu
í eyði á næstu árum.
-HK
Stefán Hrafn Magnússon er hreindýrabóndi á Grænlandi og rekur þar fyrirtæki sem heitir Isortoq Reindeer Station.
Isortoq er í óbyggðum Julianeháb kommune á Suður- Grænlandi. Nú hefur hann áhuga á að útvíkka starfsemina og
telur ísland vænlegan kost til hreindýraræktar, og þá kannski ekki síst grösugar sveitir við innanvert ísafjarðardjúp.
DV-mynd
Leikfélag Akureyrar
Strætó milli staða á Vestfjörðum:
Mest notað í
kringum flugið
Lítið er um að fólk notfæri sér
þjónustuna, utan þess þegar um er
að ræða ferðir í kringum flugið.
Stefán segir að nýju jarðgöngin boði
byltingu i samgöngum og mannlífi
Vestfirðinga.
„Göngin breyta nánast öllu hér.
Þetta er bylting sem opnar marga
möguleika því nú kemst fólk á milli
staða hvenær sem er,“ segir Stefán.
-rt
Stefán Jónsson við bíl sinn. Hann fer þrisvar á dag milli byggðarlaga í Isa-
fjarðarbæ. DV-mynd BG
Leiðrétting:
DV, Flateyri:
„Fólk notar þetta mest í kringum
flugið. Við förum þrisvar á dag milli
ísafjarðar, Flateyrar og Þingeyrar,"
segir Stefán Jónsson, bílstjóri hjá
Allrahanda sem heldur uppi reglu-
bundnum áætlunarferðum milli
byggðarlaga i ísafjarðarbæ um nýju
jarðgöngin.
Tvö verkefni sett
upp í Gránufélagshúsinu
DV, Akureyri:
Samningar um afnot Leikfélags
Akureyrar af einu af húsum Gránu-
félagsins ehf. á Akureyri hafa verið
undirritaðir og áformar leikfélagið
að setja þar upp tvö verkefni á
næsta vetri.
Um er að ræða húsin sem standa
að baki veitingahúsinu Við Pollinn
en þau hús voru síðast notuð sem
verkstæði Vélsmiðjunnar Odda fyr-
ir nokkrum árum.
Þau tvö verkefni sem Leikfélag
Akurevrar setur bama upp í vetur
eru „Undir berum himni“ eftir
Steve Tesich og „Vefarinn mikli frá
Kasmír", hið mikla meistaraverk
Halldórs Kiljans Laxness sem verð-
ur einmitt sérstakt hátíðarverkefni
leikfélagsins næsta vetur.
-gk
Forsætisraðherra
en ekki forseti
Rangt var haft eftir Bimi Grét-
ari Sveinssyni, formanni Verka-
mannasambandsins, á baksíðu DV
sl. fimmtudag um stefnuræðu Dav-
íðs Oddssonar forsætisráðherra. í
blaðinu stóð: „Alla vega hlýtur
verkafólk að líta á það sem skila-
boð forseta íslands.“ Það sem
Björn sagði að sjálfsögðu var:
„Alla vega hlýtur verkafólk að líta
á það sem skilaboð forsætisráð-
herra íslands.“ Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum, sem al-
farið eru blaðamanns og tengjast
undirmeðvitund hans ekki á
neinn hátt. -bjb