Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 37
JLlV LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 Armin 45 Við borðum meira af vana en sulti - varist ofæfingar og farið ekki of „Fyrstu tvær vikurnar fara næst- um því eingöngu i að koma af stað viðhorfsbreytingu hjá þeim sem eru að byrja að æfa og jafnvel þeim sem eitthvað eru komnir á leið. Jafn- hliða hægri uppbyggingu æfinga fæ ég fólkið til að drekka mikinn vökva, það er einmitt einkennandi fyrir flesta að þeir drekka alls ekki nógu mikið vatn,“ sagði Ólafur Þórisson, þjálfari hjá Júdó-Gym, einni líkamsræktarstöðinni í Reykjavík. Auk venjulegrar þjálfunar tekur hann einnig í einka- tíma, hæði þá sem eru að hefja líkams- rækt og hina sem lengra eru komnir. „Ég fæ fólkið til að skoða hvað það lætur ofan í sig, bita fyrir bita, og síðan skrá það niður. Reynslan sýnir að matar- æði okkar skapast meira af vana en því að við borðum endilega þegar við erum svöng. Vatn, vítamín og hóf- leg hreyfmg og átök eru grundvaUaratriði í byrjun. Fyrsta skrefið er viðhorfsbreyting og að gera sér grein fyrir þvi að hest er að fara hægt og rólega af stað. Þetta er mun betra en þar sem menn setja undir sig hausinn og ætla að taka á hlutunum með stórum skelli. Slíkt gengur ekki, sama hvað menn reyna,“ segir Ólafur Þórisson. geyst af stað, segir Ólafur Þórisson, þjálfari í Júdó-Gym Of miklar æfingar geta feitt til afturfarar Einn moli hár og annar þar... Þegar fólk fer að sundurgreina hvað það lætur ofan í sig hita fyrir hita sér það oft að sopi af gosi hér og sopi þar getur jafhvel komist upp í að verða einn lítri á dag. Einn og einn sælgætismoli getur dregið sig saman í heilmikið sykurát, þegar allt er talið, o.s.frv. Þessi athugun á mataræðinu hefur oft ótrúlega skjót áhrif á fólk. Þegar það sér svart á hvítu hvað það borðar er auðveld- ara en ella að breyta hlutunum og borða markvissara og jafnframt hollari mat en áður. Það er líka full ástæða til að hvetja fólk til að prófa nýja rétti og nýjar tegundir. Engin ástæða er til að vera hikandi við það því það versta sem gerst getur er að manni þyki maturinn ekki góður. Hveragerði: Rannsóknarstofnun Jónasar Kristjánssonar - aðstaða til vísindalegra rannókna á grunni náttúrlækningastefnunnar - Er þetta þá bara eitt- hvert dúll í byrjun? Þarf ekk- ert að taka á? „Nei, nei, þetta er ekkert dúll og það þarf að taka á og setja sér markmið," segir Ólafur. „Hins vegar má aldrei gleyma því að myndirnar af fólkinu í íþróttablöð- unum og fólkinu sem sýnt er við keppni í vaxtarrækt og öðru eru af fólki sem æft hefur reglulega og markvisst svo árum skiptir. Þeir sem eru að byrja eftir áralangt jafn- vel áratuga- fjarveru frá öllum íþróttum og hreyfingu verða að byggja undirstöðuna fyrst. Sannleikurinn er sá að það er ótrúlega oft sem við þjálfararnir verðum að vara fólk við ofæfingum og að fara sér of geyst. Of miklar æf- ingar og þegar ekki er samræmi í mataræði og miklum æfingum geta leitt til stöðnunar og jafnvel aftur- farar. Vilji menn brenna fltu og jafnframt byggja upp vöðva líkam- ans, eins og flestir stefna að verður að vera samræmi i áreynslu, matar- æði og öðru. Jafnframt þessu má ekki gleyma gildi þess að teygja bæði fyrir og eftir æfingar. Teygj- urnar eru einn vanmetnasti þáttur hreyfingar og mega aldrei falla nið- Fram undan... Sparisjóðshlaup UMSB 5. október. 30 km boðhlaup. Hver sveit skal skipuð 10 hlaupurum og þar af a.m.k. 4 konum. Hver hlaupari hleypur 3 x 1 km (1 km í senn þrisvar sinnum). Skráningar berist til skrifstofu UMSB, Borgarbraut 61, Borgar- nesi, sími 437 1411. Víðavangshlaup íslands 12. október. Keppnin fer fram í Mosfellsbæ og hefst kl. 14.00 í yngstu aldursflokkunum. Vega- lengdir og flokkaskipting: Strákar og stelpur, 12 ára og yngri, piltar og telpur, 13-14 ára, meyjar 15-16 ára hlaupa 1,5 km. Sveinar 15-16 ára, drengir 17-18 ára, konur 17 ára og eldri hlaupa 3 km. Karlar 19-39 ára, öldungaflokkur 40 ára og eldri hlaupa 8 km. Keppt er jafn- framt í 4 manna sveitum í öll- um flokkum nema öldunga- flokki þar sem keppt er í 3 manna sveitum. Skráning og greiðsla þátttökugjalds berist skrifstofu Aftureldingar fyrir 9. okt. nk., sími 566 7089. SRI Chinmoy friðarkeppn- ishlaup 13. október. Hefst kl. 14.00 við Ráðhús Reykjavíkur. Vegalengd 2 milur (3,2 km). Flokkaskipting ákveðin siðar. Verðlaun fyrir fyrstu í mark, einnig verðlaun til þeirra sem ná bestum árangri á heimsvísu en þetta er alþjóðlegt hlaup. Upplýsingar hjá Sri Chinmoy maraþonliði í síma 553 9282. Umsjón Fyrsta Þingstaðahlaupinu lokið: Frá Lögbergi á Þingvöllum niður á Austurvöll - lögð verður áhersla á að tryggja þátttöku alþingsmanna við fyrsta tækifæri Rannsóknarstofnun Jónasar Kristjánssonar læknis var formlega opnuð 20. þessa mánaðar I Heilsu- stofnun NLFÍ í Hveragerði. Jónas var stofnandi Heilsustofnunarinnar og brautryðjandi náttúrulækninga- stefnunnar hér á landi. I ræðu Ólafs B. Thors, formanns stjórnar stofnunarinnar, við athöfn- ina sagði hann m.a. að Jónas Kristj- ánsson hefði oft látið þá skoðun í ljós að æskilegt væri að treysta skoðanir náttúrulækningamanna með vísindalegum rannsóknum og nauðsynlegt væri að koma á fót rannsóknarstofnun i því sambandi. Nú væri ósk hans orðin að veru- leika. Markmið Rannsóknarstofnunar- innar er að efla alla rannsóknar- starfsemi innan Heilsustofnunar NLFÍ, einkum þá rannsóknarstarf- semi sem sértaklega tengist hug- myndafræði Jónasar Kristjánssonar læknis. Til þess að ná þessu mark- miði mun einstaklingum verða boð- in aðstaða innan og utan stofnunar- innar til að vinna að rannsóknar- verkefnum og er gert ráð fyrir tveggja til þriggja mánaða dvöl í senn. Þeir sem njóta aðstöðunnar eiga einnig að fá aðstoð við útgáfu fræðirita. Þeir fá til afnota góða íbúð við Heilsustofnun þar sem einnig verður góð vmnuastaða. í stjórn Rannsóknarstofnunar Jónasar Kristjánssonar eru fimm menn, tveir tilnefndir af Náttúru- lækningafélagi íslands og þrír til- nefndir af rekstrarstjórn. Þeir eru: Þórður Harðarson prófessor, dr. Jónas Bjamason, Gísli Páll Pálsson framkvæmdastjóri, Sigurður Thor- lacius tryggingayflrlæknir og dr. Sigríður Halldórsdóttir. Fyrsta Þingstaðahlaupið hefur farið fram. Hlaupið var frá Lög- bergi á Þingvöllum til Reykja- víkur og þar lauk hlaupinu við Alþingishúsið á Austurvelli. Lagðir voru að baki 50 km og er ætlunin að þetta verði árlegur viðburður. Lögð verður áhersla á að tryggja þátttöku alþingsmanna í hlaupinu enda við- eigandi þegar hlaupið er frá elsta þingstað heims og hlaupinu lokið við núverandi starfsstað arftaka þess, Al- þingis við Austurvöll. En 50 km hlaup ér þolraun sem engum aukvisum er bjóðandi. Menn verða að vera í góðu líkamlegu formi. Það voru því ánægðir og glaðir þremenningar sem luku hlaupinu um kaffileytið þennan laugardag. Þar voru á ferð Gísli Ragnarsson yfirkennari, Ágúst Kvaran pró- fessor og Sigurður Gunnsteinsson forstöðumaður. Mel- korka Ágústsdóttir var þeim síðan til aðstoðar og færði þeim meðal annars þá ófáu lítra af vatni sem drukknir voru á leiðinni. Allir þrír félagar í Ölhópnum „Þetta var ákveðið fyrir nokkrum vikum og þegar til kom vomm við þrír sem lögðum í hann,“ sagði Sigurð- ur Gunnsteinsson í viðtali við DV. Þeir félagar eru allir í svonefndum Ölhópi sem m.a. hleypur saman vikulega og þá ýmist frá Sundlaugunum í vesturbæ í Reykjavík, Árbæ eða Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði. Þegar aðrir góðborgarar stíga hægt og virðulega úr rekkju á sunnu- dagsmorgnum eru þeir Ölhópsmenn komnir á ferð og hlaupa þá gjaman rúma 20 km eða þaðan af meira. Höfðum áhyggjur af brekkunni við Varmá sem nu er nefnd Þingbrjótur „Við vorum heppnir með veður, það var hlýtt og að- eins rigning á Mosfellsheiðinni," sagði Sigurður enn fremur. Aðeins ein mikil brekka var á leiðinni, við Varmá í gegnum Mosfellsbæ, á móts við Hlégarð. Við vorum hins vegar í góðu formi og þessi farartálmi, sem við höfðum fyrir fram nefnt Þingbrjót, af ótta við hann, Upphaflega var ætlunin að birta myndir af þeim þre- menningum fyrir og eftir 50 km hlaupið, svona til þess að gefa kost á samanburði. Slíkt reyndist óþarfi. Ef eitt- hvað var þá voru kapparnir til muna hressilegri að loknu hlaupi en viö upphaf þess. Aö einhverjum detti í hug án þess aö vita það að þessir þrír hafi rétt nýlokiö 50 km hlaupi þegar myndin er tekin er af og frá en sú er samt raunin. Frá vinstri: Siguröur Gunnsteinsson, Ágúst Kvaran og Gísli Ragnarsson. DV-mynd Melkorka Ágústsdóttir reyndist okkur léttur þegar til kom. Þá var aðalspenn- ingurinn eftir en það var hvemig okkur mundi reiða af eftir að hefðbundinni maraþonvegalengd væri lokið. Það var í Ártúnsbrekkunni og þá kom það okkur skemmtilega á óvart hve við áttum mikið eftir, svo sið- ustu átta kílómetrarnir niður í bæ reyndust okkur til- tölulega léttir. Þar sem þetta var I fyrsts skipti sem Þingstaðahlaup var háð var tíminn ekki aðalatriði en samt sem áður voram við ánægðir með hann. Þessa 50 km fórum við á 4 klst. og 40 mínútum. Þeir Gísli, Ágúst og Siguröur eru allir þaulvanir lang- hlauparar. Sigurður hefur þó hlaupið skemmst þeirra, eða aðeins í fjögur ár, en hinir lengur. Fyrsta Þingstaðahlaupinu er lokið. Draumur þeirra félaga er að gera það að árlegum viðburði. Alþingis- menn eru eins og áður sagði velkomnir og raunar er það gott dæmi um aukinn áhuga á hreyfingu og útivist að ekki þarf að koma neinum á óvart að einn eða fleiri þeirra sláist i hópinn innan skamms.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.