Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 dagsönn < Atriði úr Ef ég væri gullfiskur. Opið hús í Borgarleikhúsinu LeMélag Reykjavíkur ætlar að bjóða alla velkomna í Borgarleik- húsið í dag kl. 14.00-17.00. Kynntar verða sýningar vetrarins. Sýnd verða stutt atriði úr Ef ég væri gull- fiskur eftir Áma Ibsen, Largo De- solado eftir Václav Havel, fylgst verður með æfingu á barnaleikrit- Leikhús inu Trúðaskólinn, æfingu á Svanin- um, æfingu hjá íslenska dans- flokknum og Gulltáraþöll, sungin nokkur lög úr Stonefree, sýnd stutt atriði úr Bar Pari og margt fleira. Lúðrasveitin Svanur mun taka á móti gestum við Borgarleikhúsið frá kl. 13.45 með léttri sveiflu. Haustmót TR Árlegt haustmót Taflfélags Reykjavíkur hefst á morgun, kl. 14, í félagsheimili TR. Umferðir verða að jafnaði þrisvar í viku og lýkur aðal- keppninni 1. nóvember. Öllum er heimil þátttaka í þessu móti. Kynningarfundur Hraðbrautar Stofnaður hefur verið nýr fram- haldsskóli, Hraðbraut. Kynningar- fúndur um fyrirkomulag skólans verður í stofu 101 í Odda í Háskóla íslands í dag, kl. 13.30. Félagsvist Félag eldri borgara í Reykjavík verður með félagsvist í Risinu á morgun, kl. 14. Dansað i Goðheim- um annað kvöld, kl. 20. Námsstefna um Karen Blixen t Norræna húsinu á morgun, kl. 14-20, verður haldin námsstefna um danska rithöfundinn Karen Blixen. Harmoníkudansleikur Harmoníkufélag Reykjavíkur heldur harmoníkuball í Hótel Hveragerði (Ljósbrá) í kvöld, kl. 22. Meðal sveita sem koma fram er Létt- sveit Harmoníkufélags Reykjavíkur. Sambandsþing ÍF Sambandsþing íþróttasambands fatlaðra verður haldið á Hótel KEA í dag og á morgun og hefst það kl. 9.30. Ráðstefna fiskvinnslufólks í dag heldur deild fiskvinnslu- fólks innan Verkamannasambands íslands ráðstefnu á Hótel íslandi þar sem fjallað verður um málefhi sjáv- arútvegs og kjaramál fiskvinnslu- fólks. Ráðstefnan er á Hótel íslandi og hefst kl. 9. Samkomur Slysavamir bama í dag verður haldið á veghum Björgunarskóla Landsbjargar og Slysavarnafélags tslands leiðbein- endanámskeið í Slysavarnahúsinu, Hjallahrauni 9, Hafnarfirði, og hefst það kl. 10. Menntaþing námsmannahreyfinganna verður haldið í dag, kl. 13-15.30, í tjaldi á lóð Háskóla íslands, í ná- grenni Háskólabíós. Félagsvist verður spiluð á morg- un, kl. 14, í Breiðfirðingabúð, Faxa- feni 14. Parakeppni. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Hljómsveitin Hólmjárn, með Kristján Eldjám, Ólaf Hólm og Ró- bert Þorkelsson innanborðs, leikur á Kaffi Óliver í kvöld. Gallerí Borg heldur málverkaupp- boð á morgun, kl. 20.30, i Gullhömr- um í húsi Iðnaðarmannafélagsins að Hallveigarstíg. Verk gömlu meistar- anna í miklu úrvali. Sól en hvasst fyrir austan í dag verður suðvestan stinnings- kaldi á landinu og það gæti orðið allhvasst víða með skúrum eða rign- ingu. Á Norður- og Austurlandi ætti Veðríð í dag að sjást til sólar en ekki verður mjög heitt og á Austurlandi má bú- ast við að vindurinn verði allt að sex til átta vinstig. Á Syðvestur- ‘horninu verður rigning og hvasst og allt að sex vindstig. Hitinn verður jafn á mestöllu landinu um það bil átta stig yfir daginn og er ekki lík- legt að tveggja stafa tala sjáist á mælum, kaldast verður á Vestfjörð- um 5 til 6 stig. Sólarlag í Reykjavík: 18.42 Sólarupprás á morgun: 07.52 Síödegisflóð í Reykjavík: 12.41. Árdegisflóð á morgun: 01.26 Veðrið kl. 12 á hádegi í gœr: Akureyri skýjaö Akurnes léttskýjaö Bergstaöir skýjaö Bolungarvík rigning Egilsstaöir úrkoma í grennd Keflavíkurflugv. skýjaö Kirkjubkl. léttskýjaö Raufarhöfn skúr á síö.kls. Reykjavik skýjaö Stórhöföi léttskýjaó Helsinki skýjað Kaupmannah. léttskýjaö Ósló léttskýjaö Stokkhólmur léttskýjaö Þórshöfn skúr Amsterdam léttskýjaö Barcelona heióskírt Chicago skýjaö Frankfurt rigning Glasgow skúr á síö.kls. Hamborg hálfskýjaó London hálfskýjaö Los Angeles þoka Madrid léttskýjaö Malaga léttskýjaö Paris skýjaö Róm skýjaö Valencia reykur New York heiöskírt Nuuk rigning Vín léttskýjaö Washington léttskýjaó 5 7 5 6 5 8 8 4 7 6 11 12 13 14 9 14 21 3 13 12 15 15 16 21 22 15 19 23 6 4 15 7 Vax á Langasandi á Akranesi: Rokk, diskó, nýrómantík Eitt vinsælasta veitingahúsið á Akranesi er Langisandur, sem býður upp á notalegt umhverfi, og er bæði veitingastaður og skemmtistaður. Um helgar er boð- ið upp á lifandi tónlist á efri hæð- inni þar sem haldnir eru dansleik- ir. í kvöld mun hljómsveitin Vax leika þar. Hljómsveit þessi tók til starfa síðastliðið vor og hefur get- ið sér gott orð á höfuðborgarsvæð- inu og víðar fyrir skemmtilegt lagaval. í hávegum er haft rokk, diskó og nýrómantík, en fleiri tón- Skemmtanir listarstefnur fylgja með, sem sagt tónlist sem fellur í kramið hjá fólki sem kemur til að skemmta sér og dansa. Þetta er í þriðja sinn sem Vax skemmtir á Langasandi. Ávallt hefur verið gerður góður rómur að leik hennar og hljómsveitin lof- ar góðri stemningu þegar Akur- nesingar skella sér á ball til að fagna íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu fimmta árið i röð. Vax ætlar aö skemmta Akurnesingum á Langasandi f kvöld. Þeir sem skipa Vax eru: Sunna Ösp Bjarkadóttir, Baldvin Ring- sted, Helgi Jakobsson, Jón Bj. Rík- harðsson og Helgi Georgsson. þBSiðR URÐU BFrÍR. þECAR BOID VA/? Af> REKA AUAR HÍNAR / \(?Er r fRNAR..1 .*%V •« ir*-' %) «v$ \ xf'W. u’J -V' ' © /630 -—EiþOR- Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði Myndgátan Lausn á gátu nr. 1629: Tekur slátur Byssumaður meö grímu í Crying Freeman. Crying Freeman Laugarásbíó sýnir um þessar mundir spennumyndina Crying Freeman og er myndin byggð á sagnahefð asískra þjóða um rétt- læti, græðgi, hefnd og valdafíkn. Ung kona verður vitni að því aö glæpaforingi einn er tekinn af lifi ásamt tveimur lífvörðum sínum. Sá sem ffernur aftökuna kynnir sig sem Crying Freeman og er hann í félagsskap sem kallar sig Syni drekans. Hún verður hrædd um líf sitt þegar hún kemst aö því að meðlimir félagsskaparins kynna sig ávallt fyrir næsta fórn- Kvikmyndir arlambi sínu þegar þeir hafa drepiö einhvern. Hún snýr til heimaborgar sinnar, Vancouver, og leitar ásjár lögreglunnar þar. Crying Freeman er gerð eftir tölvuleik sem nýtur mikilla vin- sælda. Með aðalhlutverkið fer Mark Dacascos, sem er fyrrum meistari í sjálfsvarnaríþróttum en hefur leikið í nokkrum kvik- myndum á undanfórnum árum. Má þar nefna Double Dragon, Only the Strong, The Redemption og Past Tense. Nýjar myndir Háskólabíó:lnnrásin Laugarásbió: Flóttinn frá L.A. Saga-bíó: Það þarf tvo til Bióhöllin: Gulleyja Prúðu leikar- anna Bíóborgin: Fyrirbærið Regnboginn: Hæpið Stjörnubió: Djöflaeyjan Tríó Romance Trfó Romance heldur tónleika í samkomusal íþróttahúss Bessa- staðahrepps á morgun kl. 20.30. Tríóið er nýkomið úr tónleika- ferðalagi um Evrópu og Bandarík- in og hlaut hvarvetna lof fyrir leik sinn en það er skipað Guðrúnu Birgisdóttur og Martial Nardeau, sem leika á flautur, og Peter Máté á píanó. Á efnisskrá eru meðal annars verk eftir Vivaldi, Pou- lenc, Dvorak og Karólínu Eiriks- dóttur. Einnig verða leikin létt sígaunalög. Tónleikar Hljómsveit Tónlistarskólans Fyrstu tónleikar Hljómsveitar Tónlistarskólans í Reykjavík á þessu skólaári verða haldnir í Há- teigskirkju í dag kl. 18.00. Á efnis- skrá eru verk eftir Beethoven, Bach og Mendelssohn. Einleikar- ar á tónleikunum eru: Arnbjörg Sigurðardóttir þverflautuleikari, Gunnar Benediktsson, óbóleikari, Álfheiður Hrönn Hafsteinsdóttir fiðluleikari og Kristín Lárusdóttir sem leikur á selló. Stjórnandi er Kjartan Óskarsson. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 219 04.10.1996 kl. 9.15 Eíninq Kaup Sala Tollnenai Dollar 67,060 67,400 67,450 Pund 104,970 105,510 105,360 Kan. dollar 49,230 49,540 49,540 Dönsk kr. 11,4210 11,4820 11,4980 Norsk kr 10,2940 10,3510 10,3620 Sænsk kr. 10,1340 10,1900 10,1740 Fi. mark 14,6600 14,7470 14,7510 Fra.franki 12,9370 13,0110 13,0480 Belg. franki 2,1262 2,1390 2,1449 Sviss. franki 53,3000 53,5900 53,6400 Holl. gyllini 39,0300 39,2700 39,3600 Þýskt mark 43,8100 44,0300 44,1300 it. líra 0,04406 0,04434 0,04417 Aust. sch. 6,2240 6,2630 6,2770 Port. escudo 0,4328 0,4354 0,4342 Spá. peseti 0,5198 0,5230 0,5250 Jap. yen 0,60090 0,60450 0,60540 írskt pund 107,170 107,830 107,910 SDR 96,15000 96,73000 97,11000 ECU 83,6400 84,1400 84,2400 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.