Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Page 6
6
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996
útiönd
I stuttar fréttir
jg
Danir herða
tökin
Danska stjómin lagði fram
frumvarp á þingi í gær um
1 bann gegn stöðvum mótorhjóla-
gengja í íbúðarhverfum.
Æfir
kapp-
ræður
Bill Clinton
Bandaríkjaforseti mun í dag
æfa sig stift fyrir kappræðurn-
ar við Bob Dole, forsetafram-
bjóðanda repúblikana, á morg-
un. Fyrrum þingmaður mun
leika Dole, hjörð ráðgjafa mun
semja handritið og leikari mun
leiðbeina forsetanum í fram-
sögn.
Engar áritanir
Yfirvöld í Burma ætla að
hætta að veita bandarískum
borgurum vegabréfsáritanir til
landsins. Er það svar við banni
sem sett var á ferðir herfor-
ingja Burma til Bandaríkjanna.
Giftist
fjöldamorð-
ingja
Doreen LioyTritstjóri banda-
rísks tímarits, giftist í gær
dauðadæmdum fjöldamorð-
ingja, Richard Ramirez, I fang-
elsi nálægt San Francisco.
Stórt ósongat
Ósongatiö, sem mynaast ár-
lega yfir suðurheimsskauts-
svæðinu, er þegar orðið tvisvar
sinnum stærra en Evrópa.
Páfiá
sjúkra-
hús
Páfagarður
tilkynnti í gær
að Jóhannes
Páll páfi myndi leggjast inn á
sjúkrahús á morgun til að láta
taka úr sér botnlangann. Á
fimmtudagskvöld vísaði páfa-
garður á bug fréttum ítalskrar
fréttastofu um að páfi væri
kominn með nýtt æxli en æxli
| var fjarlægt úr honum fyrir
fjórum árum. Ýmsir draga í efa
útskýringar páfagarðs.
-
% Hermannaveiki
á Spáni
Spænsk heilbrigðisyfirvöld
reyna nú að finna orsök út-
breiðslu hermannaveiki á
Spáni. Alls hafa 10 manns látist
úr veikinni í litlum bæ nálægt
Madrid. Um 200 hafa veikst.
Reuter
Hlutabréfavið-
skipti:
Metin fuku í
kauphöllunum
Hlutabréfaviðskipti voru afar líf-
leg í helstu kauphöllum heims í vik-
unni ef marka má þróun hlutabréfa-
vísitalna. Söguleg met voru slegin í
þremur kauphöllum; New York,
London og Frankfurt, og Hang Seng
vísitalan í Hong Kong hefur ekki
verið hærri á þessu ári, nálgast
reyndar sögulegt met frá því í árs-
byrjun 1994 þar sem aðeins munar
187 stigum.
FT-SE 100 vísitalan í London rauf
4.000 stiga múrinn þegar hún náði
15 stigum meira sl. þriðjudag og hef-
ur haldist yfir þessum mörkum.
Dow Jones í New York fór í 5.933
stig á miðvikudag og DAX-30 í
Frankfurt fór í 2.676 stig. Dollar hef-
ur hækkað í verði og markaðirnir í
Evrópu fylgt hlutabréfahækkun í
Bandaríkjunum.
Arafat fyrir viðræðurnar við ísraela:
Samþykki engar
málamiðlanir
Yasser Arafat, forseti Palestínu,
lýsti því yfir í gær að hann myndi
ekki samþykkja málamiðlanir um
lögmæt réttindi Palestinumanna.
Arafat fór í gær á fund ítalskra og
franskra ráðamanna til að ræða nið-
urstöðu leiðtogafundarins í Was-
hington.
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Warren Christopher, heldur
til Miðausturlanda um helgina til að
ræða við Netanyahu, forsætisráð-
herra ísraels, og Arafat, fyrir við-
ræður ísraela og Palestínumanna
um ýmis atriði sem ekki tókst að
leysa á leiðtogafundinum. ísraelskir
og palestínskir ráðamenn munu
hittast á morgun í Erez sem er á
landamærum ísraels og Gazasvæð-
isins. Ræða á framkvæmd friðar-
samnings þeirra, þar á meðal stað-
setningu ísraelskra hermanna í
bænum Hebron á Vesturbakkanum.
Frelsissamtök Palestínumanna
hafa lýst yfir ánægju sinni með þát-
töku bandaríska utanríkisráðher-
rans í viðræðunum sem koma eiga í
veg fyrir frekari óeirðir.
ísraelsk heryfirvöld tilkynntu í
gær að þau hefðu komist að sam-
komulagi við palestínsku lögregl-
una um 300 metra hlutlaus svæði
umhverfis stöðvar ísraela á Gaza-
svæðinu. Arabískum mótmælend-
um verður bannað að fara inn á
svæðin. Fyrirhugað er að koma
einnig á slíkum svæðum á Vestur-
bakkanum.
Um fimm hundruð ungmenni
söfnuðust saman að lokinni bæna-
stund múslíma í Jerúsalem í gær en
prestar komu í veg fyrir mótmæli.
Reuter
Yfir 3 þúsund ísraelskir lögreglumenn voru I viöbragðsstöðu í austurhluta Jerúsalem I gær þar sem arabar komu
saman til bænastundar. Símamynd Reuter
Æsingur í bresku pressunni:
Deilt um pólítískar
skoðanir drottningar
- Elísabet sögð vinstri sinnuð í nýrri ævisögu
Hægri pressan í Bretlandi vísar á
bug fullyrðingum um að Elísabet
Englandsdrottning hafi reynt að
koma meintum vinstri skoðunum
sínum að í stjómmálum. Því er hins
vegar haldið fram í nýrri ævisögu
um drottninguna sem Ben Pimlott
hefur skrifað. Sagan er byggð á við-
tölum við meðlimi konungsfjölskyl-
dunnar og hirðfólk auk þess sem
vitnað er í „konungleg skjöl“, að því
er segir í breska blaðinu
Independent sem birtir kafla úr bók-
inni.
Pimlott segir i viðtali við
Independent að drottningin sé svo-
lítið vinstri sinnuð en keppinautur
Pimlott, ævisöguritarinn Sarah
Bradford, segir í viðtali við blaðið
Daily Express, sem er á hægri
vængnum, að það sé fáránlegt. Op-
inberlega sé drottningin ópólítisk
en allt bendi til að hún sé hægri
manneskja.
Pimlott heldur því fram að Elís-
bet Englandsdrottning hafi reiðst
Margaret Thatcher, fyrrum forsæt-
isráðherra Bretlands, vegna stúðn-
ings hennar við innrás Bandarikja-
manna í Grenada 1983. Drottningin
hafi einnig verið efins um réttmæti
þess að leyfa Bandaríkjamönnum að
nota breska flugvelli fyrir árásina á
Líbýu 1986. Reynar hefur áður verið
greint frá óánægju drottningar með
stefnu Thatcher.
Ýmis fleiri bresk blöð hafa bland-
að sér í umræðuna um stjómmála-
skoðanir drottningar. I Bucking-
hamhöll neita menn að tjá sig um
innihald nýju ævisögúnnar.
Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis I
London
Dow Jones
m
VI
5932,85
4000 ,0
J A S O
Hang Senfi^
J 12014,56 A S C
Bensín95okt.
1 250 ' 200
\J]
1150 215
l$/t J A S C
l 250;;;
150
218
$/t J A S 0
DV
Jeltsín í flók-
inni baráttu við
Lebed
Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seti er í flókinni valdabaráttu
við Alexander Lebed öryggis-
málastjóra, að því er stjóm-
1 málaskýrendur telja. Jeltsín
vill hafa stjórn á Lebed en þarf
jafnframt að gæta þess að gera
hann ekki að hættulegum
1 óvini. í fyrradag varði Jeltsín
Lebed vegna umdeildra friðar-
samninga hans í Tsjetsjeníu en
nokkrum klukkustundum
seinna ávítaði forsetinn örygg-
ismálastjórann fyrir að vera
ekki í nógu nánu samstarfi við
stjórnina. Það vakti athygli í
-/ gær að Lebed mætti ekki á fúnd
§ nýstofhaðs vamarmálaráðs þar
É sem ræða átti fjárskort hersins.
Stjórnvöld segja herinn of stór-
an og í gær var tilkynnt að
Jeltsín hefði rekið nokkra her-
foringja.
Vilja þyngja
refsingar fyrir
ofbeldisglæpi
Yfirvöld I Þýskalandi ráögera
; nú umbætur í refsilöggjöfinni.
| Gera á refsingar vegna ofbeldis-
I glæpa eins og til dæmis nauð-
gana og tilrauna til mannráns
; þyngri en refsingar vegna rána.
Með breytingunum myndi
, refsing vegna kynferðislegs of-
beldis gegn börnum geta orðið
| allt að 10 til 15 ára fangelsis-
dómur en 5 ára fangelsi er há-
| marksrefsing nú. Það er sama
* hámarksrefsing og veskisþjófar
sæta. Lágmarksrefsing fyrir
nauðgun og morð á konu er hin
sama og fyrir bankarán þar
sem ræninginn veifar leik-
| fangabyssu.
íranskur klerk-
ur gagnrýnir
taleban-skæru-
liða
1
Háttsettur íranskur klerkur,
i Ahmad Jannati, sagði róttækar
aðgerðir taleban- skæruliða i
Afganistan skaða imynd ís-
lamstrúarinnar. „Með stein-
I ranninni stefhu sinni banna
[ þeir stúlkum að sækja skóla,
Ikonum að sækja vinnu utan
heimilis og þetta gera þeir allt í
nafni íslams,“ sagði klerkurinn
við bænastund í háskólanum í
Teheran.
Við bænastundina hvatti
klerkurinn Pakistana til að for-
dæma aðgerðir skæruliðanna
og afsanna um leið að þeir
styðji þá. Taleban-skæruliðar
hafa náð á sitt vald þremur
fjórðu hlutum Afganistans.
Hryllingshúsið
verður jafnað
við jörðu
I
Heimili fjöldamorðingjanna
| Freds og Rosemary Wests í
Gloucester í Englandi, sem kall-
| að hefur verið hryllingshúsið,
verður jafnað við jörðu. West-
hjónin beittu ungar stúlkur
kynferðislegu ofbeldi, myrtu
þær og grófu þær síðan í kjall-
; ara húss síns eða í garðinum
| við húsið. Fred West hengdi sig
í fangelsi en eiginkona hans af-
plánar nú lífstíðarfangelsis-
dóm. Nokkrir íbúar í Gloucest-
: er vilja láta gera minningar-
lund um fórnarlömbin þar sem
: húsið er nú. Húsið við hliðina á
j húsi Westhjónanna verður
einnig jafnað við jörðu og til að
I koma í veg fyrir að einhverjir
næli sér í múrsteina sem minja-
gripi verða steinarnir brotnir í
mél.
p
Reuter