Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Qupperneq 28
; sérstæð sakamál
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 JJV
Grannvaxni, dökkhærði maður-
inn með stóru augum og þjáningar-
fulla svipinn var nýstiginn út úr
strætisvagni og var á leið heim til
sín eftir dimmum götum í vestur-
borg Hollywood. Þetta var síðla
kvölds í febrúar og hvasst, svo hann
setti höfuðið undir sig. Skyndilega
gekk sterklegur ungur maður út úr
dimmu porti og tók sér stöðu beint
fyrir framan hann. Hann tók fram
stóran hnif.
„Komdu með peningana þína!“
sagði hann.
„Ég er ekki með neina peninga,"
svaraði grannvaxni maðurinn og
hann var að segja satt. Síðustu smá-
peningarnir hans höfðu farið í
strætisvagnafargjaldið.
Án þess að segja fleira rak ræn-
Hann var sendur réttarlækninum,
sem hafði komið við sögu morð-
málsins, og gat hann staðfest að Sal
Mineo hefði verið stunginn með
sams konar hnífi.
Þegar hér var komið sögu sat
Lionel Williams í fangelsi í Michig-
an-ríki vegna grófrar líkamsárásar.
Einn fangavarðanna þar, Albert
Lemkuhl, skýrði svo frá í síma að
Williams hefði margoft gortað sig af
því að hafa myrt Sal Mineo en
hvorki samfangar hans né fanga-
verðirnir hefðu trúað því.
Rannsóknarlögreglumaður var
nú sendur til Michigan-rikis til þess
að yfirheyra Williams sem neitaði
þvi þá ákaft að hafa myrt leikarann.
En meðan yfirheyrslan stóð sá lög-
reglumaðurinn að Wiiliams hafði
Frægðin er fallvölt
Lionel Williams á leið til yfirheyrslu í Michigan-ríki.
inginn hnífinn hvað eftir annað í
brjóstið á grannvaxna manninum.
Hann rak aðeins upp eitt óp og
nokkrum augnablikum síðar lá
hann svo í blóði sínu á götunni. Það
hafði hann reyndar gert mörgum
sinnum í kvikmyndum, en nú var
ekki um neinn leik að ræða.
„Strákurinn með
fjaðurhnífinn"
Það má segja að það hafi verið
kaldhæðni örlaganna að kvik-
myndastjaman fyrrverandi, Sal
Mineo, skyldi deyja á þennan hátt. í
kvikmyndum sem hann lék í á
sjötta áratungum hafði fjaðurhnif-
urinn orðið tákn hans og þá fékk
hann viðurnefnið „The Switcblade
Kid“, eða „Strákurinn með fjaður-
hnífinn".
En tími frægðarinnar var liðinn
hjá Sal Mineo. Hann stóð aðeins í
tíu ár, eða frá því hann var fimmt-
án ára og þangað til hann varð tutt-
ugu og fimm ára. Næstu tólf árin,
eða þar til hann var myrtur þrjátiu
og sjö ára, lifði hann í fátækt, þoldi
niðurlægingu og þjáðist vegna fikni-
efnaneyslu.
Hjón höfðu orðið vitni að morð-
inu úr glugga heima hjá þér. Það
var dimmt, svo þau sáu morðingj-
ann ekki vel. Þau voru þó á einu
máli um að hann væri hvítur mað-
ur, því hann var ljóshærður. Og
hann hafði ekið burt á gulum Dodge
Colt bíl.
Hálfum mánuði eftir morðið á Sal
Mineo handtók lögreglan nítján ára
svertingja, Lionel Williams, fyrir
rán. Hann skýrði þá svo frá að Sal
Mineo hefði verið fíkniefnasali og
flóttamaður frá Kúbu, sem seldi
fiknilyf, hefði myrt hann, þar eð
Mineo hefði skuldað honum pen-
inga.
Mánuðum saman leitaði lögregl-
an í Los Angeles morðingjans í röð-
um fíkniefnasala en varð ekki
ágengt.
Undradrengurinn
Það var mafian sem kom Sal
Mineo í kvikmyndir. Faðir hans,
Salvatore, og tveir frændur hans, A1
og Paul Mineo, voru allir kunnir
mafíumenn í New York og voru báð-
ir frændurnir skotnir til bana í maf-
íuuppgjöri þar í borg.
Sal var á góðri leið með að gerast
afbrotaunglingur þegar Frank Co-
stello, einn æðstu manna mafíunn-
ar, sendi hann á leiklistarskóla á
Broadway, þá ellefu ára, og síðar til
Holiywood.
Drengurinn sló í gegn. Árið 1955,
þegar hann var sextán ára, var
hann tilnefndur til óskarsverðlauna
fyrir leik sinn í mynd James Dean,
„Wild Blood“. Sama ár fékk hann
Emmy-verðlaunin fyrir leik sinn í
sjónvarpsmyndinni „Dino“. Þá var
hann líka orðinn kunnur dægur-
lagasöngvari og um tíu mánaða
skeið var plata hans, „Start Mov-
ing“, efst á vinsældalistanum.
Sagður arftaki
James Dean
Þegar James Dean dó í bílslysi
1956 þótti yfirmönnum Mineos í
kvikmyndaborginni liggja beint við
að hann yrði arftaki hans. Á níu
mánuðum leik Mineo í þremur
myndum, og í öllum var hann í
hlutverki foringja í unglingagengi.
En Sal Mineo reyndist ekki vera
neinn James Dean. Hann hafði sína
eigin sérstæðu útgeislun og ein-
staka leikarahæfileika, en það var
hrapalleg misnotkun á honum að
reyna að gefa honum ímynd Deans.
Það varð til þess að Mineo varð ann-
ar en hann hafði verið. Hann lék að
vísu í tólf myndum til viðbótar, en
hæfileikar hans nýttust í raun að-
eins í þeirri síðustu, „Exodus", þar
sem hann lék gyðing og hryðju-
verkamann, og fyrir þá frammi-
stöðu var hann enn á ný tilnefndur
til óskarsverðlauna.
Eftir það hallaði hratt undan fæti
fyrir Mineo. Hann varð ástfanginn
af leikkonunni Pier Angeli, en
blómaskeið hennar var þá liðið.
Hún varð háð heróíni og dró hann
með sér í þá eymd. Hún dó svo af of
stórum heróínskammti og þá fór
hann að segja má í hundana og fékk
ekki fleiri tilboð um að leika í kvik-
myndum.
Aftur á
hvíta tjaldið
Eftir um hálfan áratug fikniefna-
misnotkunar höfðu kvikmynda-
framleiðendur skyndilega þörf fyrir
Sal Mineo á ný, en 1975 var myndin
„James Dean - The First American
Teenager" gerð. Kvikmyndaverið
lét sækja Mineo fyrir töku hennar,
kom honum í meðferð fyrir sinn
reikning og nú fór leikarinn að
reyna að koma sér á réttan kjöl í líf-
inu á ný.
í febrúar 1976 var hann enn fá-
tækur en orðinn óháður fikniefnum
og hafði fengið hlutverk á sviði. En
þá varð hann fórnarlamb morðingj-
ans óþekkta.
Dag einn í ágúst 1977, hálfu öðru
ári eftir morðið, kom döpur kona,
Theresa Williams, í aðalstöðvar lög-
reglunnar í Los Angeles og sagði að
hún hefði lengi þagað yfir hræði-
legu leyndarmáli.
„Það var maðurinn minn sem
Williams á leið úr dómhúsinu í Los
Angeles.
myrti Sal Mineo,“ sagði hún. Maður
hennar reyndist vera Lionel Will-
iams, sem hafði á sínum tima hald-
ið því fram að morðingi leikarans
væri kúbverskur fikniefnasali.
Theresa sagði lögreglunni að
morðnóttina hefði maður hennar
komið heim í blóðugum fötum.
Hann hefði beðið hana að geyma
stóran hníf, sem hann hefði þá ný-
lega keypt. Hún sagðist síðar hafa
kastað hnífnum á ruslahaug en af
einhverri ástæðu hefði hún geymt
kvittunina.
„Ég var að drepa mann í Holly-
wood,“ sagði hún að maður hennar
hefði sagt þegar hann kom heim.
Gortaði
af morðinu
Rannsóknarlögreglumenn voru
ekki beint trúaðir á frásögn Ther-
esu og töldu að hún kynni að vera
að reyna að koma fram hefndum við
mann sinn vegna ósættis. Hjónin,
sem höfðu orðið vitni að morðinu,
höfðu sagt að morðinginn væri hvít-
ur maður. Hins vegar sýndi kvittun-
in, sem Theresa lagði fram, hvers
konar hnif maður hennar hafði átt
og var því hægt að fá annan eins.
látið flúra á húð sína mynd af stór-
um hnifi og stafina „S.M.“.
Guli bfllinn finnst
Saksóknaraembættið í Los Angel-
es taldi ekki að það sem nú lá fyrir
nægði til dóms yfir Lionel Williams.
Einn starfsmanna embættisins,
Michael Genelin, hafði verið mikill
aðdáandi Sals Mineos og hafði á sín-
um tíma þótt dapurlegt að frétta af
morði hans. Genelin tók þvi að sér,
á eigin spýtur, að rannsaka málið.
Theresa Williams hafði skýrt frá
því að maður hennar hefði aldrei
átt gulan Dodge Colt bíl. Væri Willi-
ams morðinginn hlyti hann því ann-
aðhvort að hafa stolið honum eða
tekið hann á leigu.
Genelin fann bílaleigu sem hafði
leigt út gulan bíl af þeirri gerð sem
við sögu kom og fékk að skoða gaml-
ar bækur. Þar fann hann að Lionel
Williams hafði tekið gula Colt-bíl-
inn á leigu í febrúar 1976. Fór Gen-
elin nú að trúa því að hann væri að
nálgast lausn gátunnar. Honum
tókst svo að komast yfir ljósmynd af
Williams frá þessum tíma og kom
þá í ljós að þá var hann ljóshærður,
því hann hafði látið lita hár sitt.
Var því ekki furða að hjónin, sem
vitni urðu að morðinu á illa upp-
lýstri götunni, teldu morðingjann
vera hvítan mann.
Málið leitttil lykta
Genelin lagði niðurstöður rann-
sóknar sinnar fyrir starfsfélaga sína
hjá saksóknaraembættinu í Los
Angeles og urðu þeir honum sam-
mála um að rétt væri að gefa út
ákæru á Lionel Williams fyrir
morðið á Sal Mineo.
Réttarhöldin fóru fram snemma
árs 1979, réttum þremur árum eftir
morðið. Þau vöktu talsverða at-
hygli, enda mundu margir hve fræg-
ur og vinsæll Sal Mineo hafði verið
þegar hann stóð á hátindi frægðar
sinnar. Þá þótti ýmsum dapurlegt
að þegar honum hafði loks tekist að
sigrast á fikniefnaneyslu sinni og
hafði fengið hlutverk á sviði skyldi
hann vera veginn á þann hátt sem
raun bar vitni.
Þann 16. febrúar 1979 var Lionel
Williams sekur fundinn um morðið
á Sal Mineo. Dómarinn kvað síðan
upp ævilangan fangelsisdóm fyrir
morðiö og ýmis rán en bætti því við
að Williams myndi ekki fá að sækja
um reynslulausn fyrr en eftir fimm-
tíu og eitt ár.
Þá yrði hann á áttræðisaldri.