Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Side 42
50
Draumsýn skíöamannsins.
DV-myndir ERS Itölsku Alparnir eru hrikalegir í fegurð sinni.
Vetraríþróttir:
Á skíðum í ítölsku Ölpunum
DV-Öræfum:__________________________________
Nú er sumri tekið að halla og eflaust til fólk
sem farið er að hugsa til skíðamennsku í vetur.
Vonandi verður þessi skiðavetur heldur snjó-
meiri en sá siðasti. Þeir sem vilja vera öruggir
um að fá útrás fyrir skíðaþörf sína í þetta sinn
ættu að renna augum yfir þessa grein. í itölsku
Ölpunum, í miðju vínhéraði mitt á milli Bolzano
og Trento, býr íslandsvinurinn, ferðafrömuður-
inn og blaðamaðurinn Franco Gionco með íjöl-
skyldu sinni.
Franco, sem níu sinnum hefur farið i fjalla-
skíðaferðir til íslands með ítalska hópa, langar
núna að endurgjalda gestrisnina sem hann hefur
notið hér og býður íslensku skíðafólki að skipu-
leggja fyrir það ævintýralega skíðaferð í ítölsku
Ölpunum í janúar. Fréttaritari DV fór í prufuferð
í janúar sl.
Sæludagar
Þann 14. janúar flaug ég til Mílanó þar sem
Franco tók á móti mér á flugvellinum og eftir
tveggja tíma akstur eftir hraðhrautinni vorum
við í Rovere della Luna, vínræktarþorpinu þar
sem risastórt hús Gionco-fjölskyldunnar stendur.
Lára Gionco tók á móti mér með ítölskum sæl-
kerakvöldverði og síðan var valinn skíðaútbún-
aður til nota meðan á dvölinni stæði.
Næsta morgun fórum við til Obereggen sem er
skíðasvæði í nágrenninu. Víð höfðum þennan
fyrsta skíðadag stuttan enda íslenskir skíðavöð-
var lítt liðkaðir en þó renndum við okkur sam-
kvæmt hæðarmælinum niður 8.000 metra enda
þurftum við aldrei að bíða eftir lyftu. Janúarmán-
uður er utan aðalskíðavertíðarinnar enda finnst
Evrópubúum þá fullkalt en á íslenskan mæli-
kvarða var sólbaðsveður. Á virkum dögum hefur
maður skíðasvæðin nánast út af fyrir sig.
Lagt af stað
Fjallaskíði eru eins og venjuleg skíði nema að
hægt er að losa bindinguna í hælinn og líma
skinn undir þau til að ganga upp fjöllin. Skórnir
eru plastskór sem eru liðugir um öklann þegar
gengið er upp en þeim er læst til að renna sér nið-
ur. Þetta veitir manni ótakmarkað frelsi til að
ferðast um fáfamar slóðir og njóta víðáttu fjall-
anna án þess að vera háður skíðalyftum og þegar
kemur að því að renna sér niður ósnortnar hlíð-
arnar þá er tilfinningin ólýsanleg. Ekki þarf að
koma með skíði að heiman því Franco hefur nóg
af skíðabúnaði, nægilegt fyrir litla herdeild skíða-
manna.
Næstu dagana fórum við til skiptis fjallaskíða-
ferðir eða heimsóttum nútímaleg skíðasvæðin
sem eru allt um kring. T.d. fórum við í tveggja
daga ferðalag á skíðunum um risastórt skíða-
svæði, Dolomiti Superski, hara með tannburst-
ann og greiðslukortið í vasanum. Við gistum á
leiðinni í notalegu gistihúsi í litlu þorpi og lok-
uðum hringnum daginn eftir, þá búnir að ferðast
yfir 200 km vegalengd á skíðunum. í annan stað
fórum við í tveggja daga fjallaskíöaferö, með
svefnpoka og nesti á bakinu, gistum í gömlum,
hrörlegum fjallaskála sem varð furðu hlýlegur
þegar eldur logaði í arninum. Daginn eftir að við
komum heim úr þeirri ferð skruppum við til Fen-
eyja en þangað er aðeins tveggja tíma akstur.
Þessi ferð var sannkölluð skíðaveisla og það lá
við að ég skellti upp úr i flugvélinni á leiðinni
heim þegar ég las í dagblaði að ekki væri enn
búið að opna eitt einasta skíðasvæði á íslandi.
Frelsi í náttúrunni
Þessi 10 daga skíðaleiðangur til ítölsku
Alpanna verður farinn næstkomandi janúar.
Þetta er ferð fyrir lítinn hóp samstæðra skíða-
manna sem vilja uppgötva frjálsræðið sem felst í
að nota fjallaskíði til að klífa 3.000 metra háa
Alpatinda og renna sér síðan alla leið niður í dal-
botnana auk þess að heimsækja nútímaleg skíða-
svæði og skíða allt upp i 150 km á dag án þess að
fara nokkurn tímann sömu brekkuna tvisvar.
Ekki er skilyrði að vera útfarinn í Alpamennsku
en til að njóta ferðarinnar þarf fólk að vera í
þokkalegu formi, alla vega svona Esjufært.
Nánari upplýsingar veitir Einar Sigurðsson
hjá Öræfaferðum, í síma 478 1682.
ERS
Ferðalög innanlands:
Launþegahreyfingin semur um afslátt
Göng í klemmu
Illa gengur með gerð gang-
anna milli Frakklands og Bret-
lands vegna erfiðleika stjórn-
enda með að útvega fjármagn.
Þeir sem fjáríestu í gerð gang-
anna árið 1987 hafa þurft að
horfa upp á mikla rýrnun eigna
sinna og bankar eru tregir til
að lána meira fé í göngin.
„Við reynum að halda áfram
enda skiptir hver millimetri
máli en þetta er eins og Mission
Impossible," sagði einn af
starfsmönnum ganganna og vís-
aði þar í samnefnda kvikmynd.
Nýr faraldur
Hætta er að nýr faraldur
brjótist út i Nýju Dehlí á Ind-
landi en beinbrunasótt, sem er
hættulegur hitabeltissjúkdóm-
ur í veiruformi og berst með
moskítóflugum, hefur lagt 17
manns að velli á stuttum tíma.
Hér er einungis um skráð
dauðsföll að ræða en álitið er
að þau séu mun fleiri í þessari
risaborg sem hýsir yfir 10 millj-
ónir manna. Talið er að sjúk-
dómurinn hafl horist til borgar-
innar með fátækum þorpsbúum
sem flykkjast til borgarinnar i
leit að betra lífi.
Orlofsnefnd launþegahreyfingar-
innar hefur samið við Flugleiðir
innanlands, fjölda hótela um land
allt, sérleyfishafa innan BSÍ og
Europcar - Bílaleigu Akureyrar,
um hagstætt verð á flugi, gistingu,
rútuferðum og hilaleigubílum. Er
verið með þessu að hvetja til ferða-
laga innanlands í vetur og hefst sala
á farmiðum í innanlandsflug í dag,
5. október. Samningar um aðra
þjónustu hafa þegar tekið gildi.
Fargjöldin eru aðeins seld á laug-
ardögum á sölustöðum Flugleiða
um land allt en aðeins á afgreiðslu
Flugleiða á Reykjavikurflugvelli á
höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að
bóka sæti í allar brottfarir nema í
ferðir frá hádegi fram til miðnættis
á föstudögum. Verðið er 5.830 kr. á
alla áfangastaði Flugleiða innan-
lands nema til Vestmannaeyja en
þangað kostar 4.830 kr.
Tveggja manna herbergi verða á
verði eins manns á 21 hóteli um
land allt og einungis þarf að fram-
vísa félagsskírteini. Sérstakur af-
sláttur er í boði fyrir einstaklinga,
misjafn eftir gististöðum og er bók-
unarfyrirvari 48 klst. Þau hótel sem
bjóða upp á þetta eru: Grand Hotel,
Hótel Reykjavík, Hótel Leifur Ei-
ríksson, City Hótel, Hótel Lind og
Hótel Vík, öll í Reykjavík, Hótel
Keflavík, Hótel Borgarnes, Hótel
Stykkishólmur, Hótel ísafjörður,
Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum, Hótel
Bláfell, Breiðdalsvík, Hótel Höfn,
Eddu Hótel, Klaustri, Hótel Selfoss,
Eddu Hótel, Flúðum, Hótel Bræðra-
borg, Vestmannaeyjum, Hótel Nes-
búð, Nesjavöllum, Hótel Örk, Hvera-
gerði og Hótel Norðurland, Akur-
eyri.
Aðilar að samstarfmu eru: Al-
þýðusamband íslands, Bandalag há-
skólamanna, BSRB, Farmanna- og
fiskimannasamband íslands, Sam-
band ísl. bankamanna, Félag ísl.
hjúkrunarfræðingar, Blaðamanna-
félag íslands, Kennarasamband ís-
lands, Vélstjórafélag íslands, Stétt-
arfélag tæknifræðinga, Stéttarfélag
verkfræðinga, Félag bókagerða-
manna, Vélstjórasamband íslands,
Prestafélag íslands, Félag ísl. lyfja-
fræðinga, Landssamband aldraðra
og Samvinnuferðir Landsýn. Allar
nánari upplýsingar fást hjá ofan-
greindum þjónustuaðilum og stétt-
arfélögum.
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996
II
|
Lesta- og strætisvagnastarfs-
menn í Frakklandi hafa boðað
til skæruverkfalla og hafa sam-
göngur af þeim sökum truflast
nokkuð í haust. Næsta boðaða
verkfall er 17. október en þá
munu lestarstarfsmenn um
gjörvallt Frakkland leggja nið-
ur vinnu.
Ný hraðlest
I siðasta mánuði var tekin í
notkun ný hraðlest á leiðinni
Ítalía- Frakkland. Lestin mun
stytta leiðina milli Turin á
Norður-Ítalíu og Parísar um 85
mínútur auk þess sem ferðin
milli MOanó og Parísar styttist
um 1 klukkustund eða niður í 6
tíma og 40 mínútur. Lestin er
sameiginlegt átak franskra og
ítalskra stjórnvalda.
Sjóræningjar
Breska sendiráðið í Aþenu
hefur varað við hættulegum
sjóræningum sem stunda sína
skuggalegu iðju í nánd viö eyj-
una Korfu. Aðvörunin kom í
kjölfar morðs á breskum ferða-
manni sem var skotinn þegar
hann reyndi að stöðva rán á
skútu sinni. Ræningjarnir
koma á hraðbátum frá Albaníu
og er ferðamönnum ráðlagt að
leggja bátum sínum í vaktaðar
hafnir. Undirbúningur mun
vera hafinn að stofnun sér-
stakra lögreglusveita bófunum
tO höfuðs.
ValuJet í loftið
Hið ódýra flugfélag ValuJet
hefur aftur hafið starfssemi í
Bandaríkjunum. Allt flug á veg-
um félagsins hefúr legið niðri
frá því 11. maí þegar ein af vél-
um félagsins hrapaði niður í
fenjasvæði í Flórída með þeim
afleiðingum að 110 manns létu
lífið. Samtök flugliða hafa mót-
mælt og munu áfrýja til Flug-
umferðareftirlits Bandaríkj-
anna. Hópurinn lýsir ákvörðun
flugfélagsins sem „hættulegu
fordæmi sem stefni flugöryggi í
hættu.“
Fríhafnir í hættu
Ráðgert er að fríhafnir muni
leggjast af innan ríkja Evrópu-
sambandsins frá og með 1999.
Talið er að það muni hafa í för
með sér 23 punda hækkun að
meðaltali á hvern flugmiða inn-
an ríkja sambandsins eða um
tæplega 2500 krónur. Það er
talið að verslun með tollffjálsan
varning innan Evrópusam-
bandins velti um 4 billjónum
punda á ári og því eru margir
sem eru ósáttir við þessa
ákvörðun. Ferjustjómendur,
flugfélög, framleiðendur og
flugvellir eru að skipuleggja
herferð gegn afnámi fríhafna og
tollffjáls varnings. í raun átti
tOskipunin að vera komin til
framkvæmda fyrir tveimur
árum en var frestað.
Fyrir þá með heimþrá
í Oklahoma City í Bandaríkj-
unum er að flnna steikhús sem
nefnist Cattleman’s Steakhouse
? og er lambasteik þeirra stolt
hússins. En þeir bjóða upp á
fleira því þeir eru einnig með
íslenska hrútspunga á borðum
sem bornir eru fram með
| rækjukokkteO og ídýfú. Þetta
j mun kúrekunum þykja sæl-
gæti.