Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Page 54
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996
Guðrún Jónsdóttir
Guðrún Jónsdóttir geð-
læknir, Stigahlíð 89,
Reykjavik, verður sjötug
á morgun.
Starfsferill
Guðrún fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp
en dvaldi á sumrin á Eyr-
arbakka og Stokkseyri.
Hún lauk stúdentsprófi
frá MR 1946, embættis-
prófi í læknisfræði frá HÍ
1955, öðlaðist almennt
lækningaleyfi 1958 og sér-
fræðileyfi í geðlækning-
um 1976. Hún hefur farið
í námsferðir til Norðurlandanna,
Englands, Þýskalands og Bandaríkj-
anna.
Guðrún var í starfsþjálfun til
lækningaleyfis í Gautaborg og
Reykjavík 1955-58, og starfsþjálfun
til sérfræðileyfis í Bristol í Englandi
1969-70 og á Borgarspítala, Klepps-
spítala, Landspítala og geðdeild
bama á Dalbraut 1970-75.
Guðrún var sérfræðingur í geð-
lækningum á Geðdeild Borgarspital-
ans 1976-96. Þá var hún kennari í líf-
færa- og lífeðlisfræði við Hjúkruna-
rskóla íslands 1958-59 og 1965-69.
Sérfæðiritgerð Guðrúnar fjallar um
sjálfsmorð á íslandi 1962-73 en hún
hefur haldið fyrirlestra
um efnið á erlendum
ráðstefnum.
Guðrún var gjaldkeri
Geðlæknafélags Islands
1976-78, sat í Barna-
vemdarráði íslands
1974-82 og hefur ritað og
rætt í fjölmiðlum um
kristna trú og geðheilsu
en Biblíulestur og upp-
eldismál em hennar að-
aláhugamál.
Fjölskylda
Guðrún giftist 19.8.
1949 Páli Sigurðssyni, f.
9.11. 1925, lækni og fyrrv. ráðuneyt-
isstjóra. Hemn er sonur Sigurðar
Jónssonar sjómanns og Ingibjargar
Pálsdóttur húsmóður.
Börn Guðrúnar og Páls eru Jón-
ína, f. 14.12. 1949, skólatannlæknir í
Reykjavík, gift Magnúsi Guðmunds-
syni giktsjúkdómalækni og eru börn
þeirra Guðrún Lilja stúdent og Atli
PáU nemi; Ingibjörg, f. 14.12.1949, yf-
irlyfjafræðingur í Reykjavík, gift
Helga Þórhallssyni, efnaverkfræð-
ingi og framleiðslustjóra á Gmnd-
artanga, og em synir þeirra Páll eðl-
isverkfræðingur og Þórhallur nemi;
Dögg, f. 2.8. 1956, hrl. í Reykjavík,
gift Ólafi ísleifssyni, hagfræðingi og
framkvæmdastjóra alþjóðasviðs
Seðlabanka íslands, og er sonur
þeirra Páll Ágúst nemi; Sigurður
Páll, f. 15.11.1960, geðlæknir við geð-
deild Ríkisspítalana, kvæntur Ást-
hildi S. Þorsteinsdóttur leikskóla-
kennara og eru böm þeirra Guðrún
Ágústa nemi, Sólrún Dögg og Páll
Steinar; Jón Rúnar, f. 15.11. 1960,
hdl. hjá Vinnumálasambandinu.
Bróðir Guðrúnar var Jón Atli, f.
13.6. 1924, d. 19.3. 1975, vélstjóri og
fyrsti umsjónarmaður Borgarspítal-
ans.
Foreldrar Guðrúnar vom Jón Jú-
níusson, f. 20.11. 1895, d. 17.1. 1967,
stýrimaður, og Jónína Jónsdóttir, f.
6.7. 1900, d. 3.10. 1983, húsmóðir.
Ætt
Jón var sonur Júníusar, b. í
Syðra-Seli í Stokkseyrarhreppi,
Pálssonar, hreppstjóra þar, Jónsson-
ar, b. á Syðsta-Kekki, Sturlaugsson-
ar, b. á Eystri-Rauðarhóli, Jónsson-
ar, b. á Grjótlæk, Bergssonar, ætt-
fóður Bergsættarinnar Sturlaugs-
sonar.
Móðir Jóns var Sigríður Jónsdótt-
ir, formanns í Grímsfjósum við
Stokkseyri, Adolfssonar, hrepp-
stjóra í Steinsholti á Eyrarbakka,
Petersen.
Jónína var systir Ragnars í
Smára. Jónína var dóttir Jóns,
hreppstjóra í Mundakoti, Einarsson-
ar, b. á Heiði á Síðu, Bjamasonar, b.
á Fossi, Einarssonar, b. á Fossi,
Nikulássonar.
Móðir Jóns í Mundakoti var
Ragnhildur, systir Guðlaugar,
ömmu Ástu, ömmu Davíðs forsætis-
ráðherra. Ragnhildur var dóttir
Jóns, b. í Heiðarseli, Jónssonar.
Móðir Jónínu var Guðrún Jóhanns-
dóttir, b., formanns og verslunar-
manns í Mundakoti, bróður Guð-
mundar, afa Guðna Jónssonar pró-
fessors. Jóhann var sonur Þorkels,
b. í Mundakoti, bróður Hannesar,
langafa Sigurjóns Ólafssonar mynd-
höggvara. Þorkell var sonur Einars,
spítalahaldara í Kaldaðarnesi, bróð-
ur Bjarna, afa Bjama Sæmundsson-
ar fiskifræðings. Einar var sonur
Hannesar, spítalahaldara og lrm. í
Kaldaðarnesi, ættföður Kaldaðar-
nesættarinnar, bróður Ólafs, langafa
Sigurðar, afa Sigurgeirs biskups,
fóður Péturs biskups.
Móðir Jóhanns í Mundakoti var
Guðrún Magnúsdóttir, formanns í
Mundakoti, Arasonar, b. í Neista-
koti, bróður Stulaugs á Eystri-Rauð-
árhóli. Móðir Guðrúnar var Elín
Símonardóttir, smiðs og formanns á
Gamla-Hrauni, Þorkelssonar.
Guörún Jónsdóttir.
Ágúst Eiríksson
Ágúst Eiríksson, bóndi og garð-
yrkjumaður, Löngumýri í Skeiða-
hreppi í Árnessýslu, verður áttræð-
ur á mánudaginn.
Starfsferill
Ágúst fæddist á Löngumýri á
Skeiðum og ólst þar upp. Hann
stundaði nám í Reykholti í Borgar-
firði og lauk síðan prófum frá Garð-
yrkjuskóla ríkisins.
Ágúst stundaði vörubílaakstur
um skeið en hefur verið bóndi og
garðyrkjumaður frá 1946.
Ágúst tók virkan þátt í starfi
Sjálfstæðisflokksins um árabil og
sat m.a. íjóram sinnum á landsfund-
um flokksins.
Fjölskylda
Ágúst kvæntist 21.12. 1946 Emmu
K. Guðnadóttur, f. 8.3.1922, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Guðna Þorsteins-
sonar múrarameistara og Þorbjarg-
ar Einarsdóttur frá Reyðarfirði.
Böm Ágústar og
Emmu eru Guðni Þór
(kjörsonur) f. 19.4. 1944,
vélvirkjameistari í Þor-
lákshöfn, kvæntur Jónu
Sigurðardóttur og eiga
þau þrjú börn og flmm
barnaböm; Ragnheiður f.
10.6. 1947, fulltrúi og hús-
móöir á Selfossi, gift
Friðriki Friðrikssyni og
eiga þau þrjú böm og
þrjú bamabörn; Eiríkur
f. 3.9. 1948, verkstjóri,
kvæntur Erlu Gunnars-
dóttur og eiga þau þrjú
böm auk þess sem Eiríkur á son frá
fyrra hjónabandi og eitt bamabarn;
Magnús Ágúst f. 23.4.1950, ylræktar-
ráðunautur í Hveragerði, var
kvæntur Svövu Eggertsdóttur en
þau skildu og eiga þau þrjú böm;
Kristin f. 16.4. 1951, húsmóðir og
bókavörður á Stokkseyri, gift Stef-
áni Mugg Jónssyni og eiga þau fjög-
ur böm og eitt bama-
bam; Móeiður, f. 8.6.
1953, húsmóðir á
Stokkseyri, gift Eggert
S. Guðlaugssyni og eiga
þau þrjú börn og tvö
barnabörn; Kjartan
Halldór, f. 23.10. 1955,
framhaldsskólakennari,
oddviti og bóndi á
Löngumýri.
Fyrir hjónaband
eignaðist Ágúst einn
son: Albert, f. 24.4. 1942,
vélstjóra á Seltjamar-
nesi, kvæntan Jóhönnu
B. Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú
böm og tvö bamaböm.
Systkini Ágústs: Elín f. 29.10.1917,
d. 6.9. 1995, húsmóðir á Votumýri á
Skeiðum; Þorsteinn f. 13.4. 1920, d.
1.10. 1978, yfirkennari í Reykjavík;
Sigurður f. 16.6. 1926, d. 24.11. 1981,
vélamaður hjá Vegagerð ríkisins;
Ingigerður f. 14.2. 1928, húsfreyja á
Skipum í Stokkseyrarhreppi. Upp-
eldisbróðir Ágústs er Baldvin Áma-
son f. 17.6. 1939.
Foreldrar Ágústar voru Eiríkur
Þorsteinsson, f. 6.10. 1886, d. 25.7.
1979, búfræðingur og bóndi á Löngu-
mýri, og Ragnheiður Ágústsdóttir, f.
9.3. 1889 d. 26.2. 1967, húsfreyja.
Ætt
Eiríkur var sonur Þorsteins Þor-
steinssonar, bónda á Reykjum, og
Ingigerðar Eiríkssdóttur Eiríksson-
ar Vigfússonar, ættfoður Reykjaætt-
ar.
Ragnheiður var dóttir Ágústs
Helgasonar, bónda og alþm. í Birt-
ingarholti, og k.h., Móeiðar Skúla-
dóttur Thorarensen, læknis á Mó-
eiðarhvoli.
Ágúst verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Ágúst Eiríksson.
Reynir Þorgrímsson
Reynir Þorgrímsson fram-
kvæmdastjóri, Þinghólsbraut 52,
Kópavogi, verður sextugur á mánu-
daginn.
Starfsferill
Reynir fæddist í Reykjavík en ólst
upp á Siglufirði og sótti unglinga-
skóla á Siglufirði og í Reykholti.
Hann stundaði nám við Samvinnu-
skólann 1953-54 og var síðan eitt ár
í viðskiptaskóla í Englandi.
Reynir hefur oftast verið sjálf-
stæður atvinnurekandj. Hann stofn-
aði Hagkaup með Pálma Jónssyni,
stofnaði, ásamt Pálma, sokkabuxna-
verksmiðjuna Gleym mér ei á Sauð-
árkróki og var þar framkvæmda-
stjóri, stofnaði bUasöluna BUakaup
og rak hana í eUefu ár ásamt öðrum
fyrirtækjum. Þá stofnaði hann og
hefur rekið Fyrirtækjasöluna i Suð-
urveri í tæp tíu ár.
Reynir var félagi í Rotaryklúbb-
num á Sauðárkróki, stofnaði JC fé-
lag á Sauðárkróki og Golffélag þar,
ásamt öðrum, var landsforseti JC á
íslandi 1973 og er þar heiðurfélagi
og senator, stofnandi Lionsklúbbs-
ins Víðars i Reykjavík og formaður
1985 gegndi þar ýmsum trúnaðar-
störfum, auk þess sem hann er starf-
andi í öðrum félögum. Hann hefur
samið bæklinga og skrifað ótal
greinar í blöð og tímarit.
Fjölskylda
Reynir kvæntist 8.2. 1964 Rósu
Guðbjörgu Gísladóttur, f. 18.5. 1941,
húsmóður. Foreldrar hennar voru
Gísli Eylert Eðvaldsson og Hulda
Einarsdóttir sem bæði
era látin.
Börn Reynis og Rósu
eru Gísli Þór Reynisson,
f. 21.6. 1965, dr. í við-
skiptahagfræði og starf-
andi meðeigandi í stóru
ijármögnunarfyrirtæki í
Helsinki, í sambúð með
Önnu Margréti Kristins-
dóttur og er dóttir Gísla
Anna Fríða, f. 9.5. 1990,
en sonur Gísla og Önnu
er Benjamín Ágúst, f.
11.1. 1993, og sonur
Önnu, Gabríel Þór
Bjarnason, f. 10.10. 1992;
Einar Örn, f. 19.11 1968, verslunar-
maður, og á hann einn son, Reyni
Örn, f. 9.3.1992; Ingibjörg Margrét, f.
19.5.1971, snyrtifræðingur, en sonur
hennar er Viktor, f. 9.8.
1992; Ragnar Már, f. 1.2.
1985.
Bróðir Reynis er Við-
ir Páll, f. 2.3. 1941,
kaupmaður í Tösku- og
hanskabúðinni við
Skólavörðustíg í
Reykjavík, kvæntur Jó-
hönnu Haraldsdóttur
og eiga þau íjögur börn.
Foreldrar Reynis
voru Þorgrímur Brynj-
ólfsson, f. 15.2. 1908, d.
27.12. 1994, kaupmaður á
Siglufirði og síðan í
Reykjavík, og Ingibjörg
Jónsdóttir, f. 19.12.1915, kaupkona.
Reynir er á Flórída um þessar
mundir.
Reynir Þorgrímsson.
1 Til hamingju
i|j
með afmælið
! 5. september
i - ■
90 ára
Vigfúsina Bjamardóttir
Eyrargötu, Garðbæ 1,
Eyrarbakka.
Hrefna Ásgeirsdóttir,
Háaleitisbraut 44, Reykjavík.
85 ára
■
Guðbjörg Karlsdóttir
Barónsstíg 24, Reykjavík.
75 ára
Páll Magnússon
Lönguhlíð 27, Reykjavík.
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Skálabrekku 19c, Húsavík.
70 ára___________________
SS Hjalti O. Jónsson
Heiðargerði 10, Reykjavík.
Valborg Jónsdóttir,
Mýrargötu 2, Neskaupstað.
Einar B. Guðmundsson
Rauðhömrum 10, Reykjavík.
Þorleifur Vagnsson
Kleppsvegi 102, Reykjavik.
60 ára
Rúnar Brynjólfsson
Krosseyrarvegi 5, Hafnarfirði.
Þórdís Tryggvadóttir
Byggðavegi 94, Akureyri.
Ingrid Lovisa Brandt
Bæjarholti 9, Hafnarfirði.
Guðmundur B. Aðalsteinsson
Miðvangi 91, Haínarfirði.
50 ára
Stefanía Sveina
Sigurjónsdóttir
Melgötu 1, Grenivík.
Guðlaug Helga Herbertsdóttir
Brekkugötu 24, Hafnarfirði.
Bragi Kristinsson
Vesturási 7, Reykjavík.
Hlynur Þórðarson
Laufrima 89, Reykjavík.
Tómas J. Brandsson
Ormsstöðum, Selfossi.
Hrönn Haraldsdóttir
Vesturbergi 80, Reykjavík.
Dagrún Bjömsdóttir
Hamrabergi 42, Reykjavík.
Karl Jóhann Lilliendahl
Laufrima 22, Reykjavík.
Baldur Hannesson
Dugguvogi 6, Reykjavík.
40 ára
Olga Gunnarsdóttir
Löngumýri 28, Garðabæ.
Þorsteinn Jón Óskarsson
Melabrauti 19, Seltjamarnesi.
Guðrún Gerða
Sigurþórsdóttir
Flúðaseli 16, Reykjavík.
Egilína Sigríður
Guðgeirsdóttir
Furubyggð 40, Mosfellsbæ.
Kristján Guðmundsson
Sunnuflöt 9, Garðabæ.
Kristján Ottó Hreiðarsson
Smyrlahrauni 45, Hafnarfirði.
Hildur Bryndís
Aðalgeirsdóttir
Álftahólum 6, Reykjavík.
Sigurrós M. Steingrímsdóttir
Framnesvegi 29, Reykjavík.
oW milli himin,
...—■|ii i, 'ío.
V.
Smáauglýsingar
EE3
550 5000