Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1996, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996 JD"V í fréttir '* * ★ Auknar sértekjur menningarstofnana ríkisins: Forstöðumönnum ber að sýna hugkvæmni - segir Björn Bjarnason menntamálaráðherra „Almennt tel ég aö það beri að haga rekstri ríkisstofnana þannig að það sé reynt að afla eins mik- illa sértekna og kostur er. Þar ber forstöðumönnum að sýna ákveðna hugkvæmni og nýta sér það til að byggja upp stofnanim- ar. Það á ekki aö verða til þess að dregið verði úr ríkisframlögum. Ef menn leggja sig fram um það að afla sértekna innan stofnan- anna þá verður það til þess að gera þær að ýmsu leyti áhuga- verðar í augum almennings,“ sagði Björn Bjamason mennta- málaráðherra í samtali við DV. Eins og kom fram í DV í gær era uppi efasemdir hjá sumum for- stöðumönnum menningarstofn- ana að þeim takist að afla auk- inna sértekna eins og krafa er gerð um í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Þór Magnússon þjóðminjavörð- ur sagði í DV í gær að hann teldi óraunhæft að hækka aðgangseyri að safninu, það myndi hrekja fólk frá. Um þetta sagði Bjöm: „Þá verða menn bara að setja upp sýningar sem menn hafa áhuga á að sjá. Þetta er auðvitað alltaf matsatriði. Aðgangseyrir var tekinn upp í Þjóðminjasafn- inu fyrir nokkrum ámm og það hefur styrkt þaö. Þarna hafa menn tækifæri til tekjuöflunar sem þeir verða að reyna að nýta.“ Bjöm sagði að hann heföi fund- að með forstööumönnum safna og stofnana á vegum ríkisins þar Átta kálfar á fjöll: Fundust þegar leit- að var úr flugvél á Tungusels- heiði Á bryggjunni í Ólafsvík mátti í síöustu viku sjá torkennilega sjávarlífveru. Þetta var eins konar sambland af ormi og skeljum. Furðudýriö vakti óskipta athygli þeirra sem leiö áttu um bryggjuna. Félagarnir Viðar Þór Ríkharösson og Birgír Michael Þétursson voru búnir aö grandskoöa fyrirbæriö. Þeir segja aö þaö hafi veriö dragnótabáturinn Svein- björn Jakobsson SH sem veiddi þetta út af Ólafsvík og Hafrannsóknastofnun segi fyrirbæriö eiga uppruna sinn suö- ur í höfum. DV-mynd Pjetur ÖxarQarðarheiöi: Rjúpnaskyttur eins og hálfvitar á heiðinni - elta rjúpurnar uppi á bílum utan vegarins DV, Akuieyri: „Kálfamir átta hurfu seint í ágúst. Til þeirra sást á Tunguselsheiði þegar menn vom í göngum um miöjan sept- ember og svo sáum við til þeirra þegar við leituðum þeirra í flugvél í dag,“ sagði Marinó Jóhannsson, bóndi í Tunguseli í Þistilfiröi, er DV ræddi við hann í gærkvöldi. Kálfamir eru frá bænum Hellulandi í Skeggjastaða- hreppi í Bakkaflrði. Fjórir þeirra em eins og hálfs árs gamlir en hinir yngri. Einn þeirra eldri er svo styggur að hann náðist aldrei í hús síöasta vetur og var gefið úti. Þegar þeirra var leitað í gær var farið á flugvél sem fengin var frá Eg- ilsstöðum og leitað á Tungusels- heiði, í Kverkatungu og á Mið- fjarðarheiði og fundust þeir á eyri í Miöfjarðará um 25 km frá byggð. Þá sáu leitarmenn í gær einnig 24 kindur sem ekki skil- uðu sér til byggða í göngum í haust. Að sögn Marinós er fyrirhug- að að gera út leiðangur manna í dag til að freista þess að ná kálfunum til byggða. „Þetta verður erfitt verk og getur þurft tU þess nokkum mann- skap. Kálfamir em þrjóskir og þolnir að hlaupa. En það þarf að hraða því að koma þeim tU byggða því það getur farið að snjóa þá og þegar og þá kemur upp alvarlegt ástand,“ segir Marinó. -gk DV, Akureyri: „Menn eru eins og hálfvitar um aUa heiðina, akandi utan veg- ar og elta þannig rjúpurnar uppi,“ segir Bjöm Víkingur Bjömsson, bóndi í SandfeUshaga í Öxarfirði, en mikið mun hafa verið um það að undanfomu að rjúpnaskyttur hafi ekið utan veg- ar á heiðinni og valdið skemmd- um á gróðri. GeysUeg veiði mun hafa verið á heiðinni að undan- fömu, hvort sem það er vegna þessarar veiðiaðferðar eða ann- ars og dæmi um að menn hafi verið aö fá um 100 fugla á dag. „Það er varla nokkurt svæði á heiðinni sem hefur sloppið. Heið- in er þannig að það er frekar auð- velt að komast um hana akandi og slóðarnir eftir þessa menn em um aUa heiðina. Sem dæmi hafa orðið mjög miklar gróður- skemmdir á ÞverfeUi en annars er þetta aUs staðar,“ segir Bjöm Víkingur. Hann segist ætla að kæra þetta athæfi tU yfirvalda. „í kaupsamn- ingi er skýrt tekið fram að ég sé eigandi að landinu en samt virð- ist sem ég geti ekki bannað mönnum að fara þama tU veiða. En ég ætla ekki að sitja þegjandi og horfa á menn fara svona með landið,“ sagði Bjöm Víkingur. Jóhann Þórarinsson, lögreglu- maður á Þórshöfn, segir það skýrt í lögum að veiðiskapur af þessu tagi sé óheimiU. „Það hefur verið kvartað tU lögreglu vegna þess að menn stunda þennan veiðiskap á bifreiðum um aUa Öxaríjarðarheiði og það er vilji yfirvalda að stemma stigu við þessu, enda verið að brjóta um- ferðarlög, náttúravemdarlög og veiðUög með þessu athæfi,“ segir Jóhann. -gk Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 904 1600. 39,90 kr. minútan Ji 1 N»l 2 II FÖLKSINS 904 1600 Á að leggja Reykjavíkurflugvöll niður ? sem farið veu- yfir tiUögur ráðu- neytisins áður en þær litu dags- ins í Ijós í frumvarpinu. „Það er í samræmi við stefhu ríkisstjómarinnar að menn afli sértekna og komi þannig tU móts við kröfur um haUalaus fjárlög,“ sagöi Bjöm. -bjb stuttar fréttir Björn á bókamessu Björn Bjarnason mennta- málaráðherra tekur þátt í paU- borðsumræðum á bókamess- unni í Gautaborg í Svíþjóð í dag ásamt nokkrum norræn- um kollegum sínum. Frá Sví- þjóð fer Bjöm tU Búdapest í Ungverjalandi á fund Evrópu- ií ráðhen-a um kvikmyndamál- efhi. Verðlækkun á íbuðum Frá ársbyrjun 1994 hefur raunverð íbúða á höfuöborgar- svæðinu lækkað um 6% á hvem fermetra. Þjóðhagsstofti- un telur verðið hækka á næst- unni. 10 milljarða verömæti Að mati Þjóðhagsstofnunar er samanlagt útflutningsverð- mæti af veiðum utan íslands- ;i miða tæpir 10 mUljarðar króna á þessu ári. Það gerir um 10,5% af verðmæti allra sjávarafurð- anna. Meira byggt l Reiknað er með fjölgun i íbúðabygginga um 2% á þessu ári og 5% á þvi næsta. Sam- kvæmt fréttabréfi Samtaka iðnaðarins verða um 1.430 íbúðir byggðar á þessu ári og 1.500 árið 1997. Flugleióir auka hlutafó Stjóm Flugleiða samþykkti á fundi sínum í gær að nýta s heimUd aðalfundar félagsins frá því i vor til að auka hlutafé | flugfélagsins um sem nemur 250 milljónum króna á nafn- virði. Ef miðað er við að aUt viðbótarfé seljist mun það skUa Flugleiðum að minnsta kosti 700 mUljónum króna í nýju eig- in fé. Jafnréttis- viðurkenning Sparisjóður Hafnarfjarðar | fékk jafnréttisviðurkenningu Hafharfiarðabæjar sem veitt var í fyrsta sinn. Viðurkenn- ingin var afhent í hófi sem bæj- arstjóm Hafnarfjaröar hélt í Hafnarborg sl. fimmtudag. Norræna frímerkjasýningin Norræna frímerkjasýningin I Nordia 96 var opnuð á Kjarv- alsstöðum í gær. Um er að ræða umfangsmestu frímerkja- sýningu sem haldin hefur ver- ið hér á landi. Sýningin stend- ur fram á sunnudag og er opin | almenningi. Aðgangur að sýn- ingunni er ókeypis. -bjb/RR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.