Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1996, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996
Kohl til
Indónesíu
Jose Ramos-Horta, handhafi
friöarverðlauna Nóbels í ár, hefur
beðið Helmut Kohl, kanslara
Þýskalands, að beita sér fyrir því
að yfirvöld í Indónesíu dragi her-
lið sitt til baka frá Austur-Tímor.
Kohl kanslari er á leið í þriggja
daga heimsókn til Indónesiu, Fil-
ippseyja og Japan og sagði Ramos-
Horta að heimsóknin gæti stuðlað
að lýðræði í Indónesíu. Hann sagði
að Kohl ætti ekki bara að tala við
ráðamenn í landinu heldur væri
mjög mikilvægt að hann hitti
einnig stjómarandstæðinga. í því
fælust ákveðin skilaboð til
Indónesíu.
Ramos-Horta gagnrýndi Þjóð-
verja harðlega fyrir að selja vopn
til Indónesíu.
„Hvemig geta Þjóðverjar, sem
sjálfir misstu fjölda fólks í seinni
heimsstyrjöldinni, selt alræðisríki
eins og Indónesíu vopn og vitað að
íbúar í Austur-Tímor hafa verið
drepnir með þessum vopnum,"
sagði Ramos Horta.
Bjargað úr Hud-
son-ánni
Sjötíu og þriggja ára ferðamað-
ur frá Liverpool á Englandi komst
heldur betur í hann krappan á
ferðalagi sínu um Manhattan.
Hann stóð í mestu makindum við
ána Hudson og skoðaði útsýnið
þegar gleraugun allt í einu hmkku
af nefinu á honum. Þegar hann
reyndi að grípa þau missti hann
jafnvægið með þeim afleiðingum
; að hann féU í ána.
Hann náði að svamla að göml-
um trjádrumbi og þar mátti hann
dúsa í einar sex klukkustundir
áður en hans varð vart.
Ferðalangurinn var fluttur á
spítala en var útskrifaður stuttu
síðar. Ekki fengust neinar upplýs-
ingar um hvort hann hefði verið
aUan tímann í vatninu eða hvort
hann hefði getað komist upp á trjá-
| dmmbinn. Þegar reynt var að hafa
samband við Bretann á hótelinu,
þar sem hann hafði dvalið, var
; sagt að hann væri farinn.
Enginn venju-
legur api
Prestur ensku þjóðkirkjunnar
| reynir nú af öllum mætti að verja
þá gjörð sína að leyfa minning-
arathöfn um apann BUl í kirkju
I sinni.
Aðstandendur apans segja að
Bill hafi ekki verið neinn venju-
I legur api. Hann hafi setið tU borðs
með fjölskyldunni, átt sitt eigið
sjónvarp og drakkið te eins og
1 hver annar breskur þegn.
Presturinn, Stephen Prior, féllst
á bón eigendanna um að halda
minningarathöfn í kirkju sinni og
þar var farið með bænir og sungn-
ir sálmar, rétt eins og í hverri
annarri jarðarfór. Presturinn
sagði að ekki hefði verið um jarð-
arfór að ræða heldur minningarat-
höfn. Hann sagði að engin kista
hefði verið til staðar og ekkert
dýr. Reuter
Ný ríkisstjórn tekin viö i Noregi:
Jafnvægi ekki raskað
í efnahagsmálum
- segir nýr forsætisráðherra
Thorbjöm Jagland, nýr forsætis-
ráðherra Noregs, tUkynnti skipan
nýrrar stjómar í Noregi í gær. Sjö
nýir ráðherrar taka við embætti.
Terje Roed Larsen, sáttasemjari í
málum Mið-Austurlanda, snýr nú
heim og tekur við nýju ráðuneyti.
Honum er ætlað að sjá um alþjóðleg-
ar áætlanagerðir.
Við embætti dómsmálaráðherra
tekur rithöfundurinn Anne Holt.
Hún hefur aldrei komið nálægt
stjórnmálum en er þekkt í Noregi
fyrir reyfara sína.
Jens Stoltenberg verður fiármála-
ráðherra í hinni nýju stjórn en
hann var áður iðnaðar- og orku-
málaráðherra. Hann tekur við emb-
ættinu af Sigbjöm Johnsen, sem
hefur verið harðlega gagnrýndur af
forystumönnum iðnaðarins og
stjórnarandstöðunni.
Jan Henry T. Olsen víkur úr emb-
ætti sjávarútvegsráðherra og við
tekur Karl Eirik Schuett-Pedersen
eins og spáð hafði verið. Sagt hefur
verið að Olsen hafi viljað losna úr
embætti og komast aftur til síns
heima en hann er frá Tromsö.
Jagland sagði við fréttamenn að
ekki yrði um róttækar breytingar
að ræða í efnahagsmálum. Hann
sagði mögulegt að einhverjar breyt-
ingar yrðu á forgangsröð verkefna
en því jafnvægi sem náð hefur ver-
ið yrði á engan hátt raskað.
Gro Harlem Brundtland, sem
staðið hefur í brúnni í 15 ár, vék úr
embætti forsætisráðherra í gær.
Hún sagði að það eina sem hún
kæmi til með að sakna væm sam-
starfsfélagarnir sem hún hefði unn-
ið svo náið með i mörg ár. „Ég
hugsa að allir sem unnið hafa á
skemmtilegum vinnustað myndu
segja það sama.“
Reuter
Gro Harlem Brundlandt óskar nýjum forsætisráöherra Noregs, Thorbjörn Jagland, til hamingju meö embættið.
Brundtland sagöi aö þaö eina sem hún kæmi til meö aö sakna væru samstarfsfélagarnir. Símamynd Reuter
Hættið þessu framapoti
og farið að vinna
sagði Jeltsín við sína menn
Boris Jeltsín, forseti Rússlands,
skipaði mönnum sínum að hætta
þessu argaþrasi og einbeita sér að því
að vinna aftur traust landsmanna.
„Ég vil minna ykkur á að kjósend-
ur hafa gert upp hug sinn hvað varð-
ar næstu fiögur ár,“ sagði Jeltsín ein-
beittur í fimm mínútna útvarpsá-
varpi sem tekið var upp á heilsuhæl-
inu er hann dvelst á meðan hann bíð-
ur eftir að komast í hjartaaðgerð.
„Það er komið nóg af framapoti,
slagsmálum um vinnu og gagnrýnis-
röddum. Nú er tímabært að hefiast
handa.“
Enn er ekki búið að ákveða
hvenær Jeltsín fer í hjartaaðgerð en
allar líkur eru á að það verði í seinni
hluta nóvembermánaðar. Stuðnings-
menn forsetans hafa takmarkað að-
gang að forsetanum í þeim tilgangi að
leyfa honum að hvílast sem mest fyr-
Kauphallir erlendis:
Olíulækkun hafði
áhrif á hlutabréfin
Hlutabréfavisitölur í helstu kaup-
höllum heims lækkuðu núna á
fimmtudaginn eftir talsverða upp-
sveiflu að undanförnu. Helsta
ástæðan er að olía á heimsmarkaði
lækkaði í verði og hlutabréf í olíu-
fyrirtækjunum lækkuðu um leið.
Þannig fór Dow Jones vísitalan í
New York í fyrsta sinn niður fyrir
6.000 stig í tvær vikur.
Þriggja mánaða verð á kaffi á
heimsmarkaði heldur áfram að
hækka og er komið niður fyrir 1.400
dollara tonnið. Svipaða sögu er að
segja af staðgreiðsluverði á sykri í
London. Tonnið af hráum sykri var
tæpir 270 dollarar um síðustu helgi.
Sterkari birgðastaða bensínkaup-
enda lækkaði heimsmarkaðsverðið
í vikunni eftir hækkun síðustu
vikna. -Reuter
ir aðgerðina.
Jeltsín ræddi fyrirhugaða hjartaað-
gerð við Helmut Kohl, kanslara
Þýskalands, í stuttu símtali í gær.
Ræddu þeir um undirbúning aðgerð-
arinnar. Kohl, sem er einn helsti
stuðningsmaður Jeltsíns á Vesturl-
öndum og persónulegur vinur forset-
ans, óskaði honum góðs gengis í að-
gerðinni og sagðist vona að hann
næði sér fljótt. Reuter
stuttar fréttir
Víðtækara bann
Þjóðverjar íhuga nú að setja
víðtækara bann á innflutning og
neyslu á fyrsta flokks nauta- og
kindakjöti frá Bretlandi og
Frakklandi í þeim tOgangi að
koma í veg fyrir að landsmenn
smitist af kúariðu.
Ástsjúkir greifingjar
Ökumenn í Bretlandi vom í
gær beðnir um að vara sig á
lostafullum greifmgjum sem lík-
legir væru tO að hlaupa í veg
fyrir bOa í ákafri leit sinni að
maka.
Sá sjötti áhrifamesti
Þjóðverjar
segja Helmut
Kohl kanslari
hafa meiri
áhuga á Evr-
ópumálum en
því sem er að
gerast innan-
lands. Þetta
kemur fram í nýrri skoðanakönn-
un. Kohl lendir í sjötta sæti yfir
áhrifamestu menn 20 aldarinnar
í könnuninni.
Farsótt í rénum
Fréttir frá Indlandi herma að
beinbrunasótt, er orðið hefur
yfir 260 manns að bana í höfuð-
borginni, sé nú i rénum.
Vill hitta Castro
Utanríkisráðherra Vatíkans-
ins hélt í gær í heimsókn tO
Kúbu. TOgangur ferðarinnar er
að greiða götu páfans tO að hitta
Fidel Castro og heimsækja eyj-
una.
Rok og rigning
Hvirfilvindurinn LOi fer nú
sem stormsveipur yfir Atlants-
hafið. Búist er við stormi og
rigningu í Evrópu innan fárra
daga.
Veriö þolinmóö
Jacques
Chirac, for-
seti Frakk-
lands, var í
Beirút í Lí-
banon í gær.
Hann bað
ungt fólk um
að sýna þolin-
mæði, vera heima og vinna
hörðum höndum að lýðræði í
landinu.
Aöstoða tútsúmenn
Forsætisráðherra Zaire,
Kengo wa Dondo, sagði að herlið
frá Rúanda væri komið tO aust-
urhluta landsins tO aðstoðar við
uppreisnarmenn af tútsúætt.
Réttarhöld
Réttarhöld yfir andófsmannin-
um Wang Dan hefiast í næstu
viku. Hann er sakaður um að
hafa skipulagt aðgerðir til að
steypa stjórninni í Kína af stóli.
Wang, sem er 26 ára, hefur setið
fiögur ár í fangelsi.
Ekki til Finnlands
TO stóð að
Yasser Ara-
fat, forseti
Palestínu,
kæmi við i
Finnlandi á
leið sinni frá
Noregi tO ír-
lands. Hann hefur nú afboðað
komu sína vegna þess hve þétt
tímatafla hans er.
Sprengjutilræði
Tveir ísraelskir hermenn lét-
ust og fiórir aðrir særðust í
sprengjutOræði Hisbollah-
Stunginn til bana
Tveir Þjóðverjar, 18 og 20 ára,
vom handteknir í gær, grunaðir
um að hafa stungið sýrlenskan
flóttamann tO bana. Flóttamað-
urinn var að reyna að bjarga
tveimur konum úr klóm mann-
Reuter
DV