Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1996, Side 16
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996 DV
viðtal
Vanda Sigurgeirsdóttir. fyrsta konan sem verður þjálfari A-landsliðs kvenna:
Nafn mitt kemur úr ástar
„Það er mjög mikilvægt að leita
að einstaklingum með hæfileika og
hugsunarhátt afreksíþróttafólks.
Stelpumar þurfa að vera tilbúnar til
að æfa mikið og borða rétt. Mitt
meginmarkmið er að finna stelpur
sem era tilbúnar til þess. Við getum
bætt okkur enn meira en við höfum
gert. Þróunin er það hröð í kvenna-
fótboltanum og mörg lönd eru farin
að leggja mikla áherslu á kvenna-
boltann. Þær skipta tugum milljóna
konumar sem spila fótbolta í heim-
inum í dag. Ef við ætlum að hanga
með og dragast ekki aftur úr verð-
um við að fara að vinna markvisst,
skipulega og faglega eins aðrir eru
famir að gera,“ segir nýi landsliðs-
þjálfarinn.
En hver er hún þessi kona sem
hefur þjálfað Islandsmeistara
Breiðabliks í nokkur ár, verið fyrir-
liði A-landsliðsins og verður fyrst
kvenna til að þjálfa A-landsliðið?
Kvennalið Breiðabliks varð íslandsmeistari í knattspyrnu í sumar og var þeim áfanga að sjálfsögðu ákaflega fagnað með blómum og öðru tilheyrandi. Vanda,
sem heldur hér á bikarnum, er hér í fríðum hópi knattspyrnukvenna en hún hefur jafnframt þjálfað liðið. Hún hefur nú tekið að sér að þjálfa A-landslið kvenna.
Eina stelpan
íTindastóli
Vanda byrjaði snemma að leika
sér í fótbolta með krökkunum í
skólanum meðan foreldrar hennar
vora í námi úti í Danmörku og ís-
lenskum vinum en hún byrjaði ekki
að æfa markvisst fyrr en hún var
orðin tíu ára gömul. Eftir heimkom-
una frá Danmörku bjó fjölskyldan
um tíma á Dalvík en þar vora ekki
neinar skipulagðar æfingar og engir
þjálfarar. Krakkarnir mynduöu lítil
félög innan bæjarins og félögin
kepptu svo hvert við annað.
„Þegar ég flutti aftur á Sauðár-
krók tíu ára gömul voru bara strák-
ar í Tindastóli. Ég var eina stelpan,
sem mætti á æfingu og ég held að
þjálfarinn hafi fyrst haldið að ég
væri strákur og þess vegna leyft
mér að vera með. Svo sá hann að ég
gat eitthvað og þá leyfði hann mér
að vera áfram. Ég lék með strákun-
Landsliðsþjálfarinn Vanda Sigurgeirsdóttir er forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Ársels í Reykjavík. Starf henn-
ar er að miklu leyti skrifstofuvinna en þó hefur hún reglulega samband við gömlu stelpurnar sínar. Vanda er þriðja
frá vinstri og með henni eru stelpur sem sækja félagsmiðstöðina reglulega. DV-myndir BG
um í Tindastóli í 5., 4. og 3. flokki
eða þangað til ég varð 16 ára. Þá fór
ég í Menntaskólann á Akureyri og
fór að spila kvennafótbolta í fyrsta
skipti,“ segir hún.
Vanda lék í fyrstu með KA á
Akureyri en spilaði svo með ÍA árin
1983-’87. Samhliða námi lék hún
með félagsliði í Gautaborg í tvö ár
en fljótlega eftir heimkomuna fór
hún að leika með Breiðabliki og hef-
ur verið þar síðan. Vanda hefur
alltaf haft gaman af íþróttum og
stundað frjálsar, sund, skíði, körfu-
bolta og blak. Það gilti það sama um
hana eins og aðra íþróttamenn að
hún gat ekki sinnt öllum þessum
íþróttagreinum til lengdar og því
varð fótboltinn fyrir valinu.
„Ég veit ekki nákvæmlega af
hverju. Mér finnst hann bara
skemmtilegastur," segir hún.
- En skyldi hún hafa verið stráka-
stelpa?
„Mér finnst þetta hallærislegt
orð. Ég er ekki sammála þvi að mað-
ur sé eins og strákur þó að maður
hafi gaman af að leika,“ segir hún.
Vön miklu starfi
Mikill íþróttaáhugi er í tjölskyldu
Vöndu og segist hún alltaf hafa
'fengið góðan stuðning frá henni.
Móðurbræður hennar hafa verið í
íþróttum og móðir hennar sömu-
leiðis þó að ekkert þeirra stundi
íþróttir í dag. Sambýlismaður
Vöndu, Jakob Frímann Þorsteins-
son, starfsmaður Hins hússins, er
ekki keppnismaður í iþróttum en
stundar líkamsþjálfun. Bæði hafa
þau mikinn áhuga á útivera og
vinahópurinn samanstendur eink-
um af útilífsfólki.
Góð blanda af
fræðslu og skemmtun
Vanda er menntaður tómstunda-
fræðingur og stjómar starfseminni í
Árseli. Hún segist vera í fjölbreyttu
starfi þó að það felist að mestu í
skrifstofuvinnu. Hún ber ábyrgð á
starfseminni i húsinu og rekstur
þess, sér um fjármálin, laun og gerð
fiárhagsáætlana. Húsið er opið tólf
tíma á sólarhring alla virka daga,
þar er heilsdagsskóli fyrir 6-9 ára og
starfsemi fyrir 10-12 ára en aðalá-
herslan er á unglingastarfið. Til að
halda sér í tengslum við unglingana
er Vanda með einn stelpuklúbb,
Aromat eða Kryddaðar stelpur.
Stelpumar hittast og spjalla þannig
að úr verður blanda af fræðslu og
skemmtun. Svo hittir Vanda gömlu
stelpumar sínar öðra hvora.
„Ég er náttúralega vön þvi að
vera í fullu starfi og vera þjálfari í
félagsliði. Það er heilmikil vinna
líka en þetta er ekkert mál,“ segir
hún.
- Að lokum: Nafnið Vanda er
sjaldgæft á íslandi þó að margir
þekki það úr bókinni um Pétur pan
og Vöndu. Hvaðan skyldi nafn
Vöndu vera komið?
„Mamma mín sá nafnið í skáld-
sögu þegar hún var 14 ára, ástar-
sögu sem hét Skógardísin eftir Sigge
Stark. Hún var um háa, granna og
dökkhærða stúlku með brún augu,
sem var mjög feimin,“ segir ljós-
hærði landsliðsþjálfarinn Vanda
Sigurgeirsdóttir og kveðst aðeins
vita um eina nöfnu á íslandi þó að
hugsanlega séu þær fleiri. Sú hafi
verið í Hagaskóla í fyrra.
-GHS
Verðum að
vinna markvisst
■ ■
sogu
„Ég lék mér með dúkkur og
dúkkulísur og átti mínar Barbí-
dúkkur. Ég safnaði servíettum og
gerði allt þetta sem stelpur gera.
Síðan var ég lika mjög virk við að
leika mér úti. Á þessum tíma lékum
við okkur mikið úti, voram heilu
klukkutímana úti á róló í alls kyns
leikjum," segir Vanda Sigurgeirs-
dóttir, þjálfari A-landsliðs kvenna í
knattspymu og íslandsmeistari með
Breiðabliki.
Vanda er fædd árið 1965, dóttir
hjónanna Sigurgeirs Angantýsson-
ar, verkstjóra á Sauðárkróki, og
Dóru Þorsteinsdóttur bókavarðar.
Hún fæddist á Sauðárkróki en ólst
upp í Danmörku, Dalvík og á Sauð-
árkróki. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri og fór
svo í nám til Svíþjóðar. Hún starfar
nú sem forstöðumaður félagsmið-
stöðvarinnar Ársels í Reykjavík,
þjálfar og leikur knattspymu með
Breiðabliki og er nýráðinn þjálfari
A-landslið kvenna og 20 ára lands-
liðsins.
Stark
eftir Sigge