Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1996, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1996, Blaðsíða 22
22 írstæð sakamál LAUGARDAGUR 26 OKTOBER 1996 Bókhneigði morðinginn Hinn heimfrægi bandaríski rit- höfundur, Norman Mailer, var ný- búinn að fá í hendur fyrstu eintök- in af bók sinni „The Executioner’s Soi)g“, eða „Söngur böðulsins", um morðingjann Gary Giimore, sem var tekinn af lífi 17. janúar 1977 í ríkisfangelsinu í Utah, þegar hon- um barst hið fyrsta margra óvenju- legra bréfa, sem áttu eftir að vekja heimsathygli. Það var frá samfanga Gilmores, Jack Henry Abbott, sem hafði verið dæmdur fyrir morð. Abbott lýsti lífinu í fangelsinu. ,Ekki!' I þessu fyrsta bréfi sagði Abbott meðal annars: „Maður er nýbúinn að draga fram hníf og hefur hann undir lærinu svo óvinurinn sjái hann ekki. Hann gengur um í klef- anum, brosir, talar og tjáir sig með höndunum. Hann heldur að hann hafi undirtökin og greinir enga hættu. Augu manns hvíla á staðn- um milli annars og þriðja skyrtu- hnapps. Skyndilega hreyfir maður hægri öxlina eldsnöggt, réttir fram handlegginn og umsnýr heiminum. Hnífurinn situr í brjósti hans og maður finnur líf hans ijara út í gegnum handfangið. Síðustu orðin eru: „Ekki!“ Það segja þeir alltaf." Abbott vissi hvað hann var að fjalla um. Skömmu áður hafði hann myrt samfanga í fangelsinu í Utah. Þetta bréf varð það fyrsta af um eitt þúsund sem Jack Henry Abbott skrifaði Norman Mailer á árunum 1977 til 1981. En Abbott, sem var þrjátíu og sjö ára er hér var komið sögu, skrifaði ekki hara um ofbeldi. Árum saman í fangelsi Abbott hafði setið í fangelsi nær samfellt síðan hann var sautján ára, eða í tvo áratugi. Tímann hafði hann notað til að lesa bækur í hund- raðatali, og þær voru yfirleitt ekki af verra taginu, því hann las fyrst og fremst heimbókmenntimar, rit sígildra og frægra rithöfunda. Og í bréfum sín- um vitnaði hann í orð kunnra heim- spekinga, eins og ekk- ert væri eðli- legra. Norman Mailer varð undrandi. Fanginn op- inberaði ekki aðeins miklar gáfur og óvenjulega hæfileika til að skrifa, því bréfin ein- kenndust af miklum styrk og ákafa, rétt eins og svo mörg verk bókmennt- anna. Mailer sýndi bréfin rithöfundun- um Jerzy Kosinski og Jean Malaquais, og háðir voru honum sammála um að Abbott væri maður með óvenjulega og mikla hæfileika. Malaquais var prófessor í bók- menntum og sérfræðingur í verkum danska rithöfundarins Sörens Kirkegaard, og varð nær mállaus af undrun þegar hann komst að því að Abbott hafði lesið allar bækur Kirkegaards og gat rætt um þær af sömu þekkingu og hann gerði í fyr- irlestrum sínum. Þó hafði fanginn aðeins gengið í skóla í þrjú ár sam- tals. Sent til Random House Þegar Abbott var aðeins tíu ára fékk hann á sig orð fyrir að vera ofbeldishneigður og var komið á uppeldishæli. Það sýndi hann mik- ið ofbeldi og var þvi fluttur í venju- legt fangelsi. Oftar en einu sinni var hann látinn laus, en aldrei leið nema stuttur tími þar til hann braut af sér á nýjan leik og var aft- ur settur inn. Þannig gekk það svo til hjá honum frá sautján ára aldri þar til hann varð þrjátiu og sjö ára, og naut hann á þeim árum aðeins frelsis í níu mánuði. Eftir morðið á samfanganum fékk hann svo lífs- tíðardóm. Árið 1980 sýndi Mailer Erroll McDonald, ritstjóra stórútgáfufyr- irtækisins Random House, bréf Abbotts. Var ákveðið að gefa hluta þeirra út í bókarformi. Fyrir orð Mailers tóku nokkrir frægir rithöfundar og aðrir frammámenn i menningarlifi Bandaríkjanna upp hanskann fyrir Abbott. Þeir komu því á framfæri að jafnhæfileikamikill maður og hann ætti ekki að dúsa i fangelsi. Hann bæri því að náða, því hann hefði alla möguleika á því að koma sér vel fyrir í þjóðfélaginu. Látinn laus Norman Mailer. Random House greiddi Abbott eitt hundrað þúsund dali fyrirfram vegna bókarinnar, og var ákveðið að hluti fjárins færi til að greiða lögfræðingum sem tóku að sér að berjast fyrir náðun hans. Þeim tókst það og 5. júní 1981 fékk lífs- tíðarfanginn frelsið. Náðunin var einstök og vakti mikla athygli. En margir v°ru John Henry Abbott. reiðir yfir þvi að hæfileikar Abbötts skyldu vera látnir ráða ferðinni á þennan hátt. Þá höfðu geðlæknar varað við því að hann yrði látinn laus, því hann væri ekki andlega heilhrigður og hversu hæfi- leikamikill sem hann kynni að vera stafaði þjóðfélaginu hætta af hon- um. „Aðeins einn fangi af millj- ón fær svona tækifæri," sagði fangelsi- stjórinn í Utah, Ed Han- son. „Ég vona að Abbott hafi skynsemi til að nýta sér það, en hef þó mínar efa- semdir." Abbott kom úr fangelsi frægur mað- ur, þótt bók hans væri enn ekki komin út. Mailer réð hann til sín sem aðstoðar- mann við rannsóknir og gagnaöflun, og fanginn fyrrverandi sýndi mikinn samstarfsvilja og áhuga. Hann virtist vilja læra sem mest, og var óþreytandi í því að leita upplýsinga í söfnum og bók- söfhum. Þá sótti hann samkvæmi með menntafólkinu, og kom oft á óvart með þekkingu sinni og gáfum. I sjónvarpi Bók Abbotts, „In The Belly of The Beast“, eða „í maga dýrsins", kom út 16. júlí, eða hálfum öðrum mánuði eftir að hann var látinn laus. Hún fékk einróma lof. Abbott var sagður „áhrifamikill nýr handa- rískur rithöfundur". Daginn sem hókin kom út kom hann fram í sjón- varpsþættinum „Good Moming America". Framtíð hans virtist tryggð. Tveimur dögum siðar var hann aðalgesturinn i samkvæmi áhuga- manna um bókmenntir í New York. Það stóð langt fram eftir nóttu, og í hendur gesta barst mikilvægasta gagnrýnin um bók hans, í sunu- dagsblaði The New York Times. Þar sagði að hún væri frábært og snjallt verk. Flestir bandarískir rithöfund- ar hefðu gefið mikið fyrir slík um- mæli um sig í þessu þekkta blaði. Eftir að Abbott hafði verið hylltur fór hann niður í Soho-hveifið á Manhattan ásamt ungum konum sem sótt höfðu veisluna. Var komið við á ýmsum krám. Dregur til tíðinda Klukkan hálfsex um morguninn kom Abbott ásamt fleirum á veit- ingahúsið Bini Bon, sem var í eigu Henrys nokkurs Howard. Tengda- sonur hans, Richard Adan, tuttugu og tveggja ára, sem gerði sér vonir um að verða bæði leikari og leik- ritaskáld, jók við heldur litlar tekj- ur sínar með því að vinna á kránni á „hundavaktinni“. Hinn frægi Jack Henry Abbott fór að rífast við barþjóninn unga því að honum fannst hann ekki sýna sér þá virðingu sem honum bæri eftir að hafa verið hylltur af helstu bók- menntafrömuðum New York borg- ar. í reiði sinni sló Abbott Adan kinnhest. Hann varð gramur út í gestinn og gekk út fyrir með hon- um. 1 dimmu sundi við hliðina á veitingahúsinu dró Abbott upp hnif og rak í brjóstið á unga manninum sem hné þegar niður andvana. Abbott gekk síðan rólega inn aftur og sagði við Susan Roxas, sem var leiðsögukona hans: „Við skulum koma okkur héðan. Ég var að drepa mann.“ vel gefinn. Morðið varð mikið áfall fyrir Norman Mailer og félaga hans. Samviskubitið nagaði þá fyrir að hafa látið blekkjast af sálsjúkum morðingja. Abbott var horfinn, og þótt lög- reglan leitaði hans um öll Banda- ríkin fannst hann ekki í tvo mán- uði. Þá náðist hann loks í Louisi- ana-ríki þar sem hann vann á bor- palli undir fölsku nafni. Norman Mailer var í dómsalnum þegar Jack Henry Abbott var dæmdur þann 2. janúar 1982. Hann fékk lífstíðarfangelsi án möguleika á náðun fyrir morðið á Richard Adan. Eftir að dómurinnn hafði verið kveðinn upp stóð tengdafaðir Adans á fætur og hrópaði: „Þú ættir að drúpa höfði í skömm, Norman Mailer. Það gátu allir séð það í bók þessa morðsjúka dýrs að hann er að springa af innibyrgðu ofbeldi.“ Margar lýsingar Henry Howard hafði rétt fyrir sér. I bók sinni segir Abbott, og fáum dylst að meðvitað eða ómeð- vitað er hann að lýsa sjálfum sér: „Lífstíðarfanginn þroskast aldrei. Hann þekkir hvorki fyrirgefningu né umburðarlyndi og beitir of- beldi til þess að öðlast uppreisn i hvert sinn sem honum finnst lítið úr sér gert.“ Blaðamaður sem fylgst hafði með þessu óvenjulega máli skrifaði: „Abbott er hið fullkomna Frankenstein-skrímsli, til orðið í ; bandaríska fangelsiskerfinu. Líf- inu var síðan blásið í það af bókmenntafrömuðum lands- ins.“ Bók Abbotts var í efsta sæti á metsölulistanum í marga mánuði, en stór hluti af tekjunum rann til þeirra sem Richard Adan lét eftir sig. Abbott á leið í réttarsal eftir handtökuna í Louisiana. Innibyrgt ofbeldi Næsta dag var mál rithöfundar- ins nýfræga orðið að miklu hneyksli. Og gagnrýnendur yfir- valda lágu ekki á skoðunum sínum. Til hvers var að fara eftir furðuleg- um hugdettum hugmyndaríkra og tilfinninganæmra rithöfunda? Það væri brjálsemi að náða morðingja fyrir þær sakir einar að hann væri • Þannig fór um tækifærið sem maðurinn sem hafði setið inni nær öll sín fullorðinsár fékk. Gáfur og hæfileikar fengu þar engu um breytt. í honum blunduðu kenndir sem einungis sérfræðingar í með- ferð sálsjúkra glæpamanna geta greint, en í þessu tilviki réðu skoð- anir þeirra og álit ekki, eins og nær alltaf i svona tilvikum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.