Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1996, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1996, Síða 25
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996 25 Þjóðverjar herja á Frakka Þýska flugfélagið Lufthansa mun heQa innanlandsflug I Frakklandi þann 7. janúar en þá hefjast ferðir milli Bordeaux og Marseilles sex daga vikunnar. Langur labbitúr Það eru meira en 60 ár síðan sú hugmynd kom fram að nýta gamla dráttarbraut sem liggur með fram ánni Thames en aldrei varð úr neinu fyrr en i ár. Nú er búið að búa til úr henni stíg sem nær frá mynni árinnar í Cotswold til Norð- ursjávar. Stígurinn liggur jafnt í gegmun sveitir og borgir á t borð við Oxford, Windsor og London. Stígurinn er gerður að frumkvæði sveitarstjóma, með aðstoð landslagsarkitekta, og er nú hægt að kaup kort af stígn- um ásamt ábendingum um fal- lega staði og veitingahús með fram honum. Reykurinn útlægur I Stærsta leiguflugfélag á Norð- urlöndum, Premiair, hefur til- flug frá Svíþjóð reyklaust. Ákvöröunin kemur í kjölfar beiðna frá ferðaskrifstofum. Frír matur og vín Þeir sem dvelja þrjár nætur á Stafford-hótelinu við St. James’s Place í London fá einn kvöldverð |i með öllu ffían í tilefhi af endur- bótum sem gerðar voru og kost- uðu 11 milljónir dollara. Þó mun varla taka því að gista þar ein- Igöngu fyrir eina fria máltíð enda er hér um að ræða glæsihótel þar sem nóttin kostar sitt. Amnesty óhresst með Tyrkland Amnesty Intemational er ný- Íif búið að gefa út harðorða skýrslu um aukin mannrétt- indabrot í Tyrklandi. Jafnvel þó að samtökin fordæmi ekki ferðalög til landsins sagði tals- maður þeirra „að þessar upp- lýsingar væm fyrir hendi og ætti fólk að íhuga væntanleg ferðalög vandlega og gera siðan I iipp hug sinn“. Kriiger-jjjóðgarðurinn: Afríka ævintýranna Krúger Park er gríðarlega fallegur og setja fílarnir virðulegan og mikilfenglegan svip á umhverfið. Þjóðgarðurinn Krúger Park í norðausturhluta Suður-Afríku er einhver stærstu og mikilfenglegustu heimkynni villtra dýra í víðri ver- öld. Hann er helmingi stærri en Isr- ael og það tekur rúma viku að keyra í gegnum hann frá suðri til norðurs. Þegar komið er í gegnum eitt af mörgum hliðum sem liggja inn í garðinn er öllum afhent þykk bók þar sem sagt er ffá þeim mikla fjölda dýra sem i garðinum eru. Hætturnar liggja víða Malbikaðir vegir liggja um allan garðinn þaðan sem fólk getur notið þess að sjá villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi. Það er harðbannað að fara út úr bílunum og sömuleiðis þykir hættulegt að vera á ferli eftir sólsetur þegar rándýrin fara á stjá að veiða sér í matinn. Rétt áður en blaðamað- ur ferðaðist um garðinn hafði hópur Japana farið út úr bílunum og niður að vatni við sölsetur til að ná góð- um nær- myndum af 1 j ó n u m . Tveir þeirra áttu ekki afturkvæmt og höfðu gárungarnir kaldhæðnis- lega á orði að þar hefðu ljónin fengið austurlensk- an mat - og það í heim- sendingar- þjónustu. Þjónusta við allra hæfi í garðin- um eru nokkrar vel afgirtar búðir sem hjóða upp á hótelgist- ingu, versl- anir, tjald- stæði, veit- ingahús, læknisþjón- ustu og sal- emi. Þær er vaktaðar af vopnuðum vörðum sem þó ráða ekkert við smá- apana sem klifra yfir girðingarnar og stela öllu steini léttara sem þeir, komast í færi við. Sá sem er svo óheppinn að skilja skóna sína eftir fyrir utan tjaldiö sitt fyrir svefninn mun aldrei sjá þá framar. Með reglulegu millibili má sjá vopnaða verði en hlutverk þeirra er ekki að vemda fólkið, þar sem ætl- ast er til að það verndi sig sjálft, heldur dýrin, en garðurinn liggur að landamæmm Mósambík og það- an læðast oft óprúttnir veiðiþjófar í leit að filabeini, ljónshúðum og öðm því sem hugsunarlausir Vestur- landabúar eru reiðubúnir að greiða stórfé fyrir. Enginn gleymir heimsókn í Krúger, það er einfaldlega ekki hægt. -ggá Mótel Venus við Borgarfjarðarbrú: ' Mikið um hjón sem vilja rómantíska helgi - segir Margrát Jónsdóttir, eigandi mótelsins DV, Borgarnesi: „Það er mikið um að hingað komi hjón sem vilja eiga róman- tíska helgi. Þá koma hér fjölskyldur og fólk sem vill hafa það náðugt," segir Margrét Jónsdóttir sem rekur ásamt manni sínum, Guðmundi Hall, Mótel Venus við suðurenda Borgarfj arðarbrúar innar. Margrét segir aðsóknina hafa verið góða og fólk hafi tekið þessari nýjung við þjóðveginn vel. „Við höfum rekið ferðaþjónustu í 14 ár í Nýhöfn. Áður voru 90 pró- sent af gestum okkar útlendingar og 10 af hverjum hundrað íslend- ingar. Eftir að við komum hingað hefur þetta alveg snúist við,“ segir hún. Á Venusi er veitingastaður sem er vinsæll af fólki í nágrenninu. Alls bjóða þau hjónin upp á gisti- rými í 17 herbergjum. Þar af eru 7 herbergi með sérinngangi þar sem fólk getur verið alveg út af fyrir sig. „Við fengum þessa hugmynd fyr- ir mörgum árum þegar við vorum á ferð í Ameríku. Það var svo í apríl að þessi hugmynd varð að veru- leika. Það er ekki hægt að kvarta undan móttökunum og greinilegt að það var þörf fyrir þessa þjón- ustu,“ segir Margrét. -rt Margrét Jónsdóttir fyrir framan Mótel Venus sem hún opnaði fyrr á þessu ári ásamt manni sínum. DV-mynd Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.