Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Blaðsíða 24
~ 40 T MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 Sviðsljós MTTÍmRH DVMJUWHH í Fjörkálfinum í DV á föstudögum TOOTTÖHIHH Töfraprins Hollywood notar alltaf sömu aðferðina: Richard Dreyfuss leikur sér að draugum Richard Dreyfuss lendir held- ur betur í ævintýrum í kvik- mynd sem hann leikur i ein- hvem tima á næstunni, nánar tiltekið ævintýrum með draug- um. Dreyfuss leikur mann sem nýbúinn er að missa eiginkon- una. Dag nokkum fer hann að vilja grafar hennar og hittir þá konu sem einnig er nýbúin að missa maka sinn. Ekki þarf að orðlengja það frekar, þau taka saman. En það sem meira er, draugamir, þ.e. eiginkoan og eiginmaðurinn handan grafar, taka einnig saman og allir era syngjandi sælir og glaðir á eftir. Dreyfuss hefur áður leikið í draugamynd. Sú hét Always, gerð af Steven Spielberg árið 1989. Einhver umdeiidasta myndin í London þessa dagana er Hollywood-myndin Crash, eða Bílslys, eftir leikstjórann David Cronenberg. Myndin fékk stór- verölaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor en engu aö síöur er hún gagn- rýnd hástöfum fyrir kynferöislegt innihald. Hér sést leikkonan Rosanna Arquette í hlutverki sínu í myndinni. Símamynd Reuter mCJflH SPIU144 4UIHH Á Bylgjunni á fimmtiidögum kl. 20 og enciurfliittur á laugardögum kl. 16 Maöurinn meö súkkulaðiaugun, George Clooney. Cindy Crawford, Naomi Campbell, Julianne PhiUips og Courtney Cox. Illar tungur segja að hann sækist eftir því að baða sig í sviðsljósinu með fallega fólkinu en kvarti svo undan því að fá ekki að hafa einka- líf sitt í friði. í nýlegu tímaritsviðtali fullyrðir Clooney hins vegar að hann hafí enga þörf fyrir að vera í sviðsljós- inu. Hann hefur í nokkra mánuði átt vingott við franska lagastúdínu, Céline Balitran. Þessi kúvending kemur ýmsum á óvart og velta menn því fyrir sér hvort einhver raunveruleg breyting hafi orðið á manninum sem á einni nóttu varð töfraprins Hollywood eftir að hafa orðið að láta sér nægja að fá að segja eina og eina setningu í kvik- myndum í tíu ár. George Clooney, sem sló í gegn sem barnalæknirinn 1 sjónvarps- myndaflokknum Bráðavaktinni, hefur aldrei verið í vandræðum með að ná sér í kvenfólk en mönn- um virðist sem hann eigi í vandræð- um með kvenfólkið þegar hann er húinn að ná í það. Samkvæmt tímaritinu National Enquirer notar Clooney alltaf sömu aðferðina þegar hann fer á fjörarn- ar við dömumar. Hann er sagður fara með þær stúlkur sem honum líst vel á á hótel í Beverly Hills. Hann lætm- taka frá sína venjulegu svítu, pantar kampavín, rauðar rós- ir, jarðarber og rjóma. Clooney var eitt sinn kvæntur leikkonunni Talia Balsam. Þau hitt- ust 1984 þegar bæði voru að byija að leika. Það gekk þó á ýmsu í sam- bandinu og Clooney lét sig hverfa. Þau tóku þó saman á ný og gengu í hjónaband 1989 en skildu snemma á þessum áratug. „Ég bar ábyrgð á því að hjónabandið fór út um þúf- ur,“ segir hjartaknúsarinn með súkkulaðiaugun. Hann hefúr lýst því yfir að hann ætli aldrei að kvænast aftur og að hann vilji ekki eignast böm. Clooney var með leikkonunni Kimberly Russel í yfir ár en sagði henni upp í bréfi. Hann kvaðst vilja hitta aðrar konur og lét verða af því. Hann hefur alltaf viljað frægð, lof og athygli. Meðal kvennanna, sem hafa verið orðaðar við Clooney, eru Kelly Preston, Elle Macpherson, Jarðarber og rauðar rósir handa konunum Karl Bretaprins vill Blair í Downingstræti Karl Bretaprins á sér enga ósk heitari en að Tony Blair og Verka- mannaflokkur hans fari með sigur af hólmi i þingkosningunum í Bret- landi sem verða í síðasta lagi eftir rúmt hálft ár. Prinsinn þykist viss um að búseta Blairs í Downing- stræti 10 muni auðvelda sér að ganga að eiga ástkonu sína til margra ára, enga aðra en Camillu Parker Bowles. Karl veit sem er að ekkert þýðir að hugsa um að fá blessun bæði guðs og manna yfir sambandinu við Camillu á meðan John Major og íhaldsflokkm-inn era við völd. Major hefur margoft lýst yfir and- stöðu sinni við slíka ráðagerð. „Karl yrði glaður ef Tony Blair kæmist til valda,“ sagði háttsettur maður innan hirðarinnar við breska æsiblaðið Sunday Mirror. Þegar Karl skildi við Díönu prins- essu töldu þau Camilla að almenn- ingur mundi taka hana í sátt um síðir og að þau gætu jafnvel gengið í hjónaband á þessu ári. Þar skjátl- aðist þeim þó hrapailega þar sem bæði almenningur og ríkisstjómin_ snerast gegn Camillu. 4-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.