Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Page 28
44 MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 Sveiflast Alþýöuflokkurinn til hægri og vinstri? Dingulhreyfingar Alþýðuflokksins „Það má líkja stöðu Alþýðu- flokksins í íslenskum stjómmál- um við dingulhreyfmgar klukk- unnar. Hann slæst til hægri og vinstri með taktfostu millibili.“ Halldór Blöndal samgönguráð- herra, i Alþýðublaðinu. Viðreisnardraumurinn dauður „Það er erfitt fyrir viðreisnar- krata eins og mig að viðurkenna að viðreisnardraumurinn sé dauður en hann er það.“ Sighvatur Björgvinsson alþing- ismaður, í DV. Baráttukonur nútímans „Baráttukonur nútímans eru fallnar í þá gryfju að berjast í stað þess að vinna, æpa í stað þess að tala, barma sér í stað þess að leysa vandann." Friðrik Erlingsson rithöfundur, í Degi-Tímanum. Ummæli Ekki klesst inn í framtíðina „íslensk æska; reyndu að fara ekki klesst inn í framtíðina. Nóg er komið af klöttum. Pabbi og mamma vom algerir klattar." Guðbergur Bergsson rithöf- undur, í DV. Hundm á roði „Friðrik Sophusson hefur staðið eins og hundur á roði um hagsmuni ríka fólksins." Sigurður Lárusson, fyrrUm bóndi, í Degi-Tímanum. Fyrsta röntgen- myndin Að kvöldi 8. nóvember árið 1895 sá þýski eðlisfræðingurinn Wilhelm Conrad Röntgen að blað sem þakið var með flúrljómandi massa tók að ljóma þegar hann beindi að því bakskautsgeislum í vinnustofu sinni. Hann skynjaði að hann hafði uppgötvað geislun af nýju tagi, ósýnilega augum og ffábrugðna þeim bakskautsgeisl- um sem uppgötvast höfðu 1879. Þessi nýja geislun stafaði frá sér X-geislum, eins og Röntgen kall- aði þá, af því hann þekkti ekki eðli þeirra. Röntgen hélt áfram tilraunum sínum. Hinn 22. desember 1895 tók hann fyrstu röntgenmynd- ina. Tók hann mynd af hendi ý eiginkonu sinnar er var með hring á einum fingrinum. 28. desember skýrði hann læknafé- laginu i Wúrzburg frá uppgötv- un sinni. Blessuð veröldin Geislunarfræði Eftir uppgötvun Röntgens voru röntgengeislar einkum not- aðir til að kanna beinbrot, leita uppi aðskotahluti í líkamanum og rannsaka breytingar vegna beinsjúkdóma. Helstu áfangar í byrjun urðu 1896, þegar fyrsta röntgenmyndin af höfði var tek- in, 1918, þegar gerð er fyrsta röntgenrannsókn á maga og heila, 1927, þegar fyrsta heila- rannsóknin er gerð með skugga- efni, og 1928, þegar fyrsta sneið- myndatakan er gerð. Hvassviðri eða stormur Langt suðvestur í hafi er víðáttu- mikil hæð og frá henni dálítill hæð- arhryggur milli íslands og Noregs sem þokast austur. Á Grænlands- sundi er 998 mb. lægð sem hreyfist Veðrið í dag austnorðaustur. Við vesturströnd Grænlands er vaxandi 978 mb. lægð sem hreyfist austur og verður á Grænlandshafi annað kvöld. í dag verður sunnan eða suðvest- an kaldi og rigning og súld um allt land. Vaxandi suðvestanátt síðdegis og hvassviðri eða stormur í kvöld og nótt. Hiti yflrleitt á bilinu 0 til 10 stig. Á höfuðborgarsvæðinu er suð- austan gola eða kaldi og þokusúld eða rigning. Vaxandi suðvestanátt síðdegis og hvassviðri í kvöld og nótt. Hiti 6 til 9 stig. Sólarlag í Reykjavík: 16.33 Sólarupprás á morgun: 09.54 Slðdegisflóð f Reykjavík: 19.44 Árdegisflóð á morgun: 08.06 Veðriö kl. Akureyri Akurnes Bergstaöir Bolungarvík Egilsstaöir Keflavíkurflugv. Kirkjubkl. Raufarhöfn Reykjavík Stórhöföi Helsinki Kaupmannah. Ósló Stokkhólmur Þórshöfn Amsterdam Barcelona Chicago Frankfurt Glasgow Hamborg London Los Angeles Madrid Malaga Mallorca París Róm Valencia New York Nuuk Vín Washington Winnipeg 6 í morgun: súld 2 rigning 0 skúr 3 rigning 2 súld 7 rigning 1 rigning 2 rigning og súld 6 súld 7 rigning 5 rigning á síö. kls. 4 súld á síð. kls. 1 rigning 2 hálfskýjaö 2 léttskýjaö 6 skýjaö 13 alskýjað -3 rigning 10 hálfskýjaö 2 skýjaö 4 léttskýjaö 3 þokumóöa 17 hálfskýjað 8 skýjaö 16 skýjað 11 alskýjaö 9 léttskýjaö 16 snjókoma -1 skýjaö 15 heiöskírt -21 Reynir Ragnarsson, lögregluþjónn í Vík: Fólk kemur mikið til að skoða „Það er allt í rólegheitum núna. Vegagerðin er að vinna við brýmar og tæki eru flutt hingað austur á hennar vegum. Það var þónokkur straumur af ferðafólki um helgina og þá aðallega jeppafólk og nokkrar rútur einnig, enda er æði mikið að sjá, allir þessir jakar og hlaupfar- vegurinn," segir Reynir Ragnars- son, lögregluþjónn í Vík, sem mikið var í fréttum meðan á hlaupinu og stóð og var síðastur til að fara yfír sandinn áður en hlaupið skall á. Reynir sagði að síðasti mánuður hefði verið eftirminnilegur: „Það var ekki aðeins allt í kringum gos- ið og hlaupið heldur hafði ég áður en hlaupiö kom verið í þrjá daga í Skarðsfjöruvita við að stjóma leit- inni að skipverjunum af Jonnu sem fórst og sú leit stendur enn þá.“ Maður dagsins Frá gosi og til hlaups fór Reynir á morgnana til að loka og opna veg- inn yfir sandinn: „Þessu var skipt þannig að ég fór á hverjum morgni í fjóra daga og lögreglan fyrir aust- an gerði þetta svo á móti mér.“ Þegar hlaupið byrjaði var Reynir austan megin við: „Þetta byrjaði eins og hvern annan morgun, ég opnaði vestan megin og ók yfir Reynir Ragnarsson. sandinn til að sjá hvort allt væri í lagi, en það gerði ég hvem morgun meðan á þessu stóð. Mætti ég að venju vatnamælingamönnnunum sem sögðu að aðeins væri að byrja að aukast rennslið í Skeiðará en vom þó ekki með neinar áhyggjur enn sem komið var. Ég opnaði veg- inn austan megin og fór svo í Freys- nesið til að fá mér kaffi og dvaldi þar til um níu og þá vom komnir yfir þrír flutningabílar. Sýslumað- ur hringdi svo í mig rétt fyrir níu og sagði að það væri búið að ákveða að loka strax aftur. Þegar ég kom 1 bílinn heyrði ég í talstöðinni að vatnamælingamennimir voru að segja að flóðið væri hafið. Ég flýtti mér því eins og kostur var og keyrði vestur en ég var hræddastur um að bílar væru á austurleið. Þeg- ar ég kom að brúnni var farið að flæða yfir bakkana og ég gat fylgst með flóðinu vestan megin við mig. Flóðöldur komu yfir veginn af og til og þá gengu gusumar yfir bílinn. Hræddastur var ég um að flóðið væri búið að ná skarðinu sem var búið að rjúfa vestanmegin við brúna. Ef svo hefði verið hefði ég alls ekki komist lengra og þurft að snúa við og þá er aldrei að vita hvað gerst hefði, en sem betur fer náði ég að fara yfir skarðið áður en flóðið náði því, en það munaöi ekki miklu.“ Ragnar sagði að það yrði öragg- lega nokkuð mikið um að ferða- menn héldu áfram að koma um helgar á næshumi til að sjá með eigin augum hvemig umhorfs væri: „Sandurinn er það greiðfær meðan snjóar ekki að þeir sem era á jepp- um geta keyrt upp undir jökul, þar eru jökulöldur og þar er hægt að sjá allan farveginn niður úr sem er stórkostleg sjón.“ -HK Afsláttur af bflum Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingarorði. Valur og Haukar, sem hér sjást leika, verða í sviðsljósinu í kvöld. Bikarkeppnin í handbolta Bikarkeppni Handknattleiks- sambandsins hófst fyrir helgi og í fyrstu hrinunni era 32 lið sem keppa. Fyrsti leikurinn var á laugardaginn en aðalleikjakvöld- ið er i kvöld, en þá eru tíu leikir á dagskrá. Tveir leikir hefjast kl. 18.30. Afturelding B leikur gegn Val í Mosfellsbæ og Víkingur leikur gegn Gróttu í Víkinni. íþróttir Fimm leikir hefjast kl. 20. Haukar og Afturelding leika í Hafnarfirði, í Laugardalshöll leika Ögri og KR, í Keflavík leika heimamenn við ÍR, í Valsheimil- inu leika Valur B og KA B og í Vestmannaeyjum leika ÍBV B og Ármann. Tvefr leikir verða síð- an kl. 20.30. Að Varmá leika HM og FH og í Víkinni leika Víking- ur B og KA. Þess má geta að Völsungur gaf leik sinn við Sel- foss, þannig að Selfyssingar era þegar komnir i sextán liða úrslit. Bridge Danir héldu að þeir hefðu unnið Indónesíu í undanúrslitum Ólymp- iumótsins í bridge með 222 impum gegn 217, í leik sem sýndur var á sýningartöflu, en í ljós komu mistök við impafærslu á sýningartöflu og leikurinn endaði í jafntefli, 217-217. Grípa varð til 8 spila bráðabana og þegar eitt spil var eftir af honum voru Danir með 7 impa forystu. Indónesamir höfðu spilað fjóra spaða á hendur n-s í lokuðum sal og Jens Auken og Dennis Koch þurftu því aðeins að jafna þá tölu til að hafa sigur í leiknum. Auken og Koch höfðu náð glæsilegri alslemmu í síðasta spilinu í leikn- um, áður en til bráðabanans kom, sem tryggði Dönunum bráðabana. Enn var komið að þeim að vera ör- lagavaldarnir í leiknum. Sagnir gengu þannig á sýningartöflunni með Auken og Koch í NS. Austur gjafari og allir á hættu: 4 G9852 * Á943 * DG * 62 4 3 4* KG102 ♦ 106 * ÁDG1073 * ÁK74 ♦ ÁK87542 * K8 Austur Suður Vestur Norður pass 1 -f 2* dobl pass 3 * pass 3 ♦ pass 3 * pass 4 4 pass 4 Grönd pass 5 * pass p/h 5 ♦ pass 64 Auken og Koch hafa ef til vill ver- ið enn með hugann við að alslemm- an í leiknum stuttu áður hafði bjargað Dönum og teygðu sig full- angt í þessu spili. Fimm tígla sögn- in var spuming um trompdrottn- ingu og norður, sem aðeins hafði lofað fjórum spöðum, ákvað að svara þeirri spurningu játandi í krafti fimmta spaðans. Ef hann hefði neitað tilvist drottningarinn- ar, hefðu Danir spilað til úrslita á mótinu. Útspilið var hins vegar laufásinn. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.